Vísir - 30.05.1975, Qupperneq 3
Vlsir. Föstudagur 30. mai 1975
3
Þórhallur Hálfdánarson kaupir alvepnl handa konu sinni, Guð-
mundu, svo að hún geti sem bezt séð um garðinn þeirra I Hafnar-
firði.
Þau skulu vera
hnöttót og fín...
gulrótnafrœin mín
„Það er mikið af brennisóley i
blettinum hjá mér. Eigið þið
ekki eitthvað, sem getur eytt
henni?” „Mig vantar graseyði.
Hvort það séu blóm, þar sem ég
nota hann eða tré? Nei, nei,
þetta er bara steinabeð og ég
verð alltaf að vera að taka
grjótið burtu til þess að reyta
grasið?” „Hvað segið þér?”
Eitthvað til að úða grenitré
með? Þau þarf yfirleitt ekki að
úða nema það finnist sitkalús á
þeim. Fyrst það er eitthvað
annað, þá kannast ég ekkert við
það. Bezt væri þá að tala við
garðyrkjuráðunaut.”
Þeir þurfa svo sannarlega að
hafa vit i kollinum til að
ráðleggja kúnnunum það rétta
hjá Sölufélagi garðyrkjumanna,
en þar stendur einmitt yfir vor-
vertlðin þessa dagana.
Einn kaupir skóflu, annar
garðhrlfu og sá þriðji vill fá
gulrófnafræin sin hnöttótt og
fln.
Þórhallur. Hálfdánarson hjá
Rannsóknanefnd sjóslysa,
segist vera að kaupa alvæpni
fyrir konu sina. Hún hafi veg og
vanda af garðinum. Sjálfur
ætlar hann að læða sér út á sjó á
næstunni.
Páll Marteinsson, verzlunar-
stjórinn, botnar ekkert I þvl, að
fólk virðist alveg koma af fjöll-
um, þegarþvler sagt, að enginn
áburður sé til. Samt hafa fréttir
um verkfall i Áburðarverk-
smiöju verið ræddar I öllum
fjölmiðlum.
Það er aðallega áburðinn,
sem vantar hjá þeim I Sölu-
félaginu, auk ýmislegs annars
sem vantar inn I en er að koma
á næstunni. Páll er lika bjart-
sýnn á að verkfallið hjá
Aburðarverksmiðjunni fari nú
að leysast. -EVI-
Margt er að fá hjá Sölufélagi Garðyrkjumanna og afgreiöslufólk
verður að vera vel að sér til að ráðleggja fólki hvað bezt henti.
Sonurinn vill verða
héraðslœknir á íslandi
— rœtt við Hal og Höllu Linker, sem stöðugt eru á ferðinni
og hafa gert sjónvarpsþœtti frá 147 löndum heimsins
„Jú, þeir buðu mér bæði að
syngja og dansa með sér, mann-
ætuflokkurinn, sem við vorum
að mynda i Nýju Guineu i einni
af ferðum okkar,” segir Halla
Linker, þegar við spjölluðum
við hana og mann hennar Hal
Linker á Hótel Loftleiðum.
„Þeir éta ekki vini sina,”
heldur hún áfram, „eða hvítt
fólk, heldur aðeins óvini sina og
það er tákn fyrir sigra þeirra að
éta þá”.
Halla, Hal og David sonur
þeirra eru íslendingum vel
Vegna kvartana um að sunnan-
menn fengju ekki vinnu við
Kröfluvirkjun, sneri Visir sér til
Miðfells hf. Hjálmur Sigurðsson,
sem þar varð fyrir svörum, sagði,
að þetta stafaði alls ekki af þvi að
sunnanmenn væru eitthvað illa
liðnir, heldur væri það lögum
samkvæmt að verkalýðsfélag i
viðkomandi landshluta ætti for-
gangsrétt fyrir sina meðlimi i
„Mér finnst það áberandi, hvað
ungt fólk fer oft gáleysislega meö
peningana,” sagði verzlunar-
stjóri Hagkaups I Kjörgarði i gær,
er Visir ræddi við hann.
„1 frétt i VIsi á dögunum var
sagt frá stúlku, sem varð fyrir þvi
óláni, að peningar hennar voru
teknir frá henni.
Sagt var. að hún hefði gleymt
þeim i mátunarklefa og þeir verið
teknir þaðan. Reyndar gleymdi
stúlkan peningunum upphaflega
kunn, m.a. er Hal Linker ræðis-
maður íslands i Los Angeles I
Kaliforniu.
„Ætli það séu ekki um 600
þættir, sem komið hafa I sjón-
varpinu i Bandarlkjunum, á s.l.
19 árum, en við erum alltaf með
prógramm einu sinni i viku,
stundum eru þau að visu endur-
tekin,” segir Hal. „Og viö erum
þau einu, sem hafa þessa tegund
af prógrammi, þvi að við höfum
sjálf ferðazt til allra þeirra
staða, sem við sýnum og segjum
frá.
svona tilfellum.
