Vísir - 28.06.1975, Blaðsíða 5
Visir. Laugardagur 28. júni 1975.
5
ERLEND MYNDSJÁ
Umsjón ÓT
3 MÖNNUÐ GEIMFÖR
Geimfararnir tveir,
sem eru á braut um
jörðu i rússnesku Salyut
geimrannsóknastöðinni
munu ekki snúa til
jarðar fyrir sameigin-
lega geimferð Rússa og
Bandarikjamanna, eins
og búizt var við.
Sú geimferð hefst 15. júli og
stendur til 21. júli. Er talið, að
Salyut-geimfararnir snúi til
jarðar nokkrum dögum eftir það.
Þeir verða þá búnir að vera um 2
mánuði á braut.
Alexei Leonov, einn af Rússun-
um, sem fer i Soyuz-Apollo
geimferðina, sagði, að þeir
myndu nota tækifærið til að
spjalla við þá Klimuk og
Sevastianov, sem settu nýtt
rússneskt geimferðamet i siðustu
viku.
Þetta verður i fyrsta skipti,
sem þrjú mönnuð geimför verða
samtimis á braut umhverfis
jörðu.
Nýr hattur
Við höfum áður birt mynd af frú
Gertrud Schiller og höttunum
sem hún ber við Ascot veðreið-
arnar i Engiandi. Frúin ku sjálf
gera sina hatta og þrælar við þá i
margar vikur fyrir veðreiðarnar,
þvi hún kemur með nýjan á
hverjum degi.
Hún kailar þennan hatt „Gains-
borough”. Ekki vitum við hvað
það hefur kostað að gera hann, en
einhvern veginn finnst okkur óllk-
legt að hann verði tlzkufyrir-
brigði. Við vonum það að minnsta
kosti innilega.
Flugslysið í New York
Fiugslysið i New York á dög-
unum þegar 110 manns fórust
með þotu frá Eastern Airlines,
er eitt hið versta I sögu banda-
rlskrar flugsögu. Þó hefði getað
farið verr þvi þotan hentist yfir
hraðbraut þar sem mikil um-
ferð var fyrir. I fyrstu var talið
að hún hefði sópað með sér fjöl-
mörgum bilum, cn það kom I
ljós að svo var ekki.
Rannsókn stendur yfir á or-
sökum slyssins, og hafa bæði
eldingar og snöggar breytingar
vindáttar verið nefndar i þvi
sambandi, en ekkert liggur fyrir
ennþá.
A efri myndinni eru slökkvi-
liðsmenn að leggja til lik þeirra
semfórust.Á þeirri neðri má sjá
afturhluta vélarinnar.
ffil ■V,
Ég verð að segja eins
og Fred vinur minn
Flintstone: Guði sé lof
fyrii- að það er ekki
nema einn mánudagur i
hverri viku. Það er
bjarnargreiði að vera að
bjóða manni út um helg-
ar. Það er alveg klárt.
Ahugasamir norskir unglingar
þyrptust að til að skoða orrustu-
þötuna F-16, sem Noregur hefur
ákveðið að kaupa ásamt nokkrum ekki með nærri sama áhuga að
öðrum NATO rikjum. Auðvitað þvi er virtist.
skoðuðu ráðherrar lika vélina, en