Vísir - 28.06.1975, Blaðsíða 24

Vísir - 28.06.1975, Blaðsíða 24
SENNILEGA MÆLT MEÐ SÖLTUN SÍLDAR Á SJÓ Alyktanir um hentugasta skipulag síldveiða við island i haust voru sendar til sjávarút- vegsráðuneytisins seint í gær. Nefnd, er sjávarútvegsmála- ráðherra skipaði, kannaði tillögur Jakobs Jakobssonar fiskifræðings um sildveiði við suðausturlandið, sem gert er ráð fyrir að hefjist 15. septem- ber. Blaðið náði ekki tali af Má Elissyni fiskimálastjóra, sem var formaður nefndarinnar, til að kanna hvað nefndin hefði lagt til, en heyrzt hefur að mælt hafi verið með sjósöltun sildarinnar. Slikar ráðstafanir eru gerðar til að veiðarnar gangi rólegar fyrir sig og sildin verði verðmeiri. Með sópveiðum sildaráranna kepptust bátarnir við að ná sem mestum afla áður en kvótinn fylltist, vinnslu- stöðvar höfðu ekki við, og hætta landi á að aflinn skemmdist i jókst. Nú verður leyft að veiða 7500 tonn i herpinót og 2500 tonn i reknet. Ráðuneytið mun auglýsa eftir umsóknum báta til veiðanna um leið og reglugerðin verður frágengin. -JB. ^Æffíí I®! irV .,!! I" . l>annig var umhorfs á slysstaðnum, eftir að sá slasaði hafði verið fluttur burtu. Ljósm. JIM. Ók niður akandi lögregluþjón — er hemlarnir biluðu Mótorhjól með lögregluþjóni á var ekið niður fyrir framan Hótel Esju um klukkan þrjú i gærdag. Lögregluþjónninn hafði stanzað hjól sitt fyrir gangandi vegfar- anda, sem var á leið yfir gang- brautina vestan við Hallar- múlann. ökumaður bilsins ber, að hemlar hans hafi bilað. Areksturinn varð nokkuð harður og dældaðist billinn mikið. Mótor- hjólið skemmdist minna og var það ökufært á eftir. Lög- regluþjónninn var fluttur á slysa- varðstofuna en reyndist litið slasaður og fékk þvi að fara heim að rannsókn lokinni. -JB. Tilraunir með FM frá Gagnheiði: Austfirðingar uppgötvuðu FM sendingarnar af tilviljun vísir l.augardagur 28. júni 1975. Fékk 216 þús- und krónur fyrir 6 daga á handfœrum „Við vorum fjórir á handfæra- veiðum á Oddrúnu RE (áður Breiðfirðingur) 28 lesta skipi. Eftir 6 veiðidaga komum við með afla upp á rúmar 700 þús. kr. Sæmilegur afli það," sagði Guðmundur Magnússon skipstjórinn i veiðiferðinni, en báturinn kom að landi núna i vikunni. Fiskurinn, sem er þorskur, veiddistút af Vik en þangað er 19 tima stím.Hann fór allur i 1. flokk og var veiddur á 8 rafmagns- rúllur. ,,Ég dró fyrir 216 þúsund kr. og er ekkert óánægður með það,” sagði Guðmundur, en túrinn tók alls 9 daga. Hann bætti viðað ekki væri raunar alltaf svona mikið að hafa, en oft fiskaðist vel á hand- færaveiðum. -EVI- Fjölskyldubœtur: Milljónir ósóttar hjá Trygginga- stofnuninni „Það eru milljónir króna ósóttar hér hjá okkur i Tryggingastofnuninni vegna fjölskyIduhóta, en greiðslur falla niður hjá stofnuninni þann 1. júli,” sagði Kjartan Guðnason hjá Tryggingastofnun rikisins i viðtali við blaðið. Að visu verða greiddar út fjölskyldubætur þar eftir þann tima, en Kjartan vill eindregið hvetja fólk til að sækja peninga sina sem allra fyrst. Svo sem kunnugt er þá var búið að fella niður barnabætur með 1. barni hjá þeim, sem höfðu yfir 700 þús. kr. á ári. Eftir 1. júli, þegar bæturnar eru greiddar i formi skattalækkunar, þá verð- ur skattalækkunin 30 þús. með fyrsta barni, en 45 þús. með hverju barni eftir það. Þannig getur barnmörg fjölskylda með lágar tekjur komið til með að eiga innistæðu hjá Gjaldheimtunni. Ariö 1974 voru á 4 hundrað milljónir greiddar i Reykjavik i fjölskyldubætur, en það lætur nærri að þriöji hver tslendingur séinnan við 16 ára aldur. -EVI- ibúar á Egilsstöðum og i ná- grenni hlusta.nú á hverjum degi á hinar ágætustu FM útvarps- sendingar frá Gagnheiðar- stöðinni. Ekki hefur verið tilkynnt um aö FM sendingar væru hafnar fyrir austan heldur var það tilviljun ein aö útvarpsnotendur urðu þeirra varir. Þaö er tilraunasendir, sem notaöur er til útsendinganna, að sögn Gústafs Arnars