Vísir - 24.05.1975, Blaðsíða 8

Vísir - 24.05.1975, Blaðsíða 8
8 Vísir. Laugardagur 24. mai 1975 fyrir börn úr sinum sóknum. 1 öðrum landsfjórðungum er kirkjan með sumarbúðir á þess- um stöðum: Við Vestmannsvatn i Aðaldal (þar verða lika ung- lingaflokkar), i Holti i önundar- firði og á Eiðum á Fljótsdals- héraði. Kirkjusiðan biður öllum börn- um og unglingum, sem i sumar- búðirnar fara nú i ár, blessunar Guðs og rifjar i þvi sambandi upp eftirfarandi ljóð hins kunna æskulýðsleiðtoga sr. Fr.Fr., er hann lagði unglingunum á tungu: Ó, þú, sem elskar æsku mina og yfir hana lætur skina þitt auglit bjart, lát aldrei dvina þá ást, sem leiðir, annast mig um ævi minnar stig. Ó, þú, sem leiðir lifsins strauma ég legg i hönd þér viljans tauma og alla mina æsku drauma. Ég hlusta i djúpri þögn á þig, er þú vilt fræða mig. Ó, gjör mitt hjarta að hörpu þinni svo hægt sem fljótt i sálu minni ég heyri leikið leik þar inni af iþrótt lög sem einn þú n er ást þin strengi slær. Sumarbúðirnar I Skálholti. KIRKJAN O UMFRAM ALLT Það er ckki oft — en þó kemur þaö fyrir — aö pistiii dagsins er tekinn úr bréfum Péturs i N.T. Samt eru þau bæöi uppbyggileg og lærdómsrik, og athygli- og umhugsunarvert er margt oröiö sem þar er að finna. Svo er t.d. um þau vers úr 4. kap. fyrra Pétursbréfsins, sem hér að ofan er visað til. bar er bréfritari að minna á það, að nú séu að nálgast hinir siðustu tim- ar. Endir allra hluta sé i nánd og við þvi eigi kristnir menn að búasteftir föngum. f hverju á sá viðbúnaður að vera fólginn? Þar nefnir bréfritarinn tvennt fyrst og fremst. Annað er betta — að vera gæt- inn og aigáöur til bæna. —Hitt er þó enn meira áriðandi. Um það kemst hann svo að orði: Umfram allt hafið brennandi kærleika hver til annars. Langt er siðan þetta var ritað oghvaða hugmyndir, sem menn gera sér um það, hvort endir allra hluta sé nú i nánd eða ekki, þá er hitt alveg vist, að hvor tveggja þessi áminning tjl les- enda Pétursbréfsins um bænina og brennandi kærleika, þær eru enn i sinu fulla gildi. Þau orö eiga enn i dag erindi til allra kristinna manna. Sérhver mað- ur, sem vill varðveita sálarfrið sinn ogverai samræmi við til- gang sinn og takmark með lif- inu, hann verður að vera i bæn- arsamfélagi við Guð, halda op- inni þeirri lind trúar, öryggis og bjartsýnnar vonar, sem bænin veitir hverjum og einum, sem iðkar hana af einlægni og gerir hana að daglegri venju. Hann mun lika taka undir hina al- kunnu bæn sálmaskáldsins, sem við flest kunnum: Gef yndi mitt og iðja það alla daga sé með bljúgum hug að biðja sem barn við föður kné. Þrátt fyrir öll visindi, alla þekkingu, allar framfarirnar á hinu verklega sviði, efnalega velmegun og afþreyingariðju, þá gengur manninum ekkert betur en áður að ná þeim tökum á lifinu eða notfæra gæði þess sér til sannra heilla og andlegr- ar farsældar heldur en áður var. Og þannig er þetta vegna þess, að maðurinn er viðskila við upp- sprettu lffsins: Kærleikann, — kærleika Guðs — eins og hann birtist i eingetnum syni hans Jesú Kristi, frelsara vorum og drottni. Þetta leiðir beint yfir til þess, sem er tekið fram i upphafi þessara orða og lögð er megin- áherzla á i hinum tilfærða kafla Pétursbréfsins: En umfram allt — hafiö brennandi kærleika hver til annars. —Þetta boðorð, þessa áriðandi áminningu, er okkur nauðsynlegt að hafa i huga og halda, bæöi vegna okk- ar sjálfra og samferðamann- anna. Guðs orð segir, að kær- leikurinn sé þess megnugur að hylja fjölda synda. öll vitum við og viðurkennum, að margar eru okkar yfirsjónir og daglega brjótum við móti vilja Guðs i orði og verki. Þess vegna meg- um við ekki láta ónotuð nein þau tækifæri, sem lifið gefur okkur til að iðka hið góða, auðsýna öðrum kærleika, láta kærleika Krists knýja okkur til að opna hjartað fyrir náðaráhrifum Guðs svo að þau veki i brjóst- um okkar elskuna til náungans og alra samferðamanna og verði okkur hvatning til góðra verka og farsælla áhrifa á allt umhverfið. —■ Hér á vel v.ið bæn i kunnum sálmi eftir Valdimar Briem: Kærleikans andi hér kom með.