Vísir - 24.07.1975, Blaðsíða 16
vism
Fimmtudagur 24. júli 1975.
GNA:
Náði í sjökan
manrí á
Hornströndum
Astralskur ferðamaður,
sem var I hópferð með
Ferðafélagi íslands á Horn-
ströndum, var i gær fluttur
meö þyrlu SVFÍ og land-
helgisgæzlunnar til Reykja-
vfkur vegna veikinda.
Barst hjálparbeiðni um
neyðartalstöð I skipbrots-
mannaskýli Slysavarna
félagsins i Höfn i Horn
vík.Náðist þannig samband
við ísafjarðarradió og
komust skilabobin til slysa-
varnafélagsins i Reykjavik.
Kannaðir voru möguleikar
á að flytja manninn með
skipi til Isafjarðar. Skipin
voru hins vegar of langt und-
an. Um klukkan hálf ellefu I
gærkvöldi fór svo þyrlan
GNA og náði i sjúklinginn.
Kom hún hingað kl. 5 i morg-
un með manninn undir
læknishendur.
Mikið öryggi er fyrir þá
hópa sem ferðast um þessar
slóðir að vita af neyðartal-
stöðvum i skýlum á þessu
svæði. Slysavarnafélagið
hefur i dag 10 skipbrots-
mannaskýli frá Sandeyri við
Djúp, norður Hornstrandir
allt i Furufjörð. 011 þessi
skýli eru búin heyðartal-
stöðvum. Þessar talstöðvar
eru þó alls ekki ætlaðar til
notkunar nema í' brýnustu
neyðartilfellum, enda á
alþjóðaneyðartíðninni.
—EA
Slapp með
skrekkinn
eftir að hafa hrapað
Slysavarnafélaginu barst
hjálparbeiðni innan úr
Eldgjá i fyrrakvöld. Var tal-
ið að alvarlegt slys hefði orð-
ið, þegar norskur ferðamað-
ur hrapaði og hlaut höfuð-
högg. Var beðið um þyrlu, og
sneri Slysavarnafélagið sér
til Landhelgisgæzlunnar.
Þyrla SVFÍ og Landhelgis-
gæzlunnar fór siðan á vett-
vang til þess að ná i mann-
inn. Var komið með ferðá-
langinn til Reykjavikur. Við
nánari athugun reyndist
hann ekki alvarlega slasað-
ur, og má segja að hann hafi
sloppið með skrekkinn.
—EA.
Kastaðist af
mótorhjóli
ó tvo bíla
17 ára piltur slasaðist mikið á
Akureyri i gærkvöldi. Hann
kastaðist af mótorhjóli á tvo bila,
sem voru báðir á ferð.
Slysið átti sér stað rétt eftir
klukkan niu i gærkvöldi. Pilturinn
kom á hjólinu eftir Hrafnagils-
stræti.
Hann ók á eftir bfl, en við svo-
kallaða Austurbyggð hugðist bill-
inn beygja og gaf stefnuljós.
Hægði hann á sér, er hann mætti
öðrum bll. Kveðst ökumaður
fyrrnefnda bílsins ekki hafa orðið
piltsins var fyrr en hann heyrði
högg.
Hafði þá pilturinn kastazt af
hjólinu á bílinn, sem hugðist
beygja og þaðan á bilinn, sem
kom á móti.
Var pilturinn fluttur á sjúkra-
húsið á Akureyri, talinn mikið
slasaður. Sjúkrahúsið vildi i
morgun engar upplýsingar gefa
um liöan piltsins. —EA
Tiitöiuiega lítið sem þarí
til stereoútsendingar
— sendirinn á Vaðlaheiði tilbó'mn — gœtu þó fíðið nokkrír mánuðir frá ákvörðun
„Sendirinn hér I Reykjavlk er
nú orðinn um 20 ára gamall, og
hann var ekki keyptur með
stereobúnaði á slnum tlma,
enda þekktist það ekki þá. Og til
þess að hægt sé að senda út I
stereo þarf að kaupa smá stykki
I viðbót. En mér er ekki ljóst I
augnablikinu hvað það tekur
langan tlma að fá það núna, en
það gæti hugsanlega tekið
nokkra mánuði".
