Vísir - 04.07.1975, Page 16
vísm
Föstudagur 4. iúli 1975.
Fann
tösku fulla
af verð-
mœtum
— og skilaði henni
þegar í stað
Fimmtiu þúsund i peningum,
mikið af ávisunum og ávisana-
hefti með undirrituðum ávisunum
var innihald tösku, sem gjaldkeri
húsfélags nokkurs týndi niðri i
miðbæ i fyrradag.
Gjaldkerinn var að láta mikið
af varningi inn i bil sinn, sem
stóð á bilastæði i miðbænum, en
skildi töskuna óvart eftir á gang-
stéttinni, er hann ók af stað.
Svo heppilega vildi til fyrir
hann, að sá fyrsti sem varð tösk-
unnar var, var Hlynur Guð-
mundsson, 12 ára strákur ofan úr
Hliöum. Hlynur hélt á fund lög-
reglunnar með töskuna og afhenti
hana. Ekki var þess langt að biða,
að eigandinn kæmi að sækja
hana, og varð hann vitanlega feg-
inn.
Hlynur hlaut 5000 krónur i fund-
arlaun.
—JB
Nú verða þœr
sœtar þegar
þœr koma úr
laugunum
— því þar verður
komið upp hórþurrkum
Sundlaugargestir í Laugar-
dalnum eiga nú von á aiveg nýrri
og skemmtilegri þjónustu. Eru
það hárþurrkur, sem komið verð-
ur upp i búningsklefum. Verða
þær ætlaðar öilum sundlaugar-
gestum, hvort sem um er að ræða
börn eða fullorðna.
Það er fyrirtækið Stáltæki hf.,
sem sér um að koma þurrkunum
fyrir, en þetta er i fyrsta skipti,
sem hárþurrkum er komið fyrir i
sundlaugum hér. Jóhann Riba hjá
Stáltækjum sagði okkur, að
þurrkurnar væru þýzkar og væru
notaðar viða erlendis, svo sem i
heimalandi hans, Hollandi og við-
ar.
„Hárþurrkurnar eru gerðar
fyrir 10 króna mynt,” sagði Jó-
hann. „Menn fá svo ákveðinn
tima af heitu lofti fyrir 10 krón-
urnar.” Fólk þarf þá ekki lengur
að fara út með blautt hár, og er
það sérlega hagstætt t.d. á vetr-
um, þegar frost er og kalt úti.
Til aö byrja með verður komið
fyrir tveimur hárþurrkum I til-
raunaskyni. Er þeim komið fyrir
á vegg i eins og hálfs meters hæð.
Fullorönir sitja siðan á stól undir
blæstrinum, en börnin standa
hins vegar og er þá hæðin hæfileg
fyrir þau.
íþróttaráð Reykjavikur
samþykkti þetta i gær, og sagði
Jóhann, að þurrkurnar yrðu ef til
vilt settar upp i næstu viku. Þær
erú nú á leið til landsins.
—EA
Brutust inn ó Vík
Lögreglan greip um miðnætti i
nótt tvo ölvaða pilta, þar sem þeir
voru komnir i óleyfi inn á Hótel
Vfk. Piltarnir höfðu brotið upp
hurð á húsinu, sem nú hýsir leik-
listarskóla SAL.
Ekki gafst þeim timi til að
hnupla neinu áður en lögreglan
kom á vettvang. Þeir fengu að
gista fangageymslur i nótt.
—JB
J i\ 1 N \A ER ÍS> ¥ ^ 11 IA !IA ÐUR
Ri Al J1 n r H US 1 ii m IA?"
segja túristarnir — litirnir ó húsunum í Reykjavík vekja mesta athygli þeirra
hennar ásamt litagleðinni.
„Lifnaðarhættir ykkar og okkar
i Noregi eru mjög likir. Húsin
hér virðast mjög þægileg, en lit-
rikari en hjá okkur. Dýrt? Nei,
ég var rétt að enda við að kaupa
brauð o. fl. og fannst það ekki
mjög dýrt.
tsland er ólikt öðrum löndum
að þvi leyti, að hingað sækir sér-
stök tegund túrista. Þessa túr-
ista mundi maður t.d. aldrei sjá
á Mallorca eða öðrum slikum
stöðum”, sagði Svanhild.
