Vísir - 09.07.1975, Blaðsíða 6
6
Vlsir. Miðvikudagur 9. júll 1975.
vísir
tJtgefandi:’ Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi:, Haukur Helgason
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Slðumúla 14. Slmi 86611. 7 linur
Askriftargjald 700 kr. á mánuði innanlands.
1 lausasölu 40 kr.eiptakið. Blaðaprent hf.
Bezta tryggingin
Mikilvægur þáttur almannavarna er viðbúnað-
ur gegn óvæntu brottfalli aðflutninga á vörum,
sem skipta miklu i rekstri efnahagslifsins.
Aðflutningar gætu hæglega lagzt niður um
langan eða skamman tima, ef heimsstyrjöld
brytist út. Þótt likur á slikri styrjöld séu sáralitl-
ar, er óráðlegt að taka áhættuna af þvi að fljóta
sofandi að feigðarósi.
Fyrsta stig viðbúnaðarins þarf ekki að kosta
mikið fé. Þetta fyrsta stig felst i mati á vanda-
málinu og kortlagningu þess.
Afla þarf upplýsinga hjá stjórnendum raforku-
vera og hitaveitna um, hve mikið þurfi að vera til
i landinu af mikilvægum rekstrarvörum til að
tryggja rekstur þessara stofnana um nokkurt
árabil, ef aðflutningar stöðvast.
Ef rekstur orkuveranna er tryggður, ætti um
leið að vera unnt að tryggja rekstur frystiklefa
hraðfrystihúsa viðs vegar um land. Þar með ætti
þjóðin að geta átt nægan matarforða til nokkurra
ára.
Til viðbótar kemur til greina, að hinn sam-
eiginlegi sjóður þjóðarinnar festi nokkurt fé til að
tryggja, að ævinlega séu vissar lágmarksbirgðir
af hraðfrystum fiski til i landinu. Ekki mætti þá
afskipa örar en niður að þessu lágmarki.
Rekstur orkuveranna er lika undirstaða þess,
að húsnæði þjóðarinnar haldist hlýtt og bjart.
Ennfremur eru orkuverin forsenda þess, að á-
fram geti haldizt margvislegur iðnaður, sem not-
ar rafknúnar vélar.
Aðgerðir á þessum sviðum ættu ekki að þurfa
að kosta mikið fé. En þær mundu ekki koma i veg
fyrir, að sjávarútvegur, landbúnaður og sam-
göngur stöðvuðust vegna eldsneytisskorts. Þess
vegna þarf lika að byggja aðstöðu til að geyma
innanlands feikilegt magn af olium og bensini.
Söfnun eldsneytisbirgða kostar verulegt fjár-
magn. Það er lika ljóst, að mjög erfitt verður að
tryggja rekstur sjávarútvegs, landbúnaðar og
samgangna i langan tima með þessum hætti.
Eldsneytisnotkun okkar er svo mikil.
En hálfs til heils árs birgðir gætu tryggt okkur
gegn þvi, að skammvinnur ófriður úti i heimi
stöðvaði atvinnulifið hér heima fyrir. Til greina
kæmi einnig að safna miklum birgðum af öðrum
vörutegundum, sem skipta miklu, svo sem korni.
Ef ófriður brytist út og stöðvaði aðflutninga til
Islands, væri fyrsta skrefið að opna eldsneytis-
geymana og skammta oliuna til nauðsynlegustu
þátta atvinnulifsins. Ef þetta dygði ekki vegna
langvarandi ófriðar, væri siðara skrefið fólgið i
þvi að fara að skammta af freðfiskbirgðum
frystihúsanna.
Ekki virðist óskynsamlegt að stefna að þvi, að
atvinnulifið geti starfað óhindrað i heilt ár og að
matarbirgðir séu þjóðinni til lifsviðurværis i tvö
til þrjú ár i viðbót. Jafnskynsamlegt virðist vera
að hraða s*em mest orkuuppbyggingu landsins,
svo sem stjórnvöld eru raunar þegar farin að
gera.
