Tíminn - 30.07.1966, Side 12

Tíminn - 30.07.1966, Side 12
12 TÍMINN LAUGARDAGUR 30. júlí 19S6 VARUÐÁVEGUM Landssamtökin um Varúð á Vegum vilja beina þeirri áskor un til landsmanna, að vera vel á verði gegn hvers konar hætt um, sem mæta þeim á vegum landsins, jafnt í bæjum sem úti á vegum. Þrátt fyrir mikið og gott á- tak vegamálastjórnarinnar í að bæta vegi og merkja hættulega staði, eru víða illa merktar og ísnerktar hættur. Bæja- og sveitafélög leggja drjúgt af mönkum til bættra samgangna og umferðaað- stæðna, en það vantar oft á tíðum, að öryggi sé þar í fyrir •úmi. Sem dæmi má nefna, að víða í bæjum og á vegum úti eru blind horn, ómerkt eða ekki bú- ið svo að, að gangandi né ak- andí hafi aðstöðu til að fara þar um, án stórhættu. Víða eru illa- eða ómörkúð gatnamót, þar sem ökumenn eða aðrir vegfarendur, geta efcki gert sér fylilega ljóst, hvar þeir eiga að fara. Víða er alger vöntun á gangvegum eða gang- stéttum, gangvegir efcki að- skildir frá akbrautinni. Eða þá að þótt rými sé fyrir gangandi vegfarendur, er ógerlegt að not færa sér það. Víða eru mjög llla eða ekkert upplýstar götur og þá sérstak tega gatnamót, þar sem lýsing ar er mest þörf, og vænta má helzt, að gangandi og ríðandi séu á ferð í vegi fyrir ökutækj- um. Víða eru vegir sveigðir fyrir hæðir og klettanafir svo blinö horn myndast þótt vegurinn sé að öðru leyti greiðfær. Slíka hættu mœtti hæglega minnka með breíkfcun á veginum, merk- ingu, eða með því. að aðsfcilja afebrautina með stikum og merkjum- Þakkarverð er sú fram- kvæmd vegagerðarmanna að aðskilja akbrautir á blindhæð- um en það eru þó mjög víða hættulegar blindhæðir. Hrörlegar og hættulegar brýr eru víða og aðkeyrsla að þeim er ómerkt. Víða þarf að gera varnargirðingar á vegbrúnir við brýr og þar sem hætta er á útafakstri, vegna slæmra skil yrða. Þá eru ekfci síður þörf slíkra ráðstafana, þar sem slysa hætta er stórkostlegri, ef útaf- akstur ætti sér stað, þar sem vegur liggur í giljum og fjalla- hlíðum. Frágangur við vega- og gatna gerð er mjög misjafn,, og er ljóst, að vanfcanta á því sviði má bæta ef vilji er fyrír hendi. Landssamtökin Varúð á veg- um, hafa að markmiði sínu, að vinna gegn umferðarslysum. Samtökin hvetja landsmerm til að veita aðstoð með upplýsing um um ástand gatna, vega, lýs ingu og annað, er þeir telja máli skipta til aukins öryggís i síun heimahéraði og annars staðar. Sérstaklega vilja samtökin beina áskorun þessari til með lima samtakanna, langferða- bílstjóra og annarra, sem marg sinnis fara um vegi og þekkja vel aðstæður og geta gert sér glögga.grein fyrír liættunum. Þeir, sem vildu vera samtök unum hjálplegir um framan- greindar upplýsingar, eru vin samlega beðnir að senda þær bréflega, þar sem viðkomandi ástandi er lýst og í hverju meg inhættan er fólgin. Gott væri ef lauslegur uppdráttur og/eða ljósmynd fylgdi af stöðunum. Heimílisfang samtakanna er: Varúð á vegum, Slysavarnahús- inu, Grandagarði, Reykjavík. Þá væru upplýsingar og við töl símleiðis vel þegnar. Sími samtakanna er: 20360 og 20365. Þá væri ánægjulegt, að þeir sem hefðu fram að bera mál. sem varða umferðaröryggi og varnir gegn slysum heimsæfctu framkvæmdastjóra samtakanna, í húsakynnum þeirra í Slysa- vamahúsinu. F. h. Varúðar á