Vísir - 28.06.1975, Blaðsíða 15

Vísir - 28.06.1975, Blaðsíða 15
Vlsir. Laugardagur 28. júni 1975. 15 1 dag er námsefnið að iæra á rennilásinn. arar eru flestir við Heyrnleysingjaskólann. Þar er aðstaðan og það er skiljanlegt að þangað sæki fólkið. Hjá mér i Reykjadal eru núna 13 börn af 30, sem þurfa talkennslu, en hafa aldrei fengið hana. Tvær megin- ástæður geta legið að baki þess, að barn þurfi talkennslu, heyrnarskemmd eða heila- skemmd. Sumir krakkarnir hérna hafa alla vega hljóð og sagt er, að ef börn hjala, þá sé hægt að kenna þeim að tala. Ein telpan hérna segir mjög skýrt orð eins og „Magga, sjáðu, sko, já”. Hún get- ur þvi alveg eins sagt fleiri orð. Hún hefur alla tilburði i þá átt að tala, hún bærir varirnar, þegar við förum með morgunbænir og syngjum, en hana vantar orö og þjálfun. Þetta tekur á mann, þvi hver stund, sem liöur, er svo dýr- mæt. Hún hefur fulla heyrn. Þaö hlýtur að vera áhugavert fyrir þann, sem tekur að sér kennslu þessara barna, að það veitir svo mikla ánægju, þegar maður sér árangur. Liklega eru engir þakklátari en þessi börn, og þeg- ar þeim er hælt fyrir dugnað, þá er gleði þeirra svo hrein og ánægjan svo tær. Nú eru krakkarnir hjá ykkur hér i þrjá mánuði, finnst þér þeir taka framförum á þessum tima og hverju viltu þakka það? Ég er viss um, að það er fyrst og fremst vegna þess að þau eru mikið úti. Lfklega meira úti en á veturna. Við reynum að gera þennan stað að heimili en sniða af þvi allan stofnanabrag. Við erum alsælar ef við sjáum þau á kafi I drullupollum og söndug upp fyrir haus. Þau styrkjast mikið á úti- verunni. Þau borða vel og sofa vel. Þar fyrir utan fá þau æfingar og sund á hverjum degi, sem flest þessara barna fá ekki yfir vetur- inn, þvi þau eru alls staðar að af landinu. Fyrir örfáum árum var skrifað I blað hérlendis um þann ósóma I alfaraleið og þótti blettur á stolti þjóðarinnar að þetta heimili og annað hér i Mosfellsdalnum væru i leið allra, sem til Þingvalla færu. Þeir aðilar, sem hér dvöld- ust áttu ekki vera i alfaraleið og þar sem hægt væri að sjá þá auð- veldlega. Segðu mér, Andrea, kemur aldrei neinn hér alveg af götunni, sem vill fá að sjá og kynnast þvi, sem hér fer fram, eða sjá þá, sem hér eru? Nei, það hefur aldrei komið fyrir. Ég get ekki Imyndað mér, að nokkur komi bara labbandi utan af götu til að skoða. Ég held að fólk sé ekki almennt svo skyn- samt. Ég yrði furðu lostin, ef slikt myndi gerast. Mundirðu sýna honum, það sem hér er? Alveg örugglega. Ef ég teldi það yrði staðnum og börnunum til góðsog mundi auka skilning hans á þessum málum. Við verðum að taka tillit til þess, að við getum ekki búizt við þvi, að fólk viti þetta. Þá er það okkar að færa þetta til þeirra, ef það ber sig ekki eftir þvi sjálft. Ég man hvernig mér varð við þegar þetta kom 1 viðkomandi blaði um áriö. 1 hvernig þjóðfélagi lifum við eiginlega.ef viöhöldum að það sé bara til fyrir heilbrigöa? Nei, það „Það er heilbrigðara að börnin séu skitug og ánægð en hrein og óhamingjusöm.” . Hvað skyldi öddu dreyma? i miklu mannlegra ef við gerð- um jafnvel viö alla, unga, gamla og fatlaða. Það er mikil minni- máttarkennd i íslendingum, en ég hlakka til þeirrar stundar er við getum tekið á móti útlendingum, og sýnt þeim hvað við gerum vel við okkar fólk. Til þess höfum við alla möguleika. Ljósmyndir og texti: Mossi „Hið opinbera skal..." tók reksturinn á skóla Styrktar- félags lamaöra og fatlaðra I Reykjadal I Mosfellssveit. 