Þetta sagði Gústav Arnar
deildarverkfræðingur hjá Pósti
og slma > þegar við höfðum sam-
band við hann. Sumir hafa hald-
ið þvi fram, að ef tekin væri
ákvörðun um það I kaffinu I dag
að senda út I stereo, væri það
framkvæmanlegt um kvöldmat.
„Það er nú ekki alveg rétt,"
sagði Gústav. „Að vlsu erum við
með einn sendi fyrir norðan, á
Vaðlaheiði, sem þjónar Akur-
eyri og nágrenni, sem er alveg
tilbúinn til að senda út I stereo.
Það gæti hann gert um kvöld-
mat, ef það væri ákveðið um
kaffileytið. En hérna I Reykja-
vlk og á öðrum stöðum gengur
það ekki eins fljótt fyrir sig."
Gústav bætti þvi við að út-
varpið hefði ekki nema eitthvað
litið af tækjum til slikra útsend-
inga, til dæmis plötuspilara.
„Þannig að hugsanlega gætu
þeir þurft að skaffa sér eitthvað
af tækjum Hka."
„En þetta er i rauninni minni
háttar hlutur sem til þarf.
Þannig að það væri ekki mikill
tilkostnaður, en gæti tekið ein-
hvern tima," bætti Gústav við.
Gústav kvaðst búast við að
tekið væri upp I stereo I útvarp-
inu, en sagðist þó ekki vita hvort
það væri ófrávíkjanleg regla.
En frá þvi að tekin væri
ákvörðun um stereoútsendingar
gætu liðið nokkrir mánuðir þar
til hægt væri að framkvæma
það, þó að ekki sé mikið sem til
þarf. Ákvörðunin hefur bara
ekki verið tekin enn.
— EA
Ferðalangar frá ýmsum stöðum heims fá inni í Farfuglaheimilinu í Eyjum, og þar er oftast fullt. Lík-
lega vilja þeir lika fæstir fara heim án þess að sjá gosstöðvarnar með eigin augum. Ljósm. G.Sigf.
„ER ÓHÆTT AÐ LABBA
UPP Á ELDFJALLIÐ?"
— er ein algengasta spurning útlendra ferðamanna
Það hefur verið Hflegt I far-
fuglaheimilinu I Eyjum slðan
það tók til starfa. Farfugla-
heimili hefur ekki verið I Eyjum
áður, en það veitir svo sannar-
lega ekki af slikri stofnun nú.
Aðsókn ferðamanna til Eyja
er geysilega mikil, og liklega
vilja þeir fæstir kveðja landið
án þess að koma við á þessum
furðu slóðum.
„Er óhætt að labba upp á eld-
fjallið?". „Eróhætt að ganga Ut
á hraunið?". „Ertu ekkert
hræddur um að það gjósi hér
aftur?". Slikar og fleirif
spurningar fær forstöðumaður
Farfuglaheimilisins frá gestun-
um.
Farfuglaheimilið tók til starfa
1. júlL Það tekur um 30 manns.
Oft hleypur það undir bagga,
þegar ófært verður frá Eyjum,
og hýsir farþegá sem höfðu ætl-
að þaðan með flugi.
Eingöngu er um að ræða
svefnpokapláss, en ef einhver
skyldi ekki hafa sllkan með sér,
þá Lána skátarnir þeim sængur
og annað tilheyrandi. Það eru
nefnilega skátarnir I Eyjum
sem reka heimilið, og það
stendur við Höfðaveg. — EA
Vélarbilun og
af tur vélarbilun
Það gekk ekki beinlinis gæfu-
lega hjá vélbátnum Finnboga
Lárussyni GK 500 á þriðjudags-
kvöld. Tilkynningaskyldunni
barst sú tilkynning að hann væri
með bilaða vél i Faxaflóa. Var
fenginn nærstaddur bátur til þess
að fara með Finnboga til Kefla-
víkur.
Þegar bráðabirgðaviðgerð var
lokið þar, lagði Finnbogi af stað I
gær. Þegar hann var kominn
áleiðis til Reykjavlkur hrökk allt
úr sambandi út af Straumsvlk.
I þeirri norðanátt, sem þar var i
gær, bar hann ótt upp að landi og
vestur með ströndinni. Tilkynn-
ingaskyldan fékkþá hafnarbátinn
Þrótt úr Hafnarfirði til þess að
fara eftirhonum. Fylgdi hann svo
Finnboga eftir. Vélin komst i
gang og Finnbogi hélt til Reykja-
vfkur.
