Vísir - 05.07.1975, Síða 1
vism
Seldi
lögreglan
hassið?
— baksíða
65. árg. — Laugardagur 5. júli 1975 — 149. tbl.
Eldur í
Heimaey
fékk gull
- bls. 3
ÞYRLA í
STEYPU-
VINNU!
— baksíða
TULKA SAMNINGANA
HVOR Á SINN VEG
— flugið stöðvaðist smóm saman eftir að flugvirkjar mótmœltu „of léttum launapokum" í gœrdag
Þarna sitja flugvirkjar heldur þunglyndislegir eftir aö þeir höfðu lagt mætast á miðri leið og semja. Var jafnvel álitið, að flugvirkjar tækju til
niður vinnu i gær. Siðustu fréttir, sem Visi tókst að afla sér áður en starfa á ný strax eftir miðnætti, en á Keflavikurfiugvelli stóðu þá þrjár
blaðið fór I prentun um miðnætti I nótt, voru þær, að báðir deiluaðilar vélar og biðu eftir fyrirgreiðslu flugvirkja til að geta komist i
hefðu gefið talsvert eftir, þannig að allt benti til þess, að þeir mundu loftíð. Ljósm.: JIM.
Settu
úrgang
úr úl-
kerjum
i sjo
— héraðslœknir
lœtur stöðva
ólöglega vinnu
í Straumsvík
Svo virðist sem úrgangi ýmsum
frá Alverksmiðjunni i Straums-
vík hafi undanfarna daga verið
ekið I sjóinn skammt frá verk-
smiðjunni. i gærdag var lög-
reglunni i Hafnarfirði tilkynnt
um þetta, og að boði héraðs-
iæknisins i Hafnarfirði, Grims
Jónssonar, var þessari vinnu
hætt þegar i gær.
,,Þetta hlýtur að hafa verið
gert af einhverjum misskiln-
ingi”, sagði héraðslæknirinn i
gær. Hann kvaðst helzt vilja
álita, að þarna hafi einhverjir
afleysingamenn verið að verki,
ókunnugir meðferð úrgangsefn-
anna, sem eru alls konar gjall,
súrál og skautmolar. Hefur
þessu verið safnað saman á af-
viknum stað til þessa, en siðan
dysjað.
Það voru grásleppukarlar i
grenndinni, sem urðu þessa
varir og voru litt hrifnir af, ótt-
uðust að úrgangurinn kynni að
hafa áhrif á lff i sjónum i nánd
við verksmiðjuna.
Grimur Jónsson kvað starfs-
hætti þessa með öllu ólöglega og
gegn þeim reglum sem um los-
un á úrgangi frá verksmiðjunni
gilda. Kvað hann starfsmenn
þegar hafa látið af þessu verki,
sem þó hefði staðið i nokkra
daga áður en embætti hans bár-
ust spurnir af. Kvaðst hann
ræöa við forráðamenn verk-
smiðjunnar nánar eftir helgina.
—JBP
VÍKINGUR SIGRAÐI
Víkingur sigraði FH i 1.
deildinni á Laugardalsvelli i
gærkvöldi með 1—0. Það var
eftir atvikum sanngjarn sig-
ur — Vikingar fengu fleiri
tækifæri, en voru klaufskir
við mark mótherjanna. Eina
mark ieiksins skoraði Jó-
hannes Bárðarson með fall-
egum skalla eftir vel tekna
aukaspyrnu Guðgeirs Leifs-
sonar. Það var á 72. min.
leiksins.
Leik ÍBV og KR, sem vera
átti i Vestmannaeyjum i
gærkvöldi var frestað. KR-
ingar komust ekki til Eyja
vegna þoku. Það er eini leik-
urinn, sent eftir er i sjöundu
umferð. Akurnesingar og
Fram cru i efsta sæti með 10
stig, Valur hefur sjö, Kefla-
vik, Vikingur og FH sex, ÍBV
fimm og KR fjögur — en tvö
siðasttöldu liðin hafa aðcins
leikið sex leiki — hin sjö.
