Tíminn - 11.08.1966, Page 1

Tíminn - 11.08.1966, Page 1
Gerizt áskrifendur að Tímanum. Hringið í síma 12323. Auglýsing í Tímanum kemur daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda. 200 metra dráttarbraut í smíðum í Njarðvíkum SJ—Reykjavík, miðvikudag. í Skipasmíðastöð Njarðvík- ur er nú unnið að gerð 200 m iangrar dráttarbrautar, sem er fyrsti áfangi þess verks, sem samið var um við pólskt fyrirtæki fyrir nokkru. Á myndinni hér til hliðar sézt hvar brautin liggur út í sjó, en til hliðar við hana er verið að festa brautarteina á steinblokkir, sem mynda fram lengingu brautarinnar. Gert er ráð fyrir, að þessi hluti dráttarbrautarinnar verði tek inn í notkun á þessu ári, og verð ur hægt að taka upp allt að 400 lesta skip. Rúm verður fyrir 4 skip á hliðarstæðum og 1 skip í sjálfri brautinni. í næsta áfanga verður hliðarstæðum fjölgað fyrir 4 skip. Þá er ráðgert að reisa senn sérstakt klössunarverkstæði þar sem skip verða tekin í al- menna flokkunarviðgerð, en síð- asti áfangi verður bygging stál- skipasmíðastöcfc'ar, sem gert er ráð fyrir, að tekin verði í notk- un árið 1970—Tl. Framhald á bls. 14. Ljósmynd Timinn GE. SUNHLiHlK! SÍLDARFLOTINN MIKIÐ RÝRNAÐ SlÐUSTUÁRIN Vöntun sterkra árganga og stóraukin sókn á hina yngri, uppvaxandi síld aðalástæðurnar SJ-Reykjavík, miðvikudag. Á aðalfundi Félags íslenikra síldarsaltenda á Suðvesturlandi, sem var haldinn 3. ágúst s. flutti Gunnar Flóvenz, fram- kvæmdastjóri Síldarútvegs- nefndar í Reykiavík, erindi um markaðsmál saltsildar og sagði hann að Síldarútvegsnefnd hefffi nýlega fengið skýrslu frá Jakobi Jakobssyni, fiskifræð- ingi, um ástand sunnlenzka sOd arstofnsins og veiðihorfur. Segði þar, að rannsóknir bentu eindregið til þess, að um veru lega rýmun stofnsins hefði vei ið að ræða á undanfömum ár- um. Helztu orsakir þessarar rýmunar teldi Jakob vöntun sterkra árganga svo og stór- aukna sókn í hina yngri og upp vaxandi sfld. Nokkrar vonir væru þó bundnar við árgang ana frá 1961 og 1962, en Jalcob teldi vafasamt, að þeir árgang ar lialdi verulegum styrkleika, unz þeir hafa náð þcim aldri og stærð, sem sfld hæf til sölt unar verður að hafa. Þá sagði Gunnar að enn væri of snemmt að spá nokkm um söluhorfur á Suðurlandssíld á komandi vertíð. Markaðirnir á Norðurlöndum og í Bandankj unum vildu einungis kaupa Framhald á bls. 14. : ■••■"""'/."•■■ ...: :;í:í^SííííIí ' ■ . - • Biðja um lögbann við starfrækslu endur- varpsstöðavarinnar í Vestmannaeyjum EJ—Reykjavík, miðvikudag. Ríkisútvarpið hefur sent bæjarfóngetanum í Vest- mannaeyjum, beiðni um lög- bann við starfrækslu endur varpsstöðvarinnar í Eyjum, að því er Gunnlaugur Briem, póst- og símamálastjóri, tjáði blaðinu í dag. LANDBU NAÐARFRAMLEIÐSLAN VERÐI SKIPULÖGÐ MEÐ TIL- LITI TIL MARKAÐSMÖGULEIKA TK—Reykjavík, miðvikudag. Á aðalfundi Stéttarsambands bænda í gærkveldi vom samþykkt ar tillögur framleiðslunefndar um ráðstafanir til að skipuleggja fram leiðsluna eftir þörfum þjóðarinn ar og markaðsmöguleikum. Til- lögur þessar vom samþykktar samhljóða nema tvær með einu mótatkvæði Tillögurnar eru svo hljóðandi: „Vegna þess ástands, sem skapazt hefur vegna mjög mikill ar aukningar í mjólkurframleiðslu undanfarin ár, sem hefur nú leitt til þess, að bændur fá ekki gmnd vallarverð fyrir mjólkina. telur fundurinn auðsynlegt að gera ráð- stafanir til að skipuleggja fram leiðsluna eftir þörfum og mark- aðsmöguleikum. Kannað verði, hvort ekki sé hægt að draga úr framleiðslu Framhald a bls 14 Blaðið hafði samband við póst- og símamálastjóra og spurði um sjónvarpsmálið í Eyjum. Hann sagði eftirfarandi: „Ríkisútvarpið hefur sent bæj arfógetanum í Vestmannaeyjum beiðni um lögbann við starf- rækslu endurvarpsstöðvarinnar í Vestmannaeyjum, þar sem hún sé ólögleg. Samkvæmt því hefur póst- og símamálastjórnin sent bæjarfógetanum beiðni um að meint ólöglegt tæki til endurvarps ins verði fjarlægt af leigulóð póst- og símamálastjórnarinnar, Stóra-Klifi, með útburðargjörð svo fljótt sem við verður komið“. SJÚKIR LAXAR HAFA FUNDIZT í 14 AM A ÍRLANDI Nauðsyn mikillar aðgæzlu við innflutning á laxi og öðrum fiskum til landsins, segir veiðimálastjóri FB-Reykjavík, miðvikudag. f vor, þriðja vorið í röð, hafa írskir Iaxveiðimenn orðið varir við sjúkdóm í löxum, sem virðist nú vera orðinn allút- breiddur. Upphaflega fund ust sýktir laxar aðeins í einni á á Suðvestur írlandi. en nú nýlega var tala ánna komiu ■MMWMrmaM upp í 14. Enskir laxveiðimenn og allir þeir, sem áhuga hafa á laxinum, þar með talið brezka landbúnaðarráðuneyi ið eru orðnir mjög uggandi um laxinn í enskum ám, og hefur landbúnaðarráðu neytið sent út tilmæti til allra þeirra, seni kunna að veiða i ám í írlandi og síðan í enskum ám, að þeir sótthreinsi vciðar færi sín og Iaxveiðiútbúnað allan áður en þeir fara að hinum ánum, til þess að koma í veg fyrir, að sjúkdóm urinn herist til Englands með þeim. Blaðið sneri sér til Þórs Guð jónssonar veiðimálastjóra og spurði hann nánar um þennan sjúkdóm í löxum. Sagði hann, að þetta væri þriðja sumarið i röð, sem menn yrðu varir við sýkingu i löxum, og reyndar líka í sjóbirtingi og urnða i írlandi. Ekki væri vitað fyrir víst, hvaða sjúkdómur hér væri á ferðinni, en mestar líkur væru á, að hér væri um að ræða chondrococcus columnaris, sem líktist einna mest sveppagróðri á roði fisksins. f byrjun kem ur rauður blettur á höfuð fisks ins, en þegar frá líður mynd ast hvítleitur sveppagróður á Framhald á bls. 14.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.