Tíminn - 19.08.1966, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 1». ágúst 1966
TÍMIWW
Og hér sjáum við hana Gun-
illa Stolpe frá Svíþjóð, sem
verður mótleikari Sean Conn-
ery í næstu James Bond mynd,
„You only Live Twice“, sóla
sig í gistihússgarði í Róm, þar
sem hún dvelur nú. Gunilla er
22ja ára, bláeygð og Ijóshærð
annars klædd í síðum dýrindis
kjól í næturklúbb i Þýzkaland;,
en skólaus. Einnig vakti það
mikla athygli, að í ágústbyrjun
kam Gunther Sachs til Ham
borgar án hinnar nýju eígin-
konu sinnar. Lét hann svo um
mælt að hann væri kominn til
Hamborgar vegna vinnu sinnar,
en Brigitte nyti hvíldar hjá
vinum þeinra í Sviss. Þetta
atvik gaf slúðurdálkurn
franskra blaða byr undir báða
vængí og voru þeir ekki lengi
að ákveða það, að nú ætti Brig
itte Bardot von á barni.
Brigitte ætlar nú að fara að
leika í nýrri kvikimynd í Fra&k
landi og nefnist hún „Hrifandi
asni“.
Fyrrverandi fylgisveinn BB,
Bob Zaguri virðist nú að mestu
hafa sleiikt sár sín. Eftir gifting
una, seim kom eins og þruma
úir heiðslkíru lofti, féll Bob
alveg saman og neitaði að ta’.a
við nokkum mann og á endan
um varð það úr að hann fór
tíl Marokko, en þaðan er hann,
til foreldra sinina, sem hann
hafði ekki séð í mörg ár. Þar
naut hann hvíldar og hafði
rænu á því að tala við þlaða
menn og lét þá svo ummælt,
að hann fylgdist ekki lengur
með því, sem væri að gerast
í 'heiminum því að hann væri
hættur að líta á dagblöðin og
opnaði ekki fyrír útvarp. Hefði
hann hætt að lesa dagblöðin til
þess að hann þyrfti ekki alltaí
að sjá myndir af BB og Gunth
er og lesa um hamingju þelrra.
Nú er Bob kominn til Parisar
ísar og virðist hættur að harma
liðna tíð og búin að eígnast
nýja vinkonu.
★
Franskur lögfræðingur að
nafni Bidault var í fastasvefni
einn laugardagsmorgun, þegar
hann allt í einu hrökk upp við
það ,að hann heyrði skellt hurð
í ibúðinni. Bidault opnaðí aug-
un og kveikti ljós og eftir ör-
Vatnstunna á götu í Palermo
á Sikiley er kannski ekki á við
sundlaug, en hún meir en þjón
aði tilgangi sínum fyrir þennn
an sikileyska dreng, sem stakk
sér á bólakaf til að kæla sig,
en hitabylgja hefur gengið yfir
Ítalíu undanfarna daga. Milljón
ir ítala hafa kælt sig á strönd-
unum — eða flúið upp í fjöllin.
Brigitte Bardot og eigínmað
ur hennar Gunther Sachs eru nú
komin aftur til Frakklands eftir
eins mánaðar brúðkaupsferð
víðs vegar um heim. Hefur ým-
islegt á daga þeirra drifið með-
al annars varð að gera smáað-
gerð á öðrum fæti Brigitte Bard
ot í Mexíco og vakti það mikla
aiflhygli, að lengi á eftir sást
frúin aldrei í skóm heldux gekk
um berfœtt. Kom hún meðal
litla stund heyrði hann eitt
hvert þrusk og þar sem hann
vissi að tæplega gat verið um
að ræða viðskiptavin svo árla
morguns þaut lögfræðíngurinn
út úr rúminu, brá sér í náit-
slopp og fór til þesis að kynna
sér hvað þessu þruskí olli. í
tveim fyrstu herbergjunum,
sem hann kom inn i varð liann
ekki var við neitt grunsamlegt,
en þegar hann kom inn í það
þriðja rak hann augun í lit
inn, feitan mann, sem var iinr.
um kafinn að bisa við peninga
skápinn hans. Lögfræðingur-
inn kastaði sér á manninn, sem
varð undrandi yfir þessari ó-
væntu árás og hugkvæmdist
ekki annað ráð s'ér til varnar en
að bíta lögfræðinginn í hönd
ina, lagði síðan á flótta. Li>g
fræðingurinn kallaði síðan á
lögregluna, en þegar hún kom
á staðinn var þjófurinn far-
iinn sínar leiðir með sinn auma
feng, þúsund krónur.
★
— Lífið hefur engan tilgang
ftramar, sagði 92 ára gamall
maður — ég ætla að styíta
mér aldur. Orsökin til þessarar
örvæntingar mannsins, var sú
að hann hafði orðið alvarlega
ástfanginn í konu, sem var 30'
árum yngri en hann og fannst
manninum konan ekki endur-
gjalda tilfinningar hans, Þessi
Romeo tuttugustu aldarinnar
stóð við orð sín og hengdi sig
sköimmu síðar.
