Vísir


Vísir - 08.07.1975, Qupperneq 1

Vísir - 08.07.1975, Qupperneq 1
VALUR FÉKK CELTIC — Akranes til Kýpur — Keflavík Dundee United Um hádegið var dregið um, hvaða lið eigi að mætast I fyrstu umferð I Evrópumótunum þrem i knattspyrnu 1975. islenzku lið- in drógust á móti þessum félög- um: Keflavik — Dundee United Skotlandi i UEFA keppninni. Valur — Celtic Skotlandi I Evrópukeppni bikarmeistara. Akranes — Omonia, Kýpur I Evrópukeppni deildarmeistara. Keflavik á heimaleik fyrst, en hin liðin eiga að leika fyrri leik- inn á útivelli. ---klp— mm NORÐMENN SAMMÁLA UM DÓMARAHNEYKSU Landsleikur islands og Noregs I gærkvöldi á Laugardalsvellinum er enn I sviðsljósinu. Mesta dómarahneyksli i landsleikjasögu íslands er aðalfyrirsögn Visis á Iþróttasiðunum — sænskur dómari gaf Norðmönnum jafntefli. • Þctta er fáránlegasti dómur, sem ég hef orðið vitni aö á 20 ára ferli sem atvinnumaður, sagöi landsliðsþjálfarinn Tony Knapp. • Viö Norðmenn höfum ekki yfir neinu að kvarta i sambandi viö dómgæzluna, sagði Einar Jorum, norski landsliðseinvaldurinn, og brosti tvlræöu brosi. • Við getum verið ánægðir meö að hafa sloppið með 1-1 frá islandi, segir norska fréttastofan NTB. • Sænskt dómarahneyksli á islandi bjargaði Norðmönnum, simaði einn norsku blaöamannanna til Norcgs eftir leikinn. • Sterk raddbönd áhorfenda sögðu allan hug islenzkra á dómar- anum á Laugardalsvclli. • Sænski fáninn var dreginn i hálfa stöng á meðan á leiknum stóð — þetta var sorglegur dagur fyrir Svia á islandi. —hsim. Deildartunguhver ekki Sengur sá eini — Hitaveita Borgarness hugar að fleiri stöðum Fundu loft- varnakúlur frá stríðs- árunum Tæknilegur undirbún- ingur undir hitaveitu fyrir Borgarnes, Hvann- eyri og allmarga bæi á þeim slóðum stendur nú yfir og er vonazt til að hún verði farin að velgja ibúunum á árinu 1977. Þrir staðir eru i athugun sem uppspretta fyrir hitaveituna. Það eru Deildartunguhver, Kleppjárnsreykjahver og svo hugsanlega ein- hver staður i Bæjar- sveit. Það eru um 30 kilómetrar frá Borgarnesi til hveranna tveggja, en ef heppilegur staður finnst i Bæjarsveit, getur það munað niu kilómetrum. Þar sem aðfærslu- æðin verður langstærsti kostnaðarliðurinn munar það töluvert miklu, og Orkustofnun hefur verið skrifað og beðið um tilraunaboranir. Húnbogi Þorsteinsson, sveitar- stjóri i Borgarnesi, tjáði Vísi, að þessar framkvæmdir yrðu tengd- ar brúargerðinni yfir Borgar- fjörð, milli Seleyrar og Borgar- ness. Værireiknað með að tengja hitaveituna yfir á árinu 1977, þeg- ar fyrirhugaðri brúarsmiði væri lokið. Gert er ráð fyrir að kostnaður- inn verði milli 400 og 500 milljón- ir. Húnbogi kvað vonir bundnar við að þeir fengju tolla fellda nið- ur og hugsanlega söluskatt, en það myndi lækka verðið mikið. Hann sagði, að i rekstraráætlun væri reiknað með að neytendur greiddu i fyrstuum 80af hundraði þess hitakostnaðar sem þeir greiddu núna, en það færi svo stiglækkandi eftir þvi sem skuldir minnkuðu. óT. Rudolf Axelsson lögreglu- maður með kúlurnar sem fundust á Korpúlfsstöðum. Ljósm. Bj.Bj. Viðast hvar um landið er litið farið að slá, þótt komið sé fram i júli. Kemur þar tvennt til: Léleg spretta viða og votviðrasamt um vestan- og sunnanvert landið. Einstaka hafa þó ekki staöizt mátið og eru farnir að slá, svo sem eins og ólafur Helgason, bóndi á Hamrafelli I Mosfellssveit, sem hóf slátt nú fyrir helgina.