—hsim.
Hundruð farþega urðu
af utanlandsför i gær-
kvöldi, eftir að flug-
virkjar höfðu hafið ,,ó-
lögmæta vinnustöðvun”
að áliti Flugleiða h.f. í
Kastrup beið hópur far-
þega, 120 manns, eftir
þotu, sem aldrei kom.
Flugvirkjar og Flugleið-
ir eru ósammála um
túlkun kjarasamninga
frá 12. mai. Þegar i ljós
kom megn óánægja með
launapokann á verk-
stæðum Flugleiða á
Reykjavikurflugvelli og
i Keflavik, ákváðu flug-
virkjar að yfirgefa
vinnustaðinn. Eftir það
gátu flugvélar ekki
fengið þá tækniþjónustu,
sem lög gera ráð fyrir.
Aðgerðirnar hófust kl. 16 í gær-
dag og fór flug þegar að truflast
verulega af þessum sökum. Á
Keflavikurflugvelli biðu i gær-
kvöldi um 180 eftir fari, hópur
sem ætlaði til Grænlands, og ann-
ar til Palma á Mallorka. Að sögn
Sveins Sæmundssonar, blaðafull-
trúa, þótti sýnt, að allt flug mundi
stöðvast i gærkvöldi og nú i morg-
un.
„Ólögmœtt,"
segja Flugleiðir
Að sögn Sveins er þetta i annað
skipti á skömmum tima, að flug-
virkjar gripa til „ólöglegs verk-
falls”, eins og Flugleiðir vilja
meina, að hér sé framkvæmt. Sið-
asta laugardag töfðust milli-
landavélar félagsins i allt að tvo
tima vegna „fundarhalda” flug-
virkjanna i einu flugskýli Kefla-
vikurflugvallar.
Flugleiðum barst i gær bréf
Flugvirkjafélagsins, þar sem 8400
kr. grunnkaupshækkunar á mán-
uði var krafizt fyrir hvern flug-
virkja. Þetta telur fyrirtækið að
hafi falizt i 11% hækkun, sem kom
1. janúar. Þá er krafizt 8,6%
grunnkaupshækkunar frá 13. júni
og það grunnkaup hækki um 4,3%
frá 1. október nk.
Sáttaboði á fundi aðilanna i gær
var hafnað af flugvirkjum og
vinnustöðvun kl. 16 þá tilkynnt.
Næst gerðist það, að Flugleiðir
sendufélagi flugvirkja simskeyti,
þar sem fullri ábyrgð er lýst á
hendur flugvirkjum og félagi
þeirra, ef til truflana komi eða ó-
lögmætrar vinnustöðvunar.
Askilja Flugleiðir sér rétt til að
fara á vit dómstóla vegna máls
þessa. Þá hefur Kjaradómi verið
falið að fjalla um ágreining aðil-
anna.
í félagsheimili flugvirkja við
Brautarholt hittum við fyrir
nokkra flugvirkja, sem rökræddu
ágreiningsmálin.
— Við erum ekki sammála
Flugleiðum um túlkun samning-
anna. Frá 12. mai höfum við feng-
ið 11% uppböt, sem við teljum
vera kjarabætur vegna þess hve
kjör okkar hafa dregizt aftur úr
kjörum annarra iðnaðarmanna.
Flugleiðir telja þessi 11% aftur á
móti laglaunabætur, sagði Ragn-
ar.
— Láglaunabæturnar, sem við
áttum von á um þessi mánaða-
mót, voru því ekki með i kaupinu
nú, þar eð Flugleiðir telja sig þeg-
ar hafa bætt þeim við launin.
sagðiRagnar. JBP/JB
Arabar sendu
Einari Einarssyni
pöntun:
Vildu kaupa
nagladekk
fyrir 75
milljónir
— en því miður,
dekkin aðeins
hugmynd ennþó
— baksíða
Hengir
hjólið
fyrir ofan
rúm sitt
— enda ekki
venjulegur gripur
— bls. 3