Stöðvaðist hann reyndar einu
sinni á leibinni og bað um aðstoð.
Það blessaðist þó og hann komst
til Reykjavikur I gærkvöldi —EA
Neyðarkall
— en enginn vissi
hver báturinn var
Varðskip fyrir Austfjörðum
heyrði neyðarkall frá báti við
Langanes I fyrrinótt um klukkan
hálftvö. Atti báturinn I erfiðleik-
um og bað um aðstoð. Ekki var
vitað I fyistu, hvaða bátur þetta
var. Var reynt að ná sambandi
við hann, en tókst það ekki.
Loftskeytastöðin á Raufarhöfn
náði svo loks sambandi við bát-
inn. Var það 12 tonna bátur,
Kristinn ÞH 173 frá Raufarhöfn,
sem var skammt undan Skálum á
Langanesi, með bilaða vél. Á
þessum slóðum voru þá 6 vindstig
og slæmt skyggni. Um þetta leyti
kom færeyskur bátur til hans og
kom honum I var. — EA
Hrmgveg»rinn .p.nn . ný HLAUPIÐ I KOLGRIMU BUIÐ
„Það var allt fært um fimm-
leytið I gær. Hlaupið I Kolgrimu
var ekki eins mikið og I fyrra, en
það er árvisst," sagði Jón Glsla-
son, bóndi á Skálafelli I Suður-
sveit, er Visir rabbaði við hann I
morgun.
Hann sagði að það hefðu verið
15-20 bílar austan við ána og ann-
að eins vestan við hana, og hafði
fólk ekki önnur ráð en tjalda og
blða eftir að vegurinn opnaðist á
ný, en hann var lokaður vegna
hlaupsins I um sólarhring.
1 gær og gærkvöldi var mikið
hvassviðri á Mýrdalssandi svo að
menn voru varaðir við að leggja
út á sandinn I bilum sinum. Það
átti þvl ekki af ferðalöngum að
ganga, sem komu vestur yfir
Kolgrlmu I gær. Veðrið hefur nú
gengið niður á Mýrdalssandi og
er nú hringvegurinn fær.
Uxahryggjaleið varð ófær
vegna sandfoks viö Sandklufta-
vatn, en vefður sennilega lagfærð
i dag. Þá hljóp aurskriða yfir
veginn i Njarðvíkurskriðum og
lokaði honum til I Borgarfjarðar
eystri. Vonir standa til að vegur-
inn opnist I dag.
— EVI.
Hundabannið:
MANNRÉTTINDANEFNDIN TÓK EKKI AFSTÖÐU
— en ríkisstjórnin verður að rökstyðja lagalega sín sjónarmið og annað
„Hundabannið I Reykjavlk
var tekið fyrir á júll-fundi
mannréttindanefndar Evrópu
og var ekki vlsað frá, heldur
samþykkt að fá umsögn
Islenzku rikisstjórnarinnar um
maiið.
Þetta sagði Gaukur Jörunds-
son fulltrúi Islands I mannrétt-
indanefndinni, er Vlsir ræddi
við hann i gær. Hann sagði jafn-
framt, að nefnin hefði ekki tekið
neina afstöðu til þess, hvort
hundabannið væri brot á mann-
réttindum eða ekki.
„t slikri umsögn" hélt Gaukur
áfram máli slnu, „er ætlazt til
að komi fram afstaða rlkis-
stiórnarinnar til þess, hvort
hún telji skilyrði til þess að mál
ið fari til frekari meðferðar hjá
nefndinni. í þvi felst auðvitað að
rikisstjórnin verður bæði að
rökstyðja lagalega sín sjónar-
mið og annað og upplýsa atriði,
sem máli skipta."
Yfir 90% mála er strax hafnað
1 mannréttindanefndinni. Jakob
Jónasson, formaður Hundvina-
félagsins, sagði, að þeir I
félaginu hefðu einmitt viljað
vekja athygli á þeirri stað-
reynd.
Gaukur taldi ekki óliklegt, að
rlkisstjórnin þyrfti að skila um-
sögn um málið fyrir lok ágúst-
mánaðar. Næsti reglulegi fund-
ur hjá mannréttindanefndinni
verður I lok september eða I
byrjun október. Það er ekki
ósenríilegt, að þá verði málið
tekið fyrir. —EVI.