vegum. Sigurður Ágústsson, framkv.stj. J HUGLEIÐING Fr jjinhald af bls. 9 um A/ilið. Umbæturnar gengu í gildi 1. janúar 1952. Árangur þessa starfs sést af eft- irfarandi töflu, en hún sýnir tölu sveitarfélaga (landkommuner) fyr- ir og eftir umbæturnar 1952. Fyrir Eftir umbætur umibætur Undír 1000 íbúar 1212 3 1000—2000 íbúar 592 61 2000—3000 íbúar 221 229 3000—4000 íbúar 98 222 4000—5000 íbúar 60 124 5000—6000 íbúar 31 76 6000—10000 íbúar 46 84 Yfir 10000 íbúar 21 22 Samtals 2281 821 Af töflu þessari sést af sveit- arfélög með færri en 2000 íbúum hefur verið fækkað úr 1804 í 64 Jón Finnsson, Hæstaréttarlögmaður LögfrasSiskrifstofa Sölvhólsgötu 4, Sambandshúsinu 3. hæð Símar 12343 og 23338 sveitarfélög, eða fækkað um 1740. Hins vegar hefur sveitarfélögum með fleiri en 2000 íbúum verið fjölgað úr 477 í 757 sveitarfélög eða um 280 Við endurskoðun þessa varð því heildarfækkun Sveítarfélaganna 1460, þrátt fyrir þessa róttæku breytingu liðu aðeins fá ár þar til að það kom í ljós, að nauðsyn bæri til að taka málið til athugunar á ný og stækka sveitarfélögin enn meira. Hér er ekki rúm til að greina nánar frá þessari þróun, en geta má þess, að með frjálsum samn- ingum var sveitarfélögum (land- kommuner) enn fækkað og voru 767 árið 1964, fækkun frá 1952 því um 54. Gert er ráð fyrir enn meiri fækkun fyrir árslok 1966. Ýmsar leiðir eru vafalaust fyrir hendi til þess að vinna að sam- einingu sveitarfélaganna hér á landi. Það er hlutverk þeirrar nefndar, sem nú hefur verið skip- uð til þess að athuga þetta mál, að ákveða hvaða leiðir velja skuli. Hér á eftir verður minnst á nokkr- ar hugmyndir um starfsaðferðir, sem e.t.v. mætti reyna að ein- hverju leyti. PÚSSNINGAR- SANDUR VIKURPLÖTUR Einangrunarplast Seljum allar gerðir af pússningasandi, heim- fluttan og blásinn inn. Þurrkaðar vikurplötur og einangrunarplast. Sandsalan við Elliðavog sf. Elliðavogi 115, sími 30120. 1. Með hliðsjón af þróun þessara mála á Norðurlöndum virðast pink um tvær leiðir koma til athugun- ar: Önnur leiðin er sú, að fara þess á leit við sýslumenn landsins, að þeir athugi þessi mál, hver í sinni sýslu, og geri síðan tillögur um breytingar í samráði við sýslu- nefndirnar, eftir að hafa rætt mál- ið ýtarlega við hlutaðeigandi sveit- arstjórnir. Þessar tillögur kæmu síðan til frekari athugunar í hinni nýskipuðu nefnd, sem gerði loka- tillögur í málinu til ráðuneytis- ins. Ef lokatillögurnar væru veru- lega breyttar frá tillögum sýslu- manna, þyrfti nefndin að leita um- sagnar hlutaðeigandi sveitar- stjórna og sýslumanna áður en hún skilaði tillögum sínum til ráðu neytisins. Hin leiðin er sú, að nefndin geri bráðabirgðatillögur um samein- ingu sveitarfélaganna í öllu land- inu og sendi þær síðan hlutað- NITTO TRÚLOFUNARHRINGAR Fljót afgreiðsla. Sendum gegn póstkröfu. Guðm. Þorsteinsson, gullsmiður, Bankastræti 12. JAPÖNSKU NITT0 HJÓLBARÐARNIR I flostum stærðum fyrirliggjandi i Tollvörugeymslu. FUÓT AFGREIÐSLA. DRANGAFELL H.F, Skípholti 35 — Sími 30 360 eigandi sveitarstjórnum, sýslu- mönnum og sýslunefndum til um- sagnar. Að fengnum þessum um- sögnum og öðrum nauðsynlegum upplýsingum semdi nefndin loka tillögur, isem sendar yrðu ráðuneyt inu. Hvor leiðin, sem farin yrði, þyrfti að afla margvíslegra upplýs