Vísir - 21.05.1975, Qupperneq 5
Vlsir. Mi&vikudagur 21. mal 1975
5
Í LONDi MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND I MORGUN UTLÖND Umsjón Guðmundur Petursson
Réttarhöldin yfir
Baader og Meinhof
hefjast í dag
Tveir menn og tvær
konur, sem talin eru
leiðtogar Baader-
Meinhofs glæpaf lokks-
ins, koma fyrir rétt i
dag i Stuttgart. Réttar-
höldin, sem almenn-
ingur i Þýzkalandi hef-
ur beðið lengi, fara
fram i sprengjuheldum
réttarsal, sérstaklega
smiðuðum i þessu
skyni, og kostaði hann
nær 770 milljónir
króna.
Þau Andrés Baader (31 árs),
Ulrika Meinhof (40 ára), Jan
Carl Raspe og Guðrún Ensslin
hafa öll verið ákærð fyrir
fjölda morða, sprengjuárása,
bankarána o.fl. i byrjun þessa
áratugs.
öryggisráðstafanir við dóms-
húsið, sem minnir meira á virki
en réttarsal, likjast helzt vig-
SÍMAMYND AP í MORGUN
suiiiiind
Þessi mynd hér* viö hliftina var
tekin i morgun fyrir utan dóm-
Réttarsalurínn eins og virki
búnaði á striðstimum. Umgirt
tveggja metra háum mUr og
fjögurra metra hárri gadda-
vfrsgirðingu er hUssins strang-
lega gætt af vörðum vopnuðum
hrfðskotabyssum.
BUizt ervið þvi, að réttarhöld-
in standi ekki skemur en tólf
mánuði. Um 500 vottar verða
kallaöir þar i vitnastúkuna.
Sakborningar hafa setið i
gæzluvarðhaldi flest siðan 1972,
þegar lögreglan handsamaði
þau eftir eltingaleik um landið
og skotbardaga.
Þeim er gefið m.a. að sök að
hafa gert sprengjuárásir á
stöðvar Bandarikjahers I V-
Þýzkalandi, þar sem fjórir
bandariskir hermenn iétu lifið,
morð á lögregluþjónum, morð-
tilraunir á öörum lögreglu-
mönnum, sprengjuárás á
hæstarétt V-Þýzkalands og
fjöldi bankarána.
Manntjónið
var meira
Nýjar upplýsingar
varpa skugga ó aðgerð
USA við Koh Tang-eyju
Varnarmálaráðuneyti
Bandaríkjanna hefur nú
látið frá sér fara nýjar
upplýsingar um manntjón
það, sem Bandaríkjamenn
biðu, þegar þeir endur-
heimtu f lutningaskipið
Mayaguez úr höndum
Kambodíumanna á Koh
Tang-eyju.
Fimmtán hermenn féllu, 50
særðust og þriggja er saknað enn.
— Vonir manna um, að þeir
siðasttöldu komi nokkurn tima
fram, eru daufar, og eru þeir nán-
ast taldir af.
Þessar siðustu fréttir hafa i
augum bandarisku þjóðarinnar
varpað meiri skugga á aðgerðirn-
ará Koh Tang-eyju. Menn syrgja
hrausta drengi, og þeim gremst,
hve seint og treglega þessar upp-
lýsingar hafa komið fram.
Ýmsir gruna jafnvel stjórnina
um að hafa haldið manntjóninu
leyndu fyrst um sinn, meðan
fyrstu viðbrögð við þessari rót-
tæku aðgerð voru að koma fram.
Þykir mörgum nU sem 68 fallnir,
særöir og týndir hafi veriö mikil
blóðtaka fyrir ekki stærri
hernaðaraðgerð. Aðrir benda
hins vegar á, að þrettán hinna
föllnu hafi farizt með þyrlu, sem
hrapaði
Charles Miller, skipstjóri fiutningaskipsins Mayaguez, sýnir frétta-
mönnum á korti, hvar skip hans var statt, þegar Kambodiumenn tóku
þaö. Hann var meðal þeirra, sem landgönguli&ar sjóhersins endur-
heimtu f a&ger&inni á Koh Tang. — Miller er sá I hvitu skyrtunni á
myndinni.
