Vísir - 03.07.1975, Side 9

Vísir - 03.07.1975, Side 9
ps Visir. Fimmtudagur 3. júli 1975. Visir. Fimmtudagur 3. júii 1975. Glœsimark Árna fœrði Skagamönnum sigurinn — og þeir eru nú efstir eftir í 1. deildarkeppninni ásamt Fram Akurnesingar héldu sama striki og þeirhafa stýrt eftir að undanförnu i 1.- deildinni. 1 gærkveldi sigruðu þeir ÍBK suður i Keflavik með tveimur mörkum gegn einu og voru þau úrslit fyllilega verðskulduð. Leikurinn var mjög fjör- ugur á köflum og geysispennandi fyrir hina 1500 áhorfendur, sem lögðu leið sina á völlinn I bliðviðrinu, — sumir langt að komnir, — alla leið ofan af Akranesi, til að hvetja sina menn. Mátti stundum ætla, að um hreinan úr- slitaleik væri að ræða, svo mikið var kapp i leikmönnum og köll I áhorfcnd- um. 1 þessum leik mátti eiginlega sjá öll tilbrigði knattspyrnunnar, bæði góð og slæm. Fallegan samleik, skemmtileg- an einleik, ellegar þá endemis hnoð þess á milli, þar sem knötturinn hafnaði i fótum næsta mótherja. barna gaf lika að lita óheppnismark, klaufamark og eitt snilldarmark, og baráttuvilji leikmanna minnti oft meira á lif og dauða en slag um tvö stig. Keflvikingar hafa verið fremur óheppnir með lið sitt að undanförnu, þjálfaravandamál, meiðsli og veikindi hafa hrjáð liðið og ekki brá út af þeirri venju i gærkveldi. Gisli Torfason, sem borið hefur liðið allmikið uppi i sein- ustu leikjum, forfallaðist vegna háls- bólgu, en IBK gengur illa að fylla skörð aðalmanna liðsins, — breiddin virðist ekki næg i herbúðum þeirra þessa stundina. öðru máli gegnir með Akurnesinga. Þeirhafa greinilega úr meiru að moða og styrkur þeirra liggur i öflugu vara- liði. Að minnsta kosti varð sú raunin á i gærkveldi, þegar ÍBK hafði náð for- ystu, en framlinumönnum 1A gekk treglega að komast i gegnum vörn Keflvikinga. Þá var Karl Þórðarson settur inn á, og átti hann aðalþáttinn i að teygja IBK-vörnina i sundur með leikni sinni og snjöllum sendingum. Fljótlega mátti sjá, að hvorugur aðilinn ætlaði að láta sitt eftir liggja. Keflvikingar staðráðnir i að hrista af sér slenið og halda sér sem næst toppnum, en Skagamenn hins vegar staðráðnir i að sleppa ekki Frömurum einum i forystu l.-deildarinnar. Barizt var þvi um hvern knött og enginn frið- ur eða grið gefin til að byggja upp skipulagðan sóknarleik, enda skapað- ist ekki raunveruleg hætta við mörkin, nema einna helzt, ef einhver reyndist að brjótast i gegn á eigin spýtur, en aðallega var það Matthias Hallgrims- son, sem angraði tBK-vörnina og Þor- stein Ólafsson, markvörð, með slikum tilraunum. Um miðjan fyrri hálfleik og eftir jafna baráttu sóttu Keflvikingar. Ólaf- ur Júliusson fékk knöttinn á kollinn og skallaði út að hliðarlinu, vinstra meg- in, til Jóns Ólafs, sem kom að á fleygi- ferð, rak knöttinn á undan sér, nokkur skref og skaut siðan föstu skoti að marki. Davið Kristjánsson, mark- vörður var vel