Tíminn - 02.09.1966, Page 14

Tíminn - 02.09.1966, Page 14
i 14 TÍMINN FÖSTUDAGUR 2. september 196S Eldsmíði sýnd á Iðnsýningunni Reykjavík, fimmtudag. Á Iðnsýningunni 1966 verður hinum ýmsu iðngreinum helgaður sérstakur dagur til að vekja at- hygli á viðkomandi iðngreinum. Dagurinn í dag er helgaður málm iðnaðinum. í því sambandi verð- ur eldsmiðju komið fyrir við aust urvegg sýningarhallarinnar, þar sem eldsmiðir munu starfa allan daginn og smíða m.a. skeifur á sama hátt og gert var á íslandi um aldaraðir. Gamaldags afli (eld- stæði) með fýsibelg verður komið fyrir þannig að sýningargestir geti fylgzt með eldsmíðinni út um glugga en gert er ráð fyrir að fjarlægja rúðuna á meðan. U THANT ' Framhald af bls. 1. í bréfi sínu, sem er 1500 orð gerir U Thant ítarlega grein fyr ir friðarhorfunum í heiminum og segir að þótt á ýmsu hafi gengið þá 18 mánuði, sem hann hafi ver ið framkvæmdastjóri, sé ástandið nú alvarlegra en nokkru sinni. Hins vegar lýsir hann yfir óbil andi trú sinni á mætti S.þ. og tak marki samtakanna, sem muni uást en til þess þurfi þjóðir heims enn að styrkja starfsemi þeirra, því samtökin séu það afl, sem ómiss andi sé, eigi friður og eindrægni að ríkja í samskiptum þjóða. Haft er eftir áreiðanlegum heim ildum í kvöld, að öryggisráð S.þ. muni einhvern næstu daga halda lokaðan fund og ræða um vænt anlegan eftirmann, en áður muni fulltrúarnir ræðast óformlega við. U Thant mun ekki verða i aðal stöðvum S.þ. þar til á þriðjudag og mun ekki verða látið uppi hvar hann dvelst þann tíma. Arthur Goldberg, formaður sendinefndar Bandaríkjanna hjá S.þ. gaf í dag út formlega yfirlýs ingu fyrir hönd stjórnar sinnar, þar sem hún hvetur U Thant til að endurskoða afsögn sína og gegna stöðunni áfram. Haft er eftir sendifulltrúum og stjórnmálafréttariturum í Moskvu, að stjórnin þar muni styðja sér- hverja viðleitni í þá átt að fá U Thant til að halda áfram störfum. Stjórnir Noregs og Danmerkur láta þá von í ljós, að ákvörðun U Thants sé ekki endanleg og hann muni draga afsögn sína til baka og í sama streng taka stjórn málamenn annarra þjóða. U Thant er fyrrverandi kennari og búddatrúanmaður, og tók víð störfum framkvæmdastjóra S.þ. af Dag Hammarskjöld, sem fórst í flugslysi árið 1961. U Thant er fæddur í janúar árið 1909 í bæn um Pantanaw í Burma. Hann var skólastjóri æðri skóla bæjarins til 1947 að hann gerðist yfirmaður upplýsingaskrifstofu stjórnarinnar og varð síðan sérstakur ráðgjafi margra ráðherra. Hann varð sendi herra við S.þ. árið 1952. BISKUPSVÍGSLA Framhald at bls. 2. björn Sveinbjörnsson, Hruna. Skálholtskórinn syngur undir stjórn Guðjóns Guðjónssonar, stud theol. Forseti íslands, herra Ásgeir Ás geirsson, verður viðstaddur vígsl- una, svo og kirkjumálaráðherra, hr. Jóhann Hafstein. Herra Jóhannes Gunnarsson, Hólabiskup, hefur þegið boð bisk- ups íslands að vera viðstaddur vígsluna og verður staðgengill hans, síra Alfons Mortens, með honum við athöfnina. Að vígslu lokinni prédikar hinn nývígði vígslubiskup og síðan verð ur almenn altariganga. Um kvöldið hefur kirkjumála- ráðherra og frú hans boð inni á Hótel Selfoss fyrir vígsluþega og fjölskyldu hans og aðra boðs- gesti. SKRUM EITT . .. Framhald af bls. 2. fyrirtækja og starfsemi margra iðnfyrirtækja er í'fullkominni úlfa kreppu vegna rekstrarfjárskorts — jafnvel hjá þeim fyrirtækjum þar sem aðrar aðstæður eru við hlítandi. — Horfirðu þá fram á samdrátt hjá fyrirtæki þínu? — Já, ég reikna með að sauma iðnaðurinn hjá mér eins og ýms um fleirum, dragist eitthvað sam an, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Þetta er mjög óheppi- legt, þar sem margt fólk, sem vinn ur í saumaiðnaðinum, á erfitt með að fá sér aðra vinnu ef þessi starf semi leggst niður og vinnuafl þess nýtist þá ekki. Virðist mér líka ^ósanngjarnt gagnvart því fólki, sem um langa ævi hefur helgað sig þessum störfum að hleypa skyndilega inn á markaðinnn verð