Vísir - 08.07.1975, Side 6

Vísir - 08.07.1975, Side 6
6 Vlsir. Þriðjudagur 8. júli 1975. VÍSIR Útgefandi:' Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi:. Haukur Helgason / Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611 Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611 Ritstjórn: Siðumúla 14. Simi 86611. 7 linur Askriftargjald 700 kr. á mánuói innanlands. t iausasölu 40 kr.eiptakió. Blaöaprent hf. Ótraust haldreipi ( Rafmagnið leikur lykilhlutverk i þjóðfélagi nú- ) timans. Heimili manna og vinnustaðir ganga ) fyrir þessu yfirlætislausa fyrirbæri. Menn verða ( ekki svo mjög varir við þetta, meðan allt leikur i // lyndi. En fari rafmagnið af, sjá menn skyndilega, /) hve mikill þáttur það er orðið i lifi þeirra. ij Heimilishald fer úr skorðum, þegar rafmagnið 11 lætur á sér standa. Heimilistækin verða óvirk og (( matvæli liggja undir skemmdum i frystikistum /( og isskápum. Kyndingar og hitaveitur kunna að )j stöðvast. Ekki bætir úr skák, að útvarpið fer v venjulega úr sambandi við slikar kringumstæð- ( ur, og magnar það ótta og óvissu fólks. ) Enn alvarlegra ástand myndast i atvinnulifinu. ) Jafnvel i skrifstofufyrirtækjum, þar sem engin j vöruframleiðsla fer fram, verður ringulreið. \ Simaborð verða óvirk, sömuleiðis rafmagnsrit- / vélar og reiknivélar. Enn alvarlegra verður á- ) standið i fyrirtækjum i vöruframleiðslu. j Þetta er þvi bagalegra sem framleiðsluaðferð- j irnar verða flóknari. í sumum tilvikum er um svo ( nákvæmar vinnsluraðir að ræða, að langan tima / tekur að koma framleiðslunni af stað aftur að ) rafmagnsleysi loknu. Hámarki nær þessi við- j kvæmni i fyrirtækjum á borð við álverið i ( Straumsvik, þar sem tuga og hundruða milljóna / króna eyðilegging er yfirvofandi i hvert sinn, sem ) rafmagnið fer af. En jafnvel bóndinn lendir i öng- j þveiti, t.d. við mjaltir. Þannig er rafmagnið ( orðið undirstöðuatriði i öllum þáttum atvinnulifs- / ins. j Prentun Visis fer hvað eftir annað úr skorðum \ vegna rafmagnsbilana. Sumar bilanir stafa af ó- ( hæfilegri atorku i meðferð jarðvinnsluvéla, aðrar ) af ólagi á spennistöðvum, linum og tengivirkjum. j Þetta ástand er langtum verra en eðlilegt má ( teljast. / Rafmagnsleysið er ekki eina dæmið um skort á j rekstraröryggi á þessu sviði. Viða eru óhæfilegar \\ spennusveiflur á rafmagni, sem valda skemmd- l( um á rafmagnstækjum, allt frá heimilistækjum /) yfir i tölvur. Sumar rafveitur færa jafnvel niður j spennuna á álagstimum af ásettu ráði. ( Rafmagnsframleiðsla og rafmagnsdreifing er j flókin og vandasöm starfsemi, sem þarfnast mik- ( illar nákvæmni, ef hún á að gegna hlutverki sinu ) með sóma. Reynslan sýnir, að menn eru aldrei of j árvökulir á þessu sviði, þótt þeir leggi hart að sér. ( Fólk er orðið svo háð rafmagni, að það gerir sér- / stakar og óvenjulegar kröfur til öryggis i rekstri ) rafmagnsmála. j Mikil nauðsyn er á að beita ströngum refsiað- j gerðum til að reyna að draga úr skemmdum \ jarðvinnsluvéla á rafstrengjum. Ennfremur þarf / að gera linur og tengivirki þannig úr garði, að is- ) lenzk veðrátta geti ekki valdið skemmdum á j þeim. Og svo þarf að fjölga samtengingum og ( varalinum til að auðvelda undankomuleiðir, þeg- / ar óhöpp ber að garði. ) Þegar Búrfellsvirkjun var reist, óttuðust j margir, að kenjar Þjórsár mundu oft gera hana ( óstarfhæfa. Tæknimönnum virðist hafa tekizt að / leysa vandamál isingar, þrepahlaupa og annarra j hamfara Þjórsár. Slikum sigrum má ekki glopra j niður með mistökum á einfaldari sviðum, i bygg- ( ingu tengivirkja og rafmagnslina. ) —JK mmmm Umsjón: GP i þessum mánuði munu bandarískir og sovézkir geimfarar sýna í verki, þegar þeir svífa í geimnum í loftförum sínum, að þeir geta tekið höndum saman, búið saman og starfað í bræðralagi. Þetta fyrsta sameigin- lega átak þjóðanna