Vísir - 11.07.1975, Qupperneq 16
VÍSIR
Föstudagur 11. júli 1975.
í LEIT AÐ
VÍMUGJAFA
Gúmmibjörgunarbátur sem
fyrir um viku siöan var stolið úr
mótorbátnum Alfa RE-23 i
Reykjavikurhöfn fannst sundur-
skorinn um borð I bátnum Garð-
ari RE-27 á miðvikudagskvöldið.
Garðar hefur legið óhreyfður
við veitingabúðina Skeifuna við
Ægisgarð að undanförnu. Yfir
bátinn er breiddur segldúkur.
Maður er var að huga að bátnum
sá i gær hvar rofið hafði verið gat
á dúkinn og hafði stolna
björgunarbátnum verið skotið
þar i gegn.
Var hann allur sundurskorinn,
þannig að greinilegt er að i hon-
um hefur verið leitað að lyfjum.
Eftir árangurslausa leit mun
bátnum siðan hafa verið fleygt
um borð i Garðar. — JB
Stelpurnar komu hingað ein-
göngu sem ferðamenn, en nutu
fyrirgreiðslu i skólum á ferð
sinni. Þær hafa búið i barna-
skólanum i Garðahreppi. Og
það var við kvennalið Stjörn-
unnar i Garðahreppi, sem þær
léku knattspyrnu. Hópurinn
heldur heimleiðis á laugardag-
inn. En i ágúst næstkomandi
mun stór hópur islenzkra knatt-
spymumanna fara til Skot-
lands. Það eru strákar á aldrin-
um 17-19 ára og munu þessar
gagnkvæmu heimsóknir
væntanlega styrkja mjög tengsl
landanna.
—B.A.
„Leikurinn var ekki fyrir
fram ákveðinn, en okkur þótti
vænt um sigurinn, sem var
fimm mörk gegn þremur”,
sagði ein stúlka úr hópi skozka
menntaskólanema, er Visis-
menn hittu i gær. Hún lá og flat-
magaði I góöa veðrinu á einustu
grasflötinni, sem fyrirfinnst I
Austurstræti.
Nemarnir, sem eru 17 ára
gamlir, koma úr Annies Land
College i Glasgow. Hópurinn,
sem i eru alls 44, hefur verið hér
i hálfan mánuð.
Strákarnir, tvöfalt knatt-
spyrnulið, komu hingað til að
spila fótbolta við jafnaldra sina.
Skozku stúlkurnar kunnu vel að meta sólina og
létu fara vel um sig á Lækjartorgi. Ljósm. JIM
Tveir í lífs-
hœttu fluttir
fró Grœnlandi
Tveir Grænlendingar voru
fluttir nær dauða en llfi flug-
leiðis til Reykjavlkur i fyrra-
kvöld. Mennirnir voru lagðir inn
á Borgarspitalann.
Það var I fyrradag að beiðni
kom um það frá Angmagsalik
að send yrði flugvél eftir tveim
mönnum, er þar lægju mjög
þungt haldnir.
Hjúkrunarkona af skurðdeild
Borgarspitalans var send með
vélinni, sem hélt héðan um
klukkan fimm siðdegis.
Vélin kom til baka seint um
kvöldið og voru mennirnir tveir
þá þegar skornir upp. Annar
mannanna hafði fengið byssu-
kúlu i magann og auk þess
skaddazt á nýra og görnum er
byssukúlan fór þar i gegn.
Maðurinn mun hafa fengið kúl--
una i magann, er hann sat að
gleðskap með félögum sinum.
Hinn maðurinn hafði aftur á
móti fengið snögglegt og alvar-
legt drep i görn og varð hann að
komast á skurðarborðið eins
fljótt og auðið var. Ekkert sam-
band mun hafa verið á milli
þessara atvika.
Aðgerðirnar tókust vel og
liggja mennirnir nú á gjör-
gæzludeild. —JB
Hafizt var handa um að leggja steypu I Kópavogsbrúna i gærdag.
Ljósm. JIM
Ók niður grœna Ijósið
Upp koma svik um síðir:
Það' var ekki nóg með að
Bronco-jeppinn æki yfir gatna-
mótin á grænu ljósi, heldur ók
hann jafnframt á græna ljósið,
þegar yfir gatnamótin kom.
Þetta átti sér stað er klukkan
var að verða fimm siðdegis á
miðvikudag á gatnamótum
Miklubrautar og Lönguhliðar.
Ökumaður jeppans ber að öku-
maður annars jeppa af sömu teg-
und hafi skipt um akrein rétt fyrir
framan hann, er bilarnir voru að
koma yfir gatnamótin.
ökumaður fyrri jeppans reyndi
þá að sveigja frá en varaði sig
ekki á götuvitanum á hina hönd-
ina. Billinn skall með framend-
ann á götuvitanum, sem brotnaði
við það og tók um leið öll umferð-
arljós á gatnamótunum úr sam-
bandi.
ökumaður slasaðist ekki. At-
burðurinn vakti það mikla athygli
hjá öðrum vegfarendum að einn
þeirra átti ekkert afgangs af
henni til að fylgjast með bilnum
næst á undan og ók aftan á hann.
