Vísir - 24.05.1975, Qupperneq 3
3
Vísir. Lau^ardagur 24. mai 1975_
PÉTUR SNERÍ
SÉR BEINT TIL
FRAMLEIÐENDA
— þegar
samningurinn
við Cebere fór
út um þúfur
Eftir að ljóst var að Cebere
fyrirtækið i Englandi hafði engin
tök á að standa við þá stóru
samninga er það hafði gert við
Pétur Einarsson hjá Sjávarvörum
h.f., sneri hann sér beint ti! fram-
leiðenda um áburðarkaup, tjáði
Pétur Visi i gær.
Hina miklu áburðarsamninga,
sem Visir hefur ritað um að
undanförnu, átti upphaflega að
gera við fyrirtækið Cebere i Eng-
landi. Cebere skyldi sjá um að út-
vega allt það magn af áburði, sem
kaupendur vestan hafs höfðu hug
á að kaupa i gegnum fyrirtækið
Icelandic Products i Kanada.
Ljóst varð hins vegar að
samningurinn við Cebere var
marklaus og hafði pappirsfyrir-
tækið engin tök á að útvega það
magn áburðar, sem það skuldbatt
sig til i samningnum.
Sneri Pétur Einarsson sér til
framleiðendanna sjálfra, og nú
eru samningar við þá langt á veg
komnir um kaup á gifurlegu
magni áburðar, sem flutt verður
til landa i Evrópu og Ameriku á
vegum bandariskra fyrirtækja,
sagði Pétur.
Pétur sagði, að samningurinn
við Cebere hefði valdið fyrirtæki
hans töluverðu tjóni og væri nú i
athugun hvort það borgaði sig að
fara i mál við eignalaust fyrir-
tækið. Að sögn Pétursvar það ætl-
un Cebere að kaupa áburðar-
magnið og selja það siðan aftur i
stað þess að vera umboðsmaður
og reið það fyrirtækinu að fullu,
þótt horfur hefðu verið á þvi i
upphafi að þetta tækist. — JB
„ENN EIMIR EFTIR AF MJÖG
NEIKVÆÐRI AFSTÖÐU"
— athugasemd fró Guðmundi H. Garðarssyni
Guðmundur H. Garðarsson
alþingismaður hefur beðið blað-
ið að greina orðrétt frá ummæl-
um hans á viðskiptaþingi um af-
stöðu launþega til frjálsrar
verzlunar.
„Varðandi afstöðu islenzkrar
verkalýðshreyfingar til frjáls
markaðsbúskapar held ég, að
hinn almenni launþegi, fólkið i
félögunum, hafi meiri trú á
þessu efnahagskerfi en ýmsir
forystumenn hreyfingarinnar.
Dugnaður og atorka, samfara
ákveðnum lifsvenjum, ber þess
greinilega vott,” sagði Guð-
mundur.
„Hins vegar er ekki þvi að
leyna,að enn eimir eftir af mjög
neikvæðri afstöðu til veigamik-
illa þátta frjáls markaðs-
búskapar eins og til dæmis til
verðmyndunarkerfisins og
verzlunar og viðskipta almennt.
Kemur þar bæði til pólitisk
fjandsamleg afstaða til þessar-
ar tegundar atvinnustarfsemi
og kreppusjónarmið gamalla
verkalýðsleiðtoga. Ég hef trú á
þvi, að ef kommúnistum tekst
ekki að sölsa undir sig islenzku
verkalýðshreyfinguna muni
skilningur hennar á stöðu allra
greina atvinnulifsins i frjálsu
efnahagskerfi aukast.”
— HH
Spílverk þjóðanna á
hljómleikum í kvöld
Spilverki þjóðanna hefur nú
snögglega skotið upp á stjörnu-
himininn, eftir að hljómsveitin
hefur um langt skeið verið eins
konar inna nhússhljóm sveit
Menntaskólans við Hamrahlíð.
En það hlaut svo að fara að
ágæti hljómsveitarinnar spyrðist
út og nú er hljómplata i upp-
siglingu og alheimsfrægð handan
við hornið. Hljómplatan hefur
hlotið einróma lof, enda ekki
komin út ennþá, og til að gefa
áhugamönnum færi á að fleyta
rjómann ofan af list sinni hyggst
hljómsveitin koma fram á opin-
berum tónleikum i kvöld klukkan
hálfniu i' Norræna húsinu.
Spilverkið skipa Egill Ólafsson,
Valgeir Guðjónsson og Sigurður
Bjóla. Umboðsmaður Spilverks-
ins er jafnframt umboðsmaður
hinna geysivinsælu Stuðmanna og
tjáði hann blaðinu i stuttu viðtali I
gær, að nú væri ráðgert að Stuð-
menn kæmu fram i fyrsta sinn á
hljómleikum i Háskólabiói i
næsta mánuði. Þar kemur Spil-
verkið einnig fram, svo og is-
lenzki músikantinn Jakob
Magnússon, sem að undanförnu
hefur starfað i Englandi. Hann
kemur fram með enskri hljóm-
sveit sinni. Allar eru þessar þrjár
hljómsveitir tengdar órjúfanleg-
um böndum, en hver þau bönd eru
kemur ekki í ljós fyrr en á hljóm-
leikunum. Þá verður hulunni
svipt endanlega af hinum dular-
fullu Stuðmönnum.
