Vísir - 30.04.1975, Page 2
2
Vísir. Miðvikudagur 30. april 1975.
visntsm;
— Eftir hverju stillið þér
úrið yðar?
Einar Matthiasson, verkamaður:
— Ég stilli úrið mitt svona annan
hvem sólarhring að jafnaði og þá
eftir simanum — 04 á ég við.
Friðrik Þorbjörnsson, nemi: —
Yfirleitt eftir klukkunni i sjón-
varpinu. Ef ekki sjónvarpinu, þá
útvarpinu. Ég treysti fjölmiðlun-
um allavega nógu vel til að segja
mér rétt til um klukkuna.
Jón Jónasson, kennari: — Það er
svona einu sinni i mánuði, sem ég
stilli úrið mitt og þá geri ég þaö
eftir sjónvarpsklukkunni.
Guðmundur Sveinsson, kennari:
— Eftir skólaklukkunni. Hún
blasir við mér, ef ég horfi út um
gluggann frá kennaraborðinu. A
sumrin, þegar ég er fjarri skólan-
um, stilli ég klukkuna ekki eins
oft. Tíminn skiptir þá ekki eins
miklu máli og þegar fylgja þarf
stundatöflu.
Richard Már Jónsson, 10 ára: —
Ég fer eftir útvarpinu. Þar er
alltaf verið að segja af og til hvað
klukkan er. Annars þarf ég ekki
að hafa miklar áhyggjur af úrinu
mlnu. Þaðernýttog gengur alltaf
rétt — ennþá.
Jóhanna Eiriksdóttir, húsmóðir:
— Ég stilli úriö mitt og eldhús-
klukkuna eftir útvarpinu. Nú, og
siðan stilla hinir i fjölskyldunni
úrin sín eftir eldhúsklukk-
unni......
— En hugsum okkur
ef mœður þessara
ógœtu manna og
margra ótalinna
hefðu kosið að ala
þó ekki, heldur
losna við fóstrið
úr móðurlífinu...........
Ég veit, að flestar islenzkar
mæður nú á timum eru sama
sinnis og formæður þeirra voru,
og það mun bjarga þjóðinni. Ég
vil minna alþingismenn okkar
á, að þeir mega ekki, með því að
samþykkja þetta frumvarp,
þótt það sé dálitið endurbætt,
gera alþingi Islands þann
ævarandi vansa að samþykkja
það, enda tel ég lögin frá 1935 og
1938 fullnægjandi. Raunar tel ég
engan skaða, þótt sá hópur, sem
heimtar frjálsar fóstureyöing-
ar, fjölgi sér ekki.
Að síðustu vil ég fara þess á
leit við alþingismennina okkar,
að þeir taki eitt kvöld i að lesa
siðari hluta Rómverja sögu. Þar
munu þeir finna ástæðurnar,
sem meðal annars voru sterk-
asti þáttur i falli Rómaveldis.
Það var einmitt spillingin, sem
af þessum málum leiddi. Svo
mun fara um öll þjóðfélög, ef
valdhafar þeirra feta I fótspor
Kalíkúla og Nerós.
Guð forði okkur frá slikum ör-
lögum”.
Á HELJARSLÓÐ
„Hef ekki
haft skemmtilegri
Þarna er verið aö búa til
ávaxtasalat og þvo upp.
<---------------------m.
,,Ég hef aldrei haft
skemmtilegri nemendur”, sagði
einn kennaranna á matreiðslu-
námskeiðinu sem haldið var
fyrir blinda. Ljósm: Bragi.
St. D. hringdi:
„Litill er ég listamaður, en
langar þó til að festa litla mynd
á sfður Visis. Islendingar eiga
mikið að þakka fornskáldunum,
sem ortu Höfuðlausn, Sonar-
torrek og mörg fleiri. Þeim ber
og að þakka öllum snillingun-
um, sem rituðu fornaldarsög-
urnar, og þar með taldar Islend-
ingasögurnar, þótt viö vitum
ekki nöfn höfundanna.
Þá ber að þakka vitunum,
sem vörpuðu geislum út i myrk-
ur miðaldanna, svo þjóðin
missti aldrei sjónar á æðsta tak-
markinu. Þá komu vormenn Is-
lands, Eggert, Skúli og Baldvin,
þá skáldahópur 19. aldarinnar
með Jónas og Bjarna i broddi
fylkingar, svo og skáld alda-
mótanna.
