Vísir - 30.06.1975, Blaðsíða 20
VÍSIR
Mánudagur 30. júni 1975.
Neyðarblys en
enginn í nauð
Hafnsögumenn við Reykjavíkur-
höfn urðu varir við neyðarblys i
nött. Virtist neyðarblysinu skotið
upp af sundunum.
Hafnsögumenn fóru út á báti
ásamt lögreglumönnum. Sundin
voru könnuð og eins fjaran í
kringum Viðey og Engey. Einskis
varð vart. —JB
Bílvelta í
Hvalfirði
Bfivelta varð á Ferstikluhálsi i
Hvalfirðii gærkvöldi. Tveir voru i
bilnum. Sluppu þeir án meiðsla.
Billinn var úr Reykjavik. —JB
BRUTUST
INN í
RÍKIÐ Á
AKUREYRI
Brotizt var inn i áfengisútsöl-
una á Akureyri aðfaranótt
laugardagsins. Hurðir voru þar
brotnar upp og ruslað til, en eins
furðulegt og það kann að hljóma
var litlu stolið af áfengi.
Aðeins þriggja flaskna var
saknað. Hefur þjófurinn þvi verið
nokkuð hógvær og aðeins tekið
það, sem hann nauðsynlega
þurfti.
—JB
Drukkinn ó
dróttarvél
Drukkinn piltur stal dráttarvél
aðfaranótt laugardagsins og fór I
ökuferð. Vegfarendur voru ekki
vel sáttir við þennan næturakstur
og gerðu lögreglunni viövart.
Áður en hún kom á vettvang,
hafði piltur þó stokkið af dráttar-
vélinni, en lögreglan náði honum
á flóttanum.
Pilturinn hafði veriö að
skemmta sér i Sigtúni og gripið
dráttarvélina þar skammt frá.
—JB
Heiðmörk líka
opin að vetri?
,,Það er stcfnt að þvi, að Héið-
mörk veröi einnig opin að vetri
til”, sagði Guðmundur Marteins-
son formaður Skógræktarfélags
Rvikur, en nú eru liðin 25 ársiðan
Heiðmörk var vigð sem útivistar-
svæði Reykjavikur. Var þessa
minnzt við hátiðlega athöfn i
Heiðmörk i gær, þar sem ræður
voru fluttar, blásiö I lúðra og tek-
ið lagið. Voru þarna samankomin
2-3hundruð manns i heldur óhag-
stæðu veðri.
Byrjað var f fyrra á þykkum
undirstöðuofaniburði i Strýtsveg,
sem er eins konar hringvegur i
Heiðmörk. Liggur hann yfir
Skógarhliðarskriðu suður með
Skógarhliðinni til suðvesturs yfir
Strýtshraun alla leið að Hjalla-
braut fram hjá Hulduklettum.
Vonir standa til, að þessi vegur
verði að minnsta kosti að hluta til
opinn i vetur.
—EVI—
Síldveiðarnar:
Auglýst eftii
Auglýst verður eftir umsóknum
til sildveiða við island næstu daga
að sögn sjávarútvegsráðuneytis-
ins. Nefnd, er skipuð var af ráðu-
neytinu til að ákvarða, hvernig
veiöunum skyldi hagað, skilaði
skýrslu sinni á föstudagskvöldiö.
Nefndin lagði til, að þau 7500
Björgunarbátnum stolið
— „verð að hœtta, fái ég ekki að
hafa bátinn í friði," sagði eigandinn
„Þegar við ætluðum i róður á
laugardeginum, var björgunar-
báturinn horfinn. Hann var i
kassa uppi á stýrishúsinu, en
kassinn var lokaður með hengi-
klemmu með splitti i, svo að til-
töluléga auðvelt var fyrir þjóf-
ana að stela björgunarbátn-
um”, sagði Jón Barðdal eigandi
bátsins.
, ,Ég held að þjófarnir hljóti að
hafa verið á hraðbáti og komið
af sjó, nema þeir hafi hnýtt
landfestarnar alveg eins og ég”,
sagði Jón.