Tryggingastarfsemi af þessu tagi kostar mikið
fé. En þvi fé er ekki kastað á glæ, þvi að vöru-
birgðir koma i staðinn. Og það eru einmitt slikar
tryggingar, sem eru mikilvægastar allra trygg-
inga. —JK
SeiðkaHinn
Lopez Rega
Þessi mynd er frá þeim degi, þegar Maria Estel Peron lýsti þvl yfir, að hún færi með völdin vegna veik-
inda bónda slns, Perons forseta, en hún var varaforseti. Við hægri öxl hennar stendur Jose Lopez Rega,
en vinstra megin við stólinn (t.h. á myndinni) er tengdasonur hans, Raul Lastiri.
Jose Lopez Rega,
fyrrum lögregluliðþjálfa
og áhugamanni um
stjarnfræði, skaut upp
utan úr ókunnugleikan-
um og varð allt i einu
frammámaður nýs
peronista timabils
Argentinu, sem hófst
með kosningunum i
marz 1973.
Sex mánuðum áður höfðu fáir
Argentínumenn þekkt nafn þessa
brosmilda, gráhærða, litla
manns.sem stóð i rigningunni við
hliöina á Juan Domingo Peron á
Ezeiza-flugvellinum, þegar „II
Lider” sneri til heimalandsins
eftir átján ára útlegð.
En núna, eftir að Peron er burt-
kallaður, söfnuðust 70.000 manna
á Plaza de Mayo i Buenos Aires til
aö láta i ljós óþokka sinn á Lopez
Rega, en honum vilja þau kenna
allt, sem þeim finnst aðfinnslu-
vert við stjórn ekkjunnar, Mariu
Estel Martinez de Peron, sem nú
er forseti Argentinu og af lýðnum
oftast kölluð Isabel.
Fólkið sér I Lopez Rega sterka
manninn I stjórninni, sem nýtur
óhemju valda vegna aðstöðu
sinnar sem félagsmálaráðherra.
Þegar bezt lætur og ókvæðisorðin
eru spöruð, þá kallar almenning-
ur hann „seiðskrattann” vegna
stjörnuspekikukls hans og fri-
stundaiðju.
Þvilikum heiftarsjónum beindi
verkalýðurinn til Lopez Rega, að
hagfræöingar stjórnarinnar, sem
mest hafa mótað stefnu frú
Perons, voru öllum gleymdir,
þegar allsherjarverkfallið skall á
um miðnætti á sunnudaginn.
Minnstu munaði, að sjálf aðal-
krafan um skilyrðislausar 150%
launahækkanir, eins og forsetinn
haföi lofað, hyrfi lika I skuggann
af kröfunni um að Rega yrði lát-
inn vikja.
Það voru ekki aðeins „unionist-
amir”, sem vildu að honum yrði
vikið burt. Jafnvel meðal „justi-
calista”, eins og flokksmenn
Perons kallast, heyrðust háværar
raddir, sem kröfðust afsagnar
hans. Sagt er, að yfirmenn flota,
flughers og landhers hafi einnig
stutt þessa kröfu.
Þeir munu hafa gert það að
skilyrði fyrir áframhaldandi
tryggð sinni við stjórn Mariu
Perons, að hún ryfi þau bönd, sem
byndu hana við þennan mann,
sem öðlazt hefði alltof mikil völd
til þess að það gæti verið hollt
honum sjálfum eða þjóðinni.
Þegar rikisstjórnin lagði öll
fram lausnarbeiðni sina, nokkr-
um stundum áður en allsherjar-
verkfallið átti að skella á, biðu
menn i ofvæni eftir þvi, hvort frú
Peron tæki afsögn Lopez Rega
gilda, eða hvort hún léti hann
gegna áfram starfi einkaritara
hennar.
Meðan menn biðu, grennsluðust
þeir fyrir um fortið Lopez Rega.
Hann fæddist f Saaverdra, sem
er I útjaðri Buenos Aires. Það var
árið 1916. Foreldrar hans voru
spænskir innflytjendur. Skýrslur
herma, að fæðingardagur hans sé
17. október, sem er helgur dagur i
peronismanum, þvi að þann dag
1945 reis verkalýðurinn upp og hóf
Juan Peron til valda.
Menn vilja þó draga I efa, að
Rega hafi fæðzt þennan dag, þvi
aö þessar sömu opinberu skýrsl-
ur, sem slá fæðingardegi Rega
föstum, herma ennfremur, að
hann sé meðal stofnenda „justi-
calistahreyfingarinnar”, sem er
sannanlega rangt.
