Vísir - 24.07.1975, Blaðsíða 16
vísir
Fimmtudagur 24. júll 1975.
GNA:
Náði í sjúkan
manrt á
Hornströndum
Ástralskur feröamaður,
sem var i hópferð með
Ferðafélagi tslands á Horn-
ströndum, var i gær fluttur
með þyrlu SVFÍ og land-
helgisgæzlunnar til Reykja-
vikur vegna veikinda.
Barst hjálparbeiðni um
neyðartalstöð i skipbrots-
mannaskýli Slysavarna
félagsins i Höfn i Horn
vik.Náðist þannig samband
við ísafjarðarradió og
komust skilaboðin til slysa-
varnafélagsins i Reykjavik.
Kannaðir voru möguleikar
á að flytja manninn með
skipi til Isafjarðar. Skipin
voru hins vegar of langt und-
an. Um klukkan hálf ellefu i
gærkvöldi fór svo þyrlan
GNA og náði i sjúklinginn.
Kom hún hingað kl. 5 i morg-
un með manninn undir
læknishendur.
Mikið öryggi er fyrir þá
hópa sem ferðast um þessar
slóðir að vita af neyðartal-
stöðvum i skýlum á þessu
svæði. Slysavarnafélagið
hefur i dag 10 skipbrots-
mannaskýli frá Sandeyri við
Djúp, norður Hornstrandir
allt i Furufjörð. öll þessi
skýii eru búin neyðartal-
stöðvum. Þessar talstöðvar
eru þó alls ekki ætlaðar til
notkunar nema i' brýnustu
neyðartilfellum, enda á
alþjóðaneyðartiðninni.
—EA
Slapp með
skrekkinn
eftir að hafa hrapað
Slysavarnafélaginu barst
hjáíparbeiðni innan úr
Eldgjá I fyrrakvöld. Var tal-
ið að alvarlegt slys hefði orð-
ið, þegar norskur ferðamað-
ur hrapaði og hlaut höfuð-
högg. Var beðið um þyrlu, og
sneri Slysavarnafélagið sér
til Landhelgisgæ7.1unnar.
Þyrla SVFÍ og Landhelgis-
gæzlunnar fór siðan á vett-
vang til þess að ná i mann-
inn. Var komið með ferðá-
langinn til Reykjavikur. Við
nánari athugun reyndist
hann ekki alvarlega slasað-
ur, og má segja að hann hafi
sloppið með skrekkinn.
—EA.
Kastaðist af
mótorhjóli
á tvo bíla
17 ára piltur siasaðist mikið á
Akureyri i gærkvöldi. Hann
kastaðist af mótorhjóli á tvo bila,
sem voru báðir á ferð.
Slysið átti sér stað rétt eítir
klukkan niu i gærkvöldi. Pilturinn
kom á hjólinu eftir Hrafnagils-
stræti.
Hann ók á eftir bll, en við svo-
kallaða Austurbyggð hugðist bill-
inn beygja og gaf stefnuljós.
Hægði hann á sér, er hann mætti
öðrum bll. Kveðst ökumaður
fyrrnefnda bllsins ekki hafa orðið
piltsins var fyrr en hann heyrði
högg.
Hafði þá pilturinn kastazt af
hjólinu á bílinn, sem hugðist
beygja og þaðan á bilinn, sem
kom á móti.
Var pilturinn fluttur á sjúkra-
húsið á Akureyri, talinn mikið
slasaður. Sjúkrahúsið vildi i
morgun engar upplýsingar gefa
um liðan piltsins. —EA
Tiltölulega lítið sem þarf
til stereoútsendingar
— sendirinn á Vaðlaheiði tilbúinn — gœtu þó liðið nokkrir mánuðir frá ákvörðun
„Sendirinn hér I Reykjavik er
nú orðinn um 20 ára gamaii, og
hann var ekki keyptur með
stereobúnaði á slnum tlma,
enda þekktist það ekki þá. Og til
þess að hægt sé að senda út i
stereo þarf að kaupa smá stykki
I viðbót. En mér er ekki ljóst I
augnahlikinu hvað það tekur
langan tima að fá það núna, en
það gæti hugsanlega tekið
nokkra mánuði”.
