Vísir - 24.07.1975, Blaðsíða 5
Visir. Fimmt
'5
UN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖNDi MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Umsjón: Guðmundur Pétursson
Veltu um bílum
00 grýttu Jög-
reglu Aþeninga
Nokkrir herflokkar
voru hafðir til taks við
öllu búnir i Aþenu i
morgun, og strangur
lögregluvörður var
hafður um allar opin-
berar byggingar eftir
götuóeirðir, sem þar
urðu i gær og leiddu til
meiðsla 100 manna og
rúmlega það.
Vopnuð lögregla gætti enn-
fremurallra erlendra sendiráða
i höfuðborginni en Grikkir
minnast þess I dag, að ár er lið-
ið, sfðan lýðræðið var endurreist
i Grikklandi eftir sjö ára ein-
ræðisstjórn hersins.
Seint i gærkvöldi voru flokkar
mötmælenda enn á stjái á göt-
um Aþenuborgar. En lögreglan
taldi sig þá hafa komið rö á.
Fyrr i gær höfðu 2000 bygg-
ingarverkamenn I verkfalli far-
ið i kröfugöngu til stuðnings
launakröfum sinum. Neit-
uðu þeir að dreifa sér, þegar lög
reglan gaf þeim fyrirmæli ium
það. — Kom þá til átaka milli
kylfuvopnaðra lögreglumánna,
sem einnig nutu stuðnings bryn-
varðra bifreiða með öflugar
vatnsdælur. Göngumenn réðust
að henni með grjótkasti og lurk-
um og varð lögreglan að gripa
til táragassins.
Atökin bitnuðu miskunnar-
laust á verzlunargluggum og
kyrrstæðum einkabilum og al-
menningsvögnum, sem göngu-
menn skeyttu skapi sinu á og
veltu um koll.
58 lögreglumenn þurftu að
láta gera að meiðslum,sem þeir
hlutu i götubardaganum og ann-
ar eins fjöldi göngumanna.
Myndin til hliðar var simsend
frá Áþenu í morgun, en hún var
tekin í gærkvöldi af átökum lög-
reglu og kröfugöngumanna.
Brynvörðum vögnum var beitt
gegn grýtandi óeirðarseggjum.
Úr útsýnisturni bflsins tii hægri
sést lögreglumaður skjóta tára-
gassprengju að óeirðarmönn-
um. Sorptunnum hefur verið
fleygt í götuna, eins og sjá má,
en einnig var kyrrstæðum bif-
reiðum velt um koll.
Indíra hefur alla
stjórnartaumana
Indira Gandhi for
sætisráðherra hefur nú
öll völd i sinum höndum
i Indlandi, eftir að báðar
deildir þingsins hafa
samþykkt neyðar-
ástandslög stjórnar
hennar. — Neðri deildin
samþykkti þau í gær
með 336 atkvæðum gegn
59, eins og menn höfðu
reyndar spáð.
Stjórnarandstöðuþingmenn i
báðum deildum hafa hótað að
sitja ekki þingfundi það sem eftir
er af þingtímanum til að mót-
mæla ritskoðunarákvæðum þess-
ara nýju laga, en þegar þau voru
sett til bráðabirgða 26. júnl, var
um leið lagður niður fyrir-
spurnartimi þingmanna.
Eftir að stjórnarandstaðan
hafði yfirgefið þingsali, var'af-
greitt frumvarp I neðri deildinni,
sem laut að stjórnskrárbreytingu
til að setja nýju neyðarástands-
ákvæðin ofar öðrum lögum.
Þannig að ekki gætí komið til
málarekstrar út af framkvæmd
þeirra.
Þetta frumvarp var samþykkt
með 342 atkvæðum gegn 1. —
Stjórnarandstæðingar voru jú
ekki nærri.
Sá eini, sem skarst úr leik I at-
kvæðagreiðslunni, var Shamim
Ahmed Shamim, þingmaður
óháðra frá Kashmir, en hann
sakaði stjórnina um að hafa lýst
yfir striði á hendur þjóðinni.
SPRENGING I FERJU
MEÐ 400 FARÞEGA
Siglingamálayfirvöld í
Frakklandi hófu i morg-
un rannsókn á ferju-
slysi, sem varð á Mið-
jarðarhafi i gær, þar
sem tólf manns (eftir
þvi sem enn er vitað)
létu lifið.
Á 5. hundrað manns voru um
borð I ferjunni „Venus des Isles
II", þegar sprenging varð I vélar-
rúmi. Ferjan var þá stödd 10 mil-
um undan landi. Eldur kom upp I
henni.
Af þeim, sem bjargað var frá
borði, voru 23 fluttir á sjUkrahús,
átta þeirra með alvarleg bruna-
sár.
Ofsahræðsla greip farþegana,
þegar sprengingin varð og eldur-
innbrauzt út. Margir stukku fyrir
borð.
Ekki er vitað með vissu enn,
hver margir voru um borð. Rum-
lega 400 var bjargað, en sam-
kvæmt öryggisreglum mátti
ferjan ekki flytja fleiri en 300.
Ætlaði fangavörður-
inn nð nauðga henni?
Joan Little (imiðju) á leið til réttarsalarins með lögfræðingi sinum og lifverði, en blökkumenn óttast, að
Ku Klux Klan vilji hana feiga.
Málaferii yfir blökku-
stúlku/ sem ákærð hefur
verið fyrir að verða
fangaverði sínum, hvít-
um manni, að bana, vekja
mikla athygli í Banda-
rikjunum þessa dagana.
Þeir, sem berjast fyrir
bættum mannréttindum
blökkufólks í Bandaríkj-
unum, og kvenréttinda-
fólk láta málið mjög til
sín taka.
Réttarhöldin fara fram I
Raleigh i Norður-Karólina, en
eru ekki lengra komin en svo, að
málflytjendur hafa rétt lokið við
að ryðja kviðdóminn. Kviðdóm-
endurnir tólf verða sjö hvitir
(ungt fólk)ogfimm blakkir
(aldraðir). Atta dómendanna
eru konur.
Blökkustúlkunni, Joan Little,
er gefið at sök að hafa valdið
bana fangaverði sinum I sýslu-
fangelsi Norður-Karólina, þeg-
ar hún flúði úr fangelsinu fyrir
nokkru. Var komið að fanga-
klefa hennar opnum og verðin-
um liggjandi látnum á gólfinu.
Fuglinn var þá horfinn úr búr-
inu.
En Joan Little gaf sig
skömmu siðar fram. Gaf hún þá
skýringu, að fangavörðurinn
hefði komið inn i klefann til
hennar, eftir að hafa um hrið
reynt að tæla hana til kynmaka
við sig. 1 þetta sinn ætlaði hann
að koma fram vilja sinum við
hana, sagði Little. Ber hún þvi
við, að hún hafi orðið honum að
bana i sjálfsvörn.
Máli hennar til nokkurs stuðn-
ings er sú staðreynd, að fanga-
vörðurinn var buxnalaus, þar
sem hann fannst látinn.
Sakborningurinn hefur hlotið
mikla samúð kynsystra sinna,
sem berjast fyrir rétti kvenna
til þess að verja heiður sinn. Um
leið hefur mannréttinda-
baráttufólk tekið málið upp sem
dæmigerðan átroðning hvitra á
blökkufólki.