Vísir - 03.07.1975, Side 3
Visir. Fimmtudagur :t. júli 1975.
3
MIKIL
AÐSÓKN
f SJÚKRA-
LIÐANÁM
300 sóttu um
á fyrstu viku
„Það var auglýst seint i júni-
mánuði að umsóknareyðublöð
vegna sjúkraliðanáms lægju
frammi og á fyrstu vikunni voru
sótt 300 stykki”, sagði Ingibjörg
Magnúsdóttir hjá heilbrigðis-
ráðuneytinu. Um umsóknarfrest-
ur rennur ekki út fyrr en I lok júlU'
„Undanfarið hafa deildir
sjúkrahúsanna haft leyfi til aö
reka sjúkraliðaskóla og hafa for-
stöðukonur sjúkrahúsanna verið
skólastjórar. Hefur þetta verið
mikið álag á þær. Þess vegna
hefur verið ráðizt I að stofna sér-
stakan skóla, sem verður meö
svipuðu fyrirkomulagi. Skólinn
verður til húsa að Suðurlands-
braut 6. Tekur hann til starfa i
byrjun október og veröur
Hólmfriður Stefánsdóttir skóla-
stjóri,” sagði Ingibjörg.
Reynt verður að taka 60 nem-
endur og svo tvisvar sinnum 30
nemendurmeð tveggja mánaða
millibili eftir áramót. Einnig tek-
ur Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri við nemendum.
Ingibjörg sagði, að það hefði
verið vitað, að mikil aðsókn yrði
að skólanum, eins og hefur verið I
sjúkraliðanám fyrr. Alltaf kom-
ast færri að en vilja. Unglinga-
prófs er krafizt, en full þörf er á
að gera að skilyrði, að gagn-
fræðapróf sé fyrir hendi, og má
búast við, að strangari kröfur
verði gerðar um inntöku.
Það sem hamlar að hægt sé að
taka fleiri nemendur er fyrst og
fremst skortur á hjúkrunarkenn-
urum og svo takmarkað verk-
námspláss á sjúkrahúsunum.
„Það er auðséð, að konur hafa
gert sér grein fyrir að þær þurfa
menntun ekki siður en karlmenn.
Ahuginn fyrir að velja sér starf
strax er lika meiri nú,” sagði
Ingibjörg og hún bætti við, að
konurnar treystu ekki eins á að
hafa fyrirvinnu og áður fyrr.
—EVI—
GAMALT
TORFHÚS
BRENNUR
Gamalt fjárhús og hlaða á bæn-
um Blómsturvöllum við Akureyri
brunnu i morgun. Eldsins varð
vart frá lögreglustöðinni um
klukkan fimm i morgun. Lagði þá
nokkurn rcyk upp frá bænum.
Slökkviliðið kom á vettvang en
fékk litið að gert. Fjárhúsið og
hlaðan voru þegar orðin alelda.
Aðeins litið hey var i hlöðunni og
ekkert fémætt i fjárhúsinu. Það
var mjög komið til ára sinna,
byggt úr timbri og þakið torfi.
—JB
Tvö vinnuslys
ó Akureyri
Tvö vinnuslys urðu á Akureyri
fyrir hádegi i gær. 68 ára gamall
maður lenti mcö hönd I skó-
smiðavél i skógerð Iðunnar.
Maðurinn slasaðist nokkuö á
hendinni og var fluttur á sjúkra-
hús.
Þá varð annað slys i Malar- og
steypustöðinni á Akureyri. Þar
lenti starfsmaður með annan fót-
inn i reim og slasaðist. Hann var
einnig fluttur á sjúkrahúsið.
—JB
Það er veríð að gabba
kónnann"
segja seljendur — engu hœgt að
svara ennþá, segir menntamálaráðherra
„Það er engu hægt að svara
um þetta ennþá”, svaraði
menntamálaráðherra Vilhjálm-
ur Hjálmarsson spurningu Visis
um, hvenær ákvörðun um lita-
sendingar sjónvarpsins verður
tekin, eða hvenær slikra útsend-
inga er að vænta.
Ýmis ljón virðast enn á vegin-
um, þrátt fyrir það að litaút-
sendingin sjálf hafi lítinn kostn-
að i för með sér.
Bæði neytendur og innflytj-
endur sjónvarpa biða spenntir
eftir einhverju svari. Einn inn-
flytjenda hefur látið hafa það
eftir sér, að erfitt sé aö verða að
fá svart/hvit tæki erlendis og að
verzlun hans muni eingöngu
selja litasjónvörp með haustinu.
Ekki eru þó allir á sama máli.
Við höfðum samband við þrjár
verzlanir, sem verzla með sjón-
vörp, og þar var ekki að heyra,
að svart/hvitu tækin væru dottin
upp fyrir eða erfitt væri að fá
þau erlendis. Einn þeirra, sem
við töluðum við, sagði þó að
margir væru hættir framleiðslu
þessara tækja, til dæmis Noreg-
ur. Þar er öll áherzla lögð á lita-
tækin, enda er salan 60-70% slik
tæki.