staðsettur og bjó sig undir að góma knöttinn, — sem óvænt lenti á baki Jóhannesar Guðjónssonar — og breytti um stefnu, — skrúfaðist framhjá Davið — og i mark. 1:0. Nokkuð dofnaði yfir Skagamönnum við þetta óhappamark, en undir lok hálfleiksins gerðu þeir mikla orrahrið STAÐAN Staðan i 1. deild eftir leikinn i Keflavlk f gærkvöldi: Keflavik—Akranes 1:2 Akranes 7 4 2 1 15:7 10 Fram 7 5 0 2 8:3 10 Valur 7 2 3.2 8:7 7 Keflavik 7 2 2 3 5:6 6 FH 6 2 2 2 6:13 6 IBV 6 1 3 2 6:7 5 KR 6 1 2 3 2:4 4 Víkingur 6 1 2 3 2:5 4 Markhæstu menn: Guðmundur Þorbjörnsson Val 5 Matthias Hallgrlmsson Akranes 5 örn óskarsson tBV 4 Næstu leikir: Vfkingur—FH á Laugardals- vellinum og ÍBK—KR i Vest- mannaeyjum á föstudagskvöldið. Staðan I 2. deild eftir leikinn i gærkvöldi: Vlkingur Ó—Völsungur 1:2 Breiðablik 6 5 0 1 26:4 10 Þróttur 6 4 11 12:6 9 Selfoss 6321 13:6 8 Ármann 6 3 2 1 9:5 8 Haukar 6 3 12 12:8 7 Völsungur 6 1 2 3 4:12 4 Reynir 6 1 0 5 5:18 2 Vfkingur Ó 6 0 0 6 4:26 0 Markhæstu menn: Hinrik Þórhallsson Breiðabl. 10 Sumarliði Guðbjartsson, Selfoss 8 Næstu leikir: Vfkingur ó—-Þróttur... Völs- ungur—-Reynir Ar- mann— Haukar, á laugardag. Breiðablik—Selfoss, á sunnudag. KSÍ halar inn fimmtíukallana! Fimmtiu krónurnar detta ört I kassann hjá Knatt- spyrnusambandi tslands þessa dagana. Ástæðan er sú, að félög viða um land trassa að senda inn leik- skýrslur, en samkvæmt lög- um KSt er 50 króna sekt á dag á það félag, sem ekki hefur sent inn leikskýrslu um leik, sem það hefur átt að sjá um, sjö dögum eftir að Ieik- urinn hefur farið fram. Mun allálitleg fúlga vera komin I kassann á þennan hátt, enda sum félögin ótrú- lega löt við að senda inn skýrslurnar eða láta vita um frestanir eða annað til móta- nefndar. —klp— að marki tBK, en tókst ekki að skora, þrátt fyrir margar hornspyrnur, skot og skalla, sem ýmist lentu á varnar- mönnum eða höfnuðu I klóm Þorsteins markvarðar. Þeir, sem um knattspyrnu rita, hafa lengi klifað á þvi, að vallarbreiddin væri ekki notuð. Upphlaupin kæmu mest fram miðjuna og það sýndi sig enn einu sinni i gærkveldi, að þessi ábending hefur við rök að styðjast. Þegar Akurnesingum tókst, mest fyrir tilstilli Karls Þórðarsonar að nota út- herjana, sneru þeir taflinu við. Á 25. min. kom sending frá hægri, inn i markteig IBK, þar sem Matthiasi Hallgrimssyni tókst að ná til knattar- ins, eftir varnarmistök og klaufalega tilburði Þorsteins markvarðar, — og senda i netið, 1:1. Skömmu áður höfðu liðin þó átt sæmileg færi. ólafur Júliusson, sem reyndar var ekki i essinu sinu i leikn- um, komst inn fyrir lA-vörnina, en Davið varði skotið, enda færið nokkuð lokað. Þorsteinn hafði einnig varið glæsilegt Skot frá Arna Sveinssyni, hinum bráðefnilega Skagamanni, sem nokkrum minútum siðar gerði út um leikinn. Aðdragandinn var sá, að auka- spyrna var dæmd á ÍBK um miðbik vallarins. 