Tíminn - 03.08.1966, Side 12

Tíminn - 03.08.1966, Side 12
n Ramsey má vera ánægður Skyldi nokkur hafa orðið giaðari á Wembley á laug- ardaginn en Alf Ramsey, enski landsliðsþjálfarinn? Fyrir þremur árum sagði Ramsey blákalt, að England yrði heimsmeistari 1968. Og sú spá hans hefur nú ræt;.t. En á þessum þremur árum hefur enski landsliðsþjálfar- inn orðið að þola mikia gagnrýni í ensku blöðunum, sem hafa notað hvert tæki- færi tíl að ráðast á hann, þcgar þeim hefur mislíkað einræðisgerðir hans. Síðan Ramsey tók við enska landsiiðinu hefur það leikið 44 leiki, unnið 29, gert 9 jafntefli og aðeins tapað 6 leikjum. Alls hefur Iiðið á þessum tíma skorað 106 mörk og fengið á sig 52. Ramsey hefur á þessum tíma prófað 50 leikmenn. — f dag eiga ensku blöðin varla nógu hástemmd orð til að lýsa ágæti Ramsey! ÍÞRÓTTIR TÍMINW ÍÞRÓTTIR MIÐVIKUDAGUR 3. ágúst 1966 Með sigorbros á vör! Þarna virða þeir fyrir sér Jules Rimet-styttuna, Alf Ramsey og Bobby Moore. Hvað skyldu þeir vera að hugsa? MESTI SIGURDAGURINN I ENSKRIKNATTSPYRNUSOGU Fyrsta sigri Englands í HM fagnað gífurlega hvarvetna Á laugardaginn var sigri Eng- lands í heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu fagnað um víða ver- öld, og ekki sízt í Englandi, þar sem fólkið söng á götunum af gleði á mesta signrdegi enskrar knattspymu. Og á íslandi var sigr- inum einnig fagnað, þegar frétt- in barst á öldum Ijósvakans. Eitt helzta umræðuefni hinna mörgu, sem lögðu leið sína úr borginni um verzlunarmannahelgina, var sigur Englands í keppninni. Alf Ramsey, einræðisherrann í enskri knattspyrnu, þurfti sannar- lega ekki að sjá eftir því að fylgja hinu gullna boðorði „að breyta aldrei sigurliði" en fram á síðustu stund kom 'það til tals að setja Jimmy Greaves inn í liðið fyrir annað hvort Hurst eða Hunt. En Greaves var ekki settur inn — og Hurst vann hug og hjörtu allr- ar ensku þjóðarinnar með því að skora 3 af 4 mörkum Englands. Hvilík heppni, að hann skyldi leika með! Úrslitaleikurinn á Wembley milli Englands og Vestur-Þýzkalands verður þeim milljónum, sem fylgd ust með honum í sjónvarpi og af áhorfendapöllum, ógleymanlegur, sérstaklega vegna hinnar miklu spennu, sem var allsráðandi frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu. Og hann bauð líka upp á góða knattspyrnu. Það eina, sem skygg- ir á í öllum Ijómanum, sem únn- ars stafar af leiknum, var þriðja mark Englands, sem Hurst skor- aði með föstu skoti frá hægri á 10. mínútu framlengingar. Knött- urinn þaut með ofsahraða í þver- slá þýzka marksins — og niður — mmm :S. • • • 4 __________________________________! en síðan út, sennilega snúnings- bolti. Svissneski dómarinn Dienst var frekar vel staðsettur, en treysti sér þó ekki til að dæma mark og gaf merki um, að halda leiknum áfram. En ensku liðsmennirnir bentu á rússneska línuvörðinn, sem staðsettur var á vallarhelmingi í mark á milli þeirra Jackie Charl ton og Banks. Þjóðverjar fögnuðu markinu ofsa lega — og þýzku fánarnir á áhorf- endapöllunum svifu fram og til baka. En enska liðið lét ekki slá sig út af laginu. Og aðeins.7 niín- Fjórir þýzkir varnarmenn höfðu tækifæri til að afstýra hættunni, en enginn hreyfði sig, og Hurst notaði tækifærið og skallaði inn. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik. í síðari hálfleik áttu bæði liðin ágæt tækifæri, en þó sköpuðust ,útum síðar jafnaði það, 1:1. Brot- Þjóðverjanna, og fengu dómarann j jg var á Bobby Moore, fyrirliða öllu hættulegri tækifæri upp við til að ræða við hann. Og eftir þær Englands, og jafnframt bezta I þýzka markið, ekki sízt íyrir það, i *. ...i •’ manni vallarins, rétt fyrir utan ! að Tilkowski í þýzka markinu, hélt vítateig. Moore tók spyrnuna sjálf- knettinum illa. Það var svo 10 viðræður benti Svisslendingurinn á miðjuna, mark! Það stoðaði ekk- ert, þótt þýzku leikmennirnir mót- mæltu. Þetta var hið raunverulega úr- j slitamark leiksins, jafnvel þótt! Hurst bætti fjórða markinu við j fyrir England á síðustu sekúndum ! leiksins. Enska liðið lagði áherzlu ! á vörnina það sem eftir var, og ! kom fjórða markið eftir mikla j „pressu" að enska markinu. Knett- j inum var skyndilega spymt fram ! á vallarhelming Þjóðverjanna, þar j sem Hurst náði knettinum og | skoraði framhjá Tilkowski, 4:2. j Það var frekar auðvelt fyrir hinn j 24ra ára gamla West Ham leik- j mann að skora markið, því þýzka vörnin var víðsfjarri," ekki færri en 9 Þjóðverjar höfðu nefnilega verið í sókn og reynt árangurs- laust að jafna metin, en fyrir bragð ið var allt opið. Þjóðverjar komu mjög á ðvart með því að skora fyrsta mark leiks ins, og með því var England í fyrsta skipti í keppninni marki undir. Markið kom á 7. mínútu, eft ir að Wilson hafði skallað frá marki, en ekki á réttan stað, því hinn skæði sóknarmaður V-Þjóð- verja, Haller, fékk knöttinn og náði að skjóta nær viðstöðulaust knötturinn sveif að marki. mínútum fyrir leikslok, að Peters skoraði 2:1 fyrir England. Hurst sendi knöttinn inn í vítateig, þar sem hann hrökk til Peters, sem ekki var seinn á sér að nota tæki- færið og skaut í mark. Þetta var fyrsta og eina mark Peters í keppn inni. Flestir bjuggust við, að mark Peters væri síðasta mark leiksins. Mínúturnár liðu ein af annarri — og þrátt fyrir nokkuð stífa sókn af hálfu Þjóðverjanna — virtist enska vörnin hafa í fullu tré ur Koss að launum fyrir góða frammistöðu. Eiginkona Geoffs Hurst kyssir mann sinn eftir sigurleikinn.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.