Vísir - 24.07.1975, Blaðsíða 1
VISIR
65. árg. — Fimmtudagur 24. jiili 1975 — 165. tbl.
Orlofsheimilin: Tiltölulega lítið Yfirlýsing frá
Geta ekki þarf til að hefja framkvœmdastjóra
annað útsendingar Vísis vegna
eftirspurninni útvarps í stereo ritstjóramálsins
— bls. 3 — baksíða — bls. 3
„Æ, hvernig er hœgt að
koma þessu saman?"
- bls. 7
Heildarálagning í Reykjanes-
umdœmi hœkkaði um 65,6%
Heildarálagning gjalda i(
Reykjanesumdæmi hækkaði um
65,6 prósent frá þvl i fyrra og
eru nú lagöar kr. 4.454.800.346 á
19.887 einstaklinga og 1.071
félag.
Tekjuskattur hækkar um 55
prósent upp i rúmlega 1.976
milljónir. Ctsvör hækka um 79
prósent upp i rúmlega 1.716
milljónir. Eignaskattur hækkar
um 26,8 prósent upp i tæpar 82
milljónir og aðstöðugjöld hækka
um 49,3 prósent upp i rúmlega
192,5 milljónir. Skattskráin
verður lögð fram á morgun.
Ó<T.
Ferðahömlunum aflétt:
Skemmtiferðaskipið Atlas í heimsókn hér:
FYLGIST SPENNTUR MEÐ BYGGINGU
HALLGRÍMSKIRKJUTURNS
ferðamenn af skemmtiferðaskipum eyða um 5000 kr. að meðaltali
á dag meðan þeir dveljast hér
Ég kem hingað til tsiands
alltaf öðru hverju þvi ég hef það
að atvinnu að skemmta fólki á
skem mtiferðaskipum. Þegar ég
kem hingað fer ég alltaf beint
upp að Hailgrimskirkju tii að
fylgjast með hveruig smiði
kirkjunnar gengur. Mér finnst
spennandi að sjá hve turninn
hefur hækkað i hvert skipti sem
ég kem hingað. A ég orðið gott
myndasafn af þessum ágæta
turni,” sagði eistlenzkur grin-
kall, sem skemmtir ferðamönn-
unum á skemmtiferðáskipinu
Atias sem nú er i heimsókn hér
á landi.
Geir Zoega forstjóri Ferða-
skrifstofu Zoega, sagði að
skemmtiferðamennirnir dveldu
hér i einn dag. Farið yrði með
þá að Gullfossi og Geysi, einnig
yrði farið til Þingvalla. Þegar
þvi væri lokið, hefðu ferða-
mennirnir tækifæri til að ráfa
um borgina og verzla ef tæki-
færi gæfist^.
„Ferðamennirnir eru um 600
manns og geri ég ráð fyrir að
hver ferðamaður eyði að meðal-
tali um 5000 krónum meðan
hann dvelur hér þennan eina
dag,” sagði Geir.
Skipið er griskt, en ferða-
mennirnir eru flestir Þjóðverj-
ar.
Héðan komu ferðamennirnir
frá Bremen í Þýzkalandi með
viðkomu á Skotlandi, og er för-
inni heitið til Svalbarða og
Noregs.
—HE
Þorsteinn Pálsson
ritstjóri við Vísi
Þorsteinn Pálsson blaðamaður
hcfur verið ráðinn ritstjóri við
dagblaðið Visi. Tekur hann við
störfum frá og með deginum I
dag. Þorsteinn er 27 ára, lög-
fræðingur að mennt og hefur um
árabil starfað sem blaöamaður
við Morgunblaðið.
Þorstein Pálsson lauk
stúdentsprófi frá Verzlunar-
skóla tslands 1968 og embættis-
prófi i lögum frá Háskóla Is-
lands voriö 1974. Hann hóf störf
við Morgunblaöið i april 1970 og
vann þar með námi unz hann
var fastráðinn 1. júni 1974.
Eiginkona Þorsteins Pálsson-
ar er Ingibjörg Rafnar lög-
fræðingur við Búnaðarbanka ís-
lands. Þau eiga eina dóttur
barna.
Stjórn Reykjaprents hf. býður
Þorstein Pálsson velkominn til
starfa og væntir þess, að störf
hans verði blaðinu til heilla.
Nó má selja meira en
tveggja vikna ferðir
en yfirfœrslan er enn sú sama
Viðskiptaráðuneytið gjaldeyrisdeildar bank-
hefur hafnað tillögu anna um að auka
gjaldeyrisskammt til
ferðamanna þannig að
hann dugi til þriggja
vikna ferðar. Hins vegar
hefur ráðuneytið aflétt
banni þvi sem hvildi á
ferðaskrifstofunum um
að þær mættu ekki selja
i nema tveggja vikna
ferðir til sólarlanda.
Menn mega þvi kaupa sér lengri
ferðir ef þeir vilja, en verða hins
vegar að leita eitthvað annað en
til bankanna, ef þeir treysta sér
ekki til að lifa á þeim skammti
sem þeir nú fá af gjaldeyri. Það
sem þeir fá i hendurnar eru 60
sterlingspund.
Þótt þvi ráðuneytið hafi aflétt
tveggja vikna takmörkununum
þýöir það ekki, að strax veröi
byrjað á þriggja vikna ferðum.
Það hlýtur að fara nokkuð eftir
þvi hvernig mönnum gengur að
afla sér gjaldeyris á svarta mark
aðinum.
En það fer einnig eftir þvi,
hvernig ferðaskrifstofunum
gengur að útvega sér gistirými.
Vegna bannsins hafa þær auðvit-
að miðað slnar hótelpantanir við
tveggja vikna ferðir. Það er mjög
vafasamt aö þeim takist nú að ná
i aukið hótelrými, þar sem vand-
ræðaástand rikir viða á Spáni
vegna yfirbókana hótelanna. Það
litur þvi út fyrir að þær sitji uppi
með leyfi, sem engum kemur aö
gagni.
Fræðilega séð er ekkert lengur
þvi til fyrirstöðu, að feröaskrif-
stofurnar selji ferðamanni
þriggja vikna ferðir eða lengri, en
verða þá að taka þann viðbótar-
kostnað af yfirfærslu hans og
rýrnar þá annað ferðafé að sama
skapi. — ÓT
Þeir voru aö mála dýpkunarskipið Gretti I morgun, en brugðu sér I kaffi I góða veörinu og horföu á
ferðalangana af skemmtiferðaskipinu Atlas koma I land. Ljósm. Bragi.
1500 ó götunni
á Mallorca
Nú rikir nánast neyðar-
ástand i hótelmálum á
Mailorca. Fyrir nokkrum
dögum var þar t.d. þýzk
ferðaskrifstofa sem stóð uppi
með 1500 farþega á götunni.
Gat hvergi komið þeim i
húsaskjól.
Flest hótel hafa yfirbókað
gróflega, en ferðaskrif-
stofur, sem lenda i vand-
ræðum, eiga sumar sökina
að miklu leyti, þar sem þær
senda farþega sina upp á von
og óvon. íslenzku ferðaskrif-
stofurnar munu standa sig
nokkuð vel, enda allt löngu
fyrirframpantað hjá þeim.
—ÓT