fallsvörum (diumping) og gera þar með starfskrafta þess ónothæfa. Til eru lög gegn slíku, en þeim hefur ekki verið beitt hér. Ná grannaþjóðir okkar hafa aftur á móti beitt samskonar lögum hjá sér, og leggja aukatoll á slíkar vörur — eða hindra með ýmsum ráðum innflutning þeirra að mestu leyti — þó innflutningur sé frjáls í orði kveðnu. Nú er svo komið, að skóiðnað ur hefur svo til lagzt niður hér á landi, mikið af prjónavöruiðnað inum hefur lagzt niður — og mörg fyrirtæki í saumaiðnaðinum hafa ýmist hætt eða dregið mjög sam an. Sést þetta bezt á því, ef litið er yfir gamla lista yfir staríandi fyrirtæki í þessum greinum. Skoð un mín er sú, að með einhverju móti ætti að styðja við bakið á þeim iðnaði, sem hér hefur komizt á rekspöl, svo hann komist sem áfallaminnst út úr þeim örðug leikum, sem hann nú er í, þvi ég tel hér að verulegu leyti um stundarfyrirbrigði að ræða, sem skapazt hafa vegna verðbólgu og annarra atvika. En síðar munu ýms ar iðngreinar geta farið að flytja út vörur sínar — auk þess að vera til ómetanlegra búdrýginda og jafnvægis í þjóðarbúskapnum. Því er ekki að treysta að við getum alltaf sóað erlendum gjaldeyri eins frjálslega og við gerum nú. FLUGVÉL FERST Framhald af bls. 1 þó uim radaraðstóð en örfá um sekúndum síðar hrapaði flugvélin í skóglendí um 2 km frá brautarenda og varð alelda á skamrr\i stund. Mikill skortur var á blóði hjá sjúikrahúsunum í Lju bljina, og voru hjálparbeiön ir sendar út án afláts í morg un þar sem margir þeirra, sem ko'must lífs af voru illa slasaðir. Farþegarnir voru allir brezkir aðallega skrlfstofu- fólk og tækniimenn. Enn eru engu slegið föstu um or sakir slyssins, en júgóslavn esk loftferðayfirvöld litu þess getið í dag að flug vélin hefði haft óvenjulega lágt aðflug, eða um 20 m, sem er ólögleg hæð. Slysið varð rétt eftir mið nætti í ágætu skyggni. í kvöld bom Dyke David son, forstjóri flugfélagsins til Ljubljana og sagði hann við fréttamenn að hann hefði e'kki hugmynd um, hver orsök þessa hörmulega slyss væri. KARTÖFLUMÁLIÐ Framhald af bls. 16 skemmdu og óskemmdu kartafln- anna hefði verið mjög misjafnt og jafnvel hefði þurft að henda 3/4 hlutum úr poka vegna skemmda. Menn hefðu aldrei vit- að hvernig kartöflur hefðu komið úr pokunum, þar sem þeir hefðu verið lokaðir. Aðspurður kvað Sveinn Neytendasamtökin aldrei hafa kvartað beint til grænmetis- verzlunarinnar, því að bæði kaup- menn og einstaklingar auk dag blaða hefðu kvartað yfir þessum slæmu kartöflum við grænmetis- verzlunina Sveinn kvað Neytendasaniinkin hafa talað sérstaklega við saup- menn, til þess að fylgjasi með ástandinu. þvi að mest væri kvart- að íil þeirra Sveinn sagði enn- fremur, að Neytendasamtökin hefðu látið sérfróða menn rann- saka kartöflurnar, að visu ekki ná- kvæmlega, þar sem grænmetisverzl unin hefði gefið opinbera yfirlýs- ingu þess efnis, að ástandið færi að lagast. Næst var kallaður fyrir dóminn Jóhann Jónsson, forstjóri og lagði hann fram skjöl, sem dómurinn tók til greina. Voru það sex skjöl, í fyrsta lagi greinargerð um inn- flutning kartaflna, í öðru lagi skoð unarvottorð og auk þess fjögur bréf. Jóhann kvað Grænmetisverzl unina hafa séð fram á kartöflu- skort í apríl. Því hefði verið sótt um að flytja inn kartöflur erlend- is frá og hefði fengizt leyfi frá ráðuneytinu að flytja inn kartöfl- ur frá írlandi í maí og Portúgal í júní. Leyfi fyrir þessum tveim kartöfluflutningum hefði verið und antekning, þar sem gin- og klaufa veiki var í Evrópu. Jóhann kvað engar sérstakar kvartanir hafa borizt um írsku kartöflurnar, það hefði verið kvatað yfir þeim eins og öðrum kartöflum vegna mis- munandi smekks manna, sumir vilja stórar, hvítar og mjölvaðar en aðrir, litlar, gular kartöflur o.s.frv. Jóhann kvað stöngulsýki hafa komið upp í portúgölsku kartöfl- unum, þar sem þær komu seinna til sölu á markaðinum en gert hafði verið ráð fyrir. Þessa sýki kvað Jóhann byrja inni