Lopez Rega gekk i enskan
skóla, áður en hann skráðist I
sambandslögreglu Argentínu.
Það var svo ekki fyrr en einhvern
tima á árinu 1954, að hann kynnt-
ist Peron, þegar hann varð einn
af lifvörðum hans.
Þegar herinn bylti Peron hers-
höfðingja, var Lopez Rega áfram
I lögreglunni allt til ársins 1962, en
fór ekki með Peron í útlegðina
árið eftir byltinguna. Rega var
enn aðeins liðþjálfi, þegar hann
sagði upp störfum. — Peronistar
bættu úr þvi tólf árum siðar, þeg-
ar þeir gerðu hann að æðsta
manni lögreglunnar, sem var
stökk yfir sextán tignarþrep i lög-
reglunni.
ÞesSi sama opinbera skýrsla
segir, að Lopez Rega sé kvæntur,
en kona hans er hvergi nefnd.
Enginn veit neitt um hana. Dóttir
hans,Norma, er gift Raul Lastiri,
sem er forseti fulltrúadeildar
þingsins, einn þessara nýju
peronista, sem risið hafa til
áhrifa innan flokksins á siðasta
ári.
Á árunum 1962 til ’65 var Lopez
Rega meðeigandi i litlu útgáfu-
fyrirtæki, sem gaf út nokkrar
bækur um stjörnuspeki og hafði
hann skrifað margar þeirra sjálf-
ur. 1 einni þeirra, sem heitir
„Alpha og omega”, segir hann
frá þvi, hvernig erkiengillinn
Gabriel hafi birzt honum i
draumi.
1965, þegar seinni kona Perons
heimsótti Argentinu, var lög-
regluliðþjálfinn fyrrverandi ráð-
inn sem lifvörður hennar. Það
virðist hafa tekizt með þeim ná-
inn kunningsskapur, þvi að hann
fór með henni til Madrid, þegar
hún sneri aftur til bónda sins I út-
legðinni til að gefa skýrslu.
Hinn aldraði „Lider” (leiðtogi)
virtist einnig finna einhverja
verðleika í Lopez Rega, þvi að
hann gerði hann að einkaritara
sinum. Næstu átta árin vék Rega
naumast frá hlið Peronhjónanna.
Þegar þau sneru til Argentinu til
valda að nýju, launuðu þau hon-
um tryggðina með þvi að gera
hann að ráðherra félags- og vel-
ferðarmála.
Þetta embætti er þýðingar-
meira en menn i fljótu bragði
kunna að gera sér grein fyrir.
Ráðuneyti hans hafði á hendi all-
ar eftirlaunagreiðslur, happ-
drætti og opinbera veðbanka. Að-
staðan til að hygla sér og sinum
var ákjósanleg.
Þegar Peron dó i júli i fyrra,
réð ekkja hans, sem þá var vara-
forseti og staðgengill manns sins,
Lopez Rega fyrir einkaritara. Um
leið var honum falið að stjórna
rikisráðsfundum sem væri hann
forsætisráðherra.
Blöðin I Argentinu hafa skýrt
frá þvi, að meðráðherrar hans i
stjórninni hafi flutt honum
skýrslur sinar frekar en forsetan-
um.
Nýlega rauf eitt þeirra, La
Opinion, sem er óháð, þögnina,
sem rikt hefur um athafnir Lopez
Rega og gat hans i sambandi við
eitt morða „dauðasveitarinnar”
svonefndu (AAA, eins og hún er
auðkennd i daglegu tali). Var
Rega kennt um meira en helm-
inginn af 500 pólitiskum morð-
um, sem framin hafa verið i
Argentinu siðasta árið.
A meðan menn hafa velt
þessum upplýsingum um Lopez
Rega fyrir sér, hefur Maria
Estel Peron forseti dregið við
sig að lýsa nokkru yfir um lausn-
arbeiðni ráðherranna. Nokkrir
dagar hafa liðið. — A meðan
hefur frétzt, að Rega sé farinn úr
höfuöborginni og leiti sér hvildar
á búgarði þeim, sem oft var
sumardvalarstaður Perons.
Illlllllllll
Umsjón:
G.P.