Tíminn - 19.08.1966, Blaðsíða 16

Tíminn - 19.08.1966, Blaðsíða 16
187. tbl. — Föstudagur 19. ágúst 1966 — 50. árg. KALDAL SYNIR 72LJ0SM YNDIR Héraðsmót Framsóknarmanna um þessa helej Freyvangi, Eyjafirði, laugardag. Dalvík, sunnudag Sauðárkróki, laugardag. Sindrabæ, Hornafirði, laugardag Brún, Bæjarsveit, sunnudag (stjórnmálafundur kl. 3 á sama stað. Öll mótin hefjast kl. 9 síðdegis. Fluttar verða ræður og ávörp. Fjöl- mörg skemmtiatriði koma fram. Fyrsta skóflu- stungan verður geymdíhúsiriu! KJ-Reykjavík, fimmtudag. Með nýja skóflu undir vinstri hendinni, plastdúk í þeirri hægri, í ljósa síða frakkanum sínum ng mcð gamla góða hatt- inn á höfðinu mætti mcistari Kjarval til leiks á Miklatúni í morgun, er frainkvæmdir hóf- ust við myndlistarhúsin, sem þar eiga að rísa. Hann stakk óneitanlega dálítið í stúf við aðra, sem þarna voru komnir í rigningunni til að vera viðstadd ir þessa athöfn, og andi hans sveif yfir túninu. IJann tók utan af blaðinu á skóflunni, sem hafði verið vand lega inhpakkað í Verðanda, breiddi plastdúkinn á jörðina, gerði sig líklegan til að stinga fyrstu skóflustunguna, en staldr aði við, þegar einn ljósmynd- arinn datt kylliflatur í mold- Framhald n bls 15 Efsta myndin hér til hliSar sýnir hvar Kjarval kemur á vettvang í fylgd borgarstjóra og heldur á nýju skóflunni. Næsta mynd er af listamanninum að moka moldinni á plastið og að þvi búnu réttir han nborgarstjóra moldarpokann til varðveizlu. (Ljósmynd Thomserd. ■ GÞE-Reykjavík, fimmtudag. Næstkomandi laugardag opnar : Jón Kaldal Ijósmyndasýningu í ný- byggingu Menntaskólans. Sýnir Kaldal þar 72 ljósmypdir mest- megnis mannamyndir og má þar Kaldal þekkja mörg góðkunn andlit, svo sem Kjarval. Kiljan, Davíð Stefáns- son og ýmsa fleiri. Ljósmyndirnar eru allt frá árinu 1923. Þau hjón, Guðrún og Jón Kaldal hafa að mestu unnið ein að sýningunni, en finnski útstillingamaðurinn Annio hefur aðstoðað við niðurröðun mynda. Kaldal hefur rekið ljósmynda- stofu að Laugavegi 11 allt frá ár- inu 1925, en hafði þá starfað í Kaupmannahöfn um nokkurra ára skeið. Hann hefur getið sér sér- lega góðan orðstír fyrir listræn vinnubrögð, og bera myndirnar á sýningunni þess óræk merki. Þetta er fyrsta sjálfstæða sýningin, sem hann heldur, en hann hefur tekið þátt í nokkrum erlendum samsýn- ingum og hafa myndir hans hvar- vetna hlotið mjög góða dóma. Kona Kaldals, frú Guðrún, hefur unnið á ljósmyndastofunni í tæp þrjátíu ár. Hún á talsverðan hlut í þessari ljósmyndasýningu, hefur til að mynda reducerað nærri því allar myndirnar. Sýningin opnar kl. 16 n. k. laugardag og stendur í tæplega hálfan mánuð.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.