Vísir - 09.07.1975, Blaðsíða 3
Vlsir. Miðvikudagur 9. júll 1975.
3
Hós og garður fullgert á 9 mánuðum
■ 1
ÍOIGRUHD
5 _ 1
„Ég hef að mestu
unnið þetta einn,”
sagði Jósep Halldórs-
son trésmiður. Hann
hefur nú búið i 3
mánuði i húsi, sem
hann hófst handa við að
reisa fyrir einu ári. Á
þeim tima hefur húsið,
sem er við Viðigrund i
Kópavogi, verið málað
og i garðinn hefur verið
plantað trjám og
sumarblómum.
„Þa5 er nú varla hægt aö
kalla þær aöferöir nýjungar,
sem ég notaöi,” sagöi Jósep, er
hann var spurður, hvernig þetta
væri hægt. Hann kvaðst hafa
slegið upp mótum með
novapanplötum. Þær hefðu
einnig verið notaðar innan i hús-
ið. En húsið var hvorki pússaö
að innan né utan.
Loftplatan var steypt og húsið
var járnabundið á venjulegan
hátt.
„1 hverju svo sem það liggur,
hefur húsið kostað miklu minna
en almennt gerist”. Ekki vildi
Jósep þó nefna neinar tölur, en
heyrzt hefur að það séu þrjár til
þrjár og hálf milljón króna.
—BA
0 <1 <3 0
Húsið að Vlðigrund er fullgert, fullmálað og garður I kring, meðan
jafnaldra húsin i kring standa sum varla upp úr moldinni. Ljósm.
Bj.Bj.
Bemagrindin rannsökuð í dag -
œtti þú að vera hœgt að segja til um aldur og kyn
Hafin var rannsókn á hinni
nýfundnu beinagrind i morgun.
Rannsóknin er framkvæmd á
Rannsóknastofu Háskóians, og
annast prófessorarnir Ólafur
Bjarnason og Jón Steffensen þá
rannsókn. Þegar við höfðum
samband við ólaf I morgun
kvaðst hann engar upplýsingar
geta veitt, en visaði á Magnús
Eggertsson yfirlögregluþjón og
Hauk Bjarnason lögreglumann,
en þeir hafa haft með rannsókn
málsins að gera.
Magnús kvaðst engar nýjar
upplýsingar geta veitt að svo
stöddu. 1 einu blaðanna i morg-
un er þvl haldið fram, að beina-
grindin sé karlkyns. Magnús
vildi ekki staðfesta það, en
rannsóknin i dag ætti að leiða
það i ljós og einnig aldur henn-
ar.
Beinagrindin fannst i gamla
skotæfingasvæðinu við Faxa-
skjól. Auk hennar fundust sokk-
ar úr gerviefni og þrjár tölur.
Magnús sagði, að ekki væri vist
að tölurnar stæðu i beinu sam-
bandi við beinagrindina. Þá
fundust einnig þrjár skamm-
byssukúlur i gröfinni. Það þarf
þó ekki að benda til aö um morö
hafi verið að ræða, þar sem
svæðið var eitt sinn notað til
skotæfinga.
Það voru fimm strákar, sem
fundu gröfina af tilviljun. Lög-
reglan leitaði á staðnum i
nokkra tima i gær, og ótrúlegt
er annaö en krakkar róti eitt-
hvað á sama stað i dag.
—EA
Núlldagur hjá
Friðriki Ólafs-
syni í gœr
Tapaði fyrir Garcia og Hug, sem
komust þar með í efstu sœtin,
— 30 stiga hiti í Ziirich
„Nú sækið þið aldeilis að mér,
þvi að ég var að fá tvö 0 skopp-
andi hlið við hlið,” sagði Friðrik
Ólafsson, stórmeistari, og hió
við, þegar blaðamaður Visis
rabbaði við hann I sima I Zúrich
I morgun.
Fimm umferðum er nú lokið á
meistaramóti Sviss, þar sem
Friðrik teflir ásamt þrettán
skákmeisturum öðrum. — 1
fimmtu umferðinni i gær mætti
Friðrik Kúbumanninum Garcia
og tapaði fyrir honum. Garcia
er nú efstur með 4 1/2 vinning.
Gærdagurinn byrjaði strax
með andstreymi fyrir Friðrik.
Hann átti eftir óteflda biðskák
úr 4. umferð á hóti Hug. Hún var
tefld um morguninn og fór 1-0
fyrir Hug.
Ekki vildi Friðrik kenna
aðstæðum um tapið. — „Ætli
það hafi ekki verið eins og
venjulega, sitt litið af hverju og
svo seildist ég vist fuliiangt í
þessum skákum,” sagði hann.
„0, jæja, það þýðir ekkert
annað en bita bara á jaxlinn og
vonast eftir þvi, að það gangi
betur i næstu skák,” bætti hann
við og neitaði alveg að láta mót-
byrinn draga sig niður.
Friörik lét vel af aðstæðum
og aðbúnaði. Að visu er ekki
teflt i sama hótelinu og þátt-
takendur búa. Taflstaðurinn er
ögn frá i húsi, sem heitir
Kongress Haus. — „Þeir mættu
kannski hafa betri loftræstingu
vegna hitans, þvi að hér i Ziirich
hefur að undanförnu verið um 30
stiga hiti.”
Staðan I mótinu er núna
þannig, að Keller og Hug eru
með 4 vinninga hvor, koma fast
á hæla Garcia, sem er eins og
áður sagði efstur með 4 1/2
vinning. — Næstir eru Umzirker
og Langeweg með 3 vinninga.
Þá Durckstein með 2 1/2 vinn-
ing. Siðan er mikil þyrping
manna með 2 vinninga og i þeim
hópi er Friörik ólafsson.
Atta umferðir eru eftir i mót-
inu. 1 dag i 6. umferð teflir
Friðrik Ólafsson við Keller, sem
er i öðru sæti. Hann á einnig eft-
ir að tefla viö Umzirker.
— GP
Frá veginum yfir Fjarðarheiði má auðveldlega taka sllkar jöklamyndir I júll.
Seyðfirðingar í sól og blíðu, en
Enn mikill snjór ó Fjarðarheiði
— Maður var alveg að veröa
vitlaus á ölium þessum snjó i
vetur, sagði Seyðfirðingur, sem
Vlsir ræddiviðum siðustu helgi.
A laugardag flatmöguðu hins
vegar flestir Seyðfirðingar i þvi
bezta veðri, sem komiö hefur I
allt sumar, og snjóþyngsli
vetrarins gleymdust.
Þegar haldið er frá Seyðisfirði
á Fjaröarheiöina rifjast vetur-
inn hins vegar fljótlega upp fyr-
ir mönnum. Þar er enn mikill og
harður snjór, sem vafasamt er
að verði að fullu horfinn, er vet-
ur skellur á að nýju.
Óralangt er siðan slikur snjór
hefur verið á heiðinni i júli-
mánuði. Leifar hárra snjó-
gangna eru enn meðfram veg-
um og snjóbungur hvarvetna. A
venjulegu sumri sér vart i hvita
díla nema á hæstu tindum.
—JB
Óvist er að leifar snjógangnanna hverfi I sumar. Hér sjáum við
hvað eftir er af snjógöngum, sem I vetur voru jafnhá og tveir rútu-
bllar hvor ofan á öðrum. Ljósmyndir Jón B.