Vísir - 30.06.1975, Síða 10
10
Visir. Mánudagur 30. iúni 1975. Visir. Mánudagur 30. iúni 1975. H
Tvö heppnismörk og
Skagomenn effstir!
— í 1. deildinni eftir sigur gegn Val 2-1 á Akranesi
„Atvikið, þegar Davið
Kristjánsson markvörður okkar
varði frá Iiermanni Gunnarssyni,
þegar staðan var 1:1 og við sótt-
um undan vindinum, skipti sköp-
um i þessum mikilvæga leik”,
sagði George Kirby eftir leik
Akurnesinga og Valsmanna á
Akranesi á iaugardaginn. ,,Ef
Hermann hefði skorað þarna,
þori ég ekki að spá um, hvernig
leikurinn hefði farið, þvi þetta var
eitt viðkvæmasta augnablik
leiksins.”
Akurnesingar fóru með sigur af
hólmi i þessari viðureign, sem þvi
miður var eyðilögð af leiðinlegu
veðri. Hefði þetta örugglega
getað orðið mjög góður leikur, ef
veðrið hefði verið gott — þvi þrátt
fyrir allt rokið brá fyrir ágætum
leikköflum á báða bóga — og mun
betri en i leik Akraness og Fram
um fyrri helgi.
Skagamenn léku undan vindi i
fyrri hálfleik og sóttu þá meir.
Valsmenn áttu samt góð upp-
hlaup inn á milli og sköpuðu mörg
þeirra hættu, eins og það sem þeir
fengu á 9. minútu leiksins, en rétt
áður hafði Matthias Hallgrimsson
veriö f dauðafæri við mark Vals,
en Sigurður Dagsson varði þá
skot hans.
Þetta upphlaup á 9. minútu gaf
Valsmönnum mark. Aukaspyrna
var tekin fyrir utan vitateig og
skotið beint á markið. Davið fékk
boltann á brjóstið og hrökk hann
þaöan til Harðar Hilmarssonar,
sem afgreiddi hann með þrumu-
skoti i netið.
En forusta Valsmanna stóð
ekki lengi. Akurnesingar jöfnuðu
3 minútum siðar. Haraldur Stur-
laugsson tók þá aukaspyrnu frá
miðju og sendi i átt að marki
Vals, og öllum til mikillar undr-
unar sigldi boltinn alla leið i
markið. Sigurður Dagsson hafði
reiknað með, að Jón Alfreðsson
ætlaði að bæta við skotið, en Jón
hitti ekki boltann, og þar með
skoppaði hann inn. Var þetta
klaufamark af verstu gerð og eitt
af þeim leiðinlegustu, sem mark-
menn fá á sig.
Á 23. minútu átti Hermann
Gunnarsson gullið tækifæri til að
jafna, en Davið varði meistara-
lega vel frá honum. Er það at-
vikiö, sem Kirby telur að hafi
skipt sköpum i leiknum.
Skömmu eftir þetta var Vals-
vörnin með boltann og óttaðist
sýnilega Matthias, sem var að
„krafsa” f hann á milli þeirra.
Endaði þetta með þvi, að Dýri
Guðmundsson sendi boltann aftur
á Sigurð Dagsson, sem ekki var
við þvi búinn, og hrökk boltinn i
stöngina og þaðan aftur út til
Matthiasar, sem kominn var á
fullri ferð og sendi hann i netið
...2:1....og var staðan þannig i
hálfleik.
í siðari hálfleiknum léku
Valsmenn undan vindi og sóttu
meir, en Akurnesingar komu
með hraðaupphlaup inn á milli,
sem ollu miklum usla i vörn
Valsmanna.
Eitt kom strax á 3. minútu hálf-
leiksins, og endaði það með þvi,
að Arna Sveinssyni var brugðið
innan vitateigs og umsvifalaust
var dæmd vitaspyrna. Teitur
Þórðarson tók hana, en Sigurður
varði og bætti þar með fyrir fyrri
mistök i leiknum.
Akurnesingar þéttu vörnina hjá
sér i siðari hálfleik og kom það
sér vel, þvi Valsmenn sóttu fast
ogkomustoft nálægt þvi að jafna.
Sérstaklega var það þó undir lok-
in, en þá komst m.a. Ingi Björn
Albertsson i opið færi og Davfð
Kristjánsson varði rétt á eftir
hörkuskot Harðar Hilmarssonar i
horn.