★
Bora Misic er hárgreiðslumað
ur í Júgóslavíu og er um þess
ar mundir mjög hamingjusain-
ur, því að eftir 77 hjónabönd
og jafnmarga skilnaði hefur
hann loksins fundið hina einu
réttu konu, drottningu drauma
sinna. Nokkur hjónabanda hans
hafa ekki staðið nema í einn
dag.
★
Fyrir skömmu var brotizt inn
í villu þeirra Sophiu Loren og
Carlo Ponti í Burgenstock í
námunda við Lucern, Sviss. Þau
hjónin voru ekki i Sviss þegar
þetta gerðist svo ekki er enn
vitað hversu miklu hafi verið
stolið þaðan.
— og hefur hlotið titilinn Ung-
frú Svíþjóð.
Á víðávaNgi
„Skynsamleg hag-
stjórn"
Það kemur fyrir, að Visii
bregður sér í hlutverk barns-
ins, sem sagði: Keisarinn er ber.
Þetta skeður til dæmis í gær,
þegar blaðið birtir forystugrein,
sem heitir Skynsamleg hag-
stjórn. í niðurlaginu segir Vís-
ir hiklaust, skýrum orðum, að
keisarinn, þ. e. ríkisstjórnin, sé
ber í stefnu sinni og aðgerðum
í efnahagsmálum.
Vísir bendir á, hvað af þvi
hlýzt, þegar margvíslegir fram-
kvæmdaaðilar keppa skipulags
laust um vinnuaflið og fjármagn
ið. Um þetta segir Vísir:
„Allar þessar framkvæmdir
eru ánægjulegar og nauðsynleg
ar. En hér þarf að tryggja, að
þær auki ekki enn á verðbólg-
una og launaskriðið. Bæði Bret
ar og Norðurlandaþjóðirnar
hafa tekið upp slíka skipulagn-
ingu í fjárfestingarmálum, sem
miðar að því að beita vinnu-
afli og fjármagni á sem hag-
kvæmastan hátt. ÞAR ER EKKI
UM HÖFT AÐ RÆÐA, HELD-
UR SKYNSAMLEGA HAG-
STJÓRN. SÝNIST VISSULEGA
TÍMABÆRT AÐ BEITA SVIP-
UÐUM RÁÐUM HÉR Á LANDI,
svo samkeppni stórframkvæmd-
anna á vinnumarkaðnum
sprengi ekki enn upp kaup-
gjald og verðlag í landninu“.
Er þá „hin leiðin" til?
Þetta eru merkileg orð í
Vísi. Eins og allir þeir, sem
eitthvað hafa fylgzt með um-
ræðum um verðbólgu ,og efna-
hagsmál undanfarin missiri
vita, hafa Framsóknarmenn
lialdið því fram, að fjárfesting-
aröngþveitið og samkeppni
verðbólguframkvæmdanna um
vinnuafl og fjármagn, væri-
meginskaðvaldur í efnahagsmál
um landsins og verðbólgukynd-
ir. Þjóð, sem ætti svo margt
ógert sem íslendingar, yrði að
vega og meta, hvað brýnast
væri hverju sinni og láta það
ganga fyrir um vélaorku, fjár-
magn og vinnuafl, en ekki að
láta stjórnlaust kapphlaup,
sem ríkisstjórnin kallar frelsi,
ráða skömmtun þess, hvað
kemst í verk. Það væri raunar
aðeins önnur hlið á gömlu nei-
kvæðu haftaleiðinni. Hér yrði
að taka upp jákvætt skipulag
og samvinnu ríkis, félaga og
einslaklinga um fjárfestingar-
áætlanir og ætla sér í heild
hæfileg viðfangsefni, en örva
jafnframt framleiðslu og þora
að nýta fjármagn og vélaorku
og framkvæmdaafl. Formaður
Framsóknarflokksins kallaði
þetta „hina leiðina" eða and-
stæðu þeirrar neikvæðu og
blindu ringulreiðar, sem ríkt
hefur í tíð þessarar ríkisstjórn-
ar.
Síðan hafa talsmenn ríkis--
stjórnarinnar og hagfra'ði-
prófessor hennar rembzt við að
reyna að sanna, að ekki væri
nema um tvær stefnur í efna-
hagsmálum að ræða, anna$
hvort liina blindu ringulreið,
sem ríkisstjórnin hefur látitÝ
ráða og kallað „frelsi“, eða
höft og skömmtun í hinni
gömlu mynd. Örnur Ieið væri
ekki til. „Hin Ieiðin“, sem
Framsóknarmeno töluðu um,
væri aðeins gamla haftaleiðin.
Nú skýzt allt í einu annað
upp úr Vísi. Hann viðurkennir,
að „bæði Bretar og Norður-
landaþjóðirnar hafi tekið upp
slíka skipulagningu í fjárfest
Framhald á bls. 12.