„Við höfðum samband við
verkalýðsfélagið þarna og það lét
sina .menn skrá sig. Við spjöllum
svo við þá og ráðum þá sem okkur
henta bezt. Sami háttur er haföur
á við framkvæmdir annars staðar
á landinu, t.d. við Sigöldu. Verka-
iýösfélögin eru þarna einungis að
gegna hlutverki sinu.”
— ÓT
þar, en afgreiöslustúlka hjá
okkur fann þá þar og skilaði til
hennar. En hún lagði þá bara aft-
ur frá sér, og þá hefur einhver
fingralangur séð sér leik á borði.
Hún missti peningana þvi i ann-
arri atrennu, eftir að búið var að
reyna að bjarga henni frá fémissi
áður”, sagði verzlunarstjórinn og
bað Visi að benda fólki á að gæta
vel að fé sinu, þegar farið er að
verzla.
— JBP
Útsýnar-farþegar
ánœgðir
Ekki ber á öðru en farþegar Út-
sýnar, sem fóru til Costa Del Soi
18. mai s.i. séu hinir ánægðustu.
Segja 69 þeirra i bréfi til Útsýnar,
að þegar þeir hafi séð ibúðir sinar
i E1 Remo og Tamarindos hafi
þeir vel skilið af hverju Útsýn
hafi lagt siika áherzlu á að nota
það húsnæði fremur en annað,
sem býðst.
Hafa þeir á oröi, að þeir hafi
hvergi komið, þar sem þeir hafi
hlotið betri móttökur. -EVI-
SKRIFIN UM
LENNA HÓFÐU
ENGIN ÁHRIF
— segja yfirmenn
sjónvarpsins
„Það er alveg á hreinu að Þor-
steini Björnssyni var ekki sagt
upp starfi vegna skrifa hans i
Þjóðviljann um Lénharð fógeta,”
sagði Jón Hermannsson, yfir-
maður kvikmyndadeildar sjón-
varpsins i gærdag i tilefni af frétt
um klippara, sem hættir störfum
við sjónvarpið núna um mánaða-
mótin.
Jón Hermannsson kvað Þor-
stein hafa verið lausráðinn I 6-7
mánuði, og þaö hafi alltaf verið
vitaö mál að vinna hans yrði að-
eins til 1. júni. Hefði hann verið
ráðinn vegna mikilla anna i
klippingadeildinni við Lénharð
fógeta og þjóðhátiöarmyndir frá i
fyrra. Allt tal um að samningur-
inn var ekki endurnýjaður vegna
skrifa þessara væri þvi út I hött.
— JBP
Hal og Halla fyrir framan Loftleiðahótellð I gær. (Ljósmynd Visls
BG).
ALLS EKKI ILLA
VIÐ SUNNANMENN
Aður hétu þættirnir „The
Wonders of the World”, en s.l. 5
ár hafa þeir heitið „Three pass-
ports of Adventures”. Nei,
David sonur okkar sem þangað
til nýverið ferðaðist alltaf meö
okkur, ætlar sér sem betur fer
ekki að feta i fótspor okkar.
Hann yröi þá I samkeppni við
okkur. Hann er að ljúka þriðja
ári I læknisfræði og eftir eitt ár
er hann búinn. Þá langar hann
til þess að gerast héraöslæknir á
íslandi, Islenzkuna talar hann
reiprennandi. Mamma hans
hefur alltaf talað við hann is-
lenzku.”
Þau Halla og Hal eru annars á
leið til Afriku, nánar tiltekið til
Cameroon, til að afla sér efnis i
einn af þáttum sinum. Þennan
útúrkrók til fslands tóku þau i
tilefni af 25 ára stúdentsafmæli
Höllu, sem auðvitað var haldið
upp á með viðeigandi pompi og
pragt. Hal sagðist halda, að
þetta væri 20. ferðin þeirra
hingað á s.l. 25 árum.
„Það er skemmtileg tilviljun,
að einmitt núna á laugardaginn
verður mynd okkar um Vest-
mannaeyjar sýnd i sjónvarpinu
i Bandarikjunum. Það er endur-
tekið prógramm, sem heitir
„The Island that refused to die”
(Eyjan, sem neitaði að deyja).
Það fjallar um Vestmannaeyj-
ar, fyrir og eftir gos”, sagði Hal.
Þau eru orðin 147 löndin, sem
þessir viöförlu ferðalangar hafa
myndað fyrir þætti sina. Banda-
rikjamenn verða dálitið hissa,
þegar Hal nefnir þessa tölu, þvi
að rikin i Sameinuðu þjóðunum
voru á s.l. ári 138. En hann gefur
þá skýringu, að hann telji t.d.
Grænland og Færeyjar lönd, en
ekki aöeins hluta af Danmörku.
— EVI
Týndi peningunum í tvígang