Vísir - 04.07.1975, Blaðsíða 4

Vísir - 04.07.1975, Blaðsíða 4
4 Visir. Föstudagur 4. júll 1975. METSOLUBÆKUR FÓLKSBÍLADEKK - VÖRUBÍLADEKK - TRAKTORSDEKK Fyrirliggjandi flestar stærðir af japönskum TOYO hjólbörðum. Einnig mikið úrval af hinum vinsælu HOLLENSKU IIEILSÓLUÐU HJÓLBÖRÐUM á hagstæöu verði. Sendum i póstkröfu. HJÓLBARÐASALAN BORGARTÚNI 24 Simi 14925. Happdrætti Framkvæmdanefndar Félags heyrnar- lausra og Foreldra- og styrktarfélags heyrnardaufra. 1. júli 1975 voru útdregin hjá Borgar- fógetaembættinu i Reykjavik eftirtalin númer i ofangreindu happdrætti: 5518 — 7058 — 9215 — 6672 — 3183 — 8392 — 1266 — 7236 — 7255 — 617. Handhafar framangreindra númera hafi samband við skrifstofu félaganna i Hátúni lOa, kl. 9-11 virka daga. Simi 30430. Laus staða Staöa forstöðumanns Heilbrigöiseftirlits rlkisins er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. október næstkomandi. Umsækjendur skulu vera læknar, eða dýralæknar með sérmenntun I heilbrigðisfræöi, menn meö háskólapróf I heilbrigðisfræði, eöa aðra háskólamenntun, er fullnægir kröfum um sérþekkingu I heilbrigðiseftirliti aö mati ráðherra.Umsóknir sendist heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytinu fyrir 15. ágúst 1975. Heilbrigðis- og tfyggingamálaráðuneytið. 2. júli 1975. Laus staða Staða skattrannsóknastjóra skv. 3. mgr. 42. gr. laga nr. 68/1971 er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 1. september 1975. Fjármálaráðuneytið, 3. júlí 1975 Verzlunarstjóri óskast Reglusamur og ábyggilegur maður óskast i kjöt og nýlenduvöruverzlun. Upph í sima 44265. Fjötrar hjónabandsins? Fredric Cederlund ætlaðiekki að trúa sfnum eigin augum, þegar hann vaknaði klukkan fjögur um nótt I ókunnri ibúð I Stokkhólmi. Fætur hans voru hlekkjaðir saman með grófri keðju og á enda hennar hékk þung járnkúla. Fötin voru röndótt fangaföt. Hvað hafði komið fyrir? Fredric fór nú að rifja upp at- burði næturinnar. Biddu við, jú, hann ætlaði að kvænast sinni heittelskuðu daginn eftir. Já, og mikið rétt, hann hafði fagnað siöasta piparsveinakvöldinu i með gamansömum félögum sin- Þeir ætluðu að minna hann dyggilega á þá fangavist sem hann ætti fyrir höndum I hjóna- bandinu. Enginn sími var i her- Umsjón: Jón Björgvinsson berginu, sem Fredric var I svo hann sá sinn kost vænstan að fara fótgangandi I átt að miöbænum til að leita hjálpar. Hún barst fyrr en hann gerði ráö fyrir. Lögreglubill renndi sér upp að fanganum, þar sem hann var á göngu með járn- kúluna sina i hendi. Erfitt áttu lögregluþjónarnir með að trúa frásögn brúðgumans verðandi og mátti hann þvi dvelja það sem eftir var nætur á lögreglustöðinni. Þá hafði sagan hans lika verið sannreynd og var gripið til járn- sagar til að losa hann úr hlekkjunum. Brúðkaupið fór fram á áætluðum tima en sagt er að Frederic hafi í huga að segja félögum sinum til syndanna við fyrsta tækifæri. Einn úr áhöfn tundurskeytabátsins smellti þessari mynd af er skipstjórinn brá sér á sjóskiöi. Lét heríim draga síg ó sjóskíðum Þaðvaralvegá mörkunum að áhugamál og atvinna skipstjóra á sænskum tundurskeytabát færi saman. Sjáið til, Pcter Westergaard er yfirmaður á tundurskeytabátnum að atvinnu cn með sjóskiðadellu i fristund- um. Ein hans heitasta óska var aö láta tundurskeytabát draga sig á sjóskiðum. Nú þegar hann var orðinn yfirmaður á tundur- skeytabátnum var hann með tækifærið i höndunum. Einn sóirikan dag smeygði hann sér úr úniforminu fór i sundbuxur og dró fram sin heittelskuðu sjóskiði. Hann fyrirskipaði: — Fulla ferð áfram, um leið og hann stökk frá borði, þar sem tundur- skeytabáturinn var á siglingu við strendur Sviþjóðar. Einhverjum um borð ofbauð þó þessi notkun skipstjórans á sjóhernum og kvartaöi. Er málið kom fyrir rétt hafði skipstjórinn eftirfarandi sögu að segja: — Vitanlega vissi ég, að báturinn, sem dró mig á sjó- skiðum var rikiseign. En bátur- inn breytti hvorki stefnu né hraða min vegna, ég tala nú ekki um, að hann hafi farið i aukasveigi min vegna. Málinu lauk þannig að skip- stjórinn hlaut áminningu og smásekt. Astin á sér engm mörk ÖLlu taka menn upp á þegar ástin er annars vegar. Þetta sannar sagan um strákinn i Kalmar i Sviþjóð. Hann var ástfanginn upp að eyrum. Sú elskaða bjó i fjölbýlishúsi i borginni en þegar stráksi kom þangað um klukkan ellefu haföi aðaldyr- unum verið lokað. Ekki gat hann hringt til að ná fundum elskunnar án vit- neskju foreldranna. En dyrnar að sorpgeymslunni voru opnar og datt þá strákn- um i hug að skriða upp sorprennuna. Astföngnum manni er allt mögulegt, eða næstum þvi. Piltur rak þvi hausinn inn og þvi næst axlimar. En þar með var ferðalagið á enda. Hann sat fastur. Eftir að hafa reynt aö losa sig I klukkustund neyddist hann til að kalla á hjálp. Neyðarópin heyrðust og slökkviliðið og lögreglu bar að. Allt var reynt, sápa, vatn og átök en ekkert dugði. Að lokum var ákveðið að brjóta vegginn og klippa sundur sorprörið. Hann losnaði að lokum úr rörinu. Og hvernig endaði svo saga hans? Húsveröinum þótti sem pilt- urinn hefði tekið út refsingu sina með þvi að vera með hausinn inni i sorprörinu tim- unum saman og sleppti þvi bótakröfum. Og ástin? Hún var ekki meiri en svo hjá gagnstæða kyninu, að engin heimasætan i húsinu kannaðistviðaðhafa átt von á piltinum i heimsókn. Þessa sögu segja Norð- menn um tvo Svía: Ollie og Swen höfðu leigt sér bát og róið út á vatnið til veiöa. Mikið veiddist. — Þetta var nú finn staður. Hvernig getum við fundið hann aftur á morgun, sagði Ollie. Swen stökk þá frá borði og hvarf. Eftir nokkra stund skaut honum upp á yfirboröið aftur og sagði glaður: — Þessu er bjargað. Ég skar mark i kjölinn á bátnum. Nú getum við aftur fundið staðinn á morgun. — P^áráðlingur! sagði Ollie. — Kannski fáum við allt annan bát á morgun.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.