Tíminn - 19.08.1966, Page 2
2
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 19.
ágúst 19G6
Suzie Wong leggur a8 bryggju í Reykjavík í gærkvöldi.
Tímamynd—Bi. Bj.
A Suzie Wong umhverfis
lundið eftir vegukorti!
Ifn drengsins
Litli drengurinn, sem ldemmd-
ist til bana í gær, hét Magnús
Vilberg Gunnarsson, 10 ára gam-
all, Litlagerði 14 í Reykjavík.
% stórir flutn-
ingabílar út af
á leið norður
'íJ-Reykjavík, fimmtudag.
f gær, miðvikudag var vitað um
rjóra stóra flutningabíla, sem fóru
út af á leiðinni Reykjavík — Ak-
nreyri, og urðu nokkrar skemmdir
á bílunum, en bílstjórarnir og far-
þegar sluppu ómeiddir.
Vöruflutningabíll frá Pétri og
Valdimar á Akureyri var á suður-
leið er hann fór ut af þjóðvegin-
im hægra megin við Hamar á Þela
mörk. Hékk bíllinn á vegarbrún-
inni en valt samt ekki yfir.
Vöruflutningabifreiðin S-212 fór
út af veginum undir Hafnarfjalli
í Borgarfirði. Hvellsprakk að fram
an á bílnum áður en hann kom
að brú og lenti hann útaf vegin-
um hægra megin. Tveir kranabíl-
ar frá Akranesi náðu bílnum upp
á veginn aftur. Á meðan verið var
að því söfnuðust bílar saman báð-
um megin við brúna, og var á með-
al þeirra sjúkrabíllinn frá Borgar-
Framhald á bls. 15.
i SJ-Reykjavík, fimmtudag.
Eins og kunnugt er af fréttum,
er nú verið að gera flugvöll
skammt frá Raufarhöfn og verður
flugbrautin 1200 m. f viðtali við
Tímann sagði Agnar Kofoed Han-
GÞE—Reykjavík, fimmtudag.
Kl. 8.20 í kvöld lagðist hrað-
sen flugmálastjóri, að verkið hefði
unnizt mjög vel og er kostnaður
við það áætlaður um 1 milljón
króna. Hann kvaðst gera sér góðar
vonir um að hægt yrði að taka
Framhaid a ois 15
báturinn Suzie Wong upp að Lofts
bryggju í Reykjavík, og hafði þar
með lokið hálfsmánaðar hringferð
um landið. Múgur og margmenni
hafði safnazt saman að bryggj-
unni til að fagna kempunum Haf
steini og Þórarni, og þegar þeir
stigu á land, glumdi við lófatak
og fagnaðaróp gullu. Meira að
segja voru nokkrir mættir mcð
blómvendi eins og hér væru þjóð
höfðingjar á ferð.
Hún var ekki beinlínis stórskor
in að sjá hún Suzie Wong utan i'rá
Granda skömmu áður en hún kom
að bryggjunni. í fljótu bragði gat
maður ályktað, að þetta væri lít-
il hvítfyssandi alda, og það var
ótrúlegt. að þessi litla skel hefði
siglt í kring um allt landið á 11
dögum. Það var ekki að sjá nein
þreytumerki á þeim Hafsteini og
Þórarni, þegar þeir komu að landi.
Framhald á bls. 14.
Héraðsmót Fram-
sóknarmanna 27.
ágúst og 3. og 4.
september.
Verða þau sem hér segir:
Sævangi, Strandasýslu,
laugardaginn 27. ágúst kl. 9 sið
degis. Ræður flytja Eysteinn Jóns
son, formaður Framsóknarflokks
ins og Ólafur Grímsson.
Ómar Ragnarsson skemmtir.
Hljómsveitin Kátír félagar leika
fyrir dansi.
Laugarbrekku, Vestur-Húna-
vatnssýslu
laugardaginn 27. ágúst kl. 9. sið >
degis. Ávörp flytja Skúli Guð
mundsson, alþm., og Gísli Magmis
son, bóndi Eyhildairholti.
Hljómsveitin Engir leika fyrír
dansi.
Skúli Gisli
Laugum, S-Þingeyjarsýslu
laugardaginn 3. september kl. 9
síðdegis. Ræður flytja alþmgis-
mennirnir Karl Kristjánsson og
Helgi Bergs, ritari Framsóknar-
floíkksins. Meðal þeirra, sem
skemmta, eru Jón Gunnlaugsson,
gamanleikari, og Jóhann Konráðs
son og Kristinn Þorsteinsson.
Hljómisveit leikur fyrir dansi.
Karl Helgi
Bifröst í Borgarfirði
sunnudaginn 4. september kl. S
síðdegis. Ræður flytja Halldór E.
Sigurðsson, alþingismaður, og
Davíð Aðalsteinsson, Ambjargar-
læk.
Fjölbreytt skemmtiatriði
Halldór DaviS
Blönduósi
laugardaginn 3. sept kl. 9 síðdegis.