Mario Soares, leiötogi sósfalista
i Portúgal.
Sósialistaflokkurinn i
Portúgal hefur hótað að
segja sig úr rfldsstjórn
landsins, ef kommúnist-
ar hætti ekki að einoka
fjölmiðla landsins,
verkalýðsfélög og
sveitar- og bæjarstjórn-
ir.
Leiðtogar flokksins gerðu
Francisco Gosta Gomes, forseta,
þetta kunnugt i gærkvöldi, eftir
að kommúnistar höfðu þaggað
niður I „Republica”, einu af sið-
ustu dagblöðum Portúgals, sem
ekki var áróðursgagn kommún-
ista.
1 skyndi fóru fram viðræður
milli forsetans og tveggja ráð-
herra sósíalista i stjórninni,
Mario Soares leiðtoga sósialista
og Francisco Salgado Zenha,
dómsmálaráðherra. — Eftir þær
viðræður var svo boðað til skyndi-
fundar i sósialistaflokknum, en
engin yfirlýsing var gefin Ut að
honum loknum.
Sósialistar, stærsti flokkur
PortUgals, hefur verið i sam-
steypustjórn með kommúnistum
og vinstrimönnum, sfðan herinn
gerði byltinguna i fyrra.
Með þvi að hljóta 38% atkvæða I
kosningum siðustu mánaðar
sýndu portúgalskir sósialistar, að
þeir eru einn sterkasti jafnaðar-
mannaflokkurinn I Evrópu.
Engu að siður verður að lita á
lokun „Republica” sem einn ósig-
ur sósíalista i togstreitunni við
kommúnista um völdin i Portúgal.
Hefði mörgum þótt óliklegt, að
þeir tækju áhættunni af þvi að
lenda utangarðs með þvi að segja
sig Ur stjórninni.
Þó sýndi það sig, þegar þeir
skirskotuðu til Gosta Gomes for-
seta, að þeir treysta Vasco
Goncalves forsætisráðherra illa,
fyrst þeir ekki beindu máli sinu til
hans, eins og beinast lá kannski
við.
Um þúsund sósialistar efndu til
mótm ælaaðgerða gegn
kommúnistum fyrir utan lokaðar
skrifstofur „Republica” i gær-
kvöldi. Sökuðu þeir leiðtoga
kommúnista, „Alvaro Cunhal”,
um að vera hinn nýi einræðis-
herra PortUgals. — „Republica er
fólksins, en ekki Moskvu,” köll-
uðu þeir.
segja sig úr stjórn
Sósíalistar hóta að
Brjóta sjónvarpstœkin í sóluhjólparskyni
Meðlimir trúarsafnaðar, sem
nýtur töluverðrar útbrei&slu
meöai Lappa á Finnmörk, hafa
skorið upp herör til þess að
bjarga fólki frá þvi aö lenda i hel-
víti. — Nefnilega meö þvi aí
brjóta fyrir þvi sjónvarpstækin.
Svo langt gengur þessi kristi-
legi söfnuður i sáluhjálpinni, að
hann hefur fordæmt þvottavéiar
með gægjugluggum. Þvi að
gluggarnir veita möguleika til
þess að sjá nærfatnað kvenna i
þvotti.
Trúarsöfnuður þessi dregur
nafn af stofnanda hreyfingarinn-
ar, sem uppi var snemma á 19.
öld. Hét hann Lars Levi Læsta-
dius, maður sænskur.
Snemma á þriðja áratug þess-
arar aldar hóf þetta fólk, sem lýt-
ur annars lúthersku kirkjunni,
krossferð ámóta þessari, sem
farin er i dag. í það sinn var það
bölvað Utvarpið, sem stofnaði sál-
arheill fólks i voða, og var þá
margt forláta tækið brotið i
smátt.
Margir, einkanlega eldra fólk,
bera sig illa undan þessari sálu-
hjálp, og er þeim eftirsjá aö þessu
tóli myrkrahöfðingjans, sem
sjónvarpiö þykir vera. En engar
formlegar kærur haf.a veriö lagð-
ar fram og veit finnska lögreglan
ekki, hvernig hún á að snúa sér i
málinu.