1 vet- ur sem leið voru 5 börn i Hliöa- skólanum i Reykjavik og 22 börn I skóla fjölfatlaðra i Kjar- valshúsi á Seltjarnarnesi. Vitað er, að verulegur fjöldi fatlaðra barna getur stundað nám I venjulegum skólum, þ.e. þau eru móttækileg fyrir námi eins og önnur börn. En sum ganga við hækjur og önnur aka hjólastól. En þá er hitt, að skól- amir eru ekki byggöir fyrir þau. Stigar eru of langir og margir, salerni eru of þröng til að fatlað- ur geti athafnað sig þar. Lika má benda á fleiri staöi. Ef Þjóðleikhúsið var byggt fyrir þjóðina, þá teljast fatlaðir ekki tilhennar. Þar er pláss fyrir tvo hjólastóla sitt hvorum megin við 10. bekk, en þó þarf að taka af þeim fótbrettin. Þegar hinn fatlaði er þangað kominn er hann búinn að klifa svo og svo margar tröppur. — Hvernig hann fór að þvi fylgir ekki sög- unni. En þegar hann er kominn á staðinn kemst enginn inn eða út úr 10. bekk fyrr en búiö er að setja hjólastólinn fram á gang. Vfðar má sjá þess merki að samfélagið stflar bara upp á alla eins. Pósthús og póstkassar er eitt dæmi. Bankar hreykja sér margir uppi á tröppum mis- löngum og ekki virðist gert ráð fyrir þvi að fatlaðir þurfi nokk- um tima að skemmta sér ef litið er á fyrirkomulag skemmti- staða. Ahugi Disu litlu leynir sér ekki. Dagur í Reykjadal Þessi sundleikur byggist á þvi, aðsá fremsti náiiþann aftasta. A meðan er sungið hátt og snjalit. Það er ræst klukkan átta. Börn- in eru klædd, og það tekur sinn tima, þvi fæst geta það hjálpar- laust. Þá er morgunmatur með morgunbæn á undan. Siðan byrjar erill dagsins. Sum fara I sund. Þau æfa eftir nýlegu kerfi, sem samið er af brezkum verk- fræðingi, Macmillan. Börnin eru fyrst vanin viö vatnið, sem um leið er þjálfun I ýmiss konar leikjum. Siðan eru æfingar þyngdar og kerfisbundið er að þvi stefnt, að fatlaðir bjargi sér i vatni. Börnin fara öll i sund á hverjum degi. Þaö koma 3 sjúkraþjálfarar frá æfingastöð- inni á Háaleitisbraut þrisvar i viku til að kenna réttu tökin. Hina dagana sjá starfsstúlkurn- ar um sundið. önnur börn fara I æfingar á meðan hjá þjálfurunum. Sjúkraþjálfararnir eru tvær þýzkar stúlkur. Þær kunna Iuið annað i málinu en „reyndu þetta elskan” eða ,,nú skulum við gera svona elskan” og slikt. Matarhlé er gert upp úr hálf tólf og er lokið um eittleytið. Nokkur þeirra þarf að mata og slikt tckur sinn tima, þegar gangurinn niður hálsinn er ekki eðlilegur og kyngingarnar eru ekki nema endrum og eins. En með þolinmæði hefst það. Siðan er fram haldið leik og starfi og þegar dagurinn er á enda hefur hvert barn fengið sinar æfingar og sundsprett. Kvöldmatur er um miðaftan og ró færist yfir um áttaleytið. Þá eru starfsstúlkurnar þreytt- ar, þvi dagurinn er erfiður og næsti dagur virðist alveg eins. En hægt miðast og um leið og einstaklingurinn sýnir framför er kátt i kotinu. „Að þeir skuli..." Við Háaleitisbraut i Reykjavik er starfrækt þjálfunarstöð fatl- aðra. Þangað og þaðan ferðast fólk með strætisvagni, sem veröur að teljast mjög eðlilegt. En ekki alls fyrir löngu var ég á ferö i vagni þeim sem ekur Háa- leitisbrautina. Komu þá nokkur fötluð ungmenni inn i vagninn. Farþega, sem sat skammt frá mér, varð að orði. „Að þeir skuli hleypa þessu inn i almennings- vagna!”

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.