Tíminn - 11.08.1966, Síða 12

Tíminn - 11.08.1966, Síða 12
12 TIMINN The Newgate Calender. Höf- undur: George Theodore Wilk inson, I—m. Útgáfa: ■ Panther Baoks 1965. Verð: 15/— (þrjú bin<fin). Eins og stendur á titilblaði gamallar útgáfu þessa rits, þá er þetta „endurbætt skrá og frásagnir um alræmda karakt era, sem gerzt hafa brotlegir við lög Englands á sautjándu öld og siðar . . . glæpum þeirra er lýst, dómsrannsókn og refs ingu og síðustu viðbrögð- um þeirra." Newgate var lengi eitt alræmdasta fangelsi Eng- lands, einkum ætlað föntum og bófum, morðingjum og skúrk um verstu tegundar, það var talið byggt á 12. öld, en auð vitað bætt við síðar. Þarna fóru fram opinberar aftökur brota manna utan múranna allt til 1868. Byggingar þessar voru rifnar 1902. f þessum húsa kynnum varð mannleg niður- læging og grimmd hvað mest í ríkjum Bretakonunga, þarna gerðust margir óheyrilegir at- burðir og þarna herbergjuðu ýmsir alræmdustu karakterar i glæpamannastétt Englend- inga. Og hér er frásögn af nokkrum þeirra. Þetta er hin óhugnanlegasta lesning, euda sparar höfundur ekki útmálan ir og móralskar hugleiðingar jafnframt. Þetta eru sannkall- aðar hryllingsbókmenntir Und irheimar 18. aldar birtast hér í hárri birtu og eru ekki geðs legir. City of Night. Höfund ur: John Rechy. Útgáfa: Pant- her Books 1965. Verð: 7/6. Höfundurinn fæddist í E1 Paso í Texas. Að aflok- inni skólagöngu gekk hann í herinn og dvaldist lengst af á Þýzkalandi sem hermaður. Hann fór vítt um Bandaríkin eftir að herþjónustu lauk, sett ist síðan að í fæðingarborg sinni. Bókin kom fyrst út í Bandaríkjunum 1963 og er nú endurprentuð í þessari útgáfu. Hún vakti feikna athygli og varð strax mjög umdeild. Sag an gerist í vissum hverfuin New York borgar, undirheim- unum, einnig lýsir höfundur ur svipuðum slóðum í New Orl eans og Los Angeles. Höfund ur lýsir lífi þessa undirheima lýðs og hinna síhungruðu. Þetta er efni, sem menn kjamsa gjarnan á, en höfundur ségir, frá þessu á hiutlausan og fjarrænan hátt, sem eykur ekki lítið áhrif sögunnar. Kynvilling ar eru víða litnir hornauga og eiga formælendur fáa, þessi saga fjallar um þá manntegund og eymd þeirra og niðurlæg- ingu í þjóðfélagi, sem er þeim fjandsamlegt. Bókin hefur fengið þokkalega dóma í Eng- landi í blöðum eins og Sunday Times og Guardian. Coleridge: Poetry and Prose. Edited with an Introduction by Charlos Baker. Útgáfa: Bantam Books 1965. Verð: 12/6. Þessi bók er ætluð að vera kynningarrit á þessu afkasta- mikla skáldi og rithöfundi, heildarverk hans fylla nær því tólf þéttprentuð bindi. Hér gefst sýnishorn af skáldskap hans, gagnrýni, bréfum og öðr- um greinum. Höfundurinn fædd ist 1772 og deyr 1934. Hann var einn forvígismanna Róm antísku stefnunnar á Englandi. 1798 gaf hann út ásamt Words worth „Lyrical Ballads", sem varð það rit sem átti hvað mest an þátt í að ryðja rómantísku stefnunni til rúms þar í landi, þar birtist „Rime of the Anci- ent Mariner" meðal annarra kvæða. Bréf hans gefa bezta lýsingu á skáldinu, þar birtist hann vinum sínum afdráttar- laus og án allar sýndar mennsku. Útgefandi hefur val- ið fimmtíu og eitt bréf í þetta safn. Áhrifa hans gætti strax á honum yngri skálduin og skoð ana hans sem gagnrýnanda gætti ekki síður meðal sam- tíðarmanna hans og síðari tíma. Hartley sonur hans var einnig skáld og dóttir hans Sara, gaf út verk föður síns. Þessi bók er gott sýnishorn af verkum Coleridge og er smekklega útgefin. Karl der Grosse. Höfundur: Josef Fleckenstein. Útgáfa: Musterchmith Verlag 1962. Verð: DM 3.90. Karlamagnús var við ríkis- stjórn í fjörutíu og sex ár og er einn frægasti landstjórn armaður Evrópu. Áhrif hans urðu víðtæk og langvarandi og hann er sá maður, scm lagði grundvöllinn að mótun Evrópu. Áhrifa hans gætir bæði í land stjórn og listum og bókmennt