Tíminn - 08.09.1966, Page 14
14
TÍIWINN
IÞRÓTTIR
Framhald af bls. 13
að markinu — sveigði örlítið á
fluginu og þaut efst í markvinlcil-
inn — algerlega óverjandi — og
sjaldan eða aldrei hefur maður
séð fallegra mark skorað á Laugar
dalsvelli. Þetta hitaði áliorfendum
vissulega í kuldanum, og þeir
hrópuðu og heimtuðu, að KR-ing-
ar jöfnuðu. En örfáar míntur voru
til leiksloka — og fleiri urðu mörk
in ckki.
KR-ingar sýndu lofsverða við-
leitni í leiknum. Vörnin komst all
vel frá leiknum — eftir mistökin
í byrjun — með Ársæl sem bezta
mann, og á miðjunni lék Ellert
•dhram mjög vel —- senilega bezti
Jeikur hans í sumar, og Þórður
Jónsson átti einnig góðan leik sem
fraimvörður. f framlínunni bar
Gunnar Felixson af og dreifði spil
inu skemmtilega og skapaði sam-
herjum sínum góð tækifæri. Ey-
leifur lék og nokkuð vel en fór illa
rneð beztu tækifærin í leiknuni
í heild sýndi liðið betri leik en
hinir bjartsýnustu gátu reiknað
með.
Nantes hefur mjög skemmtileg-
um leikmönnum á að skipa — og
leikni leikmanna var aðdáunar
verð í kuldanum á Laugardalsvelli
í gærkvöldi. Simon og Gonet voru
beztir og framvörðurinn Sueau-
deau er einnig afburðaleikmaður
En leikmennirnir eru flestir litlir
og ekki mundi undirrit. veðja á
þá í leik við beztu ensku eða ít-
ölsku liðin. Þar yrðu þeir bókstaf-
lega troðnir niður og því hefur
þáttaka liðsins í Evrópukeppninni
ávallt verið stutt.
—hsím
ALUSUISSE
Framhald af bls. 1.
segir þar frá heimkomu for-
sætisráðherra og síðan:
„Morgunblaðið náði snöggv
ast tali af forsætisráðherra og
sagði hann, að aðalerindi sitt
til útlanda hefði verið að ræða
við forráðamenn Aluswiss í
Svisslandi. Hefðu það verið
gagnlegar og ánægjulegar við-
ræður, þar sem fjallað var um
málefni fyrirtækisins og vænt-
anlega starfrækslu álverk-
smiðju hér á landi. Skoðaði
forsætisráðherra jafnframt
þrjár af verksímiðjum fyrirtæk-
isins.“
Þar semekki verður á þess
ari fregn séð, hvort hið yfir-
lýsta „aðalerindi“ forsætisráð-
herrans, sem á engan hátt var
greint frá, er hann fór utan,
hefur verið einkaerindi sprott-
ið af áhuga hans á starfi hins
svissneska fyrirtækis, eða er-
indrekstur í þágu þjóðar eða
ríkisstjórnar, er réttmætt að
biðja um skýr svör við því,
hvort hafi verið. Hafi þetta
„aðalerindi" verið í nafni og
þágu ríkisstjórnarinnar á þing
og þjóð rétt á nánari greinar-
gerð um þessar viðræður, en
hafi þetta verið einkaerindi
hans, væri óréttmætt að biðja
um frekari skýrslu að svo
komnu máli.
VARNARLIÐIÐ
Framhald af bls. 1
muni úr fjölda annarra áhorfenda
en varnarliðsmanna, þannig að
hægt verði að varðveita hinar
ódýru útsendingar og fjölbreytni
varnarliðssjónvarpsins, sem byggj-
ast á, að ekki var áður um að
ræða samkeppni af hálfu annarra
sjónvarpsstöðva. Þess vegna er
lagt til, að sjónvarpsútsendingum
ve'rði breytt þannig, að venjuleg
sjónvarpsmóttaka á heimilum
verði takmörkuð að svo miklu
leyti sem hægt er, við næsta ná-
grenni Keflavíkurflugvallar, þar
isem varnarliðið dvelur. þetta
rnundi verða framkvæmt á þeim
tíma, sem ríkisstjórn fslands álít-
ur heppilegastan, væntanlega þeg-
ar íslenzka sjónvarpið hefur út-
sendingar sínar, til þess að valda
íslenzkum áhorfendum AFRTS
sjónvarpsins sem minnstum óþæg-
indum.
Ég er þess fullviss, að þér mun-
uð skilja nauðsyn þessara aðgerða
og ég vænti samþykkis yðar og
ráðs um það, hvenær þessar að-
gerðir skuli koma til framkvæmda.
Sign. Ralph Weymouth.
Utanríkisráðuneytið.
Hinn 7. september 1966.
Herra aðmíráll.
í bréfi yðar dags. í gær skýrið
þér frá vandamálum í sambandi
við rekstur sjónvarpsstöðvar yðar
í Keflavík og þeirri ósk yðar að
breyta núverandi sjónvarpsaðstæð
um.
Með tilliti til þess ástands, sem
bér lýsið, mun ríkisstjórn íslands
»?kki vera mótfallin tillögu
i.'óar um að draga úr sjónvarpsút-
isendingum yðar, þannig að þær
iverði takmarkaðar við venjulega
•sjónvarpsmóttöku á heimilum í
inæsta nágrenni Keflavíkur.