1 stað bess að senda rakleitt að marki sendi Jón Alfreðsson knött- jnn út að hliðarlinu, til bakvarðarins, sem „vippaði” knettinum til Árna Sveinssonar, sem stóð rétt innan við vitateigslinu. Arni skaut viðstöðulaust og skoraði sigurmarkið, án þess að Þorsteinn fengi rönd við reist, þótt hann legði sig allan fram. Lið Akurnesinga er greinilega i framför og verður illvinnandi. Vörnin er mjög þétt, eins og hún var skipuð á móti IBK. Jóhannes er að verða öflug- ur miðvörður og sómir sér vel við hlið Jóns Gunnlaugssonar. Þá má ekki gleyma þeim Haraldi Sturlaugssyni og Jóni Alfreðssyni, sem unnu af miklum dugnaði leikinn út, bæði i vörn og sókn. Matthias var sami ógnvaldurinn og áður, en ungu mennirnir, Karl og Árni, eru sannarlega framtiðarmenn liðs- ins, eins og þeir hafa reyndar áður sýnt. Keflvikingar' börðust af miklum dugnaði allan leikinn, en áttu einfald- lega við ofjarl sinn að etja. Einar Gunnarsson, er kominn i sinn bezta ham og Astráður gerði miðvarðarstþð- unni mjög góð skil, þótt hún sé honum alveg nýtt hlutverk. Hjörtur Zakarias- son var mjög traustur sem bakvörður. Grétar Magnússon er aftur að hress- ast, en Karl Hermannsson „hvarf”, þegar á leið. Jón Ólafur stendur enn vel fyrir sinu I fremstu vlglinu og Steinar Jóhannsson átti af og til sæmi- lega spretti, en klaufskur á stundum. Ólafur Júliusson lét skapsmunina hlaupa með sig I gönur. Dómari var Róbert Jónsson. Mátti gjarnan vera örlitið röggsamari og láta heyrast betur i fremur hljómlitilli flautu. —emm Belgar vilja Guðgeir „Það var Asgeir Sigurvinsson, sem hafði samband við mig i gærkvöldi og spurði, hvort ég hefði áhuga á að koma til Belgiu siðar i þessum mánuði til að ræða við forráðamenn 1. deildarliðsins SR Charleroi”, sagði Guðgeir Leifsson landsliðsmaðurinn kunni úr Viking, er við töluðum við hann i morgun. En Guögeir hefur fengið formlegt boð um aö koma til þessa þekkta liðs. „Þegar Asgeir talaði við mig var framkvæmdastjóri félagsins við hlið hans, en hann hafði beðið Asgeir um að ná sambandi við mig. Eftir þvi sem mér skildist á honum hafði Belginn séð filmu af siðasta landsleik hér heima og þar fengið áhuga á að sjá mig betur. Hann hafði samband við landsliðs- þjálfara Belgiu, sem hefur horft á flesta okkar landsleiki að undanförnu og hann gefið mér mjög góð meðmæli, eftir þvi sem Asgeir sagði. Þeir vissu ekki, hvernig þeir áttu að ná I mig, en náðu loks i Ásgeir og fengu hann til að hringja. Ég á að koma út 20. júli og fara þá i æfingabúðir með liðinu til Frakklands og siöan leika tvo eða þrjá leiki með þvi. Ég býst við að ég láti verða af þvi að fara og skoða þetta hjá þeim, og ef þeir verða ánægðir með mig og ég með það sem þeir bjóða, má vel vera, að ég slái til og skrifi undir.” —klp— Sögulegur atburöur átti sér stað I gamla fþróttasal Miöbæiarskólans f gærkvöldi. Þá fór þar fram fyrsta opinbera keppni kvenna f fslenzkri glfmu. Sjö