Hvolsvelli, Rangárvallasýslu,
laugardaginn 3. septomber.
SVIFFLUG Á ÍSLANDI30 ÁRA
Svifflugfélag fslands minnist þrjátíu ára afmælis síns með kaffisam-
sæti í Silfurtunglinu (yfir Austurbæjarbíói) kl. 15—17 á laugardag-
inn, 20. ágúst, og er þess vænzt, að sem flestir eldri og yngri félagar
og áhugamenn um svifflug komi þar saman.
316.714 atvinnu-
lausir í Bretlandi
NTB—London.
Tala atvinnulausra í Bret-
landi hafði 8. ág. s.l. risið úr
súmlega 264 þúsundum í 316.
714 á einum mánuði. Er þetta
afleiðing af stefnu stjórnarinn-
ar í efnahagsmálum.
28 dóu í hryöju-
verki í Hue
Sprengju var varpað inn í
fullsetið veitingahús í Hue, og
í kvöld var talið að 28 hefðu
látið lífið og 123 særzt — bæði
við sprenginguna og þá al-
mennu hræðslu, sem greip um
sig á staðnum. Talið er, að
margir þeirra, sem létu lífið,
hafi verið troðnir til bana. Með
al þeirra voru margar konur og
börn.
Mikil flóð í Austurríki
NTB—Vín.
Mikil flóð hafa átt sér stað í
Austurríki og hafa heilir bæir
einangrazt af þeirra völdum.
Tveir hafa þegar látið lífið,,
svo vitað sé. Mjög víðtækar
björgunaraðgerðir standa nú
yfir.
Lin Piao eftir-
maður Maos?
NTB—Peking.
Mao Tse Tung og Lin Piao,
varnarmálaráðherra. stóðu í
dag hlið við hlið á fjöldafundi,
og voru mjög hylltir af mann-
fjöldanum, sem slagaði hátt í
milljón. Er talið, að fundurinn
sem stóð í sjö klst. hafi verið
haldin til að kynna Lin sem
eftirmann Maos.
Myndir frá tunglinu
NTB—Kennedyhöfða.
Bandaríska tunglfarið Lunar
Orbiter tók i dag fyrstu mynd
ir sínar af bakhlið tunglsins,
og sendi þær síðan til jarðar.
Ljósmyndunin mun hafa geng-
ið samkvæmt áætlun.
25 Asíuríki
skora á U Thant
NTB—New York.
Þau 25 Asíuríki, sem aðild
eiga að SÞ skoruðu í dag á U
Thant, framkvæmdastjóra, að
taka við endurkjöri í nóvem-
ber. Áður hafa Afríkuríki sent
honum sams konar áskorun,
eins stórveldin, og sagt er, að
Suður-Ameríkuríki undirbúi að
senda honum sams konar áskor
un. U Thant mun tilkynna af-
stöðu sína um mánaðamótin,
og telja flestir, að hann muni
taka við endurkjöri en þó ekki
út fullt kjörtímabil, sem er
fimm ár, heldur í 2—3 ár.
Skorað á USA og USSR
að hætta k-vopnatilraunum
NTB—Genf.
Átta hlutlaus ríki kröfðust
þes 1 dag á afvopnunarráðstefn
unni í Genf að aBndaríkin og
Sovétríkin hættu tilraunum sín
um með kjarnorkuvopn neðan
jarðar. Einnig lýstu þau því
yfir, að það væri mjög alvar-
legt, að nokkur ríki virtu ekki
Moskvusáttmálann um takmark
að tilraunabann og er þar átt
við Kína og Frakkland. Meðal
ofangreindra átta ríkja var Sví
þjóð.
Svíar selja ekki
vopn til Ástralíu
NTB—Stokkhólmi.
Svíþjóð selur ekki vopn til
ríkja, sem taka þátt í borgara
styrjöld, eða alvarlegum alþjóð
legum deilum, að því er tals
maður sænska utanríkisráðu-
neytisins sagði í dag. Samkv.
því hættir Svíþjóð sölu vopna
til Ástralíu, sem sent hefur
hermenn til Víetnam.
„Sultur" frumsýnd
á föstudag
NTB—Osló.
Norræna kvikmyndin
„Sultur“, sem Henning Carlsen
hefur stjórnað, verður frum-
sýnd á föstudaginn í Osló og
Kaupmannahöfn. Hún er gerð
eftir samnefndri skáldsögu
Knut Hamsuns.
Norræn afstaða
til SV-Afríku?
NTB—Stokkhólmi.
Mikil diplómatísk starfsemi
fer nú fram á Norðurlöndum í
því skyni, að Norðurlönd geti
tekið sameiginlega afstöðu i
SV-Afríkumálinu í haust. { síð
ustu viku hittust fulltrúar nor
Framhald á bls 14 ?
Kostnaður við gerð
Raufarhafnarfíug-
vallar um milljón