Tíminn - 19.08.1966, Side 8

Tíminn - 19.08.1966, Side 8
TÍMINN FÖSTUDAGUR 19. ágúst 1966 Ekki þýddi að sofa langt fram á dag, Þorsteinn var uppi eins og eldibrandur að áliðnum morgni, og næst var ferðinni heitið til Seyðisfjarð ar, megnið af vörunum í þess um stóra bíl átti að fara þang- að og afhendast þar við dyr nærri tuttugu viðtakenda, margs konar vörur, bæði fast ar og fljótandi. Það var hellirigning á Hér- aði, og ekki var mikið hægt að litast um á Fjarðarheiði, sem ég fór nú í fyrsta sinn. En út Kranabíllinn lyftir jarðbornum við Lagarfljót og gerir margar atrennur til að skutla honum í skottiS á kojubílnum stóra. Tímamynd-GB eiginlegt, en láta aðra íbúð- ina og aðra heimavistaráihiune bíða. — Það verður mikill munur. þegar þetta fallega hús er full smíðað, hver hefur teiknað það? — Já, þetta verður fallegt hús, teikninguna gerði Þor valdur Þorvaldsson arkitekt. Og hún er líka miðuð við stækk un með viðbyggingum. Þetta verður skóli fyrir nokkra hreppa, sem sameinazt hafa um byggingu heimavistarskola fyrir börn og unglinga, og það er ólíkt meira vit í slíku fyrir komulagi en að hver hreppur sé að baksa við skólahald út af fyrir sig, sem er bæði kostn aðarsamara og erfiðara um út- vegun kennara og sitthvað fleira. Og það breytist líka viðhorfið, þegar svona skóli er kominn eða honum vex fiskur um hrygg, unga fólkið fer að alast upp saman, þ4 stækka 'hrepparnir og aukast mögu- Lagarfljótsormurinn dauður? - Ónei. Hann lifir góðu lifi” sýn opnaðist, er halla tók und- an, sólin stafaði Seyðisfjörð, sem nú blasti við. Vegurínn bugðast niður brattar brekkur, sumstaðar eru beygjur svo krappar, að bíllinn nær naum- ast beygjunni. Til hægri hand ar eru margir undurfallegir fossar í ánni, sem fellur af heiðinni út í fjörðinn, einkum er Systrafoss sérkennilegur,, klofnar á stalli og fellur í tveim fossum, sem stefna hvor á móti öðrum. Það var engin síld á Seyðis firði þennan dag, ekkert að- hafzt á söltunarplönunum, tunn urnar stóðu í piramídastöflum og biðu. Það leyndi sér ekki, að rignt hafði í kaupstaðnum um nóttina, ekki var önnur skýring á forinni, sem þakti þetta eina stræti, sem virðist vera í kaupstaðnum og liggur eftir honum endilöngum. Það kann að þykja skrítið, að Kópavogsbúi láti sér bregða við for á götum, en ég held drull an sé enn skítugri á strætinu þar eystra en syðra, og er þá mikið sagt. Maður öfundaði þá, sem voru á vaðstígvélum að Þannig hugsa'ði listamaðurinn Tryggvi Magnússon sér Lagarfljóts- orminn. Hann hefur komið mönnum ýmislega fyrir sjónir, og hér fer á eftir aldargömul lýsing á honum: Árið 1861 sá Arnbjörn á Skjögra- stöðu meitthvað svart úti á fljóti, undir klöpp milli Hallormsstaðar og Buðtungavíkur. Arnbjörn gekk nlður á klöppina. Honum sýndist þetta fyrst vera l|kt jaka með sandi eða sandflæktum viðarhrislum, en það kom að landi, og sá Arnbjörn þá glöggt sköpulag á því. Er það svam að landi, var a8 sjá sem dökkleitt, breitt hestbak, fax- laust, mjórra að framan. Hausinn lítill og stuttur, eyrun stór og breið. Hvorki sá Arnbjörn augu né kjaft. 