stúlkur mættu til keppninnar og háðu skemmtilega viðureign, þar sem ótrúlegustu brögð voru notuð. Allar stúlkurnar náðu stigi Ikeppni — sú sem sigraði hlaut 6ogsúsem varð siðust hlaut 1 1/2 vinning. Sigurvegari varð Guðrún Stefánsdóttir, og er hún á annarri mvnd- inni að taka I höndina á Svölu óskarsdóttur, sem varð önnur. Á hinnimyndinni er-Gerður Guðmundsdóttir — systir Guðrúnar — sem varð 3ja, að leggja Sigurllnu Halldórsdóttur á mjaðmahnykk. Ljósmyndir Bj. Bj.... Óskar varpaði lengra en Evrópumet Huseby — Sœmilegur árangur á Reykjavíkurleikunum í gœrkvöldi Það er nú skammt stórra högga á milli hjá Óskari Jakobssyni, unga, glæsilega kastaranum úr tR. Á Reykjavlkurleikunum I gærkvöldi varpaði Óskar kúlunni 16.85 metra og stórbætti ungl- ingamet Erlends Valdimarsson- ar. Það var 16.33 metrar — og til marks um það hve árangur Ósk- ars, sem enn er innan við tvitugt, er góður, má geta þess, að þetta nýja afrek hans er betra en Gunn- ar Huseby átti bezt. Gunnar varp- aði 16.74 m á Evrópumeistara- mótinu I Brussel fyrir 25 árum og það var Evrópumet. í gær varp- aðióskar 11 sentimetrum lengra. Þá kastaði Óskar spjótinu vel yfir 70 metra markið I gærkvöldi — lengst 73.16 metra. Það var bezta afrek mótsins i gærkvöldi, en þó 1.5 m styttra en Islandsmet- ið, sem óskar setti á dögunum. 1 þeirri grein setti Þorsteinn Aðal- steinsson, FH, nýtt piltamet, 14 ára og yngri, kastaði 38.46 m og bætti met Óskars. Það var 38.38 m svona þarna er kannski nýtt stór- efni á ferðinni. Bjarni Stefánsson, KR, óþreytt- úr eftir að hafa elt uppi vafasama náunga, varð að leggja harðar að sér til að sigra Sigurð Sigurðsson, Armanni, i 200 m hlaupinu. Opið mót ó Akranesi Eina opna golfmótið, sem Akurnesingar halda á sinum skemmtilega golfvelli — SR mót- ið — ferfram um næstu helgi. Það hefst á laugardag, og leika þá þeir kylfingar, sem eru I 2. og 3. flokki 18 holur með og án forgjaf- ar. Daginn eftir leika þeir, sem eru I meistara- og 1. fiokki — forgjöf 13 og lægra — 18 holur, en siðan halda þeir 16fyrstu áfram keppni og leika 18 holur I viðbót, og keppa þáumstigtil landsliðs GSÍ. Verðlaun verða að vanda góð, m.a. fatnaður frá Akraprjóni og fl. Keppnin báða dagana hefst kl. 9 f.h. og verður sent út til kl. 15.00. Bjarna tókst að komast framúr unga hlauparanum glæsilega á lokametrum hlaupsins — sigraði á 22.0sek. en Sigurður hljóp á 22.1 sek. Það er nýtt drengjamet á vegalengdinni. Eldra drengja- metið átti Sigurður ásamt Ólafi Guðmundssyni, KR, og var það 22.4 sek. íslenzkar frjaisiþróttir hafa eignast mikla framtiðar- menn þar sem Sigurður og Óskar Jakobsson eru — menn, sem gaman verður að fylgjast með. Stefán Hallgrímsson, KR, varð 3ji i 200 m hlaupinu á 22.8 sek. og þriðji I kúluvarpinu með 14.46 m. Athyglisverður árangur hjá tug- þrautarmanni. Guðni Halldórs- Bezti tími órsins hjá þeirri finnsku 1 æsandi einvigi I 