,,í dag kostar svona bátur hátt
á annað hundrað þúsund. Alfa
RE er ekki tryggð, þvl að trygg-
ingarnar eru að okkar mati allt
of háar, þ.e. 8-10% af andvirði
bátsinsá ári. Þetta háa iðgjald
er tilkomið vegna þess, að
tryggingarfélögin eru svo
hrædd um, að verið sé að
tryggja bátinn til þess að
sökkva honum”.
,,Ég held, að trillurnar séu
margar hverjar illa búnar
björgunartækjum vegna þess,
aö trillueigendur eru ekki að
kosta upp á dýr björgunartæki,
sem siðan eru allar likur á að
verði stolið. Okkar bátur er einn
af fáum, sem er með fullkomin
björgunartæki. Við erum lika
með neyðartalstöð og FR stöð.
Sem betur fer voru þessir hlutir
látnir í friði, sagði Jón ennfrem-
ur.
„Við förum aldrei út nema i
góðu veðri. En hættan hérna er
sú, að við rekumst á reköld og
þá er báturinn sokkinn eins og
skot”.
„Maður hættir skakinu og
seíur bátinn, ef maður-fær ekki
að vera í friði með hann. En það
er einmitt mjög algengt, að
trillueigendur gefist upp á þess-
ari útgerð vegna sifelldra þjófn-
aða eða skemmda á bátunum.”
—HE
BÁTUR Á REKI
— bensíninu stolið
„Við fylltuin geyminn af bensíni
á fimmtudaginn til að geta farið á
veiðarum helgina ef vel viðraði”,
sagði Einar Nikulásson : i viðtali
við Visi i morgun. Einar lenti við
annan mann i nokkrum svaðilför-
um um helgina á litlum báti á
sundunum.
„Við fórum út um klukkan 8 á
föstudagskvöldið og er við höfð-
um veitt ein 100 kiló af ýsu hér út
af sundunum vildum við snúa til
baka. Klukkan var þá tæplega tvö
um nóttina. Þá kom bara i ljós, að
benstngeymirinn var tómur.
Hafði bensininu verið stolið af
bátnum. Við gripum til farstöðv-
arinnar, sem við höfðum i bátn-
um og einhver, sem einnig er i
Farstöðvaklúbbi Reykjavfkur,
heyrði kallið. Hann hringdi siðan i
félaga okkar, sem kom okkur til
hjálpar,” sagði Einar.
Einar og félaga hafði þá rekið i
vonzkuveðri upp undir Éngey.
„Við komumst i land um klukk-
an fimm,eftir að hafa verið á reki
I rúma þrjá tima. Það bjargaði
okkur sannarlega aðhafa talstöð-
ina hjá okkur. Hún hafði gert það
gott einu sinni áður, þegar vélin
bilaði i bátnum hér úti á flóan-
um,” sagði Einar.
—JB
ALÞJÓÐLEG VÖRUSÝNING REYKJAVÍK ,75:
Eigandi bátsins, Jón Barðdal, heldur þarna I snúruna, sem tengdi
björgunarbátinn við trilluna sjálfa. Kassinn, sem björgunarbátur-
inn var i, stendur nú gaitómur.
BÚIÐ AÐ LEIGJA 95%
AF SÝNINGARSVÆÐINU
Alþjóðleg vörusýning verður
haldin á islandi, i Laugardals-
höllinni, dagana 22. ágúst til 7.
september.
Mun þar kenna margra grasa.
Þar verður allt til skrifstofuhalds
og bygginga svo og húsgögn, inn-
réttingar, fatnaður, mótorhjól og
vélslcðar, meðal annars verður
sýndur islcnzkur vélsleði, svo
eitthvað sé nefnt
Þá verður svokölluð
heilbrigðissýning, sem gefur alls
konar upplýsingar um áfengis-,
tóbaks- og lyfjanotkun. Allmikið
verður af electróniskum tækjum
á heilbrigðissýningunni, þar sem
meðal annars verður hægt að
prófa viðbragðsflýti sinn. Einnig
verður þar maskina, sem getur
prófað menn i liffærafræði.
En stjarna sýningarinnar
verður glerkona, sem er 3.20 á
hæð. Beinagrindin er úr áli, en
annars er hún úr plasti. Hún flyt-
ur texta um sinn eigin likama 15-
20 min. i hvert sinn.