Þá man þjóðin mikla for-
ingjann sinn, Jón Sigurðsson, er
eitt skáldið sagði um: „Sonur
Islands, sverð og skjöldur, sómi
vors og vers, meðan freyða
fossar Islands, fyrirmynd þú
sért.”
Allir þessir menn hafa átt
ágætis foreldri. Þó vil ég i þessu
tilfelli nefna fyrst og fremst
mæður þeirra, sem fögnuðu
öllum sfnum börnum, þótt mörg
væru oft. Þær höfðu gætt sin til
fullorðinsára og ólu sín börn,
flest eða öll, er þær voru full-
vaxta. Þær fórnuðu kröftum
sinum og móðurást til þess að
ala þau sem bezt upp, svo að
þau yrðu að nýtum þegnum á
föðurlandi sinu.
En hugsum okkur ef mæður
þessara ágætu manna og
margra ótalinna hefðu kosið að
ala þá ekki, heldur losna við
fóstrið úr móðurlifi. Hversu
væri þá komið menningu þjóð-
arinnar og sjálfstæði? Hversu
væri komið sjálfstæði þjóðar-
innar, ef þessar sjálfstæðishetj-
ur okkar, með Jón Sigurðsson á
hæsta tindi, hefðu aldrei fæðzt i
þennan heim? Ég hefði viljaö
unna lýðræðisflokkunum, sem
nú fara með stjórnartaumana,
annars betra en þess að taka
upp á arma sina kynlifsfrum-
varp það, sem Magnús
Kjartansson bar fram. Og
undarlegt er, að alþingi Islend-
inga skuli vera það lágt komið
að halda sliku máli fram til
streitu, þvi sannleikurinn er, að
frumvarpið er litið breytt til
batnaöar frá þvi, sem Magnús
bar þaö fram. Til viðbótar við
næstum frjálsar fóstureyðingar
eru ákvæöi i frumvarpinu sem
algerlega er óhæft að segja i lög,
og þau eru svokallaðar ófrjó-
semisaðgerðir, og kynlifs-
fræðsla unglinga og barna, allt
ofan i óvitaaldur.
Ég sem gamall kennari þekki
vel,hve viðkvæmt er að fást við
þessi mál, og tel að heilsufræðin
og likamsræktin, sem kennd
hefur verið i skólum, séu full-
nægjandi, eins og þær hafa verið
ræktar. Og vitað mál, að góðar
mæður, skylduræknar eins og
formæður þeirra voru, munu
bæta þvi við, sem á vantar i
þessari fræðslu. Mæðurnar og
fósturmæðurnar, eða þær, sem
ganga þeim I stað, vonast ég til
að séu svo skylduræknar, aö
þær gangi inn i þessi störf og
leysi þau sómasamlega af
hendi.
erfið, en annað kom i ljós. Þarna
voru margir vanir matargerð og
vanir þvi að sjá fyrir matargerð á
heimilum sinum.
Námskeiðið hefur verið annan
hvern laugardag i vetur. Það
voru Námsflokkar Reykjavikur,
sem gengust fyrir námskeiðinu.
Húsnæði og kennarar voru svo
fengnir i Húsmæðrakennara-
skólanum.
Lögð var áherzla á hollan mat
og mat, sem þægilegt er að mat-
reiða, ofnrétti og annað slikt.
Þetta er i fyrsta sinn, sem slikt
námskeið er haldið.
-EA.
Margir af þeim sem á nám-
skeiðinu voru, eru vanir þvi að
sjá um heimili og matreiða.
nemendur"
— matreiðslunámskeiði blindra nýlokið
„Þetta reyndist mjög sjálf-
bjarga fólk, sem getur alveg jafnt
bjargaö sér og aðrir. Þetta var
lika sérlega ánægjulegt nám-
skeið og ég segi fyrir mig, að ég
hef ekki haft skemintilegri
nemendur. Þeir voru jákvæðir og
lifsglaðir og það kemur manni
kannski á óvart, þegar maður
hefur ekki umgengizt blint fólk
áður.”
Þannig sagðist einum kennara I
Húsmæðrakennaraskóla Islands
frá, þegar við höfðum samband
þangað, en nú er nýlokið mat-
reiðslunámskeiði fyrir blinda.
Sumir hefðu kannski haldið, að
matreiðsla reyndist blindum
LESENDUR HAFA ORÐIÐ