Þetta sagði Gústav Arnar
deildarverkfræðingur hjá Pósti
og slma > þegar við höfðum sam-
band við hann. Sumir hafa hald-
ið þvi fram, að ef tekin væri
ákvörðun um það I kaffinu i dag
að senda út i stereo, væri það
framkvæmanlegt um kvöldmat.
„Það er nú ekki alveg rétt,”
sagði Gústav. „Að visu erum við
með einn sendi fyrir norðan, á
Vaðlaheiði, sem þjónar Akur-
eyri og nágrenni, sem er alveg
tilbúinn til að senda út I stereo.
Það gæti hann gert um kvöld-
mat, ef það væri ákveðið um
kaffileytið. En hérna I Reykja-
vík og á öðrum stöðum gengur
það ekki eins fljött fyrir sig.”
Gústav bætti þvi við að út-
varpið hefði ekki nema eitthvað
litið af tækjum til slíkra útsend-
inga, til dæmis plötuspilara.
„Þannig að hugsanlega gætu
þeir þurft að skaffa sér eitthvað
af tækjum lika.”
„En þetta er i rauninni minni
háttar hlutur sem til þarf.
Þannig að það væri ekki mikill
Ferðalangar frá ýmsum stöðum heims fá inni I Farfugiaheimilinu I Eyjum, og þar er oftast fullt. Lík-
lega vilja þeir lika fæstir fara heim án þess að sjá gosstöðvarnar meö eigin augum. Ljósm. G.Sigf.
„ER ÓHÆTT AÐ LABBA
UPP A ELDFJALLIÐ?"
— er ein algengasta spurning útlendra ferðamanna
Það hefur verið liflegt i far-
fuglaheimiiinu i Eyjum slðan
það tók til starfa. Farfugla-
heimili hefur ekki verið i Eyjum
áður, en það veitir svo sannar-
lega ekki af slikri stofnun nú.
Aðsókn ferðamanna til Eyja
er geysilega mikil, og liklega
vilja þeir fæstir kveðja landið
án þess að koma við á þessum
furðu slóðum.
„Eróhætt að labba upp á eld-
fjallið?„Eróhætt að ganga út
á hraunið?”. „Ertu ekkert
hræddur um að það gjósi hér
aftur?”. Slikar og fleirir
spumingar fær forstöðumaður
Farfuglaheimilisins frá gestun-
um.
Farfuglaheimilið tók til starfa
1. júli. Það tekur um 30 manns.
Oft hleypur það undir bagga,
þegar ófært verður frá Eyjum,
og hýsir farþegá sem höfðu ætl-
að þaðan með flugi.
Eingöngu er um að ræða
svefnpokapláss, en ef einhver
skyldi ekki hafa slikan með sér,
þá lána skátarnir þeim sængur
og annað tilheyrandi. Það eru
nefnilega skátarnir I Eyjum
sem reka heimilið, og það
stendur við Höfðaveg. — EA
tilkostnaður, en gæti tekið ein-
hvern tima,” bætti Gústav við.
Gústav kvaðst búast við að
tekið væri upp I stereo I útvarp-
inu, en sagðist þó ekki vita hvort
það væri ófrávlkjanleg regla.
En frá þvi að tekin væri
ákvörðun um stereoútsendingar
gætu liðið nokkrir mánuðir þar
til hægt væri að framkvæma
það, þó að ekki sé mikið sem til
þarf. Ákvörðunin hefur bara
ekki verið tekin enn.
— EA
Vélarbilun og
aftur vélarbilun
Það gekk ekki beinlinis gæfu-
lega hjá vélbátnum Finnboga
Lárussyni GK 500 á þriðjudags-
kvöld. Tilkynningaskyldunní
barst sú tilkynning að hann væri
með bilaða vél I Faxaflóa. Var
fenginn nærstaddur bátur til þess
að fara með Finnboga til Kefla-
víkur.
Þegar bráðabirgðaviðgerð var
lokið þar, lagði Finnbogi af stað i
gær. Þegar hann var kominn
áleiðis til Reykjavlkur hrökk allt
úr sambandi út af Straumsvik.
í þeirri norðanátt, sem þar var i
gær, bar hann ótt upp að landi og
vestur með ströndinni. Tilkynn-
ingaskyldan fékk þá hafnarbátinn
Þrótt úr Hafnarfirði til þess að
fara eftirhonum. Fylgdi hann svo
Finnboga eftir. Vélin komst i
gang og Finnbogi hélt til Reykja-
vlkur.