inga áður en nokkur tillaga yrði gerð. Sameining sveitarfélaga verð ur að byggjast á sameiginlegum hagsmunum í atviíinumálum, við- skiptamálum, heilbrigðismálum, menningarmálum, framfærslumál- um o.fl málum. Auk þess verður að taka tillit til landafræðilegra staðhátta. Fyrri leiðin hefur þann kost fram yfir síðarnefndu leiðina, að ætla verður, að öll upplýsingaöfl- un gengi fljótar, þar sem staðhátta kunnugir menn ættu þá frumkvæði að málinu. Hins vegar fylgir sá ókostur þessari leið, að ekki er kunnugt um afstöðu hinna ýmsu sýslumanna til höfuðatriða máls- ins. Sumir þeirra kynnu að vera málinu andvígir í meginefnum og mætti þá naumast vænta jákvæðs árangurs, ef þeir ættu að hafa frumkvæðið. Að vísu er ekki á þessu stigi málsins kunnugt um skoðanir allra nefndarmanna á grundvallar- stefnu þessa máls, en ætla verður að flestir nefndarmenn álíti rétt að athuga vandlega möguleikana á verulegri breytingu frá því, sem nú er. Ef nefndin ætti frumkvæði að tillögum um sameiningu, má gera ráð fyrir því, að málið kæmi til rækilegrar athugunar hvarvetna í landinu. Raunar væri mögulegt að fara báðar þessar leiðir þann- ig, að fyrst væri leitað tillagna samkvæmt fyrrnefndu leiðinni, en síðan tæki nefndin til sinna ráða, ef engar tillögur bærust úr ein- hverjum sýslum. Þeirri spurningu er ósvarað hvort framkvæma eigi sameiningu sveitarfélaganna með valdboði, ef undirtektir sveitarstjórnanna reyn ast meira eða minna neikvæðar í málinu. Raunar hefur áður verið að því vikið, að ólíklegt sé, að löggjafarvaldið hafi jákvæða af- stöðu til málsins, ef sveitarstjórn- armenn leggjast almennt á móti breytingum. Á þessu stigi málsins virðist varhugavert að gera ráð fyr ir sameiningu með valdboði. Varð- andi þær tvær leiðir, sem áður var drepið á, er því ekkert um það sagt, hvað ráðuneytið gæti gert, eftir að því hafa borizt lokatillög- ur frá nefndinni, ef hlutaðeigandi sveitarfélög hafa tjáð sig andvíg sameingingu. 2. Nefnd sú, sem samdi frum- varp til sveitarstjórnarlaga þeirra, sem nú gilda (nr. 58/1961, rit- aði öllum sveitarstjórnum í land- inu bréf og lét fylgja því spurn- ingalista, sem nefndin óskaði, að sveitarstjórnirnar fylltu út með svörum sínum. Meðal annars var spurt um afstöðuna til þess að stækka sveitarfélögin með því að sameina tvö eða fleiri sveitarfé- lög. Þessari spurningu svöruðu 139 sveitarstjórnir eða ca.61%. Þar af svöruðu 100 neitandi, eða ca. 44%, 39 svöruðu játandi eða ca. 17%, 89 sveitarstjórnir svör- uðu ekki eða ca. 39% Þær sveit- arstjórnir, sem svöruðu játandi, svöruðu þó ekki þeirri spurningu, hvaða sveitarfélög þær teldu rétt að sameina. Sú skoðanakönnun, sem nefndin beitti sér fyrir og nú var drepið á, gaf því ekki góða rgpn. f fyrsta lagi var þátttaka sveitarstjórnanna fremur léleg, hvort sem það stafaði af áhuga- leysi eða öðrum ástæðum. í öðru lagi verður að játa, að málefni það, sem hér var að vikið, fékk vægast sagt mjög daufar undir- tektir, svo bráðnauðsynlegt sem það þó var og er. Það virðist því ekki vænlegt að reyna aðra slíka skoðanakönnun nú. Það verður að reyna að leita annarra ráða. 3. Athugandi væri, að kynna málið og ástæður allar vel og rækilega fyrir öllum sveitarstjórn- armönnum. Slík kynning gæti far- ið fram með skrifum í