beggja í geimferðum sannar, að þrátt fyrir óskaplegan mun, sem er á þessum tveim þjóðum, félagslega séð, heimskepilega, stjórn- málalega eða tæknilega, geta konur og karlar þess- ara landa stefnt hlið við hlið að sameiginlegu marki. Þessi fyrirhugaða geimferö Apollo og Soyuz hefur átt sér þriggja ára aðdraganda, eftir aö hún var ákveðin. En eitt af þvi, sem þykir hvað merkilegast við hana, er, hvað hún veitir báöum möguleika til að halda sinum sér- einkennum i geimferðum. Þótt báðir hafi starfaö saman að undirbúningnum og fylgzt vel með hvor öðrum, þá er það sov- ézk geimferðartækni, sem stýrir Soyuz-geimfarinu upp i geiminn og aftur til jarðar eftir stefnumót- ið, meðan Apollo verður á sinn hátt stýrt af bandariskum geim- visindamönnum á bandariska visu. En eölilega urðu þessi tvö stór- veldi geimvisindanna að bera saman bækur sinar um geimskot- in og tengingu geimfaranna. Bæði verða að vera algjörlega sam- taka, allt frá þeirri stundu, sem Soyuz-geimfarinu verður skotiö á loft með tveim geimförum innan- borðs þann 15. júli, þar til þrir bandariskir geimfarar lenda i sjónum i Apollogeimfari sinu ell- efu dögum siðar. Bak við hvert smáatriði þessa leiðangurs, timasetningu hans, lengd hans, eðli hans.tilgang — jafnvel loftið um borð i loftförun- um, sem geimfararnir eiga að anda að sér — bak við það allt liggja langir og strangir samn- ingar og málamiðlanir. Svo ólikar voru aðferðir hvors um sig við fyrri geimskot og ferðir. Að ekki sé talað um viðhorf ráðamann- anna. Um flest náðist samkomulag fljótt og i mestu vinsemd. Báðir mættust á miðri leið. Eins og t.d. tungumálavandræðin. Banda- risku geimfararnir munu tala rússnesku, meðan þeir rússnesku munu tala ensku. Og til að fyrir- byggja allan misskilning verða túlkar i stjórnstöðvunum á jörðu niðri þeim til aðstoðar. Þessi málamiðlun speglast kannski bezt i loftþrýstingnum, sem verður i geimskipunum. Sovétmenn draga ögn úr þrýst- ingnum inni i Soyuz-geimfarinu, miðað við hverju þeir eru vanir. Bandarikjamenn auka aftur á móti þrýstinginn inni i Apollo um- fram það sem þeir eru vanir aö 'hafa. Þannig á hvergi að hallast á. En það getur verið erfitt á köfl- um að semja um eðlislögmálin. Þyngdarlögmálið og aðdráttarafl jarðar meðan þess nýtur við hefur sitt fram, þótt menn vilji Geimfararnir, sem taka þátt I þessari sögulegu ferö. Fremri röö frá vinstri: Valerij N. Kubasov og Aleksi A. Leonov. Aftari röö frá vinstri: Thomas P. Stafford, Donald K. Slayton og Vence D. Brand. Eðlislögmálin urðu að ráða samnngunum Á Canaveralhöföa i Flórida er undirbúningur kominn svo langt, aö Satúrnuseldflaugin, sem flytja mun Apollo út i geim- inn, er komin i skotstööu, eins og sést á myndinni hér. — Þetta veröur að likindum siöasta geimflug Bandarikjamanna, þar sem þeir nota Satrúrnus. semja einhvern veginn öðruvisi. Þannig skar eðlisfræðin úr mörg- um atriðum, sem ekkert tjóaði að deila um. Og ýmsar staðreyndir eru svo óumflýjanlegar, að jafnvel hug- myndafræði Marxista getur ekki snúið þeim við. Það þýddi ekkert að berja höfðinu við steininn. Vegna þess hve Apollogeimfarið er stærra, kraftmeira en um leið snúningalipurra, þá varð að hafa hlutina þannig, að Soyuz yrði skotið fyrst á loft og Apollo færi á eftir til þess að leita það uppi og tengjast þvi. Þannig uröu flestar ákvarðanir teknar af nauðsyn. En margt var þó eftir, sem semja þurfti um. Eins og til dæm- is fjölmiðlun frá þessum atburði. Bandarikjamenn, sem vanir eru þvi að láta geimferðir sinar fara fram aðöllum ásjáandi, vildu það áfram. Rússum, sem eru vanir þvi að skammta upplýsingarnar' eftir eigin hentugleika, óaði slikt. Báðir sættust þó á milliveginn. Þannig hugsar teiknarinn sér aö stefnumót Bandarikjamanna og Rússa úti I geimnum eigi sér staö.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.