Vísir - 28.06.1975, Blaðsíða 8

Vísir - 28.06.1975, Blaðsíða 8
8 Visir. Laugardagur 28. júni 1975. Humarveiði takmörkuð 25. júni var bannað að veiða humar á Breiðamerkurdýpi á meira dýpi en 100 föðmum. Þetta var gert vegna þess, að nýleg könnun Hafrannsóknastofnunar- innar leiddi i ljós, að óhemju magn af undirmálshumri var i Breiðamerkurdýpi á dýpra vatni en 100 föðmum. Þingað um menningar- mál Dagana 9.-12. þessa mánaðar var haldinn menntamálaráð- herrafundur aðildarrikja Evrópuráðsins og meðal annars fjallað um fullorðinsfræðslu. 12. júni var einnig haldinn mennta- málaráðherrafundur Norður- landa. Menntamálaráðherra Is- lands, Vilhjálmur Hjálmarsson, átti ekki heimangengt þessa daga vegna heimsóknar Sviakonungs, svo hans i stað sóttu þeir Birgir Thorlacius, ráðuneytisstjóri og Andri tsaksson, prófessor, þessa fundi, sem haldnir voru i Stokk- hólmi. Matur og drykkur Það korn, sem Bandarikja- menn nota til áfengisgerðar, myndi nægja til að brauðfæða 50 milljónir manna, segir i frétt frá Áfengisvarnaráði. Aðrar þjóðir nota einnig dýrmætar fæðuteg- undir til áfengisgerðar. Dr. Jean Mayer, sem vinnur á vegum Sameinuðu þjóðanna að rannsókn á mataræði barna, segir um þetta: „Það er til nægur matur i heiminum til að koma i veg fyrir hungurdauða fólks i Afriku og Asiu. Bandarikjamenn geta hlaupið þar verulega undir bagga með þvi að draga úr áfengis- neyzlu.” I USA eru nú 9-10 mill- jónir áfengissjúklinga. Heimsfriður að lögum Ariðl963 var komið á fót stofnun, sem heitir á ensku The World Pe- ace Through Law, en er kölluð hér Alþjóðastofnun lögfræðinga til eflingar friði og virðingu fyrir lögum. Höfuðmarkmiðið er að styrkja og styðja lagakerfið i heiminum og hinar ýmsu alþjóða- stofnanir i þvi markmiði að efla frið i heiminum og réttláta skip- an. Stofnunin er ópólitisk og fél- agsmenn láta i ljósi skoðanir sin- ar sem einstaklingar, fremur en fulltrúar tiltekins lands eða þjóð- málastefnu. Stofnunin heldur ráðstefnu á tveggja ára fresti, og ersú næsta fyrirhuguð i Washing- ton D.C. dagana 12.-17. október. Formaður íslandsdeildar sam- takanna, Páll S. Pálsson hrl. hef- ur fengið tilkynningu um, að is- lenzkur þátttakandi eigi kost á gistingu á einkaheimili og að is- lenzkur þátttakandi eigi kost á ókeypis ferðum til borga innan Bandarikjanna að ráðstefnunni lokinni, enda flytji hann þá erindi á félagsfundi gestgjafa. Tilkynn- ingareyðublöð fást á skrifstofu Lögmannafélags íslands. Aðalfundur Hagtrygg- ingar Aðalfundur Hagtryggingar var haldinn fyrir nokkru. Þar kom fram, að siðastliðið ár voru heild- artekjur félagsins rúmar 107 milljónir króna brúttó, en rekstr- artap félagsins að meðtöldum af- skriftum varð tæpar 13 milljónir króna, þar af tæplega sex milljón króna halli á kaskótrvgsingum bifreiða. Hinn 15. april siðastlið- inn átti félagið tiu ára afmæli. Formaður félagsins er dr. Ragn- ar Ingimarsson, en fram- kvæmdastjóri er Valdimar Magnússon. Veitingar til sölu og reiðhjól til leigu Hús Jóns Sigurðssonar i Kaup- mannahöfn verður opið i sumar, að minnsta kosti fram i miðjan ágúst, alla daga frá klukkan 2-10 eftir hádegi, og verður þá sýnt gestum. Veitingar verða i félags- heimilinu á neðstu hæð, og auk þess verður hægt að leigja sér þar reiöhjól, sem löngum hafa þótt bærilegt samgöngutæki i Dan- mörku. Simrad tuttugu ár á ís- landi Frá þvi að fyrstu Simrad dýpt- armælarnir komu á markað á Is- landi, hafa Simrad tækin verið i framsókn hér á landi. Siðan eru nú komin rösk tuttugu ár. Talið er, að um 75% islenzka fiskveiði- flotans noti fiskleitartæki frá Simrad. í tilefni af afmælinu hafa