þinn sólaryl bliða kveik þú upp eld þann er hjartnanna frostmegi þiða breið yfir byggð, bræðralag vinskap og tryggð. Lát það vorn lifsferil prýða. Á morgun er trinitatis — þrenningarhátið. Þá veröur ef- laust i kirkjum landsins — i ræð- um prestanna — rifjaður upp trúarlærdómurinn um þrenn- inguna, hinn þrieina Guð — föð- ur, son og heilagan anda. En hversu vel eöa miður vel, sem okkur gengur að tileinka okkur hana, þá skulum við minnast þess nú að til er önnur þrenning i kristnum trúar- og siöalær- dómi — það er trúin og vonin og kærleikurinn. — Og þá er ekki úr vegi að rifja þaö upp, sem Páll segir um þessa þrenningu: Þeirra er kærleikurinn mestur. Islenzk þjóð hefur margt og mikið að þakka Guði fyrir for- sjónarika varðveizlu hans á landi og þjóð i aldanna rás. Og hún þakkar honum velgengni og velmegun, sem nútima kynslóö- in nýtur i þessu blessaða landi sinu. En við megum þá heldur ekki gleyma þvi að biðja hann að auðga okkur að kærleika, sanngirni og skilningi hvers i annars garð, svo að við getum búiö hér saman glöð og þakklát vorum himneska föður fyrir gjafir hans, sem drjúpa sem dögg til vor niður. Fró Sjúkrasamlagi Reykjavíkur Læknamir Guðmundur B. Guðmundsson og ísak Hallgrimsson hætta störfum sem heimilislæknar 1. júni 1975. Samlagsmenn sem hafa haft þá sem heimilislækna, snúi sér til afgreiðslu sam- lagsins, hafi með sér samlagsskirteini sin og velji sér lækni i þeirra stað. Sjúkrasamlag Reykjavikur Kapellan i Vatnaskógi. Sumarbúöir — hvað er nú það? Þannig heföu menn spurt fyr- ir nokkrum áratugum. Þær eru eitt af þvi, sem þéttbýlið — kaupstaöirnir — hafa skapaö — þess vegna hafa þær, eða a.m.k. þörfin fyrir þær, orðið til með vaxandi kaupstöðum. Sumarið kemst nl. ekki fyrir i þéttbýlinu — þeim mun verr — sem þéttbýlið er fjölmennara, byggð þess fullkomnari. Til þess að þau njóti sumars- ins, þarf að fara með blessuð börnin úr þéttbýlinu út i sveit- ina. — Til þess að þetta sé mögulegt i nútima þjóðfélagi þarf sumarbúðir. Það eru sérstaklega tveir að- ilar hér á landi, sem reka þessar búðir. Það er K.F.U.M. og K. Og það er þjóðkirkjan. — Og þetta gera raunar fleiri stofnanir og félög þótt ekki verði þeirra minnst hér. Sumarbúðir Kristilegu félag- anna eru i Vatnaskógi og Vind- áshlið, Kaldárseli og Olveri undir Hafnarfjalli hér sunnan- lands og við Hólavatn i Eyja- firði. Þær fyrstnefndu eiga sér langa sögu, sem Skógarmenn K.F.U.M. hafa ritað, ekki með orðum, heldur með dugmiklum framkvæmdum og fórnfúsu starfi. Það hefur borið mikinn og góðan árangur eins og sjá má á mannvirkjum þar efra og ótal drengir hafa notið þar gleði i hópi góðra félaga á björtum sumardögum i hinni undurfögru náttúru Vatnaskógar og bless- unar i samfélagi þeirra um Guðs orð, sambæn og söng. Hið sama má segja um starf K.F.U.K. i Kjósinni þar sem heitir i Vindáshlið og gamla kirkjan frá Saurbæ á Hvalfjarð- arströnd setur helgisvip á stað- inn. Allar upplýsingar um sumar- starf K.F.U.M. og K. fást á aðalskrifstofunni á Amtmanns- stig 2 B. Sumarbúðir þjóðkirkjunnar eiga sina aðalbækistöð i Skál- holti, þar sem komin er ágæt að- staða til slikrar starfsemi og rekin er á vegum æskulýðs- starfs kirkjunnar á Biskups- stofu, Klapparstig 27. Þar eru aðallega hópar fyrir drengi og telpur á aldrinum 7—12 ára og geta söfnuðir fengið sértima Kirkjan i Vindáshliö.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.