í kartöfl- unum og því væri ekki unnt að greina skemmdar kartöflur á auð- veldan hátt frá öðrum kartöflum sem óskemimdar væru. Grænmet isverzlunin hefði samt í upphafi gert ráðstafanir til úrbóta. Mann- skapur hefði verið aukinn við að tína skemmdu kartöflurnar frá hinum óskemmdu, og verzlunin reyndi ennfremur að pakka aðeins kartöflum til eins dags í senn. Ennfremur var kaupmönnum og neytendum tilkynnt, að ef skemmd ar kartöflur fyndust í pokunum, mætti skila þeim aftur. Hann kvað þessar ráðstafanir hafa verið gerð- ar vegna þess að rýrnun portú- gölsku kartaflnanna væri um 9% í stað venjulegra 5% rýrnum á kgrtöflum. Jóhann tók aðspurður fram, að öll evrópsk lönd fengju aðeins að flytja út 1. flokks matarkartöflur og því væru erlendu kartöflurnar settar hér í 1. flokk. Hann kvað annað hvort Grænmetisverzlunina senda mann utan til eftirlits með kartöflunum eða þá að sérstök eft- irlitsfélög væru fengin til þess að skoða kartöflusendingarnar. Aðspurður um umbúðir kartafln anna, kvað Jóhann þær keyptar áletraðar frá Finnlandi. Þegar er- lendar kartöflur væru seldar hér, væri strikað yfi íslenzka tegund- arheitið en 1. flokkur látinn standa. Ástæðan fyrir því í sumar að 1. flokkur hefði verið látinn standa, væri sú, að óheppilegt hefði verið talið að ekkert stæði á portúgölsku kartöflupokunum, sem komu á eít ir þeim írsku á markaðinn, og einnig væru þær keyptar á fyrsta flokks verði og því seldar sem slík ar. Er vitnisburður Sveins var les- inn fyrir Jóhanni lét hann bóka tvær athugasemdir. í fyrsta lagi, að hann hefði talið það æskilegra og fljótvirkari aðferð til úrbóta, að stjórn Neytendasamtakanna hefðu tilkynnt grænmetisverzlun- inni um kvartanirnar, og í öðru lagi lét hann bóka, að hann hefði ekki gefið neinar opinberlegar yf- irlýsingar um, að ástandið f kart öflumálunun\ væri að batna. Einn ig tók hann það fram að hann hefði aldrei trúað því, að Neyt- endasamtökin skyldu kæra meðan hann væri í útlöndum. Dómsformaður. Guðmundur Jónsson. frestaði rannsókn máls- ins og bað ennfremur um, að Grænmetisverzlun landbúnaðarins legði fram kartö^lupoka við næstu yfirheyrslur. sem að líkindum verða á morgun. Móðir okkar tengdamóðir og amma, Kristín E. SigurSardóttir frá 'Hrísum verður jarðsungin frá FossvOgskirkju laugardaginn 3. september kl. 10.30 fyrir hádegi. Athöfninni verður útvarpað Börn, tengdabörn og barnabörn. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarð- arför eiginmanns mins, föður, tengdaföður og afa Haraldar Sigvaldasonar Brúarhóli, Mosfellssveit. Steinunn Sveinbjarnardóttir, Sigvaldi Haraldsson, ' Úlfhildur Geirsdóttir og barnabörn. Móðir okkar, Árný Valgerður Einarsdóttir lézt að Elliheimilinu Grund 31. ágúst, fvrir hönd systkinanna Kristín Gísladóttir. •iM« Innilegar þakkir faerum við þeim öllum. sem sýndu okkur hlut- tekningu vinarhug og samúð, við veikindi andlát og jarðarfarir, systkinanna Guðrúnar Þorfinnsdóttur Sigurðar Þorfinnssonar frá Brandsstöðum og frá Skeggsstöðum, Vandamenn Marsvínið dautt SJ—Reykjavík, fimmtudag,' Þær fréttir bárust í dag frá Fær eyjum, að marsvínið, sem fangað var þar fyrir nokkru og sett í sund laug og síðan flutt til Englands, hafi látizt í Englandi fyrir skömmu. Englendingar vilja ekki gefast upp við svo búið, og hafa farið fram á það við Færeyinga, að þeir reyni að ná öðru marevíni Iifandi og þá helzt eldra en það, sem þeir fonguðu síðast. Trúlofunar- hringar afgreiddir samdægurs. Sendum um tllt land. H A L L D Ó R Skólavörðustíg 2. TRÚLOFUNARHRINGAR Flfót afgreiðsla. Sendum gegn póstkröfu. Guðm. Þorsteinsson, gullsmiður. Bankastræti 12. Björn Sveinbförnsson, hæstaréttarlögmaður Lögf ræði sk r i tstof a Sölvhólsgötu 4, Sambandshúsinu. 3. hæð Slmar 12343 og ?333Ð Einangrunargler Pramleitt einungis úr úrvals gleri — 5 ára ábyrgð. Pantið tímanlega. KORKIÐJAN H F., Skúlagötu 57 Simi 23200-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.