200 m hlaupi I Milanó I gærkvöldi sigraði Jama- iku-hlauparinn frægi, Don Quarrie, Bandarlkjamanninn Steve Williams, en báðir fengu sama tlma 20.1 sek. Fyrr I keppn- inni varð Quarrie einnig sigur- vegarinn I 100 m hlaupinu á 10.0 sek. og Williams fékk sama tima. Þessir tveir beztu spretthiaupar- ar heims — báðir þeldökkir — ylj- uðu 25 þúsund áhorfendum á gamla Arena-leikvanginum og glæsistlll Quarrie færði honum sigur lokametra beggja hlaup- anna. Finnski Evrópumeistarinn, Nina Holmen, sigraði I 1500 m hlaupi kvenna á bezta tima ársins 4:08.9 min. rétt á undan Gabrielu Dorio, Italiu, sem hljóp á 4:09.1 min. Bandarlska hlaupakonan Francie Larrieu, sem náð hefur mjög góðum árangri að undan- förnu, varð að láta sér nægja þriðja sæti á 4:12.8 min. í 400 m grindahlaupi náði Jim Bolding, USA, bezta heimstiman- um 48.4 sek, og sigraði Olympiu- meistarann frá Uganda, John Akii-Bua, örugglega. Akii-Bua hljóp á 49.1 sek, og vayð annar, en Ralph Mann, USA, fékk sama tima. Jos Hermens, Hollandi, sigraði i 5000 m hlaupi á 13:36.4 min, en Frank Shorter, USA, varö annar á 13:37.8 min. Martin Liquari, USA, varð fyrstur I 1500 m hlaupi- á 3:41,8réttá undan Petre Lupan, Rúmeniu, 3:42.3 mln. John Powell, USA, sigraði I kringlu- kasti með 62.86 m og þvi langt frá nýja heimsmetinu sinu. Janos Muranyi, Ungverjalandi, varð annar með 62.12 m. Heimsmet- hafinn Dwight Stones, USA, sigr- aði i hástökki — stökk 2.21 m — og landi hans Tom Woods varð ann- ar með 2.18 m. í hástökki kvenna sigraði Sara Meoni, Italiu 1.80 m. Johnny Walker, Nýja-Sjálandi, varð öruggur sigurvegari 1 1000 m hlaupi á 2:17.2min, en landi hans, Rod Dixon, varð annar á 2:17.8 min. í þriðja sæti varð Graham Crouch, Astraliu, á 2:18.4 min. —hsim. George til Derby Enska meistaraliðið Derby County keypti I gær Arsenal-leik- manninn kunna, Charlie George, fyrir áttatiu þúsund sterlings- pund. Þetta kom mjög á óvart, þvi talið var að Tottenham væri búið að tryggja sér George. For- ráðamenn Tottenham voru I morgun, að undirbúa kæru á Derby vegna kaupanna á George. —hslm. son, HSÞ, varð annar I kúluv inu með 16.08 m Kastséría Óskars þar var 15.74 — ógilt — 15.96 — 16.28 — 16.85 og 16.72 metrar. 1 800 m hlaupinu hlupu þrir fyrstu menn innan við tvær minútur, þó beztu hlauparana vantaði. Gunnar Páll Jóakims- son, ÍR, sigraði á sinum tlma I ár 1:58.6 mín. Einar Þ. Guðmunds- son, FH, varð annar á 1:59.7 min. og Markús Einarsson, UBK, 3ji á 1:59.9 min.