um. Smákonungar norður á hala heimsins taka hann sér til fyrirmyndar og berjast til víð lendara ríkis, hann er ágætur í sögum og kvæðum og frægð hans berst þangað, sem leiðir Evrópumanna liggja. Hann stuðlar mjög að listsköpun í hinu víðlenda ríki sínu og berst gegn heiðni af miklum krafti, fer ekki ófáar ferðir gegn Söxum, og tekst loks eft ir langa mæðu að þvinga þá þrjózku þjóð til réttrar trúar, einnig tekst honum að hrekja allar hættulegar villiþjóðir frá áhrifum í Mið-Evrópu. Allt frá því að Einihard setti saman sína bók um Karl mikla, hefur hver kynslóð skrifað eða endurbætt fyrri rit um þennan ágæta keisara og hér er eitt nýtt af nálinni. Þetta rit er að vísu ekki stórt, en því greinabetra og ýtarlegra. Höfundur þess er dósent í miðaldasögu við há- skólann í Freiburg í Breisgau. Hann fæst einkum við stjórn lagasögu, þjóðfélagsfræði og menningarsögu miðalda. í þess ari bók rekur hann sögu keis ara frá fæðingu og til dánar dægurs, lýsir herferðum hans og rekur menningarstarf- semi hans og landstjórnarmáta. Hann réð yfir mjög víðlendu ríki og tókst að halda því sem heild, en það var ekki á neins manns færi nema hans, eins og síðar kom á daginn. Bókin er liðlega skrifuð og ágætur inngangur að sögu þessa ágæta landstjórnarmanns. The Splendour of Greece. Höfundur: Robert Payne. Út- gáfa: Pan Books 1964. Verð: 5/— Höfundur hefur sett saman yfir fimmtíu bækur. í þessari bók ferðast hann með lesand ann um Grikkland og 'grísku eyjarnar. Hann fer til Mykene og Olympíu, Delfí og Aþenu, Kórintuborgar, Rhódos og margra annarra frægra staða. Höfundur lýsir þessum héruð- um og stöðum og tengir þá sög unni og goðsögnum. Honum tekst einkar vel að tengja sam an sagnfræði, fornminjafræði goðsögur, þjóðsögur, bókmennt ir og listasögu á sérstaklega að gengilegan hátt. Saga Forn Grikkja hefur frá upphafi ork- að sterkt á hugi manna í Evr- ópu, enda nokkur von til þess þar eð Evrópuþjóðirnar hafa svo margt þaðan í menningu sinni og hugsunarmáta. Fjöldi bóka er stöðugt saman settur um þessi efni og er þetta ein þeirra, sem aðgengilegust er, enda hefur bókin fengið ágæta dóma sem slík. Nokkrar mynd ir fylgja ásamt registri. TREFJAPIAST PLASTSTEYPA Húseigendur! Fylgizt me3 tfmanum. Ef svalirnar eða þakið þarf endurnýjunar vlð. eða ef þér eruð að bygrSÍa. þá látið okkur ann- ast um lagningu trefja- plasts eða plaststeypu á þok, svafir, gólf og veggl á húsum yðar, og þér burfið ekki að hafa áhyggjur af þvl í framtíðinni. Þorsteinn Gísiason, málarameistari, sími 17-0-47. Klæðningar Tökum að okkur ttlæðninp ar ag viðgerðir á tréverld á bólstruðum húsgögnum Gerum einnig tilboð 1 við- hald og endurnýjun á sæt- um t kvikmyndahúsum fé- lagsheimílum áætlunarbif reiðum og öðrum bifreið- um 1 Revkjavík os nær sveitum Húsgagnavinnuctofa Qiarna op Samúels, Efstasundi 71, Reykjavík sími 33-6-13. TRÉSMIÐJAN, Holtsgötu 37, framleiðir eldhúss- og svefnherbergisinnréttingar. Smíðum svefnherbergis- og ^idhúsinnréttingar. SlMI 32 2-52. 3 hraðar, tónn svo af ber i .i :rK>\ BELLA MUSiCA 1015 Spilari og FM-útvarp ii :tiív AIR PRINCE 1013 Langdrægt m. bátabylgju Radióbúðin Klapparstig 26, sími 19800 BRIDGESTONE HJÓLBARÐAR Síaukin sala BRIDGESTONE sannar gæðin. Veitir aukið öryggi I akstri. BRIDGESTONE ávallt fyrirliggjandi. GÓÐ ÞJÓNUSTA — Verzlun og viðgerðlr. Simi 17-9-84 Gúmmíbarðinn hi, Brautarholti 8, Auglýsið í TIMANliM FIMMTUDAGUR 11. ágúsl 1966 SPORTFATNAÐUR i MIKLU ÚRVAU E L F U R Laugavegi 38, Skólavörðustíg 13, Snorrabraut 38. NITTO JAPÖNSKU NITT0 HJÓLBARÐARNIR (flestum stærð.um fyrirliggjandi f Tollvörugeymslu. FLJÓT AFGREIÐSLA. DRANGAFELL H.F. Skipholfi 35 — Sfmi 30 360 BARNALEIKTÆKl ★ ÍÞRÓTTATÆKI Vélaverkstæði Bernharðs Hannessonar, Suðurlandsbraut 12, Sími 35810. I

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.