Vísir - 30.04.1975, Blaðsíða 1

Vísir - 30.04.1975, Blaðsíða 1
65. árg. — Miðvikudagur 30. april 1975 — 97. tbl. Mikið ófall fyrir gróðurinn — segir garðyrkjustjóri „Þetta er mikið áfall, en hefði verið enn verra, ef það hefði til dæmis komið eftir viku”, sagði Iiafliði Jónsson garðyrkjustjóri, þegar Visir hafði samband við hann. Veðurharkan sem nú hefur skollið á.hefur mjög slæm áhrif á allan viðkvæmari gróður, en þó sagði Hafliði, að ekki væri alveg hægt að segja til um það, fyrr en þessi kuldi væri genginn yfir. Annað eins hefur komið fyrir áður i aprilmánuði, en Hafliði sagði, að stormurinn færi verst með. Hann sagði þó, að ef færi að rigna, myndi það geta haft góð áhrif. „Það hlýtur að sjá mikið á viðkvæmum gróðri,” bætti hann við. „Sumar tegundir voru alveg að þvi komnar að springa út” _EA Saigon-stjórnin gafst upp í nótt Fyrstu skriðdrekar Víetcong, skreyttir veifum þjóðfrelsis- hreyfingarinnar, renndu inn i hallargarð forsetahallarinnar i Saigon I morgun. Um leið og hermenn innrásar- liösins stukku af brynvögnunum til þess að heilsa fagnandi manngrúa, sem safnazt hafði umhverfis þá, þóttust menn sjá, aö lokið væri 35 ára styrjöld Vi- etnama, sem stundum hefur verið nefnd „striðið enda- lausa”. Duong Van Minh, sem vérið hefur forseti Suður-Vietnam tæpa viku, lýsti yfir i útvarpi i morgun uppgjöf Saigon- stjórnarinnar. Skoraði hann á suður-vietnamska hermenn að leggja niður vopnin og bauðst til að afsala sér völdum i hendur þjóðfrelsishreyfingarinnar um leiö og fulltrúar bráðabirgða- stjórnar hennar væru til staðar. Skoraði Minh forseti á Viet- cong aö forðast frekari blóðsút- hellingar. Mótstaöa af hálfu varnarliðs borgarinnar var litil seœ engin, þegar kommúnistar hófu loka- áhlaupið i nótt með eldflauga- árás og stórskotahrið, eins og i gærmorgun. Alger ringulreið rikti á götum Saigon og enginn skeytti neitt um útgöngubannið. Gripdeildir og ránmorð voru framin um hábjartan daginn og fyrir allra augum. Seint i gærkvöldi luku Banda- rikjamenn við skyndibrottflutn- inga á siðustu bandarisku borg- urunum, sem eftir voru i Saigon. Þyrlur fluttu þetta fólk af þaki sendiráðsbyggingarinn- ar i Saigon. — Alls voru flutt burtu um 6.500 manns, þar af um 5.500 Vietnamar. Hundruð manna reyndu að brjótast inn i sendiráðið og þrábáðu um að fá að fara með. Urðu landgönguliðar að verja brottflutningana með táragas- sprengjum, en vonsviknir Viet- namar skutu að þyrlum þessara fyrrverandi bandamanna sinna., þegar þeir sáu þær fljúga burt. Sjá nánar á bls. 5. Ekkert á því að draga sig í hlé.... Þó að mannfólkið hafi heilsað sumri með pompi og pragt fyrir heilli viku sfðan, þá virðist vetur konungur ekkert á þeim buxunum að draga sig i hlé strax. Aö minnsta kosti verðum við enn að sætta okkur við snjó og gadd, þegar flestir hefðu kosið sól og bliðu. Eins gott er þvi að hafa hlýju fötin til taks og láta sólföt og annað slfkt biða um sinn. Aldrei fór svo, að eitthvað lœkkaði ekki Kaffipakkinn úr 140krónumí 115 Kaffipakkinn ætti að fara úr 140 krónum f 115 krónur, fransk- brauöið úr 72 i 60 eftir að söluskattur á þessum og fleiri vörum hefur verið felldur niður. Rúgbrauðið ætti að fara úr 98 i 80 krónur. Þá- ætti kiló af hvitkáli að lækka úr 100 i 83 krónur, kiló af gúrkum úr 400 i 330, svo að dæmi séu nefnd um verðlækkun á grænmeti. Lækkun verður i svipuðu hlut- falli á tei og kakói, og Visir hef- ur áður skýrt itarlega frá verðlækkun á ávöxtum, sem verður tiltölulega meiri, af þvi að tollur á þeim fellur einnig niöur eins og söluskatturinn. Magnús Finnsson, fram- kvæmdastjóri Kaupmannasam- takanna, skýrði Visifrá þessum lækkunum i morgun. Alls er áætlað, að þessar yaðgerðir rikisstjórnarinnar lækki mat- vöruverð um samtals 620 'milljónir á árinu og söluskatts- tckjur rikisins minnki um 540 milljónir af þessum sökum i ár. „Þetta ætti að koma öllum til góða,” sagði Magnús Finnsson. Hann sagði að kaupmenn gledd- ust yfir hækkun álagningar, sem tekur gildi 1. mai eins og lækkun á framangreindum vörum, en hins vegar þætti kaupmönnum hart að innheimta söluskatt fyrir ríkið með þeim hætti, sem verið hefur. 1 verzlun, þar sem meöalá- lagningin i smásölu væri til dæmis um 20% yrði verzlunin að innheimta 20% söluskatt fyrir rikið og bera vinnulaun og allan kostnað við þá innheimtu, en sá kostnaður væri mikill. Af þeim 20% sem kæmu inn i álagningu, yrði verzlunin að greiða sinn kostnað en inn- heimti ókeypis fyrir rikið. Þessu vilja kaupmenn breyta. -HH. Hefðbundin dagskrá 1. mai II Rauðliðar" átt á eftir í hum- hinum „Kauö verkalýðseining”, hin- ir róttækustu marxistar, verða utan við eða aftan við hátiða- höld verkalýðsfélaganna 1. mai. Meðan allir hinir safnast saman á Hlemmtorgi, safnast menn Ilauörar verkalýðseiningar saman við Búnaðarbankann steinsnar frá torginu. Aðal- hreyfingin, sein allir aðrir standa að, hyggst leggja af stað i göngu klukkan tvö Fundur þeirra verður á Lækjartorgi, en hinir rauöustu halda fund sinn við Miöbæjarskólann. Dagskrá 1. mai verður þann- ig, að gengið verður niður Laugaveg og Bankastræti. Lúðrasveitin Svanur og Lúðra- sveit verkalýðsins munu leika. Ræður á Lækjartorgi flytja Eð- varð Sigurðsson formaður Dagsbrúnar, Vilborg Teitsdóttir iðnnemi, Kristján Thorlacius formaður BSRB og Guðmundur Hallgrimsson frá Sjómanna- félaginu. Fundarstjóri verður Sigfús Bjarnason frá Sjómanna- félaginu. A meðan munu hinir rauðustu bjóða upp á ræðu- mennina Guðmund Hallvarðs- son verkamann, Vilborgu Dag- bjartsdóttur kennara, Tómas Einarsson háskólanema, en fundarstjóri verður Magnús Einar Sigurðsson prentari. Siðast en ekki sizt á að verða þar kominn fulltrúi verka- manna, sem yfirtóku LlP-úra- verksmiðjuna i Frakklandi, sem frægt var, og fulltrúi verk- fallsmanna i Eyjum mun tala. Flutt verða og ljóö og baráttu- söngvar sungnir. — HH >

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.