Þróunin verður þvi sú, að
svart/hvitu tækin verða ein-
göngu eða að 'mestu leyti litil,
12, 14 eða 18 tommur. Stærri
tækin, mublurnar svokölluðu,
verða hins vegar litatæki. Þessu
sami aðili sagði,að lítið væri um
það ennþá, að fólk hér keypti
litatæki.
„Þvi finnst allt svo fjári óvist
og leggur ekki i að fjárfesta i
þessum dýru tækjum, Það vant-
ar upplýsingar til þessa fólks,
svo það geti skipulagt endurnýj-
un sina samkvæmt þvi sem
verða vill. Verður sent út i lit
eftir 5 ár eða eftir 10 ár? Okkur
finnst verið að gabba kúnnann”.
Á hinum tveimur stöðunum
fengum við þær upplýsingar, að
engir erfiðleikar væru á þvi að
fá svart/hvit tæki erlendis, þó
að liturinn ryðji sér viðast til
rúms.
önnur verzlunin af þessum
hefur þann háttinn á að fólk,
sem kaupir svart/hvit tæki,
hefur möguleika á þvi næstu
þrjú ár að leggja það tæki inn
sem innborgun upp i nýtt lita-
tæki. Ef ske kynni, að Isiending-
ar fengju sjónvarpið i lit á þeim
tima.
—EA
Þessi staður er raunar inni I
miðri Reykjavikurhöfn, fram af
skemmum Skipaútgerðar rikis-
ins. Þarna á að reka niður stál-
þil og siðan að fylla upp fyrir at-
hafnasvæöi Rikisskip. En
meðan þaö dregst, er gott að
hafa þarna góðan sand, sem
þangaö liefur verið dælt. Þá er
hægt að renna þar upp bátum og
dytta að þeim, en aðstaða fyrir
báta er ekki sérlega mikil i
Reykjavikurhöfn.
—Ljósm. Bj. Bj.
Fœribandafuglar:
5 ÞÚSUND
HÆNSNA BÚ
- ALGERLEGA
SJÁLFVIRKT
Á alifuglabúinu Sætúni á Kjal-
arnesi er nú verið að koma upp
sannkallaöri færibandaveröld
fyrir fuglana.
Fóöurtæki og búr, sem komin
eru til landsins, eiga að fara i ný-
byggingu, sem nýbúið er að reisa
á staðnum. Tækin, sem kosta um
5 milljónir króna, eru með þeim
fullkomnustu, sem hingaö hafa
komið og eiga að gera einum
manni auðvelt að fóðra og sjá um
5000hænur, sem annars krefst um
fjögurra manna i fullri vinnu.
Fóðrið fá hænurnar á færibönd-
um og skiturinn úr þeim er fluttur
i haug á færiböndum. Jafnframt
munu eggin koma rúllandi i
bakka, sem eru meðfram búun-
um, þegar tæki þessi verða komin
upp.
—JB
Ferðalöngum
vel tekið ó
Snœfjallaströnd
— þar eru 6 ábúendur að byggja
sér félagsheimili
„Okkur var tekið af mikilli
rausn og höfðingsskap, þegar
við heimsóttum tsafjarðar-
djúp", sagði Leopold Jóhannes-
son, veitingamaður I Hreöa-
vatnsskála, en hann ásamt 25
öðrum, flestum úr Noröurár-
dalnum lagöi leið sina vestur
eina helgi á dögunum.
Þetta er annað sumarið i röð,
sem nærri sami hópur fer i ferð
til Vestfjarða. í hópinn vantaöi
tvö, sem raunar voru að gifta
sig. Þau hafa ekki getað séð af
hvort öðru siðan I fyrri ferðinni.
Þetta voru hreppstjórasonurinn
úr Norðurárdalnum og oddvita-
dóttirinn.
Noröurárdalsmenn lögðu leiö
sina meöal annars á Snæfjalla-
strönd. Þar eru nú aöeins 6 bú-
endur, allir i hreppsnefndinni.
„Það er táknrænt, hversu
fækkunin i sveitinni hefur
þjappað fólkinu sama. Og
merkilegt að sjá þessar fáu
manneskjur berjast drengilegri
baráttu við að búa I þessari af-
skekktu byggð,” sagði Leopold.
Nú búa 36 manns i þessum
hreppi, en fyrr á þessari öld
fæddist 31 barn, bara á einu ári.
Með hópinn var farið út i Æð-
ey og þótti Norðurárdalsbænd-
um aöhlynningin að æðarfuglin-
um ekki ósvipuð þvl, sem gerist
með lambfé á vorin. Þá er eitt
og eitt lamb tekið heim, ef það
er eitthvað bágboriö. Eins er
það meö æðarungana. Sagði
Leopold, að gifurlega mikil
virina væri við æðarvarpið.
Kaffisamsæti var haldið fyrir
gestina i félagsheimili, sem
veriö _er að byggja á Snæfjalla-
strönd og að þvi búnu fylgdu
hreppsbúar hópnum niður að
Fagranesinu, sem flutti hann til
Isafjarðar.
—EVI—