„Er aldrei sól hérna?”
spurðu frönsku hjónin, Lauer,
sem við fengum til þess að koma
út úr tjaldi sinu. „Það er ægi-
lega kalt núna”, bættu þau við.
„Og hér er lika soldið mikill
hávaði”, sögðu þau um umferð-
ina i kringum tjaldsvæðið. Ann-
ars hafa þau séð litið af Reykja-
vik. Dagurinn i gær var eigin-
lega sá fyrsti, sem þau eru hér.
En þau höfðu strax tekið eftir
litunum á húsunum allt um
kring. „Og það er lika allt of
dýrt hérna, t.d. föt og matur”,
bættu þau við.
Annars leizt þeim vel á sig og
sögðu, að vinur þeirra, sem gift-
ur er islenzkri konu á Seyðis-
firði, bæri landinu góða sögu.
„Þetta er yndislegt land”, höfðu
þau eftir honum. „Annars hafa
Frakkar ekki áhuga á að koma
hingað. Þeir kjósa frekar hlýtt
loftslag, Spán og Italiu til dæm-
is”.
Sviarnir Kerstin Bergström,
Lars Amede og Birgitta Sol-
heim, sem við hittum i Austur-
stræti sögðust hafa verið hér á
landi i hálfan mánuð. I gær-
kvöldi héldu þau reyndar aftur
heim til Stokkhólms. „Manni
finnst litið stress hér miðað við
það, sem er heima”, sögðu þau.
Þeim hefur likað mjög vel, en
sögðust ekki hafa haft tækifæri
til þess að sjá nærri alla staði,
sem þau hefðu viljað koma á.
„En við fórum á Þingvöll og
löbbuðum þaðan að Geysi. Það
var erfitt. Það hellirigndi og allt
hvað eina. Annars höfum við
mjög gaman af fjallgöngum og
löngum gönguferðum.
Við höfum litið kynnzt íslend-
ingunum. Það er liklega vegna
þess, að við erum hér 9 saman.
Hvaö okkur /innst athyglisverð-
ast i Reykjavik? Þetta er litil og
þægileg borg, en maður tekur
eftir litunum á húsunum. Þau
Hvað finnst túristunum at-
hyglisverðast i Reykjavik? Lit-
irnir á húsunum. „Maður sér
hér hús i öllum möguiegum iit-
um. Heima er þetta ekki
svona”, sögðu bæði Norðmenn,
Fransmenn og Sviar, sem við
spjölluðum við i gær. „Hvenær
mundi maður svo sem sjá rauð-
an lit á húsi heima i Frakk-
landi”, sögðu frönsku hjónin,
sem við hittum i Laugardaln-
um.
Ýmislegt fleira segja túrist-
arnir um Reykjavik. I tjaldbúð-
unum i Laugardalnum hittum
við norska konu, Svanhild Brat-
berg. Hún og maður hennar
komu hingað vegna búnaðar-
þingsins, sem nú er haldið og
höfðu börn sin tvö með sér.
„Maðurinn minn og sonur búa
hér i tjaldi, en ég og dóttir min
búum á Garði. Það er ódýrara”,
sagði hún okkur.
Hún furðaði sig á þvi, að svo
til inni I miöri borg væri á, þar
sem menn gætu veitt fisk.
„Þetta er ábyggilega einsdæmi
i heiminum”, sagði hún og átti
þá að sjálfsögðu við Elliðaárn-
ar. Þetta vakti sérlega athygli
Frönsku hjónin sögðu, að
Frakkar hefðu yfirleitt ekki
áhuga á að heimsækja island.
Þeir kjósa hlýrra loftslag. Þeim
fannst lika kalt hér, en gaman
að ferðast um landið.
Ljósm: Bj.Bj.
„Við gengum alla leið frá Þingvöllum að Geysi, úff, það var erfitt og
svo rigndi á leiðinni,” sögðu Sviarnir Kerstin Bergström, Lars
Amede og Birgitta Solheim. „Reykjavik er litil og þægileg og hér er
miklu minna stress en 1 Stokkhólmi.”
