Tíminn - 03.08.1966, Page 1

Tíminn - 03.08.1966, Page 1
BP-bíll með 6-7 tonn af benzíni valt — veginum lokað í 3 tíma HZ—Reykjavík, þriðjudag. í gærdag um þrjúleytið valt BP olíubill skammt frá Þingvöllum, rétt hjá afleggj aranum yfir Lyngdalsheiði. Var bíllinn með 6—7 tonn Framhald á bls. 15. Unglingarnir höfðu mikið af áfengi í Þórsmörkinni Drykkjuskapur unglinga mjög áberandi - Ástand- i* hn nnkknh ckárra en i fyrra, að sögn lögreglu Samkomur annars staðar voru yfirleitt tii sóma FB-HZ-Reykjavík, þriðjudag. Bindindismót voru haldin á þremur stöðum á landinu um verzlunarmannahelgina, í Húsa- fellsskógi, Vaglaskógi og Hallorms staðaskógi. Voru öll þessi mót þeim til hins mesta sóma, sem sóttu þau og stóðu að þeim. Fjölbreytt skemmtiatriði voru á öllum stöð- unum, og veður hið ákjósanleg- asta. Fjölmenni sótti cinnig- til þriggja annarra aðalstaða, Þing- valla, Laugarvatns og í Bjarkar- lund og fór allt þar fram með bezta móti. Nokkuð bar á drykkju, en fáa menn þurfti að taka úr umferð vegna óláta á almanna færi. Bindindismót var haldið í Húsa- fellsskógi um verzlunarmannahelg ina í fögru veðri, sólskini og hita. Að þessu sinni var horfið frá því að hafa mótssvæðið í Selgili, eins og undanfarin ár, en flutt þess í stað niður að nyrðri bakka Kald- ár, rétt við Húsafellsbæinn, og á grundir nokkru ofar í skóginum. Síðdegis á föstudag fór fólk að streyma að. Má gera ráð fyrir, að mótið hafi sótt hátt á 5. þúsund manns, þegar flest var. Á laugardagskvöld var mótið sett Þá flutti sýslumaður Borgfirðinga ræðu. Að því loknu hófst dans í stóru tjaldi á neðra mótssvæðinu, og stóð til kl. 2.30. Hljómsveitin Dát- ar úr Reykjavík lék fyrir dansi bæði kvöldin. Um miðnætti var kveiktur varð- eldur og einnig var flugeldasýn- ing. Á sunnudag var guðsþjónusta, og prédikaði sr. Björn Jónsson í Keflavík. Síðar um daginn voru VERDUR ÞORSMORK LOKAD? Rætt við skógræktarstjóra og sýslumann Rangárvallasýslu GÞE-Reykjavík, þriðjudag. Margir hafa furðað sig á því, hví það sé látið óáreitt, að ungl ingalýður safnist saman um hverja Verzlunarmannahelgi í Þórsmörk, einum fegursta stað Iandsins og hafi þar í frammi alls kyns óspektir og vinni jafnvel spjöll á náttúrunni. Ilafði Tíminn í dag tal af Hákoni Bjarnasyni skógræktar- stjóra og Birni Kr. Björnssyni, sýslumanni Rangárvallasýslu. Kváðust þessir aðilar báðir lengi hafa haft hug á að loka Þórsmörk um þessa helgi, þótt það hefði ckki vcrið gert fram til þessa. Sagði skógræktar- stjóri, að þörf væri á að tak- marka iimferð um þennan fallega stað, en hún hefði auk- izt gífurlega á síðustu árum. — Það verður að gera eitthvað til að bjarga Húsadalnum. Völlurinn þar er orðinn að hreinasta flagi, sagði hann. — Ég er mjög hlynntur þvi, að Þórsmörk sé lokað um Verzlunarmannahelgina, sagði Björn Fr. Björnsson. — En það er segin saga, að ungling arnir safnast saman í hundruða og jafnvel þúsundatali um þessa helgi, og ef Þórsmörk væri þeim lokuð, myndu þau velja sér einhvern annan stað. Einhvers staðar verða ungling- arnir að vera. Ég hef ekki feng ið skýrslu um það, sem gerðist GÞE-Reykjavík, þriðjudag. „Hátíðahöldin" í Þórsmörk um Verzlunarmannahelgina voru með svipuðu sniði og undanfarin ár, að sögn lögreglunnar og annarra kunnugra aðila. Talið er, að um 3.500 manns hafi Iagt þangað leið sína og voru unglingar þar í mikl- um meirihluta. Talsvert bar á ölv- un og óspektum, og tók Iögreglan úr umferð um stundarsakir rúm- Iega 20 manns, eingöngu unglinga, og 60 manns munu verða kallaðir fyrir vegna ósiðsamlegs athæfis. Hjálparsveit skáta hafði mikið lið á staðnum og leituðu þangað 187 manns alls vegna meiri og minni háttar meiðsla. Viðbeinsbrotnaði einn, 2 brákuðust á fæti, og nokkr- ir skárust illilega á gleri, m.a. var kastað flösku í höfuðið á ungri stúlku og hlaut hún af því tals- verðan áverka. Að öðru leyti var aðallega um minniháttar meiðsl að ræða. Axel Kvaran varðstjóri tjáði blaðinu í dag, að hegðun fólksins í Mörkinni hefði verið nokkuð skárri en í fyrra þrátt fyrir allt. Fólk tók að slæðast inn í Mörk- ina þegar á fimmtudag, og þegar lögreglan kom á staðinn síðdegis á föstudag var þar fyrir talsvert slangur af fólki. Gerði lögreglan f'ramnaK- = - ■11 ýms skemmtiatriði á efra móts- svæðinu. Kvöldvaka var svo í fögru rjóðri milli aðalsvæðanna tveggja. Kl. um 10 hófst svo dansinn að nýju, og var dansað til kl. 1.30. Þó var gert danshlé þegar fram fór reiptog milli síðhærðra og stutt hærðra unglinga. Um miðnætti log aði varðeldurinn glatt, söngurinn hljómaði og marglitir flugeldar i lýstu upp húmaðan kvöldhimin- inn. Dagskrárstjóri mótsins var sr. Framhalr! * 2 dðu LEZTÍ ÞÖRS- MÚRK GÞE, Reykjavík, þriðjudag. Aðfaranótt sunnudags fannst 19 ára gamall piltur meðvitundarlaus í Þórs- mörk. Var hann sendur suð ur með þyrlu frá Vamarlið inu eins fljótt og auðið var og fluttur á Landsspítalann. Gerðu læknar þar sér grein fyrir. að hér var um heUa- blóðfall að ræða og sendu piltinn með Loftleiðaflug- vél til Kaupmannahafnar síðdegis á sunnudag, en hann Iézt á leiðinni. Piltur inn hét Jón Guðni Ingólfs- Framhalrl a bls 14 ?

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.