ÍSLAND SIGRAÐI
í SÍNUM RIÐU!
ísland sigraði I C-riðli á
Evrópumeistaramótinu i golfi,
sem lauk I Kiilarney á irlandi i
gær, segir f fréttaskeyti frá Reut-
er af mótinu. islenzka liðið lenti I
C-riðlinum eftir forkeppnina s.l.
fimmtudag, og var þar ásamt
I.uxemborg, Austurriki og Finn-
landi.
Mjög óljósar fréttir eru af úr-
slitum þjóðanna i þessum riðli, en
þó vitum við, að ísland tapaði fyr-
ir Luxemborg 5:2, en sigraði
Finnland 4 1/2:2 1/2.
Leikinn er bæði tviliðaleikur og
einliðaleikur — 36 holur á dag —
en hvernig einstökum keppanda
gekk eða hvernig þetta var reikn-
að út vitum við ekki. En sam-
kvæmt skeyti Reuters er Island
sigurvegari i riðlinum’ og er það
betri árangur en búizt var við.
Skotar sigruðu i' A-riðli eftir
hörku skemmtilegan úrslitaleik
við ttaliu. Sviar urðu i þriðja sæti,
Sviss í fjórða, en siðan komu Wal-
es, Vestur-Þýzkaland, trland og
Frakkland. t B-riðlinum sigruðu
Englendingar eins og við var bú-
izt. Spánn kom f öðru sæti, en
siðan komu Holland, Noregur,
Danmörk og Belgfa. Röðin i C-
riðlinum var tsland, Luxemborg,
Finnland og Austurriki.
tslenzka landsliðið i þessari
ferð var þannig skipað: Þorbjörn
Kjærbo, Björgvin Þorsteinsson,
Ragnar Ólafsson, Einar Guðna-
son, Óskar Sæmundsson og
Sigurður Thorarensen. —klp—
En markið vildi ekki koma og
Akurnesingar gengu þvi út af sem
sigurvegarar i leiknum. Þeirra
bezti maður var Jón Alfreðsson,
en einnig átti Björn Lárusson
góðan leik. Maður Skagamanna f
þessum leik var samt Davfð
Kristjánsson, sem varði oft
meistaralega vel.
Hjá Val var Magnús Bergs
einna beztur, og Hermann
Gunnarsson var hættulegur allan
timann. Þá átti Hörður Hilmars-
son góðan leik — sérstaklega er á
leið.
Dómari var Bjarni Pálmason
og dæmdi hann leikinn ágætlega
og hafði góða samvinnu við linu-
verði sina.
—EH—
1. deild
Staðan 11. deild eftir leikina um
helgina og að loknum sex umferð-
um:
Frara—Vikingur 1:0
ÍBV—Keflavik 0:1
Akranes—Valur 2:1
FH—KR 1:0
Akranes 6 3 2 1 13:6 8
Fram 6 4 0 3 5:2 8
Valur 6 2 3 1 7:4 7
Keflavik 6 2 2 2 4:4 6
FH 6 2 2 2 6:13 6
IBV 6 1 3 2 6:7 5'
KR 6 1 2 3 2:4 4
Víkingur 6 1 2 3 2:5 4
Markhæstu menn:
Matthias Hailgrimss. Akran. 4
örn óskarsson tBV 4
Guðmundur Þorbjörnss. Val 4
Teitur Þórðarson Akran. 3
Næstu leikir:
Valur—Fram á Laugardalsvell-
inum kl. 20,00 annað kvöld.
KR—tBV á Laugardalsvellinum á
miðvikudagskvöldið og þá i
Keflavik sama kvöld kl. 20,00
Keflavik—Akranes. Föstudaginn
4. júli Vikingur—FH á Laugar-
dalsvellinum.
2. deild
Staðan i 2. deild eftir ieikina um
helgina:
Haukar—Völsungur 2:2
Reynir A—Vikingur ö 2:0
Breiðablik 5 5 0 0 25:2 10
Selfoss 5 3 11 12:5 7
Þróttur 5 3 11 10:5 7
Ármann 5 3 11 8:4 7
Haukar 6 3 12 12:8 7
Völsungar 5 0 3 2 2:11 2
Reynir A 6 10 5 5:18 2
Vikingur Ó 5 0 0 5 3:24 0
Markhæstu inenn:
Hinrik Þórhallss. Breiðab. 10
Sumarliði Guðbjartss. Self. 8
Næstu ieikir:
t kvöld á Þróttarvelli... Þrótt-
ur—Breiðablik og á Selfossi.....