Skemmdir urðu mjög litlar i þeim
árekstri. —JB
Komst upp um þjófnað fró 1973
— afbrotamaðurinn jótaði sekt sína og var settur inn
Maður nokkur, sem framdi
þjófnað i desember 1973, hefur
senniiega talið sig vera óhultan
orðinn, þar sem komið var fram
i júiimánuð 1975 og allir búnir að
gleyma afbrotinu.
En svo var þó aldeilis ekki.
Lögreglan kom nefnilega til
mannsins fyrir nokkrum dög-
um, þar sem hann á heima i
Keflavik, og handtók hann.
Maðurinn varð vitanlega furðu
lostinn, játaði á sig glæpinn og
hafnaði i fangageymslum lög-
reglunnar i Keflavik.
Málið var það, að bátseigandi
I Keflavfk kom með talstöð sina
til viðgerðar á viðgerðaverk-
stæði nokkurt fyrir stuttu. Eitt-
hvað fannst viðgerðarmönnun-
um talstöðin dularfull. Meðal
annars hafði númerið verið máð
utan af henni, en númer fundu
þó viðgerðarmennirnir inni i
henni.
Þeim þótti rétt að láta lög-
regluna vita um þessa uppgötv-
un, og var hún viðstödd er stöðin
var sótt úr viðgerð.
Eigandinn hafði enga skýr-
ingu á útliti stöðvarinnar, en
sagðist hafa keypt hana þannig i
ársbyrjun 1974 af manni, sem
hann gat nafngreint.
Lögreglan komst nú að þvi
hvaðan talstöð þessi var ættuð.
Henni hafði verið stolrð úr bát,
sem stóð uppi i slipp i Keflavik i
desember 1973.
Nú var farið á fund seljand-
ans og viðurkenndi hann fljót-
lega að hafa selt talstöðina, en
verðmæti slikra stöðvar er á
milli þrjú og fjögur hundruð
þúsund. Maðurinn sem er
fullorðinn, hafði aldrei komizt i
kast við lögregluna fyrr.
—JB
„Fjallvegir víða ófœrir vegna
aurbleytu og snjóa##
KÓPAVOGS-
BRÚIN
STEYPT
Lokið var við að steypa nyrðri
brúna yfir Kópavogsgjána i nótt
um klukkan þrjú. Hafizt var
handa um að steypa gólf þessarar
sögufrægu brúar strax i gærdag.
Þá var sá hluti gólfsins steyptur,
sem liggur yfir vestari akrein
Hafnarfjarðarvegarins, þá ak-
rein,sem umferðhefur ekki verið
hleypt á enn.
Inótt var siðan hafizt handa um
að steypa eystri hluta brúargólfs-
ins og var lokað fyrir umferð um
gjána á meðan.
Steypuvinnan gekk vel og á nú
ekki lengur að vera auðvelt að
aka brúna niður.
,,Það er fyrst og fremst vegna
snjóþungs vetrar og hins kalda
vors sem fjallvegir opnast
svona miklu seinna en venju-
lega”, sagði Arnkell Einarsson
hjá Vegaeftiriitinu.
Arnkell sagði, að ástandið
væri misslæmt eftir landshlut-
um. Nú er Fjallabaksvegur orð-
inn fær i Landamannalaugar og
fært er orðið i Eldgjá úr
Skaftártungu.
Þá er Sprengisandur ófær
vegna snjóa. Þó hefur jeppum
tekizt að komast úr Sigöldu i
Nýjadal.
Kjalvegur er fær stærri bil-
um, en alls ekki fólksbflum.
Kvaðst Arnkell sérstaklega
vilja vara menn við að fara
þessa leið á öðru en jeppum.
Ekki sizt vegna þess að mikill
vöxtur er i óbrúuðum ám á leið-
inni.
Fært er um Kaldadal.
Um Vestfirði mun vera greið-
fært og eru allar heiðar þar fær-
ar, þar á meðal Tröllatungu-
heiði.
Djúpvegur er ófær minni mil-
um, þar sem óbrúað er i Hest-
firði. Áin þar er það vatnsmikil
að ófært er öllum minni bflum.
Arnkell sagði, að verið væri að
brúa hana og yrði brúin væntan-
lega tilbúin i haust.
Fært er um Þverárfjall milli
Blönduóss og Sauðárkróks. En
þar sem Laxá er óbrúuð, er all-
ótryggt fyrir minni bila að fara
þarna um.
Þegar komið er á Norðaustur-
land er færðin orðin hin ágæt-
asta. Þannig eru Lágheiði, Ax-
arfjarðarheiði og Vopnafjarðar-
heiði færar öllum bilum.
Lokið er við að ryðja snjó af
Hellisheiði eystri. Þar er þvi
fært fyrir jeppa, en fólksbif-
reiðum er hætt þar vegna aur-
bleytu.
sagði Arnkell Einarsson
hjá vegaeftirlitinu
Þá er verið að ryðja Mjóa-
fjarðarheiði og munu jeppar
geta brotizt þar i gegn.
Vegurinn um Oxi er ófær
vegna snjóa.
Lokað við Ölfusá
Þá bað Arnkell lesendur að
athuga sérstaklega að Suður-
landsvegur um ölfusárbrú
verður lokaður vegna malbik-
unarframkvæmda. Verður lok-
að frá klukkan 19 i kvöld og eitt-
hvað fram eftir nóttu. Heppileg-
ast er fyrir vegfarendur að fara
um Grimsnes og yfir Hvitá hjá
Iðu.
—JB