Vísir - 24.05.1975, Blaðsíða 1
65. árg. — Laugardagur 24. mai 1975 —114. tbl.
Pétur sneri sér beint
til framleiðenda
— sjá bls. 3
B
ðK
Heimsfrœgur listamaður á íslandi
Dieter Rot selur eina
mynd fyrir 500 þús.
„Þaö má segja að ég
leggi hönd á margt sem
listamaður. Ég skrifa
bækur, gef út plötur og
mála,” segir Dieter
Rot er við hittum hann
að máli á Hótel Holti.
Hann er nýkominn frá
Hamborg, þar sem hann
á sinn eigin sýningarsal.
Nafn Dieters Rot er
þekkt i myndlista-
heiminum og hann á
myndir á Tate Gallery i
London, Museum of
Modern Art i New York
og viðar. Oft birtast
myndir eftir hann i við-
lesnum timaritum
beggja megin Atlants-
hafsins.
— og hefur ekki
undan að framleiða
Hann kom hingað fyrst árið
1957, gifti sig, eignaðist 3 börn og
bjó á íslandi meira og minna i 7
ár. Hann vann alls konar störf, en
málaði og skrifaði bækur á kvöld-
in og á sunnudögum. ,,Ég held
samt að ég hafi ekki selt eina ein-
ustu mynd hérna og peningarnir
voru af skornum skammti,” segir
Dieter.
Hann fór héðan og var ráðinn
prófessor við Yale-háskóla.
Grafikmyndir hans seljast nú
eins og heitar lummur og hann
hefur varla haft undan að fram-
leiða. Á hann sina eigin verk-
smiðju, sem aðeins prentar hans
myndir. „Það hefur að visu kom-
iðstöönun i augnablikinu i söluna,
vegna oliukreppunnar i heimin-
um. Fólk vill núna kaupa mál-
verk I fjárfestingarskyni. Svo að
þá' mála ég. Ég á málverk á
Dieter Rot meöeina af myndum sinum, sem hann gerði Ifélagi með öðrum. Ljósm. Bj. Bj.
lager, þvi að ég mála aðallega til
þess að hafa peninga, en ritstörf
eru mitt aðaláhugamál,” segir
Dieter.
Hann á lika útgáfufyrirtæki að
hálfu með öörum og þar eru aðal-
lega gefnar út hans bækur.
„Kannski skrifa ég 5, kannski 10 á
ári,” segir Dieter og bætir við:
„Þær seljast bara ekki nógu vel.”
Hann sýnir okkur nokkrar bækur
sem eru myndskreyttar af honum
sjálfum. Hann skrifar bæöi kvæði
og óbundið mál.
„Ég gef llka út timarit. Það er
fyrir allt, bæði gott og slæmt, og
svo er það fjölskylduútgáfan. All-
ir ættingjar og vinir geta tekið
þátt I henni. Þar eru bæði gefnar
út plötur, bækur og blöð. Ég á t.d.
eina 14 ára frænku i Sviss. Hún
skrifaði nýlega glæpasögu. Fjöl-
skylduútgáfan er aðallega til þess
að allir geti hrósað sjálfum sér af
einhverju.
Stundum komum við, svona 4-5
vinir, saman og leigjum okkur
hljómleikasal. Við spilum á öll
möguleg hljóðfæri og það, sem
kemur út úr þvi, gef ég út á plötu.
Nei, nei, við erum engir tónlistar-
menn, spilum bara eftir eyranu,”
segir Dieter.
Dieter Rot er að láta innrétta
fyrir sig hús uppi I Mosfellssveit
og hann á sumarbústað á
Snæfellsnesi. Hingaö segist hann
koma til þess að hafa ró og næöi
og til aö skrifa, en eins og fyrr
segir er það hans aöalmetnaðar-
mál. Til þess að geta þaö segist
hann selja myndir, sem kosta
kannski svona 500 þús. kr.
stykkið. —EVI -
Vófryggingar:
Kvörtunar-
miðstöð
fyrir þá
grátt leiknu
— sjá baksíðu
••
Á þriðja
hundrað
skáta
fara á
Nordjamb
1975
— sjá baksiðu
••
Draumurinn
og gríman
— Ólafur Jónsson
skrifar um
„Hlœðu
Magðalena,
hlœðu"
— sjá bls. 7
Fyrstu
spörkin
Grasvöllurinn i Kópavogi hef-
ur nú loksins verið tekinn i notk-
un og urðu þeir félagarnir i
Breiðabliki aðsjálfsögðu fyrstir
til að bregða á leik á þessum
langþráða velli.
Næst var það landsliðið, sem
fór inn á völlinn, og tók ljós-
myndari Visis, Bjarnleifur,
þessar myndir i gær þegar liðið
mætti þar til æfingar.
Á litlu myndinni sést Ásgeir
Sigurvinsson, hinn kunni at-
vinnumaður, leika sér með bolt-
ann. Á stærri myndinni er
landsliðið, eins og það mun
mæta Frökkunum. Á myndina
vantar tvo leikmenn. — Ljósm.
Bj. Bj.