blöðum, flutningi erinda í útvarpi og með fundarhöldum. Ennfremur kæmi til álita að senda öllum sveitar- stjórnum ýtarlega greinargerð um málið og fá svör þeirra við ákveðn- um spurningum um kjarna máls- ins. 4. Hugsanlegt væri e.t.v. fyrir nefndina að stofna til undirnefnda fyrir eina eða fleiri sýslur, þar sem hlutaðeigandi sýslumenn ættu sæti og kanna með þeim hætti hverjir möguleikar væru á sam- komulagi um sameiningu sveitar- félaganna í hinum ýmsu sýslum eða héruðum landsins. Að sjálf- sögðu þyrftu slíkar undirnefndir að halda fundi með hinum ýmsu sveitarstjórnum. 5. Nefndin gæti reynt að stofna til fundarhalda með sveitarstjóm- um þeirra sveitarfélaga, sem hún álítur vel fallin til sameiningar, og leita þar samþykktar á álykt- un um nánari athugun á mögu- leikum fyrir sameiningu. Þá at- hugun væri þá eðlilegt að fram- kvæma með þeim hætti, að komið yrði á fót samstarfsnefnd hlutað- eigandi sveitarstjórna með einum eða tveimur fulltrúum frá hverju sveitarfélagi. Væri ekki óeðlilegt, að stjórnskipaða nefndin leggði slíkri samstarfsnefnd Iið sitt eft- ir megni og m.a. með því að leggja henni til formann. Með svipuðum hætti og hér var lýst náðu Danir þeim mikilsverða árangri, sem þeir náðu með frjálsu samkomulagi sveitarfélaga. Fleiri hugmyndir um starfsað- ferðir eru vafalaust fyrir hendi, en hér verður látið staðar numáð að sinni. VL Þær röksemdir, sem mæla xneð sameiningu sveitarfélaganna í því skyni að efla þau, svo að þau geti betur þjónað þörfum þegna sinna, eiga að miklu leyti einnig við um sýslufélögin. Þau eru lögbundið samband sveitarfélaganna hvert I sinni sýslu. Af eðlilegum ástæðum eru þau fjárhagslega veik, þar eð tekjur þeirra eru aðeins framlög sveitarfélaganna, sem mörg eru mjög vanmegnug vegna fátæktar og fólksfæðar. Framlög sveitarfé- laganna, sýslusjóðsgjöldin, gefa því sýslunum mjög akmarkaða getu til þess að láta að sér kveða í velferðarmálum sýslubúa. Sumir telja að hagkvæmasta lausn þess- ara mála sé fólgin í því, að sam- eina öll sveitarfélög í hverri sýslu í eitt sveitarfélag, og að gera sýslu félagið þannig að sveitarfélagi. Hlutverk þessarar nýju stofnunar yrði þá summan af hlutverki sveit- arfélaganna e.t.v. auðveldari á þennan veg, en sameining með öðrum hætti. Þó virðist vera sá galli á þessari skipan, að hvert sveitarfélag heyrði þá milliliða- laust undir yfirstjórn ráðuneytis- ins, í stað þess, að sýslunefndir fara nú með yfirstjórn hreppsmál- anna, samkvæmt því, sem nánar er lýst í IV. kafla sveitarstjóm- arlaganna. Athugandi er, hvort ekki sé ráðlegt, að styrkja þessa yfirstjóm með því, að sameína fleiri sýslu- og bæjarfélög, og miða þá mörkin t.d. við núverandi kjördæmi £ landinu. lögbundið samband sveitarfélaga á þessum grundvelli ætti að geta eflt þessa stofnun mjög, svo að hún gæti gegnt áhrifameira hlutverki, en sýslufélög gera nú. Hvað sem annars má segja um slíkar hugmyndir virðist augljóst, að úrlausn þessa máls veltur að mestu eða öllu leyti á því, hvern- ig úr kann að rætast þeim til- raunum, sem nú eru að hefjast við að stækka sveitarfélögin. Það er því varla tímabært á þessu stigi málsins að eyða miklum tíma í hugleiðingar um sameiningu 1 sýslufélaganna.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.