— JB
Spilverk þjóðanna, þar sem það
æfir sig af kappi fyrir hljómieik-
ana i kvöld.
Konur löggiltir
endurskoðendur
„Við vorum tvær, sem iukum
prófi sem iöggiitir endurskoð-
endur. Ég og Erna Bryndis
Halldórsdóttir, sem strax fór ut-
an til vinnu,” sagði Guðrfður
Kristófersdóttir, þegar við lit-
um inn á endurskoðunarskrif-
stofu N. Manscher & Co., þar
sem hún vinnur.
Þar með höfum við eignazt
tvo fyrstu iöggiitu kvenendur-
skoðendurna okkar, sem hæfir
aideilis ágætiega á kvennaári.
Guðrfður sagðist vita til þess,
að nokkrar konur hefðu byrjaö f
þessu námi. Ein hefði veikzt áð-
ur en prófin hófust, svo að hún á
þau eftir. Aðrar hefðu helzt úr
lestinni af ýmsum ástæðum.
Ein hefði t.d. snúið dæminu við
og gifzt endurskoðanda — en
hætt sjálf við námið.
Þá eru það lika oft erfiðleikar
með börn kvenna i námi. Guðrið
ur á son, sem nú er þriggja ára,
en hún hefur verið svo heppin
að ömmurnar hafa skipzt á að
passa hann.
Guðrfður Kristófersdóttir að
störfum. — Ljósm. Bj. Bj.
Nokkrar konur eru nú
nýbyrjaðar i námi sem verðandi
löggiltir endurskoðendur, enda
ætti starfið ekki sfður að henta
konum en körlum.
— EVI —
Leifur Breiðfjörð við eitt verka sinna, ,,'Spegiltré”, f Norræna
húsinu. Ljósm. Bj. Bj.
Glermyndir þurfa
sérstaka birtu
— Leifur Breiðfjörð sýnir í Norrœna
húsinu og leysir vandann
með Ijóskösturum
„Það er búin að vera allt að
árs undirbúningsvinna undir
þessa sýningu,” sagði Leifur
Breiðfjörð, þar sem við hittum
hann í óða önn að koma fyrir
glermyndum sinum, skissum og
fleiru. Honum til aðstoðar við
verkið var kona hans, Sigriður
Jóhannsdóttir vefari.
Leifur segir okkur að i fyrstu
hafi hann ætlað að hafa sýning-
una á Kjarvalsstöðum og var þá
búinn að gera módel af tilhögun
sýningarinnar. Við sýningu á
glermyndum verður að hafa i
huga að þær þurfa sérstaka
birtu.
„Það lá við að ég hætti alveg
við sýningu þegar þessi leiðindi
byrjuðu á Kjarvalsstöðum,”
sagði Leifur. En það varð samt
úr að hann fór að leita sér að
öðrum sýningarsal. Varö Nor-
ræna húsið fyrir valinu. Leysir
Leifur erfiðleikana með birtuna
með mörgum ljóskösturum,
sem kasta birtu á vegginn bak
við myndirnar og þær hefur
hann svo i nokkurri fjarlægð frá
þeim. Er hann ánægður með
árangurinn. „Það versta er að
sýningartiminn er aðeins ein
vika,” segir Leifur.
Leifur fékk námsstyrk 1973,
sem hann notaði til þess að ferð-
ast og dvelja i Englandi hjá
Patric Reyntiers, en hjá honum
má segja að sé allsherjar sam-
komustaður, þar sem hittast
allir frægustu glermyndasmiðir
heims. Þeir vinna saman að
verkefnum, skiptast á skoðun-
um og hafa áhrif hver á annan.
Sagði Leifur að þetta hefði haft
mjög góð áhrif á sig þvf að
vissu leyti væri hann einangrað-
ur hér i listgrein sinni. Vonaðist
hann til að fara til Reyntiers
fljótlega aftur.
Leifur hélt fyrstu einka-
sýningu sina 1969 i Sigtúni,
Rvik.en hefur tekið þátt imörg-
um samsýningum, bæði utan-
lands og innan. Hann á gler-
myndir i Listasafni íslands og
Arkiv Museum Lundi og hefur
m.a. gert glermyndir fyrir
Þjóðleikhúskjallarann, Foss-
vogskapellu, kapellu NLFt i
Hveragerði, kirkju á Flateyri,
Landsbankann Húsavik og
HótelSögu. Fyrir utan þetta eru
margar mynda hans i einka-
eign.
Sýningin i Norræna húsinu
opnar i dag kl. 17. Hún er siðan
opin daglega frá kl. 14-22 til 1.
júni. Mörg verkanna eru til sölu.
— EVl —