Þar sem mörg sjónvarpstæki og
loftnet, sem nú eru í notkun munu
þurfa breytinga við, til þess að
hægt sé að nota þau til móttöku
ó íslenzku sjónvarpi, er þess ósk-
að, að breytingarnar á Keflavíkur
AFRTS tsendingunum verði sam
ræmdar tilkomu íslenzka sjóh-
varpsins.
Sign. Emil Jónsson.
Utanríkisráðuneytið, Reykjavík,
7. september 1966.
PER BORTEN
Framhald af bls. 1.
ar þeirra forsæitisráðherrahjón-
anna hér á landi þessa haustdaga,
en þau munu ferðast víða, bæði
sunnanlands og norðan. í dag heim
sækja þau forsetann, herra Asgeir
Ásgeirsson í skrifstofu hans í
Alþingishúsínu, en síðan gengur
Borten á fund forsætisráðherra í
Elskuleg eiginkona mín.
Guðrún Johnson Einarsson
sem lézt 2. september, verður jarSsungin frá Fossvogskirkju föstu-
daglnn 9. september kl. 10.30. Athöfninni veröur útvarpaS.
Benjamín F. Einarsson.
Útför
Árnýar Valgerðar Einarsdóttur
frá TorfastöSum,
er andaðist að Elliheimilinu Grund. 31. ágúst s. I. fer fram frá
Úlfljótsvatnskirkju laugardaginn 10, sept. n. k. kl. 3. e. h. Kveðju
athöfn f Fossvogskapellu, kl. 10.30 sama dag. Bílferð austur að lok-
inni kveðjuathöfn.
Börn og tengdabörn.
Stjórnarráðinu og ræðir við hann
og Eimil Jónsson, utanríkisráð-
herra. Sköimimu eftir hádegið verð
ur athöfn í Fossvogslkirikjugarði.
Hádegisverð snæðir norskí for-
saatisráðherrann að Bessastöðum,
en síðan verður ekið um Reykja
vík og nágrenni. Um kvöldið sitja
gestirnir kvöldverðarboð ríkis-
stjórnarinnar að Hótel Sögu.
Vélahreintjerninq
Vanir
menn.
Þrifaleg,
fljótleg,
vönduð
vinna.
Þ R I F —
simar
41957 og
33049.
ÖKUMENN
Látið athuga rafkerfið 1
bflnum.
Ný mælitæki
RAFSTILLING.
Suðurlandsbraut 64,
simi 32385
(bak við Verzlunina
Alfabrekku)
BARJVALEIKTÆKJ
!
★
ÍÞRÓTTATÆKl
Vélaverkstæði
Bernharðs Hannessonar,
Suðurlandsbraut 12,
Simi 35810.
Smíðum svefnherbergis-
og “íidt.úsmnréttingar
SlMI 32-2-52.
FIMMTUbAGUR 8. seþtember 1966
L.Kriý\
3 hraðar, tónn svo af ber
I 11111 x>\
BELLAMUSIGA1015
Spilari og FM-útvarp
I’IVriW
AIR PRINCE 1013
1 j j
Langdrægt m. bátabylgju
Radióbúðin
Klapparstfg 26, simi 19800
TREF.IAPI.AST
PLASTSTEYPA
Húseigendur! Fylgizt með
tfmanum Ef svalirnar eða
þakið þarf endurnýjunar
við eða ef þér eruð að
byggja bá látið okkur ann-
ast um lagningu trefja.
plasts eða plaststeypu á
þök, svalir. gólf og veggl é
húsum yðar, og þér burfið
ekki að hafa áhyggjur af
þvl í framtíðinni.
Þorsteinn Gislason,
málarameistari,
sfmi 17-0-47
Austurferðir
Til Gullfoss og Geysis alla
daga tfl 15. okt. Til Laugar
vatns alla daga til 15 okt.
Tii Reykjavíkur á hverju
kvöldi.
Síðustu ferðir til Reykja-
víkur úr Suðurlandskjör-
dæmi frá Selfossvegamót-
um kl. 8.50 til 9.
Vestur Hellisheiði kl. 9.20
e.h.
Bifreiðastöð íslands
sími 22 300
Ólafur Ketilsson.
BRIDGESTONE
HJÓLBARÐAR
Síaukin sala
BRIDGESTONE
sannar gæðin.
Veitir aukið
öryggi I akstri.
BRIDGESTONE
ávallt fyrirliggjandi.
GÓÐ ÞJÖNUSTA —
Verzlun og vfðgerðlr.
Simi 17-9-84
Gúmmíbarðinn h.t,
Brautarholti 8,
Klæðningar
Tökum að okkur Kiæðning
,ar jg viðgerðir á tréverki
á bólstruðum húsgögnum
Gerum einnig tilboð t við-
haiö og endurnviun á sæt
um i Irvikmvndahúsijm fé-
lagsheimilum sætlunarbit
reiðum og óðrum bifreið
um i Revkiavík oe nær
sveitum
Húsgagnavinnu»rota
^'*rna op Samósls,
Efstasundi 71 Reykjavib
stmi 33-6-13
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
SKÓR-
INNLEGG
Smfða Orthop-skó og tnn-
legg eftir máli Hef einnig
tilbúna barnaskó. með og
án innleggs
Davíð Garðarsson.
Orthop-skósmiður
Bergstaðastræti 48,
Sími 18893.