Vísir - 24.05.1975, Side 20

Vísir - 24.05.1975, Side 20
vísm Vlsir. Laugardagur 24. mai 1975 Sólin felur sig um helgina — hitinn upp í 20 stig í gœr Veðurguðir virðast hafa ákveðið að sýna okkur að þeir liafa fleiri hliðar en bliðar. Að vísu eigum við ekki von á neinni hörku, en eftir veðurspám að dæma felur sólin sig að mestu bak við ský um helgina. t gærkvöldi, þegar við höfðum samband viö Veðurstofuna, voru horfur á suðlægri átt, skýjuðu og liklega úrkomu á Suöur- og Vesturlandi. En við (og gróðurinn) höfum kannski bara gott af vætunni eftir allan þurrkinn. A Norður- og Austurlandi verður hins vegar bjart áfram. Allst staöar á landinu verður hlýtt. Dagurinn i gær var vel hlýr. Hitinn fór allt upp i 20 sig á Nautabúi i Skagafiröi. Kaldast var 4 stiga hiti i Skoruvik og Sandbúðum. 1 Reykjavik fór hitinn upp i 17 stig. -EA „Viltu slá grjót með kylfunni minni?" Uþpi i Arbæjarhverfi hefur frétzt af ungum piltum, sem ganga þar um og bjóða öðrum að slá smásteina með nýjum golfkylfum, sem þeir hafa meðferðis. Þarna eru liklega komnar fjórar nýjar trékylfur — Uniroyal/Arnold Palmer — sem stolið var úr golfskálan- um I Grafarholti nú fyrir stuttu. Þar sást til tveggja pilta, sem hlupu frá skálanum i átt að Arbæjarhverfinu með laus- ar kylfur I höndunum, en enn hefur ekki tekizt að hafa hend- ur á hári þeirra. Þeir, sem geta gefið einhverjar upplýsingar um þessi dýru verkfæri, eru beðnir aö láta lögregluna vita. Um 200 stúdentar útskrifuðust frá Menntaskólanum f Reykjavik I gær. Ekki var annaö að sjá en þeir væru harla ánægðir með hvita kollinn, og haida átti upp á allt saman á Hótel Sögu I gærkvöldi. Ljósm. Bragi. — 34 „öldungar" útskrifast Um 200, hvorki meira né minna, settu upp hvitar húfur i gær. Svoleiðis nokkuð skreytir borgarlifið að sjálfsögöu. Ann- ars er það næstum þvi oröið i hverri viku sem stúdentar út- skrifast. „Þetta er næstum orðið i hverju hverfi borgarinnar,” varð einum að orði. Mennta- skólinn við Hamrahlfð út- skrifaði i sfðustu viku, Mennta- skólinn við Tjörnina i fyrradag og svo Menntaskólinn i Reykja- vfk I gær.hann útskrifaði um 200 stúdenta. I dag útskrifast 34 „öldungar” úr Hamrahliðarskólanum. 1. júnf útskrifast svo fyrstu stúdentarnir úr Flensborgar- skóla i Hafnarfirði, 30 að tölu. Það er þvi mikið um að vera hjá námsfólki þessa dagana og ekki furða þó þeir njóti þess að skarta húfunni eftir langan og erfiðan próflestur. — EA Kvörtunarmíðstöð fyrir þó grótt leíknu? Kvörtunarmiðstöö kann að verða komið á fót um ágreiningsmál milli vátryggingaf élaga og þeirra, sem vátryggja hjá þeim, til dæmis um tjóna- uppgjör og bætur eða túlkun skilmála. Þetta kemur fram í greinar- gerð tryggingaeftirlitsins. Bent er á, að á Norðurlöndum hafi slik mál meðal annars verið leyst þannig. Almenningur get- ur leitað til slikra miðstööva og borið upp sin mál sér að kostnaðarlausu. Mjög góð reynsla er talin hafa verið af þessu. Það heyrir ekki beint undir tryggingaeftirlitið að sinna slik- um málum, enda hefur það ekki, aðstöðu til að skera úr ágreiningsmálum sem þessum. Eftirlitinu ber hins vegar að gæta þess, að vátryggingaskil- málar séu i samræmi við góða viðskiptaháttu i vátrygginga- viðskiptum, eins og það er orðað i lögum, og ágreiningsmál milli félags og viðskiptamanns koma eftirlitinu þvi óbeint við. 1 lögum um vátryggingastarf- semi er ákvæði, sem miðar i þessa átt. Þar segir, að i vá- tryggingahlutafélagi skuli einn stjórnarmanna valinn með það fyrir augum að gæta hagsmuna — möguleiki, sem hefur gefizt vel á Norðurlöndum vátryggingataka og hinna tryggðu. Ber þessum stjórnar- manni meðal annars að sinna umkvörtunum einstakra vá- tryggingataka og kanna rétt- mæti slikra kvartana. Þetta ákvæði er almennt litið þekkt, en það skiptir miklu máli fyrir marga. Tvö félög hafa látið kjörfund, sem eru fulltrúar, valdir úr hópi vá- tryggingataka félaganna, velja mann i stjórn. -HH Á þriðja hundrað skáta fara á Nordiamb 1975 „Það verða á þriðja hundrað drengja-skáta á aldrinunt 14-18 ára sem taka þátt i Nordjamb 1975, alþjóða skátamóti, sem haldiö verður nálægt Lille- hammer i Noregi i sumar,” sagði okkur skátaforinginn Sigfrid Ólafsson, er hann leit við hjá Visi i gær. Mótið er haldið af Norðurlönd- unum að þessu sinni, og verða það um 15 þús. skátar viðsvegar að úr heiminum, sem taka þátt i þvi. Mót af þessu tagi eru haldin á fjögurra ára fresti og var siðast 1971 i Japan. Þangað fóru þá að- eins þrir skátar héðan. Áætlað var i haust að kostnaður við ferðina yrði 27.800 kr„ en sú tala hefur heldur betur hækkað og verður 49.000 kr. Auk áhrifa gengisfellingar á upphæðina hef- ur bætzt við 5 daga ferð til Sviþjóðar eftir mótið og 2500 kr. flugvallargjald. Skátarnir hafa verið með alls konar fjáröflunarleiðir til að létta sér kostnaðinn og i dag, laugar- dag kl. 2, halda Frónfarar hluta- veltu i kjallara Bústaðakirkju. Engin núll, ekkert happdrætti, en ýmsa góða muni verður þar aö finna. -EVI- Þátttaka Islenzku skátanna I Nordjamb 1975 verður að teljast mjög góö.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.