Vísir - 09.07.1975, Qupperneq 7
Vlsir. Miðvikudagur 9,
Umsjón:
Hildur Einarsdóttir
Einu sinni þóttu gler-
augu mjög „púkó”.
Margir voru þeir sem
gengu með gleraugu af
hreinni neyð og mörg
tilfinningavandamál
spruttu af þvi að sá
sem notaði gleraugu
þótti ekki eins sætur
eða eftirsóttur af gagn-
stæða kyninu af þvi
hann eða hún notaði
gleraugu.
Umgjarðirnar á þessum sól-
gleraugum eru hvltar en glerið
er ljós-reyklitað. Hægt er að fá
þessar umgjarðir i fleiri litum,
eins og bláu og grænu. Gleraug-
un kosta 5.190 kr.
Gleraugun, sem stúlkan til vinstri er með á nefinu, kosta 3.500 kr. og
eru dökkbrún. Stúlkan I miðið er með rauð gieraugu, umgjarðirnar
eru úr málmi og kosta gleraugun 1.750 kr. Þessi gleraugu fást llka I
bláu, gulu, svörtu, ljósbrúnu og grænu. Ljóshærða stúlkan til hægri
er með lilluð gleraugu, sem kosta 2.200 kr. Myndina tók Bjarnleifur I
Hafnarstrætinu.
Þessar karlmannagleraugna-
umgjarðir kosta 5.325 kr. Þær
eru brúnyrjóttar.
Þessar finlegu egglaga um-
gjarðir eru úr málmi. Hægt er
að fá þær bæði silfur- eða gull-
húðaðar. Verðið er 5.740.
skyggnzt
inn í
gleraugna-
tízkuheiminn
Umgjörðin er I daufum pastel-
litum og kostar 4.850 kr.
Svona „futurisk” silouette sól-
gleraugu seljast ekki mikið hér
á landi. En þau fást engu að sið
ur og kosta 3.195 kr. Þau eru til i
grænu, hvítu og svörtu.
Nú er öldin önnur. Það er I
tizku að hafa gleraugu, hvort
sem það eru sólgleraugu eða
venjuleg gleraugu.
Eins og önnur tizka breytist
gleraugnatizkan ár eftir ár.
Núna eru gleraugún óvenju stór
og einnig rikir mikil litadýrð i
gleraugnatizkunni t.d. rautt,
blátt, hvitt og þá er græni litur-
inn sérstaklega i tizku.
Glerin eru valin eftir lit um-
gjarðarinnar, augnalit og ekki
hvað sizt eftir lit á augnskugga
konunnar sem ber þau.
Annars er vert að hafa i huga I
þessu sambandi, að ekki er ráð-
legt að nota of dökk gler, nema
þá að læknisráði.
Nú á dögum eru sólgleraugu
ekki eingöngu notuð til þess að
verja augun fyrir sólargeislum
eða ofbirtu af einhverju öðru
tagi, heldur til þess að hylja
hrukkur ikringum augun! Sum-
ar konur nota sólgleraugu til
þess að halda hárinu á sér frá
enninu, aðrar sem einhvers
konar höfuðskraut, sem þær
tylla upp á höfuðið, eða upp á
hatt eða yfir klút (sjá mynd).
Málmumgjarðir i alls konar
skærum litum eru mjög i tizku,
einkum fyrir unga fólkið. Kosta
um 2.500 kr.
Glerin eru Iika til I alls konar
litum. Einnig er hægt að fá gler,
sem er dökkt að ofan en ljóst að
neðan.
Umgjörðin er rauð að ofan en
svört að neðan, glerið er brún-
rautt. Þessi Christian Dior gler-
augu kosta 3.500 kr. Þó stór
gleraugu hafi verið I tizku und-
anfarið, þá hafa þau þó aldrei
verið eins stór og I ár.
Silhouette karlmannagleraugun
kosta 5.600 kr. Umgjörðin er úr
dökkbrúnu acetat plasti og gler-
ið er Ijósbrúnt.
Þessi gleraugu eru úr brúnyrj-
óttu acetat plasti og kosta 5.600
Þessi gleraugu eru frekar ætluð
fólki á léttara skeiðinu. Þau eru
til i grænu og brúnu. Einnig fást
þau i blönduðum Ijósum litum
og kosta 5.190. kr.
Það þykir lika sjálfsagt að
konur eigi fleiri en ein sólgler-
augu, sem þær siðan nota allt
eftir þvi hvaða fötum þær klæð-
ast.
Nýjungar i gleraugum eru
þær, að hægt er að fá gler, sem
breytist þannig að i sól verður
það dökkt en i myrkri ljóst.
Þannig þarf ekki að taka gler-
augun niður þegar inn er komið,
heldur lýsast þau sjálfkrafa.
Þessi gleraugu eru seld sem sól-
gleraugu.
BUðirnar sem þessi gleraugu
fást i eru Auglit, Gleraugnasal-
an og Optik-Cobra.
Þessar umgjarðir báðar eru úr
selloioid plasti og kosta hvor um
sig 4.300 kr. Glerin eru frá ca
1.400 kr. og upp úr, en verðið fer
eftir styrkleika og mismunandi
litaprósentu I glerjunum.
Báðar gleraugnaumgjarðirn-
ar eru I mismunandi blönduðum
brúnum litum.
Þessi karlmannagleraugu frá
Dior eru brún, bæði umgjörðin
og gleriðsjálft. Gleraugun kosta
3.500 kr.
I '■ “Vf
í m 1 I Vtö :mm
h vjj V' >-M ’ íf,l ’Æ
ðSÉÖ' ; ■