þótt enn hafi ekki gefið þurrkinn. Þó hékk þurrt að kalla I gær, og fólkið á Ilamrafelli notaði daginn til að huga að heyskapnum. Hér er frúin á bænum, Jóna Sveinbjarnardóttir, með Htil dótturbörn, en Ólafur rakar með traktornum. -Sjá nánari heyskaparfréttir á baksiðu. Ljósm. Bj. Bj. Við jarðrask uppi við Korpúlfsstaði fannst mikið af hlöðnum skothylkjum, sem talið er víst að séu frá striðsárunum. Skothylki þessi eru ætluð i loftvarnabyssur og eru sum með sprengihleðslu en önnur ekki..Þegar nokkrum skotunum var varpað á eld, sprungu þau mcð mikium hvelli. Að sögn Rudolfs Axelsson- ar hjá lögreglunni eru skotin hættuleg, þrátt fyrir háan aldur. Við högg eða eld springa þau auðveldlega. Lögreglan tók þessi skot i sina vörzlu og mun gera þau óvirk. —JB Karlmenn voru fil óþurftar: ,KONUR HEFDU NÁÐ MEIRI ÁRANGRI" — sagði Sigríður Thorlacius, einn ísl. þótt* takendanna ó kvennaráðstefnunni s Mexíkó ,,Ég er þeirrar skoðunar að ef á ráðstefnunni hefðu setið konur eingöngu, og kannski nokkru færri, þá hefði hún borið meiri árangur. Mér fannst það karl- mennirnir, sem beittu sér fyrir lúalcgustu og illvigustu árásun- um”. Það er Sigriður Thorlacius, einn af fulltrúum Islands á kvennaársráðstefnunni i Mexikó, sem þetta segir. Sigrið- ur kom heim um helgina og blm. Visis rabbaði við hana i morg- un. „Nei, ég er ekki ánægð með ráðstefnuna vegna þess að jafn- réttismál karla og kvenna urðu undir vegna póljtiskra deilna. Hins vegar var ýmislegt já- kvætt við þetta, en maður tók hittnærfi sér, þar sem þetta var einstakt tækifæri til þess að ná samstöðu. Ég tel það fyrst og fremst já- kvætt að ráðstefnan skyldi hafa verið haldin, — að Sameinuðu þjóðirnar áliti sérstaka ástæðu til þess að halda sérstaka ráð- stefnu vegna þessara mála. Það voru lika gerðar ýmsar góðar samþykktir, sem ættu að geta orðið góður stuðningur i ýmsum rikjum,” sagði Sigriður að lok- um. —EA Sérstœð skilyrði í hóloftunum: Töluðu lands- horna í rrtilli og norska sjónvarpið sést hér á landi Ahugamenn um fjarskipti duttu heldur betur i lukkupott- inn i gærkvöldi. Mjög sérstæð- ar aðstæður i háloftunum ollu þvi að með litlum biltalstöðv- um var unnt að tala hvert á land sem menn vildu, en undir venjulegum kringumstæðum nær stöð sem þessi, sem er i Reykjavík, ekki mikið út fyrir Faxaflóasvæðið. Undanfarin ár hafa breiðzt mjög ört út hér á landi litlar talstöðvar i bilum, bátum og heimahúsum. Eru stöðvar þessar á svokallaðri al- menningstiðni, 27 MHz og eru oft kallaðar CB stöðvar. Sendiorka þessara stöðva er mjög takmörkuð, og er við venjuleg skilyrði oft ekki mik- ið yfir 50 kilómetra, sem stöðvar þessar ná. I gærkvöldi brá hins vegar svo við, að menn á bilum staddir á Austurlandi, jafnvel niðri i þröngum fjörðum, svo sem I Norðfirði og i Berufirði gátu talað við félaga sina, sem staddir voru i Reykjavik, i Mývatnssveit og jafnvel i skipi 20 milur úti á Húnaflóa, og þeir hverjir við aðra. Að sögn eins félaga I Fjar- skiptaklúbbi Reykjavikur kemur það mjög oft fyrir að erlendar stöðvar verði það sterkar hér á landi, að við- skipti á þeim rásum, sem klúbburinn hefði til umráða, væru oft illmöguleg og væri slikt algengast þegar kvöldar, en slik fjarskiptaskilyrði sem voru i gærkvöldi, væru afar sérstæð, þótt sér virtist vera áraskipti á þeim. Þess má einnig geta, að það var fleira en fjarskipti innan- lands, sem voru sérstæð i gær- kvöldi þvi geislar norska sjónvarpsins villtust hingað til lands vegna þessarra sér- stæðu háloftafyrirbrigða og gátu þeir sem kveikt höfðu á tækjum sinum i sjónvarps- leysinu hér á landi, fylgzt með mynd og tali þess norska all- nokkra stund i gærkvöldi. JR

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.