Selfoss—Armann.
Víkingarnir að vestan
ó botninum í 2. deild
Reynir frá Arskógsströnd náði i
sin fyrstu stig f 2. deildinni, er lið-
ið sigraði Viking frá ólafsvik á
laugardaginn með tveim mörkum
gegn cngu. Þar með eru Viking-
arnir að vestan skildir einir eftir
á botninum, þvi að Völsungarnir
náðu sér i stig um heigina.
Fyrra mark Reynis sáu Víking-
arnir um að skora fyrir þá. Knett-
inum var spyrnt fyrir mark að-
komumannanna, þar sem tveir
heimamenn áttu möguleika á að
ná tilhans. En til þess kom ekki —
einn Víkinganna varð á undan
þeim og sendi hann i eigið mark.
Siðara markið skoraði Albert
Guðlaugsson rétt mínútu eftir að
honum hafði verið skipt inn á, og
var þetta svo til fyrsta spyrna
hans i leiknum.
Fleiri urðu mörkin ekki, en
Reynismenn komustoft i góð færi
og áttu m.a. tvö stangarskot. Vik-
ingarnir áttu einnig ágæt tæki-
færi, en tókst ekki að nýta þau.
—klu—
Æ, það er svo kalt — ómögulegt að hlaupa, sagði Erna Guðmundsdóttir, KR, til hægri eftir 200 m hlaupið á Laugardalsvellinum og Asta B. Gunnlaugsdóttir var
henni innilega sammála. Til hægri renna skíðakapparnir sér á hjólaskfðum f Laugardalshöll. Ljósmyndir Bjarnleifur.
dís Gísladóttir stökk 1.63 m. í hástökki — Skúli Óskarsson setti íslandsmet
m
millivigt og Islandsmeistarar Víkings í handknattleiknum sigruðu landsliðið
ingurinn, veitti Bjarna keppni fram-
an af 200 m hlaupinu — en gaf eftir
siðari hluta hlaupsins. Hann var þó
nálægt sínu bezta eins og Bjarni —
hljóp á 22.0 sek. Stefán Hallgrims-
son, KR, varð 3ji á 22.7 sek.
1200 m hlaupi kvenna sigraði Erna
Guðmundsdóttir, KR, á 29.0 sek. en
Asa Halldórsdóttir, Armanni, varð
önnur á 26.7 sek. t fjarveru Hreins
Halldórssonar, sem er meiddur,
sigraði Guðni Halldórsson, HSÞ, i
kúluvarpi — varpaði 15.64 m.
í Laugardalshöllinni var blak-
keppni, þar sem íslandsmeistarar
stúdenta sigruðu úrvalslið Blaksam-
bandsins með 2-1 — júdókeppni, fim-
leikar, skiðaganga innanhúss á
hjólaskiðum, lyftingar, körfuknatt-
leikur og handknattleikur.
I lyftingakeppninni var sett eitt ts-
landsmet. Skúli Óskarsson jafnhenti
145 kg I millivigt og bætti met sitt um
2.5 kg. Það var í aukatilraun — en
samtals náði hann 240 kg. Kári Elis-
son, Armanni, hlaut bikar fyrir bezt-
an árangur á mótinu miðað við
þyngd. Hann lyfti samtals 210 kg.
Agnar Gústafsson, KR, snaraði 155
kg en varð að hætta við 190 kg I jafn-
hendingu vegna meiðsla.
Lok Olympiudagsins var svo leikur
milli Islandsmeistara Vikings og is-
lenzka landsliðsins i handknattleikn-
um, sem eftir 20 daga tekur þátt I
miklu stórmóti i Júgóslaviu.
Það var sorglegur leikur fyrir
landsliðið — og aðeins snilldarmark-
varzla ólafs Benediktssonar og siðan
Marteins Árnasonar kom i veg fyrir
stórsigur Vikings. Islandsmeistar-
arnir — án Einars Magnússonar —
sigruðu með 19-18 og höfðu fjögur
mörk yfir, þegar nokkrar min. voru
til leiksloka..En þá ætluðu Viking-
arnir ungu sér einum um of — ætluðu
sér að vinna stórt, en skotgleðin gaf
ekki árangur og landsliðinu tókst að
minnka muninn.
