Vísir - 04.07.1975, Blaðsíða 1

Vísir - 04.07.1975, Blaðsíða 1
Trampa niður blómin og upprœta Norðurland og austurhornið sementslaust — bls. 3 Áœtlanir Rússa um innrás í Evrópu byggjast á notkun limgerðin - bls. 3 Kjarnorkukafbátar í árekstri - bls. 5 kjarnavopna — bls. 6 65. árg. — Föstudagur 4. jiill 1975 —148. tbl. Unnið að athugun ó borpallasmíði: Mögulegt að Reyðarfjörður verði vett- vangur milljarða- framkvœmda — Við fengum hug- mynd og hófum byrj- unarathuganir. Siðan töluðum við við iðn- aðarráðuneytið og þeim fannst hugmynd okkar allra góðra gjalda verð. Þetta eru orð Páls Sigurjóns- sonar, framkvæmdastjóra Is- taks, og hugmyndin, sem hann ræðir um, gæti I framtiðinni afl- aö Islendingum margra milljarða i gjaldeyri. Hugmyndin er sú, að oliubor- pallar verði byggðir á Reyðar- firði og siöan dregnir þaðan til oliuborstaða á Norðursjónum. — Heldur virðist vera aftur- kippur i borunum á Norðursjón- um núna. Við viljum þó halda áfram að safna okkur upplýs- ingum um smiði oliuborpalla, ef til þess skyldi koma, að við fær- um að smiða þá hér. Sérstak- lega gæti komið til okkar kasta, ef farið verður að bora norðan við 62. gráðuna, sagði Páll. Borpallar kosta um 20 milljarða króna fullbúnir með vélum. Verðmæti pallanna héð- an ætti þvi að skipta milljörð- um. Skilyrði fyrir smiðunum er, aöþær fari fram i djúpum fjörð- um og einmitt þess vegna þykir Reyðarfjörður hentugur, en hann er 100 metra djúpur allt inn að bæjarstæðinu sjálfu. — Ef til þess kæmi, að pall- arnir yrðu smiðaðir, reiknum við með, að sá fyrsti verði tilbú- inn einu og hálfu ári eftir að framkvæmdir hefjast og siðan verði einn pallur tilbúinn á ári. Vitanlega verður þó ekki hægt að hef ja slikar stórframkvæmd- ir, nema fyrir liggi samningar um sölu fyrst, sagði Páll. Þaðnýjasta,sem gerzt hefur i þessu máli, er að talað hefur verið við Norðmenn um smið- amar, en Norðmenn eiga rétt á þeirri gerð borpalla, sem hér kæmi til greina að smiða. Fram kom, að Norðmönnum leizt vel á þá hugmynd að byggja hér slika palla. Eins var Gunnar Thoroddsen iðnaðarmálaráð- herra á ferð i Noregi fyrir stuttu og mun hann þá hafa litið litil- lega á olfuborpalla, sem þar voru I smlðum. — Við fréttum um þessar hugmyndir i vor, segir sveit'ar- stjórinn á Reyðarfirði, Hörður Þórhallsson. — Okkurhefur litiztvelá það, sem við höfum fengið að heyra hingað til. Ég held, að enginn hér yrði á móti þvi að fá slikar framkvæmdir hingað. Það yrðu nú heldur betur sárabætur fyrir Smyril, sem við misstum af, sagöi Hörður Þórhallsson. —JB Enn megum við I Reykjavlkinni halda að okkur frökkunum, eins og hann gerir þessi höfuðborgargestur á mynd Bjarnleifs. Air Viking fœr ekki áœtlunarflug, en UMSÖGN HUGRÁÐS JÁKVÆÐ hvað snertir leiguflug Flugráð hefur sent af stað til samgöngumálaráðuneytis álit sitt á umsókn Air Viking um far- þegaflutninga til Kaupmanna- hafnar. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum, sem Visi tókst að afla sér i morgun, samþykkti Flugráð að mæla með þvi að ráðuneytið, að Air Viking fái hóflegan ferða- fjöida á flugleiðinni milli tslands og Kaupmannahafnar. Var þessi samþykkt gerð á fundi flugráðs sl. þriðjudag, en fyrir þeim fundi lágu urpsagnir Flugleiða og danskra flugmála- sérfræðinga, sem báðar voru heldur neikvæðar fyrir Air Vik- ing. Engu að siður mun flugráð hafa tekið áðurnefnda afstöðu. Fari ráðuneytið að ráði flug- ráðs opnast möguleikar fyrir Guðna Þórðarsor. á auknu leigu- flugi til Kaupmannahafnar á lág- um fargjöldum. Fargjöldum, sem eru lægri en IATA-fargjöld. Eiga félagasamtök þá að geta keypt ferðir til Kaupmannahafnarfyrir sitt fólk fyrir um 12 til 18 þúsund krónur, en þá væri hvorki gisting né fæði innifalið. Einstaklingar yröu hins vegar að kaupa hvoru- tveggja af ferðaskrifstofur.ni, en gætu ekki keypt flugfarið eitt sér. —ÞJM Konan fannst heil á húfí — var hjó manninum er hún sóst með við Glœsibœ Sólveig Friðfinns- dóttir, þrjátiu og tveggja ára kona, sem Hafnarfjarðarlögregl- an hefur leitað að frá þvi um helgi, kom i leitirnar heil á húfi skömmu fyrir hádegið. Lögreglan hafði þá haft uppi á manninum, er hún sást siðast I fylgd með, og var hún hjá hon- um. Eitthvert þunglyndi mun hafa aftrað henni frá þvi að láta vita af ferðum sinum. Sólveig á heima I Hafnarfirði með þrem börnum sinum. Hún hafði farið að heiman á sunnu- daginn. Til hennarsástá Naust- inu og siðan var vitað er hún fór þaðan i heimahús Leigubil- stjóri, sem ekið haföi henni i Glæsibæ um kvöldið, fannst og þaðan sást hún fara um klukkan 12.30. Þá var hún i fylgd með manni, sem lögreglunni tókst að finna i morgun. Kom i ljós, að Sólveig var hjá honum heil á húfi. Sólveig er fráskilin og voru börn hennar i góðu yfirlæti hjá ættingjum á meðan hennar var saknað. —JB SAMA VEÐRIÐ ÁFRAM UM HELGINA — sól og hiti 6 Norður- og Austurlandi Reykvikingar mega búast við svipuðu veðri og undanfarið nú um helgina. Það er að segja vest- an áttin veröur rikjandi meö skýjuðu lofti og smáúrkomu öðru hverju. Hitastigiö mun verða á bilinu 7-10 stig. Þetta gildir fyrir ailt Suðvesturland. Á Austur og Norðurlandi verður áfram sól og bliða og spáð er upp i 15 stiga hita. — En á Egilsstöðum varð heitast 20 stig i gærdag. Þá komst hitinn upp i 17 stig i gær á Akureyri og Kirkjubæjarklaustri. Þessar upplýsingar fékk Visir hjá veðurstofunni i morgun.— HE

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.