Stöðvaðist hann reyndar einu
sinni á leiðinni og bað um aðstoð.
Það blessaðist þó og hann komst
til Reykjavikur I gærkvöldi— EA
Neyðarkall
— en enginn vissi
hver báturinn var
Varðskip fyrir Austfjörðum
heyrði neyðarkall frá báti við
Langanes i fyrrinótt um klukkan
hálftvö. Átti báturinn i erfiðleik-
um og bað um aðstoð. Ekki var
vitað I fyrstu, hvaða bátur þetta
var. Var reynt að ná sambandi
við hann, en tókst það ekki.
Loftskeytastöðin á Raufarhöfn
náði svo loks sambandi við bát-
inn. Var það 12 tonna bátur,
Kristinn ÞH 173 frá Raufarhöfn,
sem var skammt undan Skálum á
Langanesi, með bilaða vél. A
þessum slóðum voru þá 6 vindstig
og slæmt skyggni. Um þetta leyti
kom færeyskur bátur til hans og
kom honum I var. — EA
Hringvegurinn opinn á ný HLAUPIÐ I KOLGRIMU BUIÐ
„Það var allt fært um fimm-
leytið i gær. Hlaupið i Koigrimu
var ckki eins mikið og i fyrra, en
það er árvisst,” sagði Jón Gisla-
son, bóndi á Skálafelii i Suður-
sveit, er Visir rabbaði við hann I
morgun.
Hann sagði að það hefðu verið
15-20 bilar austan við ána og ann-
að eins vestan við hana, og hafði
fólk ekki önnur ráð en tjalda og
biða eftir að vegurinn opnaðist á
ný, en hann var lokaður vegna
hlaupsins I um sólarhring.
1 gaér og gærkvöldi var mikið
hvassviðri á Mýrdalssandi svo að
menn voru varaðir við að leggja
út á sandinn I bílum sinum. Það
átti þvi ekki af ferðalöngum að
ganga, sem komu vestur yfir
Kolgrimu I gær. Veðrið hefur nú
gengið niður á Mýrdalssandi og
er nú hringvegurinn fær.
Uxahryggjaleið varð ófær
vegna sandfoks við Sandklufta-
vatn, en verður sennilega lagfærð
i dag. Þá hljóp aurskriða yfir
veginn i Njarðvlkurskriðum og
lokaði honum til I Borgarfjarðar
eystri. Vonir standa til að vegur-
inn opnist I dag.
— EVI.
Hundabannið:
MANNRÉTTINDANEFNDIN TÓK EKKI AFSTÖÐU
— en ríkisstjórnin verður að rökstyðja lagalega sín sjónarmið og annað
„Hundabannið i Reykjavik
var tekið fyrir á júli-fundi
mannréttindanefndar Evrópu
og var ekki visað frá, heldur
samþykkt að fá umsögn
islenzku rikisstjórnarinnar um
málið.
Þetta sagði Gaukur Jörunds-
son fulltrúi Islands I mannrétt-
indanefndinni, er Visir ræddi
við hann i gær. Hann sagði jafn-
framt, að nefnin hefði ekki tekið
neina afstöðu til þess, hvort
hundabannið væri brot á mann-
réttindum eða ekki.
„1 sllkri umsögn” hélt Gaukur
áfram máli sinu, „er ætlazt til
að komi fram afstaða rikis-
stjórnarinnar til þess, hvort
hún telji skilyrði til þess að mál
ið fari til frekari meðferðar hjá
nefndinni. 1 þvi felst auðvitað að
rikisstjórnin verður bæði að
rökstyðja lagalega sin sjónar-
mið og annað og upplýsa atriði,
sem máli skipta.”
Yfir 90% mála er strax hafnað
I mannréttindanefndinni. Jakob
Jónasson, formaður Hundvina-
félagsins, sagði, að þeir I
félaginu hefðu einmitt viljað
vekja athygli á þeirri stað-
reynd.
Gaukur taldi ekki óliklegt, að
rikisstjórnin þyrfti að skila um-
sögn um málið fyrir lok ágúst-
mánaðar. Næsti reglulegi fund-
ur hjá mannréttindanefndinni
verður i lok september eða I
byrjun október. Það er ekki
ósennilegt, að þá verði málið
tekið fyrir. —EVI