- þeirra beztu timar. Gunnar Snorrason, UMB, hljóp á 2:00.4 mín. og Gunnar Sigurðs- son, FH, á 2:01.0 min. Sigurvegarar i öðrum greinum urðu. 400 m grindahlaup Jón S. Þórðarson, 1R, 57.2 sek. Hástökk Elias Sveinsson, ÍR, 1.90 m. 200 m hlaup Erna Guðmundsdóttir, KR, 26.4 sek. Langstökk Friðrik Þór Óskarsson, ÍR, 6.87 m. 800 m hlaup Svandís Sigurðardóttir, KR, 2:30.9 mln. 3000 m hlaup Gunnar Snorrason, UBK, 9:43.5 min. og sigraði Hafstein óskars- son, ÍR, á lokasprettinum, Haf- steinn hljóp á 9:44.5 mln. Kúlu- varp kvenna Guðrún Ingólfsdótt- ir, ÚSU, 10.95 m. 100 m grinda- hlaup Erna Guömundsdóttir 15Ú4 sek. og hástökk Þórdis Glsladótt- ir, IR, 1.55. Islandsmethafinn Lára Sveinsdóttir, A, varð önnur með sömu hæð. Reykjavíkurleikarnir halda áfram I kvöld og hefjast kl. 19.30 með keppni I stangarstökki. Síðan verður keppt I fjórtán öðrum greinum. —hslm. Otlitið dökknar hjá Víkingum Ólafsvíkur — eftir tap gegn Völsungum í Ólafsvík í gœrkvöldi Hreinn Elliðason fyrrum lands- liðsmaður sá um á þeim fimm minútum, sem hann lék með Húsavikurliðinu Völsungi gegn Vlkingi frá Ólafsvik I gærkvöldi, að tryggja Völsungunum sigur i leiknum. Hann var meiddur fyrir leikinn og var því ekki látinn leika, en kom inn á, þegar um fimm minútur voru eftir af leikn- um og staðan 1:1. Þegar hann hafði skokkað smá- stund um völlinn, var dæmd aukaspyrn á Vikingana fyrir utan vitateig þeirra. Knettinum var spyrnt til Hreins, sem afgreiddi hann i netið með þrumuskoti, án þess að varnarmenn eða mark- vörður Vikinganna gætu nokkurri vörn við komið. Markið kom, þegar örfáar minútur voru eftir af leiknum, og náðu Vikingarnir ekki að jafna. Eru þeir þvi enn neðstir i 2. deild og hafa ekki fengið stig. Aftur á móti eru Völsungarnir komnir Skotar efstir Skozka sundfólkið náði forustu eftir fyrsta dag átta-landa-keppn- innar I Palma á Maliorca I gær. Hlaut 73 stig. 1 öðru sæti er Noregur með 68 stig, Belgfa I 3ja. með 57 stig. Spánn fjórða með 47 stig og I fimmta sæti er Sviss með 43 stig. Stigatala islands er ekki gefin upp I fréttaskeyti Reuters og hvergi varð isienzka sundfólk- ið I efstu sætunum. I 400 m skriðsundi sigraði Mc- Latchey, Skotlandi, á 4:09.9 min., en Iverson, Noregi, varð annar á 4:15.8 min. Stanberge, Belglu, 3ji á 4:16.2 min. 1 100 m skriðsundi kvenna sigraði Jensen, Noregi, á 1:00.6 min. Monod, Sviss, varð önnur á 1:01.0 min. og Richard, Belgiu, 3ja á 1:02.6 min. 1400m fjórsundi kvenna sigraði Adams, Wales, á 5:11.6 min. Welson, Noregi, varð önnnur á 5:14.7 min. og Crabbe, Belgiu, aja á 5:19.0. I 200 m baksundi karla sigraði Carter, Skotlandi, á 2:10.2 min. Esteva, Spáni, varð annar á 2:13.4 min, og Hofer, Noregi, 3ji á 2:16.5 min. I 100 m flugsundi kvenna sigraði Grimard, Belgiu, á 1:06.7 min. Adams, Wales, varð önnur á 1:07.0 min, og Dickie, Skotlandi, þriðja á 1:07.9 min. Skotinn heimsfrægi — heimsmet- hafinn Wilkie — sigraði i 200 m bringusundi á 2:28.5 min, og synti aðeins til sigurs. Langt frá sinum bezta tima. Wisloft, Noregi, varð annar á 2:29.4 min. og Dubei, Sviss, 3ji á 2:33.6 min. Noregur sigraði i 4x100 m skriðsundi kvenna á 4:07.lmin. Belgía varð i öðru sæti með 4:12.9 min. I 4x200 m skriðsundi karla sigraði Skot- land á 8:01.6 min. Noregur varð i öðru sæti á 8:09.6 min. og Spánn i 3ja á 8:12.8 