Vísir - 05.07.1975, Page 8
8
Vísir. Laugardagur 5. júli 1975.
J. B. PÉTURSSON SF.
ÆGISGÖTU 4-7 ^ 13125,13126
Afgreiðslustúlka
með mjög góða kunnáttu i enskum bréfa-
skriftum óskast strax. Uppl. i dag Flóka-
götu 62, 2. hæð (ekki i síma).
PASSAMYNDIR .
feknar i lifum
tilbúnar strax I
karna & flölskyldu
LJOSMYNDIR
AUSTURSTRÆTI 6 S.12644
Menningar
mál mi
fastur þáttur
íVÍSI
Pyrstur með
fréttimar
vism
j s^iJi
179 tslendingar
hjá Varnarliðinu
Á timabilinu frá 1. april til 30.
júnl voru samtals 179 Islendingar
viö störf hjá Varnarliöinu á Is-
landi, þar af 150 við sumaraf-
leysingastörf. Á sama tima i
fyrra voru tslendingar hjá
Vamarliðinu 83, þar af 65 i
sumarafleysingum. Hér eru að-
eins taldir þeir, sem ráðnir eru
beint til liðsins, en ekki þeir, sem
eru hjá íslenzkum verktökum á
Keflavikurflugvelli, en þar mun
einnig vera um aukningu að ræða
i störfum.
Tveir sækja
Tveir umsækjendur eru um
stöðu skólastjóra Leiklistarskóla
Islands, sem auglýst var laus tii
Dagsferðir til
Grænlands
Skemmtiferðir Flugleiða til
Grænlands eru fyrir nokkru
hafnar. Dagsferðirnar eru til
Kulusuk, þangað sem flogið er
með skrúfuþotum Flugfélas Is-
lands frá Reykjavik um hádegi og
komið aftur að kvöldi. Þegar
umsóknar með fresti til 30. júni.
Þessir umsækjendur eru: Maria
Kristjánsdóttir og Pétur Einars-
son.
Upphleypt
Vestmannaeyjakort
Litskrúðugt, upphleypt plast-
kort af Vestmannaeyjum er kom-
ið út. Það er bæjarstjórnin þar
heima, sem gefur kortið út i til-
efni þess, að tvö ár eru liðin siðan
eldsumbrotum lauk i Eldfelli.
Kortið er þannig gert, að litaður
loftljósmyndagrunnur er aðlagð-
ur likani af Heimaey, en með
þessu móti er hægt að ná trúverð-.
þessar ferðir hófust um miðjan
júni, var samkoma I kirkju
þorpsins Cap Dan, þar sem frú
Herdis Vigfúsdóttir skýrði frá
sögu staðarins, lifnaðarháttum
fólksinsog sagði margan fróðleik.
Börnin á staðnum fjölmenntu i
-kirkjuna, en koma fyrsta ferða-
mannahópsins á vorin er mikill
viöburður i þessu fámenna
byggðarlagi.
ugri mynd af útliti eyjarinnar
eins og hún er nú. Auk aðalkorts-
ins eru fimm sérkort þrykkt, sem
sýna jarðfræði, vikurfall, hraun-
rennsli, fasteignatjón og byggð-
ina, eins og hún var fyrir gos.
Kortið er gefið út á islenzku og
ensku, ogfrönskútgáfa er i undir-
búningi. Upplagið er 4500 eintök
og verðið er áætlað 2000 krónur á
kort, en auk þess eru eitt þusund
kort sérprentuð með undirskrift
bæjarstjórnarinnar, og er hluti
þessarar sérprentunar i númera-
röð. Verð hátiðarútgáfunnar er 10
þúsund krónur. Ýmsir aðilar
lögðu hönd að þessu verki.
Útivist
i útivist
Ferðaklúbburinn Útivist hefur
gefið út bækling með kynningu á
ferðum sinum i júlí og ágúst. Þar
kennir margra grasa og eru til
dæmis skráðar fimmtán fimm til
tiu daga ferðir um hina ýmsu
staði landsins, en sjötiu og ein
styttri ferð. Þá eru fimm Vatna-
jökulsferðir, sem taka fjóra daga
hver, og ferðir i Goðaland viku-
lega frá fjórða júli til fimmtánda
ágúst. Ekki verður annað séð en
verði þessara ferða sé mjög stillt i
hóf, og sumar eru beinlinis mjög
ódýrar.
Heimsmót I Vín
Heimsmót Sjöundadags að-
ventista verður haldið i Vin i
Austurriki 10.-19. júli. Slik mót
eru haldin fimmta hvert ár og er
þetta 52. heimsmótið. Mótið
sækja 2000 kjörnir fulltrúar
hvaðanæva úr heiminum, en auk
þess um 10 þúsund gestir. 7.-10.
júli verður sérstök ráðstefna
starfsmanna safnaðarins. Um
þrjár milljónir manna teljast nú
til þessa safnaðar, og á hans veg-
um eru starfræktir um 5 þúsund
skólar, frá barnaskólum til há-
skóla, 140 sjúkrahús og 182 lækn-
ingastofur. Auk þess rekur
söfnuðurinn umfangsmikið
liknar- og hjálparstarf.
Ritgerð um
stöðu konunnar
Á vegum menntamálaráðu-
neytisins hefur verið efnt til rit-
gerðasamkeppni fyrir fólk á
aldrinum 15-20 ára, og ritgerðar-
efnið er auðvitað Staða konunnar
i þjóðfélaginu. Verðlaunin eru
ferð og vikudvöl i höfuðstöðvum
Sameinuðu þjóðanna i New York.
Þetta er gert i tilefni kvennaárs
og að tilhlutan Samstarfsnefndar
um kvennaárið, en þriðji aðilinn
sem að samkeppninni stendur er
Félag Sameinuðu þjóðanna á Is-
landi. Þessir þri'r ajiilar hafa til-
nefnt sinn aðilann hvér i dóm-
nefnd. Skilafrestur fyrir rit-
gerðirnar er til 15. nóvember.
Tilkynning
frá SamhjálP Hlaðgerðarkoti.
Vinningsnúmer i byggingarhappdrætti
voru er 12830.
Happdrætti Samhjálpar.
Hústjöld
Glæsileg dönsk hústjöld — 12 —16 —18 —
20 — 22 ferm. — mjög vönduð. — Sjón er
sögu ríkari.—
Sjáið sölusýninguna að Geithálsi.
Tjaldbúðir.
HIH
W Skrifstofustarf
Skrifstofumaður óskast nú þegar.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu Rafmagnsveitu Reykja-
vikur, Hafnarhúsinu 4. hæð.
F, 1RAFMAGNS
VEITA
Lá T REYKJAVÍKUR