'Honum sýndust fætur eða uggar skaga út úr skrokknum, þar sem framfætur eiga að vera, og urðu bárur af. Þá varð Arnbjörn hræddur og hljóp burt, segir í sögunni. spásséra eftir þessu borgar stræti. Ég furðaði mig nokkuð á því, hve gekk treglega að finna viðtakendur varningsins, sem bíllinn kom með rakleiit heim að dyrum hvers og eins. jEn Þorsteinn kvartaði ekki, honum þótti þetta ganga ó- venjuvel, og þó var komið fram á elleftu stundu, þegar öllu hafði verið komið til skila. Og það munaði um það, sem losað hafði verið úr bíln um, þegar hann lagði af slað upp hinar bröttu brekkur. Þok an á heiðinni var enn svartari ,en um daginn, stundum var eins og bíllinn stefndi fram af hengiflugi, þegar vegurinn fór niður af hæðardrögum, ég var oft með lífið í lúkunum, en Þorsteinn ók með feikihraða eins og hann væri að renna eftir skeiðvelli, virtist þekkja hverja þúfu á heiðinni og gæti ekið þetta nærri blind- andi. En samt er feikilega prey andi að aka langa fjallvegi i þoku, og bílstjórinn var reynd ar feginn, þegar við komum í náttstað nærri lágnætti. Það var ýmsu að sinna á Egilsstöðum morguninn eftir og ekki til langrar setu boðið. Síðan leggjum við leið okk- ar að Hallormsstað, bíllinn hef ur meðferðis nokkur tonn af viðarþilplötum, sem 'á að klæða með ganga og stofur í heimavistarskólanum, sem þar er í smíðum og verður mikil staðarprýði. Hópur manna vinna af kappi inni í skólanum, og á meðan piltarnir eru að bera plöturnar úr bílnum, nota ég tækifærið ,að leita uppi Hrafn Sveinbjarnarson til að spyrja hann frétta, hvernig væri t. d. að kryfja hann sagna um afdrif Lagarfljóts- ormsins? Hrafn er oflast kenndur við Hallormstað, þótt hann hafi byggt sér bústað þar á jörðinni og nefni Hjalla. Hrafn er annars fæddur og ruppalinn Reyðfirðingur en hefur átt heima á Hallorms- stað í meira en þrjátíu ár. Hann er oddviti sveitarinnar, og allir Héraðsbúar og fleiri þekkja til þess, að hann lætur fjúka í kviðlingum, þegar sá gállinn er á honum, og gerir það skemmtilega. Til allrar ham ingju var Hrafn heima. Hús hans er nýtízkulegra innan en útlit gefur til kynna, stór- skemmtileg setustofa og ekki er amalegra um að litast, þeg leikar til fjölbreytilegra félags lífs og stærri átaka. Svo stend ur til að stækka kvennaskói- ann, svo í framtíðinni verður hér mikill skólastaður. — Á svo ekki nýi skólinn að verða hótel á sumrin? — Jú, teikningin var miðuð við það og hann byggður með Hrafn Sveinbjarnarson og hluti af bókasafni hans að Hjó*!a við Hallormsstað. Tímamynd-GB. ar hann hefur teymt mig inn í skrifstofu, sem er sannköll uð bókhlaða, því að Hrafn er bókamaður og á forkunnar fal- legt og gott bókasafn. — Eruð þið að keppast við að ljúka smíði heimavistarskól ans fyrir veturinn, Hrafn? — Það leit ekki vel út um tíma, en svo tókst okkur að útvega ríkislán til að ljúka v'ð hluta af byggingunni í haust. svo hægt yrði að hefja þar skólahald, það er kennslustof ur og mötuneyti og annað sam það fyrir augum, og ekki veit ir af til að geta veitt móttöku sumargestum. Það er nú einu sinni orðið svo, að fólk ræður ekki að öllu leyti, hvert það fer, má segja, þvi það eru ferðaskrifstofurnar, sem er forsjá fjölda fólks, þær ráð- stafa ferðalögum alls þorra fólks. skipuleggja hópferðir miðað við það, hvar hægt er að taka á móti fólk' til dvalar og veita því fyrirgreíðslur, allt er orðið svo vélrænt. Ferða Framhald á bls. 12.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.