min. —hslm. með 4 stig úr siðustu leikjum sin- um. Staðan i hálfleik var 1:1. Völsungurinn — Magnús Hreiðarsson skoraði á 7. minútu, en Guðmundur Gunnarsson jafnaði fyrir Vikingana fyrir hálf- leik. Dalvíkingar fó golfvöll Þorvaldur Asgeirsson golf- kennari er nýkominn úr ferðalagi um Norðurland, þar sem hann kenndi og leiðbeindi um 80 kylf- ingum á fjórum stöðum — Siglu- firði, Ólafsfirði, Húsavlk og Dal- vlk. A Dalvik aðstoðaði hann heimamenn einnig við að mæla fyrir nýjum goldvelli, en þar hefur enginn golfvöllur verið til þessa. Fékkst gamalt tún undir völlinn, og á að geta orðið þar mjög skemmtilegur völlur með tlmanum, sagði Þorvaldur. Hann sagði, að IltiII gróður hefði verið kominn á vellina á þessum stöðum, og á sumum þeirra enn verið snjóskaflar og skurðir sléttfullir af snjó eins og t.d. á Ólafsfirði. Þorvaldur mun kenna á Hólmsvelli I Leiru — rétt hjá Keflavlk — á morgun, en annars mun hann mest verða á vellinum I Hafnarfirði og Seltjarnarnesi með kennslu fyrir nýliða og aðra I sumar. Hermann settur úr Olympíuliði íslands Landsliðsnefndin I knattspyrnu ákvað I gær að setja Hermann Gunnarsson, Val, út úr landsliðs- hópnum 22ja manna, sem valinn var fyrir landsleikinn við Norð- menn á mánudag. Leikurinn við Norðmenn er I undankeppni Olympfuleikanna næsta ár. Hermann Gunnarsson lék um tlma 1969 með austurrlska liðinu Eisenstadt — en fékk siðan áhugamannaréttindi sin hjá KSÍ, þegar hann kom heim aftur. En vcgna þessarar dvalar Hermanns hjá austurrlska liðinu vill lands- liðsnefnd ekki hætta á neitt I sam- bandi við leikinn við Norðmenn — leik I Olympíukeppni. i reglugerð FIFA, segir, að fyrrum atvinnumaður eða „ekki- áhugamaður” geti öðlast áhuga- mannaréttindi sín aftur hjá landssambandi sínu, en megi ekki undir nokkrum kringumstæðum taka þátt I Olympiuleikum eða neinni keppni á vegum FIFA, sem bundin er við áhugamenn. Reglugerðin er I Handbók FIFA 1975-1976, sem VIsi barst i gær, —hsim. Aðstaða góð í Firðinum Aðstaða er að verða nokkuð góð hjá okkur á vellinum l Kapla- krika — hlaupabrautir góðar — og það gerist ekki betra hér á landi nema á Laugardalsvelli, sagði Haraldur Magnússon, iþróttaleið- togi I Hafnarfirði, við blaðið I morgun, en um helgina verður Is- landsmót þeirra yngstu I frjálsum iþróttum á Kaplakrikavellinum. Við byrjum á 2000 m hlaupi full- oröinna — vegalengd, sem sjald- anerhlaupin hér — en siðan hefst meistaramót pilta og telpna, stráka og stelpna, sagði Haraldur ennfremur. Mótið hefst kl. 14.00 á laugar- dag og greinar fyrri daginn eru. Piltar. Hástökk, kúluvarp og 4x100 m boðhlaup. Telpur. Lang- stökk og 4x100 m boðhlaup. Strák- ar. Hástökk og kúluvarp. Stelpur. Langstökk. Slðari daginn — á sunnudag — hefst keppnin á sama tlma og mótið er jafnframt úr- tökumót fyrir Andrésar-Andar- leikana i Noregi —hslm.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.