Tíminn - 02.09.1966, Page 8

Tíminn - 02.09.1966, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 2. september 1!,'Ö6 N««lij.... liliiiiilllHi Merki iðnsýningarinnar og sýningarhöllin, Tímamynd Bjarnleifor. Málmiðnaðar- og flutninga- tækjadagur á Iðnsýningunni Fjórtán eru liðin síðan lands- mönnum gafst síðast kostur á að sjá, hvers íslenzkur iðnaður er megnugur. Sýningin, sem hald in var í hinu nýja húsi Iðn skólans, sýndi á ánægjulegan hátt, hversu fjölþættur iðnaður okk ar var þá orðinn. Þegar komið er að hinni nýju, ekki ennþá fullgerðu, en þó glæsi legu sýningar- og íþróttahöll, blas ir við manni ísklumpur Héðins á háum undirstöðum, sem rísa upp úr fögrum blómahring. Blóm- skrúðið og ísklumpurinn eru slá andi andstæður og getraunin í s.'imbandi við ísklumpinn skemmti legt frávik frá hversdagsleikanum. Þegar inn úr anddyri hússins kem ur, er komið inn í innri forsal þar, sem deild málmiðnaðarins og flutningatækja er til húsa, en um þessa deild vil ég fara nokkr- um orðum. Málmiðnaðurinn náði snemma nokkrum þroska, þó að framfar ir hafi orðið í stórum stökkum síðustu áratugina — fleiri og fleiri greinar málmiðnaðarins hafa haslað sér völl og framleiðsl an verður sífellt fjölþættari. Iðnsýningin 1966 á að sýna okkur, hvar íslenzkur iðnaður stendur í dag. Þegar gengið er um deild þessa, verður ekki hjá því komizt að veita athygli hversu langmestur, hlutur blikksmiðjanna er, af 19 fyrirtækjum, sem þátt taka í þess ari deild, sýningarinnar, eru 7 blikksmiðjur. Ætla mætti, að fram leiðsla fyrirtækja þessar væri hver annarri svipuð, enda ber tölu vert á því, að svo sé. Segja má þó, að hér sé utn furðu fjölþætta framleiðslu að ræða, og að hver smiðja hafi sérhæft íig, hver á sínu sviði. Breiðfjörðs-blikksmiðja sýnir, mjög fjölbreytta framleiðslu. Vil ég þar fyrst nefna steinsteypu- mótin, — hin svokölluðu tengi mót, sem um skeið hafa verið allmikið notuð hér á landi, og gefizt vel Er hér um mjög hug- vitsamlega, en þó einfalda gerð steypumóta að ræða, sem vissu lega verðskuldar, að henni sé veitt athygli. Þá sýnir smiðja þessi allfjölbreytta framleiðslu bús áhalda, og ber þar að nefna mjólk ursuðupotta, sem þannig eru gerð ir, að ekki getur soðið upp úr þeim, og losa því húsmæðurnar við að hafa stöðugt vakandi auga með því, hvenær suðan kemur upp svo að ekki sjóði upp úr. Glófaxi h.f. sýnir „ThermobIoc“ lofthitara, og lofthitunarkerfi mjög laglega framleiðslu. Teikn ingaskápur, sem smiðja þessi fram leiðir, eru einnig mjög álitlegir. Blikk og Stál h.f. sýnir loft- hitunar- og loftræstikerfi, en slík hitunarkerfi ryðja sér nú mjög til rúms, og þykja gefa þægi- legan hita. Dósavcrksmiðjan h.f. sýnir fjöl margar tegundir blikkumbúða og er framleiðsla hennar ótrúlega fjölþætt. Blikksmiðjan Vogar li. f. sýnir lofthitunarkerfi með öllum bún aði og teikningaskáp af einkar hentugri gerð, auk ýmis konar ann arrar framleiðslu úr koparplötum og blikki. J. B. Pétursson s.f. sýnir blikk smiðavörur til bygginga og eru þar mest áberandi tengi-, rofa- og loftdósir, og varkassar fyrir raf lagnir. Þá sýnir smiðjan fata- skápa fyrir starfsmenn iðnfyrir- tækja. Virðist framleiðsla smiðj unnar vera állfjölþætt. Blikksmiðjan Sörli s.