Þegar er búið að leigja 95% af
sýningarsvæðinu, sem verður um
6000 ferm. Þar af er 1000 ferm.
skáli, sem reistur verður i tilefni
af sýningunni og 2000 ferm. úti-
vistarsvæði, þar sem sýndar
verða stórvirkar vinnuvélar og
bátar.
HE
Sömdu um baksturinn
Bakarar náðu samkomulagi
um nýja kjarasamninga hjá
sáttasemjara i gærkvöldi og var
þá aflýst verkfalli, sem átti að
hefjast á miðnætti i nótt.
Nýju samningarnir grund-
vallast á ASl-samningunum, en
stórt hliðaratriði varð að sam-
komulagi, nefnilega um stór-
stígari launahækkanir samfara
starfsaldri.
Var samkomulagiö undirritað
hjá sáttasemjara klukkan átta i
gærkvöldi, en þetta var annar
fundur deiluaðila með sátta-
semjara. Fundinn sátu fulltrúar
frá ASl og vinnuveitendasam-
bandinu.
Félagsfundir um samkomu-
lagið hafa verið boðaðir hjá
báðum aðilum i dag.
—ÞJM
umsóknum nœstu daga
tonn, sem veiða má i herpinót,
verði söltuð i skipunum eftir regl-
um og fyrirmælum sildarútvegs-
nefndar. Meðal annars verða sett
skilyrði um, að kunnáttumaður
um söltun verði um borð i hverju
skipi.
Nýting þeirra 2500 tonna, sem
leyfð eru i reknet, skal aftur á
móti vera frjáls.
Einn nefndarmanna, Gunnar
Flóvenz, skilaði séráliti. Vildi
hann, að frjálst yrði, hvort herpi-
nótasildin yrði söltuð um borð eða
I landi.
—JB
Svartsengi:
Hátíðin drukknaði
Svartsengishátlðarhöldin svo
að segja drukknuðu i óveðri I
gærdag. Hátiðin var því flutt
yfir i samkomuhúsið Festi i
Grindavlk. Fjölmennast var á
Svartsengishátlðinni á laugar-
i dagskvöldið, en þá mættu þar
/ 1200 til 1500 manns þrátt fyrir
\ versta veður.
Flestir fóru heim til sin um
nóttina. Að sögn lögreglunnar
fór Svartsengishátiðin vel og
slysalaust fram. Aftur á móti
var ölvun mikil á dansleiknum,
sem fram fór i Festi á föstu-
dagskvöldið, og fylltust fanga-
geymslur i Keflavik af þeim
sökum. _jb
Einn áreksturinn enn
við Vogavegamótin
— Ég sá i speglinum, að billinn
fyrir aftan mig ætlaði ekki að
stanza. Ég ók þvi af stað til að af-
stýra árekstri, sagði leigubilstjóri
úr Keflavik, sem lenti i hörðum á-
rekstri á Reykjanesveginum við
Vogavegamótin.
Þarna við vegamótin hafa
margir harðir árekstrar orðið á
undanförnum árum að sögn lög-
reglunnar. Vegamótin sjást illa
og eru ómerkt. Að sögn lög-
reglunnar væri til mikilla bóta ef
brautin yrði breikkuð þarna,
þannig, að bilar, sem ætluðu að
beygja trufluðu ekki umferðina.
— Ég tók ekki eftir að þarna
væru vegamót og veitti ekki held-
ur athygli bremsu- eða stefnuljós-
um á bilnum fyrir framan, sagði
ökumaður jéppabilsins, sem lenti
aftan á leigubilnum. Áreksturinn
varð það harður, að jeppabillinn
fór alveg inn að afturhjólum
leigubilsins. Við það rifnaði
benzintankurinn og benziniö flóði
um allt. Mi idi var að ekki skyldi
kvikna i leigubilnum, sem i voru
auk ökumanns tvær konur og þrjú
ungbörn.
—emm
Mildi var, að ekki kviknaði I, er
benzíngeymir leigubifreiðar-
innar rifnaði og benzínið flóði
um götuna. Ljósm. — emm.