hjá Land- simanum. — Hér er einungis um tilraunir að ræða, en ekki liggur fyrir nein ákvörðun hjá Ríkisútvarpinu um að koma upp varanlegum FH sendi á Gagnheiði, sagði Gústaf. — Sendirinn sem nú er i notkun er afllitill og ekki ætlaöur til lang- timanotkunar, sagöi Haraldur Sigurðsson verkfræðingur. Að sögn Guðmundar Þorleifs- sonar simaverkstjóra á Egils- stöðum er aftur á móti fyrir hendi á Gagnheiði stór FM sendir, sem notaður er til að brúa FM sendingar á milli Akureyrar og Eiða ef önnur sambönd bila. — Þetta er stór sendir, sem breyta má til FM sendinga fyrir héraðið hér, ef rikisútvarpið hef- ur áhuga á. Það ætti ekki að verða mjög dýrt, sagði Guðmundur. Nú eru 15 FM sendar á við og dreif um landið. Að sögn Gústafs Arnars virðast FM sendingarnar þó ekki eins vinsælar og gera mætti ráö fyrir. — Það er reyndar furðulegt, hversu Islendingar eru tregir við að hlusta á FM bylgjuna þar sem upp á hana er boðið. FM út- sendingar eru mun skýrari og betri en langbylgjusendingar, sem þó viröast njóta meiri vinsælda. — Erlendis hlustar fólk varla á aðrar útsendingar en FM á heimilum sinum, sagöi Gústaf Arnar. Þar eö FM sendingar draga Matreiðslumenn samþykktu I gær nýja kjarasamninga við Samband veitinga- og gistihúsa- eigenda. Þeir samningar grund- vallast á rammasamningi ASt og mun skemmri vegalengd en út- sendingar á öðrum bylgjum er af- ar sjaldgæft að FM útsendingar erlendra útvarpsstöðva heyrist hér. Þó heyrðust slikar út- sendingar i Vik i Mýrdal og á Höfn vegna óvenjulegra skilyrða fyrir nokkru. Voru þetta FM sendingar frá meginlandi Evrópu. -JB/BA. voru sérkröfur litlar sem engar. Gilda samningarnir til áramóta. Höfðu samningaviðræður gengið mjög lipurlega. -ÞJM. Kokkarnir samþykktu Yfírmenn samþykktu — úrslit atkvœðagreiðslu undirmanna verða kunngerð í dag — LÍÚ afgreiðir samningana í dag „Samningarnir voru sam- þykktir mcð yfirgnæfandi meirihluta atkvæða hjá öllum félögunum,” sagði Ingólfur Stefánsson, framkvæmdastjóri Farmanna- og fiskimannasam- bands tslands, þegar Visir náði tali af honum i gærkvöldi. Var þá aðeins um að ræða atkvæða- greiðslu yfirmanna á togurun- um, en til yfirmanna teljast skipstjórar, stýrimenn, vélstjórar og loftskeytamenn. -ÞJM. Úrslit atkvæðagreiðslu undir- manna, sem fram fór hjá félögunum i gærdag, lágu aftur á móti ekki fyrir. Atkvæða- greiðsla var skrifleg og verða atkvæði ekki talin fyrr en i dag og sameiginleg útkoma látin ráða úrslitum. Útgerðarmenn höfðu ekki af- greitt samningana með at- kvæðagreiðslu i gær, en það stendur til að gera i dag. BETRA HLJÓÐ I VIÐRÆÐUM BLAÐAMANNA OG ÚTGEFENDA Blaðamenn og útgefendur mættu til fundar hjá sáttasemj- ara eftir hádegi i gær og sátu cnn við samningaborðið þegar Visir fór i prentun i nótt. Þegar Visir hafði samband við sátta- semjara i gærkvöldi vildi hann ekki gefa min'nstu upplýsingar um það, hvernig samningavið- ræðurnar gengju. Þetta er fjórði fundur deiluað- ila með sáttasemjara, en fyrri fundir voru gjörsamlega árang- urslausir og færðu deiluaðila ekki eitt fet nær hvor öðrum. Samkvæmt þeim upplýsing- um, sem Visi tókst að afla sér i gærkvöldi, munu blaðamenn hafa slakað eitthvað á sérkröf- unum, en gerzt þeim mun ákveðnari i kröfum sinum um fastakaup. Þá var þvi einnig haldið fram, að útgefendur hefðu mætt til fundarins með ákveðiö tilboð, sem átti i það minnsta að geta skapað umræðu- grundvöll. I upphafi fundarins voru sátta- semjara kynnt þau bréfaskipti út- gefenda og blaðamanna, sem sagt var frá i frétt i Visi i gær. Hvernig þeim umræðum lyktaði, eða hvort staðan breyttist eitt- hvað frá þvi sem var, fékk Visir ekki upplýst i gærkvöldi. Blaðamenn hafa samþykkt ódagsetta verkfallsheimild, en verkfall hefur ekki verið boðað. Þess má geta, að blaðamenn hafa engar kjarabætur fengið i eitt og hálft ár. —ÞJM

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.