Tíminn - 30.07.1966, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 30. júlí 1966
ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR
13
Hvort landiðhreppir heimsmeistara- ]
titilinn, England eða V-Þýzkaland
Úrslitaleikurinn í heimsmeistarakeppninni háður á Wembley í dag.
Þorgeir Lúðvíksson
Bobby Charlton vinn-
ur fyrir England!
„England vinnur, Bobby
Charlton sér um það,“ sagði
Þorgeir Lúðvíksson, markvörð-
ur í handknattleiksliði Fram,
þegar við lögðum spurninguna
fyrir hann. Og Þorgeir bætti
við:
„Án þess að hafa séð liðin,
álít ég þau svipuð að styrk-
leika, jafnvel mögulegt, að
Þjóðverjar séu aðeins sterkari.
En heimavöllurinn hefur mik
ið að segja og hjálpar Englend
ingum. Ég reikna með, að
enska vörnin standi fyrir sínu,
eins og í fyrri leikjum í keppn
inni, og ég er sannfærður um,
að sóknarmennirnir geri mik-
inn usla við þýzkg markið eink,
Charlton. Hvað sem öllu líður,
verður um spennandi uppgjör
að ræða á Wembley, og synd,
að maður skuli ekki gera verið
síaddur þar til að fylgjast með.
— Spá mín er sú, að England
vinni leikinn með 2 mörkum
gegn 1.
Róbert Jónsson
• •
Enska vornm mun
standast eldraunina
„England vinnur“, sagði Ró-
bert Jónsson.hinn kunni ungl-
ingaleiðtogi Vals, þegar hann
hafði heyrt spurninguna.
Róbcrt hélt áfram:
„Það kann að vera, að ósk-
hyggja ráði einhverju um, þeg
ar ég spái enska liðinu sigri,
en mér er þó nær að halda, að
enska vörnin standist eldraun-
ina sem fyrr. Hún hefur fen.g-
ið eitt mark á sig í undan
gengnum leikjum — og það
eitt út af fyrir sig er traust
vekjandi. Þótt Þjóðverjar hafi
sókndjörfu liði á að skipa,
held ég, að Portúgalar, með
sinn „svarta demant", standi
þeim lítt að baki. Mér þykir
því líklegt, að Þjóðverjar tapi
með svipuðum mun og Portú-
galar gegn Englandi. Við meg
um heldur ekki gleyma því, að
framherjar Englands, með
Bobby Charlton í broddi fylk
ingar, eru til alls líklegir, og
kannski ekki sízt til þess að
verða heimsmeistarar! Spá mín
er 2:1 fyrir England.
Alf—Reykjavík.
Augun beinast að London í
dag. Klukkan 2 eftir íslenzk-
um tíma mun svissneski dómar
inn Gottfried Dienst gefa
merki með flautu sinni, og þá
munu England og V-Þýzkaland
hefja þýðingarmestu knatt-
spyrnuorrustu, sem háð hefur
verið síðari ár, orrustuna um
heimsmeistaratitilinn í knatt-
spyrnu.
Hvort landið hreppir heims
meistaratitilinn, England eða
V-Þýzkaland? Þessa spurningu
hefur íþróttasíða Tímans lagt
fyrir 5 kunna áhugamenn um
knattspyrnu, og svara þeir
henni hver sínu lagi. Víst er,
að erfitt er að spá um úrslit
í leiknuim í dag, því að eftir
fyrri leikjum landanna í keppn
inni að dæma, virðast þau mjög
jöfn. Hingað til hafa Englend
ingar jafnan unnið V-Þjóð-
verja. Stóra spurningin er,
hvort þeir bregða út af vanan-
um í dag. En lítum nú á svör
fimmmenninganna.
England
sigrar
Hreiðar Ársælsson, knatt-
spyrnumaður í KR og lands-
dómari, svaraði spurningu okk
ar á eftirfarandi hátt:
— Ég spái því, að England
vinni 3:1. í fyrstu hafði ég
trú á því, að Portúgalar kæm-
ust í úrslit og myndu sigra að
lokum í keppninni. En fyrst
þeir komust ekki lengra en
raun ber vitni, sigra Englend-
ingar. Þeir eru þrautseigir og
eiga að öllum líkindum betri
vörn en Þjóðverjar. Og vissu'-
lega yrði það gaman, ef Eng-
land, þessi mikla íþróttaþjóð,
og fæðingarland nútíma-
knattspyrnu hreppti hinn eftir
sótta heimsmeistaratitil.
Ilcrmann Gunnarsson
Haller og Beckenbau-
er sterkustu vopnin
„Þetta verður jafn leikur",
sagði hinn skæði sóknarmaður
Vals, Hermann Gunnarsson,
þegar við lögðum spurn-
inguna fyrir hann. „Ég hef trú
á því, að Þjóðverjar vinni leik
inn, þótt þeir eigi við ramm
an reip að draga. Það hiýtur
að vera allt annað en gaman
að leika frammi fyrir 100 þús
und áhorfendum, sem flestir
verða-á bandi Englahds.
Ég spái því, að Englendingar
muni ekki ráða við þá Haller
og Beckenbauer, sem báðir
eru sagðir afburða snjallir
leikmenn. Og enska vörnin —
þótt mjög sterk sé — mun
ekki geta haldið aftur hinum
sókndjörfu og „grimmu“ þýzku
framlínumönnum. Þetta verð-
ur fyrsta „styrjöldin", sem
Þýzkaland vinnur gegn Eng
landi í áratugi. Spá mín er 2:1
fyrir Þýzkaland."
ifll
(á
Eggert Jóhannesson
Tel sóknarmenn Þjóð-
verja mun hættulegri
Hreiðar Arsælsson
„Þetta verður harður Icikur“,
sagði Eggert Jóhannesson, hinn
kuiini unglingaleiðtogi Víkings.
„Þarna mætast tvö lið, sem
varla hafa fengið mark á sig
í þessari hörðu keppni til
þcssa. Markverðir beggja lið-
eru frábærir — og með geysi.
sterkar varnir fyrir framan sig.
Styrkur Englendinga er fólk
ið á áhorfendapöllunum, en ég
tel sóknarmenn Þjóðverja það
miklu hættulegri, að ef þeir
láta ekki áhorfendur buga sig
muni þeir sigra með eins
marks mun, annað hvort 3:2,
eða 2:1.
Spennan og ábyrgðin gagn-
vart hinum mörgu áhorfendum
se.m England hefur með sér,
getur orsakað hjá þeim vissa
hræðslu og gert leik þeirra
þvingaðri. Aldrei ,hefur Eng-
land verið svo nálægt hinum
stóra draumi allra knattspyrnu
manna að verða heimsmeistari.
Það er að lokum von mín, að
eingöngu verði leikin góð knatt
spyrna i þessum úrslitaleik —
og leikurinn verði knattspyrnu
íþróttinni upplyfting.