í. sýnir ýmsar vörur til húsabygginga, svo sem þakglugga, rennur, loftrásir og sorprör auk hita og loftræsti kerfis. Er því framleiðsla þriggja blikk- smiðja nokkuð svipuð. Að frágengnum blikksmiðjun um tel ég rétt að minnast á fjögur fyrirtæki, sem einungis sýna vör- ur framleiddar úr plötum. Þórður Runólfsson Tækni h.f. sýnir miðstöðvarkatla lofthitara og vatnshitara fyrir miðstöðvarkerfi. Fyrirtæki þetta hefur starfað um allmörg ár og er framleiðsla þess mjög þokka leg. Runtal — ofnar h.f. er nýtt fyrir tæki, sem einungis framleiðir mið stöðvarofna úr stáli og sýnir vmis framleiðslustig þeirra. Ofnar þess ir eru framleiddir eftir svissneskri fyrirmynd, sem hefur þótt skila góðri nýtni, en ofnarnir eru auk þess laglegir og fyrirferðarlitlir miðað við hitaflöt. Ofnasmiðjan h.f. er hér gamalt og þekkt fyrirtæki, sem hin síðari ár hefur mjög fært úr kvíarnir og sýnir hina gamalkunnu helluofna og hina svokölluðu „Eiral“-ofna, stálvaska, þvottapott og mismun andi gerðir af hillum, auk ýmissa smáhluta úr ryðfríu stáli, allt mjög þokkalega framleiðslu. Vélsmiðja Sigurðar Einarsson ar, sýnir miðstöðvarkatla, sem hún hefur framleitt um meira en tveggja ára skeið, mjög þokka lega framleiðslu. Egill Vilhjálmsson h.f. sýnir yfirbyggingu bifreiðar, ýmsa smá hluti til bifreiða, sem fyrirtækið framleiðir og gefur með myndum upplýsingar um ýmsa þjónustu, sem fyrirtækið veitir í sambandi við bifreiðir og viðhald þeirra. Fyrirtæki svipaðs eðlis er Þ. Jónsson & Co, sem sýnir sundur- skorinn hreyfil í gangi og slípun strokka og sveifaráss í hreyfli. Sólarhúsgögn tel ég vafasamt að eigi heima í þessari deíld að vísu framleiðir fyrirtækið ýmsar gerðir stálhúsgagna og sýnir þau, en stál ið er svo lítill hluti í framleiðsl unni, að ég tel hana naumast geta kallað málmiðnað. Fyrirtækinu hefur tekizt að setja einkar hlýlegan blæ á fram leiðslu sína og er hún mjög við felldin. Málmsmiðjan Hella h.f sýnir mjög fjölbreytt úrval steyptra hluta. Er hér um steypu úr ýms um málmum að ræða, sem gefur ótvírætt til kynna, að fyrirtækið hefur náð langt í þessari sér- grein málmiðnaðarins. Kem ég þá loks að hinum eigin legu vélsmiðjum. Ber þar fyrst að nefna Héðin h.f., sem mestan svip setur á sýningardeildina. Sýnir fyr irtækið frystivélar, loka fyrir frystikerfi, ísgerðarvél. plötur úr aluminíum i hraðfrystitæki, tvær gerðir af dælum af ýmsum stærð um og tvær gerðir af vökvaþrýsti vindum, mjög fjölþætta vélafram leiðslu, sem gefur góða hugmynd um hvérsu langt við erum komn ir á því sviði. Er hér um fjölþætta og fallega framleiðslu að ræða, sem er fyrirtækinu og sýningunni til sóma. Vélsmiðja Njarðvíkur sýnir einn flutningasnigil og má ætla, að síð ara nafn deildarinnar dragi nafn af honum og bifreið Egils Vil- hjálmssonar. Vélaverkstæði Jóhanns Ólafs, sýnir mjög vel hugsaað og út- færða þrýstilofts'knúða límingar- pressi* Er pressa þessi þannig gerð, að hún gefur mjög marg- breytilega notkunarmöguleika og er mjög þokkalega útfærð. Þá sýn ir fyrirtækið laglega gerða gálgablökk. Landssmiðjan sýnir tvö steypt blásarahjól og forhitara. Forhitar inn lagleg framleiðsla. Þegar á heildina er litið, ma segja, að svipur deildarinnar sé fyrst og fremst svipur blikk- smiðasýningar og þeim til sóma. Vélsmiðjurnar sýna allmarg- ar Ijósmyndir af framleiðslu sinni, sem gefa góða hugmynd um fram leiðslugetu þeirra og hversu fjöl þætt framleiðslan er, en slíkt tel ég að frekar ætti heima á Ijós- myndasýningu en iðnsýningu, sem á að sýna, hvar við stöndum á sviði málmiðnaðar. Margur vildi ef til vill segja, að framleiðslan sé svo stór í sniðum, að henni verði naumast komið fyrir á slíkri sýn ingu, en enginn vandi er að koma fyrir einstökum vélahlutum, sern hugmynd gæfu um handbragðið Heildarsvipur sýningarinnar virð istmér geðþekkur, laus við allt prjál og tilclur en sýningln bej p*S með sér, að sýnendur líta fyrst og fremst á hana sem kaupstefnu en ekki iðnsýningu- Þórður Runólfsson.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.