Það var lítill landsliðsbragur á leik
landsliðsins — en rétt er þó að geta
þess, að tveir leikmenn liðsins
meiddust i leiknum, Árni Indriðason
og Gisli Blöndal. Sóknarleikurinn
var slakur og vörnin sat oft eftir i
hraðupphlaupum Vikinga. Aðeins
markvarzlan hjá liðinu var i gæða-
flokki — en þó horfir maður með ugg
til væntanlegrar landsliðsfarar til
Júgóslaviu.
Hið unga lið Vikings — með reynda
kappa innanum eins og Rósmund
Jónsson, Pál Björgvinsson og Sigfús
Guðmundsson — var betra liðið
nær allan timann og merkilegt, að
leikmenn virtust litið sem ekkert
sakna Einars Magnússonar. Það er
sagt að maður komi i manns stað og i
þessum leik tók unglingalandsliðs-
maðurinn Þorbergur Aðalsteinsson
að sér hlutverk Einars sem marka-
skorari — og var miklu meira ógn-
andi en nokkur landsliðsmannanna.
Þar er stórefni á ferðinni — einhver
sagði nýr Axel.
Mörk landsliðsins skoruðu Hörður
Sigmarsson 6 (tvö vlti), Stefán
Gunnarsson 3, Pétur Jóhannesson 3,
Ingimar Haraldsson 3, ólafur H.
Jónsson 2 og Gisli Blöndal eitt. Fyrir
Viking skoruðu Þorbergur 5, Jón
Sigurðsson 3 — eitt viti, og auk þess
nokkur gullfalleg mörk úr hornun-
um, sem dæmd voru af — stigið á
linu — Magnús Guðmundsson 2,
Elias Leifsson 2 Páll Björgvinsson 2
(eitt viti), Stefán Halldórsson 2,
Viggó Sigurðsson 2 og Sigfús Guð-
mundsson eitt. Dómarar voru Gunn-
laugur Hjálmarsson og Karl Jó-
hannsson. Gaman var að sjá þá
kunnu kappa saman i þeim hlutverk-
um og þeir kunna greiniiega vel til
verka. —hsim.
íslenzku veðurguðirnir
sáu til þess, að það varð
litill olympíubragur á
fyrsta Olympiudeginum,
sem efnt er til hér á landi.
Hávaðarok og rigning á
Laugardalsvellinum i gær
sáu fyrir keppninni þar að
mestu — en innanhúss var
ekki að miklu keppt.
Olympíunefnd íslands
ákvað að efna til þessarar
keppni til að minnast
mesta sigurdags islenzkra
iþrótta — 29. júni 1951, þeg-
ar Noregur og Danmörk
voru sigruð i frjálsum
íþróttum, Sviar i knatt-
spyrnu, allt á sama degi.
Gisli Halldórsson, forseti ISt og
formaður Isl. olympiunefndarinnar,
flutti setningarræðu á Laugardals-
vellinum og siðan hófst keppni I
frjálsiþróttum.
Þar var fátt um fina drætti — en þó
tvennt, sem yljaði i kuldanum.
Bjarni Stefánsson, KR, hljóp 200 m
bráðvel á 21.6 sek., sem að visu er
ekki löglegur árangur vegna með-
vinds, og ung, 13 ára, stúlka úr IR,
Þórdis Gisladóttir, 1R, stökk 1.63
metra i hástökki og sigraði reyndar
keppniskonur með miklum yfirburð-
um. Það er nýtt telpnamet og aðeins
sex sentimetrum lakara en Islands-
metið. Þarna er stórefni á ferðinni.
Sigurður Sigurðsson, ungi Armenn-
Þórdis Gisladóttir
ískmdsmet á skozka
meistaramótinu
Sigfús á
14:26.2!
Þá kom það. Sigfús Jónsson,
ÍR, bætti ellefu ára gamalt Is-
landsmet Kristleifs Guðbjörns-
sonar, KR, I 5000 metra hlaupi
verulega á skozka meistaramót-
inu i frjáisum iþróttum á laugar-
daginn. Sigfús hljóp vegalengdina
á 14:26.2 min. og bætti met Krist-
leifs um næstum sex sekúndur.
