Vísir - 03.07.1975, Blaðsíða 5
5
Visir. Fimmtudagur 3. júli 1975.
lIKÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Umsjón: Óli Tynes
KVENNARÁÐSTEFNAN
KREFST MEÐAL ANNARS
AFNÁMS ÍSRAELSRÍKIS
Kvennaráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna^
lauk i Mexíkó i gær
með samþykkt, þar
sem meðal annars var
krafizt ýmissa efna-
hagsúrbóta og afnáms
Zionisma. Áður höfðu
konur frá rikjum þriðja
heimsins samþykkt, að
einfaldur meirihluti
nægði til að afgreiða
mál á ráðstefnunni, en
ekki þyrfti 2/3, eins og
gert var ráð fyrir i upp-
hafi.
Þetta var gert til aö fá sam-
þykkta klausuna um afnám
Zionisma, sem er beint gegn
Israel, þvi konurnar óttuöust, að
annars næöi þaö ekki fram aö
ganga. Þaö var Egyptaland,
sem bar fram tillöguna um ein-
faldan meirihluta. Þegar
Arabaríkin tala um Zionisma,
eiga þau við Israelsriki.
Auk þess var i samþykktinni
ákveöið að stefna aö því að gera
fleiri konur læsar og skrifandi,
en þær eru 2/3 af ólæsum Ibúum
heimsins i dag. Samþykkt var
aö stefna aö jafnrétti I aðgangi
aö skólum og meiri verkþjálfun
fyrir konur.
Krafizt var opnunar fleiri
starfsgreina fyrir konur og
launajafnréttis. Einnig var
krafizt lagalegs og pólitísks
jafnréttis, þannig aö konur hafi
t.d. sama rétt I hjónabandinu og
karlar.
40 þúsund tonn
of sorpi rotna
ó götum N-York
Algert ófremdar-
ástand er nú i New York
vegna verkfalla og
mikilla ,,veikindafor-
falla” slökkviliðs-
manna, sorphreinsunar-
manna og umferðar-
stjórnenda. Um fjörutiu
þúsund lestir af sorpi
rotna nú i steikjandi
sólarhita á gangstéttum
og i húsagörðum borg-
arinnar og menn koma
mörgum klukkustund-
um of seint til vinnu
vegna umferðarhnúta.
Þá hefur orðið að loka
slökkviliðsstöðvum
vegna ,,veikinda”.
Astæðan fyrir þessu eru fjölda-
uppsagnir starfsmanna borgar-
innar. 1 fyrradag var 19 þúsund
mönnum sagt upp vinnu, þar á
meðal lögreglu- og slökkviliös-
mönnum. Búizt er við, að alls
verði um 40 þúsundum sagt upp.
Uppsagnirnar eru til komnar
vegna þess, að borgin rambar á
barmi gjaldþrots og hefur ekki
getað aflað sér fjár til að greiða
laun starfsmanna sinna.
Það alvarlegasta kann þó að
vera eftir, en það er verkfall lög-
reglumanna. Glæpir eru tiðari i
New York en á flestum stöðum
öðrum.
Eitrað fyrír
Sithole að
sögn Kaunda
Kenneth Kaunda, forseti
Zambíu, sakaði i gær „út-
sendara” lan Smith, for-
sætisráðherra Ródesíu, um
að hafa eitrað fyrir Edson
Sithole, einum af leiðtog-
um blökkumanna, sem er í
heimsókn í Zambíu.
Forsetinn sagði, að Sithole hafi
verið borið eitrað kaffi I flugstöð-
inni i Salisbury, áður en hann
lagði af stað.
Sithole var fluttur á sjúkrahús i
Zambiu, en er að ná sér. Yfirvöld
i Ródesiu segja tóma þvælu að
reynt hafi verið að eitra fyrir
blökkumannaleiðtoganum, en
rannsókn hefur verið fyrirskipuð.
Bent er á, að ýmsir ferðafélag-
ar Sithole hafi drukkið með hon-
um kaffi án þess að verða meint
af. Er ekki talið óliklegt, að hann
hafi fengið matareitrun af ein-
hverju, sem hann neytti i hádeg-
isverði skömmu fyrir brottförina.
Vopn Carlosar
i Lundúnum
Vopnabúr, sem tilheyr-
ir Carlosi þeim, er
franska lögreglan leitar
ákaft vegna drápanna á
tveim leyniþjónustu-
mönnum og fanga
þeirra, fannst í London í
gær. Þaö var í stórri
tösku, sem Carlos haföi
fengið að geyma i ibúð
spánskrar konu, sem rek-
ur veitingahús þar í borg.
Konan ákvað að opna tösk-
una, þegar hún sá myndir af
Carlosi i blöðum, þar sem skýrt
var frá drápunum i Frakklandi.
Hún fann bæði skotvopn og
sprengiefni og einnig lista yfir
framámenn Gyðinga i Eng-
landi.
Meðal þeirra, sem eru á list-
anum má nefna fiðlusnillinginn
Yehudi Menuhin, leikritahöf-
undinn John Osborne og konu
hans, leikkonuna Jill Bennett.
Einnig var á listanum nafn
Josefs Sieff, sem var særður
skotsárum fyrir utan heimili sitt
i desember 1973. Tilræðismað-
urinn fannst aldrei.
Franskir leyniþjónustumenn
eru nú komnir til London vegna
þessa fundar.
Leitin að Carlosi þykir
minna nokkuð á metsölubók
Fredericks Forsyte, „Dagur
sjakalans”. Hann er enda
kallaður sjakalinn i frönskum
blöðum. Franska leyniþjón-
ustan hefur nú sent menn til
London.
-■
Narayan við sömu heilsu
J. Narayan er við
sömu heilsu og fyrir
nokkrum mánuðum og
hefur ekki farið í hungur-
verkfall, segir í fréttatil-
kynningu frá indverskum
yfirvöldum. Vinir hins
aldna stjórnmálamanns
skýrðu fréttamönnum frá
því í gær, að hann hefði
farið í hungurverkfall,
þegar hann var handtek-
inn, og væri langt leiddur.
Narayan er óopinber leiðtogi
hörðustu andstæðinga Indiru
Gandhi, forsætisráðherra, og var
einn þeirra fyrstu, sem hún lét
handtaka. Hann er 72 ára gamall
og þekktur á Indlandi fyrir
heiðarleik og baráttu gegn spill-
ingu.
I fréttatilkynningu yfirvalda
segir, að Narayan hafi verið
færður til læknisskoðunar á
sjúkrahúsi, þar sem hann hafi
gengizt undir skoðun fyrir nokkr-
um mánuðum. Heilsa hans nú
væri söm og þá. Hann sé nú kom-
inn af sjúkrahúsinu. Það þýðir
væntanlega, að hann hafi verið
fluttur aftur i fangelsi.