verksmiðjurnar nú sent sérstak- an sýningarbíl til landsins, og kom sá með Smyrli á dögunum. Með öllu kostar sá bill hvorki meira né minna en 32 milljónir, enda er hann búinn fjölmörgum þeim tækjum, sem Simrad fram- leiðir. Þar eru talst'öðvar, dýptar- mælar,fisksjá og dýpisteljari, as- dictæki, sónarskóp, staðar- ákvörðunartæki og fleira. Umboð fyrir Simrad hefur Friðrik A. Jónsson h.f., og meðfylgjandi mynd er innan úr bilnum góða. Gestir Flugleiða Upp úr miðjum júni voru hér á landi i boði Flugleiða 10 banda- riskir blaðamenn og ferðamála- ritstjórar. Bandarikjamennirnir hittu meðal annars nokkra starfs- bræður sina á Islandi, heimsóttu Vestmannaeyjar, fóru um Þing- velli að Skálholti, Geysi og Gull- fossi, skoðuðu Reykjavik og fóru i svifflug á Sandskeiði. Einnig fóru þeir i dagsferð til Kulusuk á Grænlandi og heimsóttu forset- ann á Bessastöðum. Myndin er af hópnum með fulltrúum gestgjaf- anna. Aðalfundur Sjóvá Aðalfundur Sjóvá var haldinn um miðjan júni, og kom þar fram, .að heildariðgjaldatekjur félags- ins á siðasta ári voru 820 milljónir króna og höfðu aukizt um 295 milljónir frá árinu áður. Heildar- tjón félagsins nam 651 milljón króna og varð mikið tap á bif- reiðatryggingum og fiskiskipa- tryggingum, en hagnaður af öðr- um greinum. Heildarhagnaður á rekstri félagsins var fjórar mill- jónir króna og var ákveðið að greiða 10% arð til hluthafa, alls um 3 milljónir króna. Fastráðið starfsfólk félagsins er nú 68 manns. Formaður félagsins er Sveinn Benediktsson, en fram- kvæmdastjórar Sigurður Jónsson og Axel Kaaber. Kaupa eldsneyti fyrir 2.4 milljarða Flugleiðir h.f. hafa nýlega endurnýjað samninga um kaup á eldsneyti fyrir flugvélar sinar. Það af þvi sem er afgreitt erlend- is, er aðallega frá Esso og Shell, en það sem notað verður hér á landi, er að hluta til frá Skeljungi h.f. en að hluta beint frá framleið- anda, New England Corporation, sem hefur aðalaðsetur i New York, og er um að ræða tæplega 50 þús. tonn af þotueldsneyti, sem Oliuverzlun Islands hefur tekið að sér að taka á móti, geyma og af- henda á Keflavikurflugvelli. Heildareldsneytiskaup félagsins heima og erlendis nema á þessu ári um 2,4 milljörðum króna. Gaf 72 bindi bóka Bragi Þórðarson, prentari og bókaútgefandi á Akranesi, og Elin Þorvaldsdóttir, kona hans, færðu nýlega húsi Guðmundar Böðvarssonar á Kirkjubóli veg- lega bókagjöf, alls 72 bindi. Þar á meðal er blaðið Akranes i vönd- uðu bandi, öll blöðin, sem komu út, en Akranes kom út frá 1942- 1959. Bragi, sem rekur Hörpuút- gáfuna á Akranesi, var siðasti út- gefandi Guðmundar og er nú að gefa út heildarútgáfu af verkum hans. Þrir fá 200 þúsund 1 stuttri frétt frá Rithöfunda- sjóði íslands segir, að stjórn sjóðsins hafi úthlutað þremur rit- höfundum 200 þúsund krónur hverjum. Þessir höfundar eru: Jón Helgason, Steinar Sigurjóns- son og Vésteinn Lúðviksson. Ferða mannatek jur Beinar og óbeinar gjaldeyris- tekjur af erlendum ferðamönnum voru á árinu 1974 7,2% af heildar- verðmæti landsmanna i vörum, segir i fréttatilkynningu frá Ferðamálaráði, og er þá ein- göngu átt við það, sem kemur til skila hjá gjaldeyrisbönkunum. A árinu 1973 voru opinber skil á gjaldeyri kr. 13.074 á hvern er- lendan ferðamann, miðað við þá sem komu með flugvélum, og er þá ekki reiknað með fargjöldum eða kaupum i Frihöfn eða hjá ís- lenzkum markaði á Keflavikur- flugvelli. Sambærileg tala fyrir árið 1974 var kr. 20.560,00. Með flugvélum komu hingað 68.456 ferðamenn það ár, en með skemmtiferðaskipum 5.758. Fækkun frá árinu áður var 13.3%.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.