Það var 14:32.0 min. sett 1964 —
og það verður ekki langt I að Sig-
fús fari að nálgast 14 minúturnar
á vegalengdinni.
Fleiri Islendingar náðu athygl-
isverðum árangri á mótinu..
Agúst Asgeirsson, IR, keppti i
Reynir frá Sandgerði tapaði
fyrir færeyska liðinu Vogs BF i
fyrsta leik Færeyinganna i Sand-
gerði i gærkvöldi. Skoruðu Fær-
eyingarnir 3 mörk i leiknum en
Sandgerðingat 1.
Með þessum sigri vann fær-
eyska liðið til eignar horn eitt
1500 m hlaupinu og komst i úrslit
— og það gerði einnig Borgfirð-
ingurinn ungi, Jón Diðriksson.
Þeir hlupu á 3:52.0 min. (Agúst)
og 3:56.0 min. i undanrásum, en
bættu svo tima sina verulega I úr-
slitum.
Ágúst hljóp þá á 3:49.8 min.,
sem er bezti timi hans á vega-
lengdinni og annar bezti tslend-
ings. Islandsmet Svavars
Markússonar, KR, er 3:47.1 min.
sett á Olympiuleikunum I Róm
1960. Þriöja bezta timann á Óskar
Jónsson, 1R 3:53.4 min. náð i
frægu hlaupi i Osló 1947, þar sem
mikið.sem fyrrveraudi formaður
KSi, Albert Guðmundsson. gaf fé-
lögunum tilað keppa um á sinum
lima.
Færeyingarnir munudvclja kér
i nokkra daga og leika nokkra
leiki við félögin á Suðurnesjum.
—klp—
Sigfús Jónsson.
Óskar sigraði heimskunna hlaup-
ara.
Jón Diðriksson hljóp á 3:54.5
min. og það er nýtt islenzkt ungl-
ingamet. Eldra metið átti Þor-
steinn Þorsteinsson, KR, 3:55.9
min. — sett i Stafangri i Noregi
1967. Þeir Sigfús og Ágúst hafa
verið við nám i Englandi tvo sl.
vetur og æft vel hlaupin með
náminu. Sú æfing er nú að koma
vel i ljós og má búast við miklu af
þeim i sumar — en Jón Diðriks-
son, menntaskólanemi við Tjörn-
ina.förtilæfinga á Englandi i vor
— og hefur verið fljótur að taka
við sér, enda eitt mesta hlaupara-
efni sem fram hefur komið á Is-
landi á millivegalengdum. Það
verður ekki langt i stórárangur
hjá honum einnig. — hsim.
Fœreyingarnir
fengu hornið!
Góóa feró
tíl Grænlands
^félac LOFTLEIDIR
ISLAJVDS
Til Kulusuk fljúgum viö 5 sinnum í viku
meó Fokker Friendship skrúfuþotum okkar.
Feröirnar til Kulusuk, sem er á austur-
strönd Grænlands, eru eins dags
skoðunarferöir, lagt er af staö frá Fteykja-
víkurflugvelli, aö morgni og komiö aftur aö
kvöldi. í tengslum við ferðirnar til Kulusuk
bjóðum viö einnig 4 og 5 daga feröir til
Angmagssalik, þar sem dvalið er á hinu
nýja hóteli Angmagssalik.
Til Narssarssuaq, sem liggur sunnarlega á
vesturströnd Grænlands, er flogið 4
sinnum í viku frá Keflavíkurflugvelli meö
þotum félaganna eöa SAS. Flestir þeir
sem fara til Narssarssuaq dvelja þar
nokkra daga, en kostur gefst á lengri dvöl
ef vill. í Narssarssuaq er gott hótel meö
tilheyrandi þægindum, og óhætt er að
fullyröa aö enginn veröur svikinn af þeim
skoðunarferðum til nærliggjandi staða,
sem í boöi eru.
í Grænlandi er stórkostleg nátturufegurð,
og sérkennilegt mannlif, þar er aö finna
samfélagshætti löngu liöins tíma.
Þeir sem fara til Grænlands í sumar munu
örugglega eiga góða ferö.
Félög þeirra
sem ferðast