Tíminn - 03.08.1966, Síða 9

Tíminn - 03.08.1966, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 3. ágúst 1966 TÍMINW GÆTNI Á GÖTUM l.josinu eru orðin gangið og bíðiö | skurði og var það annað hvort og sjást þau ekki greinilega. Væri ekki úr vegi að setja öðru visi gler eða hafa sterkara ljós. Einnig mætti setja táknræn merki í stað orðanna, þanníg að litlu bömin, sem ebki eru orðin læs gætu skilið gildi ljósanna. Þetta eru atriði sem okkur fannst mætti bæta úr, en þar með er ekki sagt að þeíta sé álit sérfróðra manna. AÐVÖRUNARMERKI VANTAR. Þegar komið var inn á Hverfis götu blasti við furðuleg sjón. Á homínu við Snorrabraut og Hverf isgötu var tjald yfir einhverjum (J/nJjirdxzjrójW'r. vegna síma- eða rafmagnsstrengs. Hafði uppgreftrinum verið mokað út í götuna og var hvorki aðvörun arskilti né girðing umhverfis. Þrír strákar á reiðhjóli komu hjólandi eftir götunni og þegar þeir komu að hrúgunni urðu þeir að sveigja skyndilega út í götuna og höfðii bifreiðarnar, sem óku samsíða þeim ekert svigrúm til þess að sveigja frá. Það er nánast sagt mildi að efcki hafi orðið slys á þessum stað ennþá. Einnig verða fótgangendur að nota götuna, sem er ein mesta umferðargata borgar innar, fyrir gangveg. Þetta var /Ztzuéí érui£. (rrcen.é. í skólum landsins læra börnin að þekkja á umferðarljós. Þrátt fyrir þann lærdóm fara börnin ekki alltaf eftir þeim, vegna þess að fullorðna fótkið gefur slæmt fordæmi. ekki eina daemið sem við sáum illa frágengna vinnustaði við göturnar í borginni. „GANGSTÉTTIR“ AFLEITAU Það sem okkur fannst furðuleg ast af öllu því sem við sáum, var frágangur gangstétta við nýjar göt ur. Á mörgum þeirra hafði verið steypt brún við gangstéttarnar en gleymst hafði að leggja þær sjálf ar. Það er skiljanlegt, að borgin gleytmi að leggja gangstéttarhell ur, en að ekki skuli vera jafnað úr haugunum þar sem gangstéttin á að vera, það er óskiljanlegt. Fót gangandi fólki er með öllu ómögu legt að ösla þessa for, sem þekur það svæði þar sem gangstéttir eiga að vera. Allsendis útilokað er fyr ir kvenfólk á háhæluðum skóm að ganga á þessum svokölluða gangstéttum án þess að skórnir sikemmist. Nokkur dæmi skulu nefnd þessu til sönnunar og á bendingar: Grensásvegur, Kringlu mýrarbraut, Reykjavegur við Laugadal, o. s- frv. MIÐUR GÓÐ FORDÆMI Óhugsandi er með öllu að telja upp allar þær hættur, sem vofa yfir fótgangandi fólki í umferðínni í stuttri blaðagrein. Fótgangandi fólk verður að kunna umferðarregl ur sem það varðar, og það er gott dæmi um kunnáttu barna, sem blaðamaðurinn varð vitni að í þess ari för. Lítil stúlka var að ganga með móður sinni á Laugaveginum. Við hornið á Klapparstig þurftu þær að fara yfir gÖtuna. Rautt ljós beið þeirra en móðirin arkaði með stúlkuna yfir götuna þar sem eng in bifreið var á næsta leyti- Heyrð ist þá stúlkan, sem var á að gizka 6 ára, segja við mömmu sína „En það er rautt ljós mamma!“ Stúlkan mun eflaust i framtið inni gera slíkt híð sama og móðir hennar, þar sem hún telur að maimma sín geri aðeins það sem rétt er. Fordæmi fullorðna fólks ins ruglar alveg þá umferðar- fræðslu, sem börnin læra í skólun Víð er pottur brotinn. Hérna verða vegfarendur að nota götuna fyrir gangstíg. Engin aðvörunarmerki hafa verið sett við tjaldið, sem er þó lá- markskrafa fyrir umferðaröryggi. um. Börnin eru svo næm fyrir áhrifum, að þegar út í umferðina er komið gleyma þau að framfyigja þeim umferðarreglum, sem þau lærðu í skólanum. Fólk, sem kynnst hefur umferð í Kaupmannahöfn og New York, veit að þar gengur fólk aðeins yfir á grænu ljósi og notar merktar gangbrautir- RÓTTÆKAR RÁÐSTAFANIR Lögreglan á íslandi og þau fé- lög, sem reyna að bæta umferðar öryggi að reyna í sífellu að leiða fólki, ungu sem gömlu, fyrir sjón ir, að aðeins með þvi að fram fylgja reglunum geti slysunum fækkað. Leggjumst því öll á eitt, fylgjum umferðarreglunum í hvi- vetna og uppskerum einiivern árangur með þvi. Við viljum ekki að ekið verði á fólk og það drep ið. Því er eina ráðið til þess að koma í veg fyrir það, að fylgja umferðarreglununi. Fái aðvaranir og ábendingar lögreglu- og um- ferðaröryggisfélaga engu til Jeiðar komið, verður ef til vill gripið til róttækari ráðstafana, t. d. að 1 sekta fólk srm gengur skáhallt yfir götu, að sekta fólk sem bíður ekki eftir grænu Ijósi o. s. frv. Allir þeir *em leggja laiö sina i Nauthólsvík á blíöviSrisdögum, verða aS ganga eftir þessari götu innan um bílana. Hvað skyldu mörg smábörn hafa orðiö fyrir bllum á.þessari götu? Lögregluþjónninn f/lgist meS þvi að allir framfylgi uwiferðarreglunum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.