„Mér fannst athyglisvert að sjá á inni I miðri borg, sem hægt er aö
veiða I,” sagði norska konan, Svanhild Bratberg.
eru máluð i öllum litum, en svo-
leiðis er það ekki heima. Húsin
hér i miðbænum eru lika öll til-
tölulega lág”.
Þau kváðust vera hér i fyrsta
skipti, og siðustu timarnir voru
notáðir til þess að verzla.
—EA
ÖLVAÐIR MEÐ ÖKUDELLU
Viðgerðin á Hvassafelli koslar 100 milljónir
— viðgerð lýkur í lok júiímánaðar
ölvaður piltur slasaðist litil- J'
lega, er jamm ók bil sinum i
ljósastaur i móts viö Miöbæjar-
barnaskólann um hálftvö i nótt.
ökumaðurinn, sem var einn i
bilnum, hlaut skurð á augabrún
og skrámaðist eitthvað að auki.
Annar ölvaður var á ferðinni á
Miklubrautinni i gærkvöldi um
hálftólf. A móts við Bæjarnesti ók
hann bil sinum á annan bil, sem
þar var á ferðinni. Hinn ölvaði
ætlaði að stinga af, en það gekk
ekki betur fyrir sig en svo, að bill-
inn hafnaði uppi á umferðareyju
nokkru austar.
Nú voru fæturnir einir eftir
gangfærir, og tók þvi sá hinn ölv-
aði til fótanna. Lögreglan náði
honum á hlaupunum inni á
Grensásvegi og kom þá I ljós, að
ökumaðurinn var mjög ölvaður.
Sá þriðji ölvaði, sem fylltist
ökudellu i nótt, átti engan bil að
gripa til. Hans eina ráð var þvi að
stela bil á Melhaga. Lögreglan
náði ökumanni ogbll, áður en tjón
hlauzt af, um hálfþrjú i nótt^JB
„Viðgerðum á Hvassafellinu
mun að öllu forfallalausu ljúka i
lok júlimánaðar og verður skipið
sett I svipuð verkefni og fyrir
strandiö, þegar viðgerðum lýk-
ur”, sagði Hjörtur Hjartar, for-
stjóri skipadeildar S.l.S.
En eins og stendur er skipið til
viðgerðar i Howalds-Werke I Kiel.
Sú skipasmiðastöð var ein af sex,
sem gerðu tilboð I viðgerðina. og
reyndist ódýrust.
Þessar upplýsingar fékk Visir
hjá Sverri Þór, deildarstjóra I
sjódeild Samvinnutrygginga.
Ennfremur sagði Sverrir, að
viðgerðin mundi kosta 100
milljónir islenzkra króna miðað
við núverandi gengi.
—HE.
Cr IFÁ HEITA VATNIÐ
Hafnarfjarðar: Jfyrir VETURINN
„Byrjað var fyrir nokkrum
dögum á aöallögn hitaveitunn-
ar, sem fer yfir brúna I Kópa-
voginum”, sagði Jón Guðlaugur
Magnússon bæjarritari I Kópa-
vogi. Dreifikerfið er aö mestu
komið.
Er búizt við, að seinni partinn
I haust verði lokiö að tengja
mestan hluta vesturbæjarins
við hitaveituna, en sem kunnugt
er, er hitaveita komin I nær all-
an austurbæinn.
„Hitaveituframkvæmdum
miöar vel áfram”, sagöi Krist-
inn Ó, Guðmundss., bæjarstjóri
I Hafnarfirði. Verið er að leggja
aðalæðina i seinni áfanga núna.
Við hana urðu smátafir vegna
verkfalla og sementsskorts, en
búizt er við, að hún verði reynd i
lok ágúst I staðinn fyrir að áætl-
aö var að það yrði gert i júli.
Dreifikerfið gengur samkvæmt
áætlun og vel það.
Norðurbærinn og svæðið milli
Reykjavikurvegar og Lækjar-
götu verða fyrst til að fá hita-
veitu. Seinna á árinu verða það
svo Kinnahverfi og öldur. Þá
verða um 60% Hafnfirðinga
búnir að fá hitaveitu. Aætlaö er
að hitaveituframkvæmdum
verði lokiö á næsta ári.
—EVI—