Tíminn - 15.09.1966, Qupperneq 12
12
IÞROTTIR
TÍMINN
FEVIMTUDAGUR 15. september 1966
■ . .............................................. ' ' ■ ■
v 5N-" v' VVs’"'x'"
Jens og Haukur stefna aS Vals-markinu í leiknuni í gærkvöldi, én Sigurður Dagsson hefur gripið inn í.
(Tímamyn<í Bj.Bj.)
Vaísmenn í úrslit
a
- en voru „rændir“ nokkrum iöglegum mörkum.
Landsliðsnefnd
með „4-2-4“ í
huganum, þegar
iiðið var valið
Landsléikur við áhugamcnn
Erakka er framundan og íslcnzka
landsliðið hefur verið valið. Og í
fyrsta skipti í langan tíma skeður
það nú, að mjög skiptar skoðanir
eru um val landsliðsnefndar. Kann
ski ræður mestu um það, að lands
liðsnefnd tók þá fífldjörfu ákvörð
un að velja Óskar Sigurðsson, KR
í stöðu vinstri bakvarðar, en Ósk
ar hefur aðeins í sárafá skipti leik
ið þessa stöðu með KR liðinu, en
gert henni því betri skil. Persónu
lcga er ég sannfærður um að Ósk
ar muni ekki skila stöðunni verr
en aðrir, sem til greina koma, jafn
vel betur. En það er svo önnur
saga, að „móralskt“ er ákvörðun
landsliðsnefndar hreint kjafts
I högg, á þá hefð, sem hún hefnr
sjálf skapað á undanförnum
árum.
En nóg um það, og snúum okk
ur að öðru umdeildu atriði. Lands
liðsnefnd hefur verið gagnrýnd
harðlega fyrir að velja Anton
Bjarnason í stöðu miðvarðar. Að
vissu marki á sú gagnrýni rétt á
sér, því að Anton er æfingalítill,
og það kann sjaldan góðri lukku
að stýra að treysta á æfingalitla
Alf-Reykjavík. — Valur og
Keflavík verða að leika aukaleik
um fslandsmcistaratitilinn í knatt
spymu 1966, því bæði liðin hafa
hlotið 14 stig- Valsmenn kræktu
í stigin 2, sem upp á vantaði, >
leik gegn Þrótti í gærkvöldi með
1:0 sigri, naumur sigur toppliðs
gegn botnliðinu, og svo hlálega
vildi til, að þetta eina mark Vals
var greinilegt rangstöðumark.
Knötturinn var sendur fram miðj
una af Vglsmanni á 6. mín. leiks
ins í átt að Þróttar-markinu. Þeg
Sundstaðirnir
í Rvík opnir
til miðnættis
f dag eru síðustu forvöð að synda 200 metrana í norrænu sund-
keppninni, og verða sundstaðimir í Reykjavík opnir til miðnættis í
kvöld. Úti á landi verða sundstaðimir víðast hvar einnig opnir til
miðnættis.
Hér með er skorað á alla þá, sem eiga eftir að synda 200 metrana,
að láta verða af því í dag eða kyöld. Þátttakan hefur heldur aukizt
síðustu daga, en betur má ef duga skal. Stefnum að sigri íslands í
norrænu sundkeppninni!
ar það skeði var Ingvar Elísson
einn fyrir innan alla Þróttar-vöro
ina. Knötturinn snerti varnarmann
Þróttar og hrökk til Ingvars, sem
ekki var seinn á sér og skovaði
framhjá Guttormi í markinu.
í knattspymulögunum segir svo,
að ef knötturinn lfomi frá mót-
herja — þama frá Þróttara — sé
maður ekki rangstæður, þótt hann
sé einn fyrir innan. En þessi túlk
un á ekki við í þessu tilviki, því
línuvörður átti að veifa strax og
knettinum var spymt á rangstöðu.
Rangstaða miðast alltaf við, tþegar
knettinum ér spyrnt, en ekki
hvenær tekið er við honum. Hin
túlkunin á við, þegar varnarmað
ur sendir knött í átt að marki, en
sóknarmaður, sem stac^dur er fyr
ir innan, nær honum.
En þótt Valur hafi unnið leik
inn á rangstöðumarki, ‘ þurfa
Þróttarar í sjálfu sér ekki að
vera mjög óánægðir, því að í a.
m. k. tveimur tilvikum tók dómar
inn, Rafn Hjaltalín, af Valsmönn
FTamhald á bls. 14.
menn í stórleikjum. En hvaða aðra
menn eigum við í þessa stöðu? Það
er bent á Sigurð Albertsson, en
leikur ekki Sigurður í miðvarðar
stöðu í liðinu? Það liggur í aug-
um uppi, að landsliðsnefnd velur
liðið með það fyrir augum, að láta
það leika „4-2-4“ og þá myndu
Sigurður og Anton báðir leika mið
verði, alveg eins og skeði í lands
leiknum á móti Wales og heppn
aðist prýðjlega. Það er því út í Ioft
ið að tala um stöðubreytingar. Sig
urður verður alla vega á miðjunni.
Og þótt Ellert Schram sé stíllt
upp sem innherja, kemur það af
sjálfu sér, að hann mun draga sig
til baka og Ieika annan tengilið.
Tveir góðir leikmenn hverfa úr
framlínunni frá síðasta landsleik,
Gunnar Felixson og Jón Jóhanns-
son, en Karl Hermannsson og Kári
Árnason koma inn fyrir þá. Það
er mjög hæpin ráðstöfun að skipta
á þeim Gunnari og Karli, en erf-
itt að gera upp á milli Jóns og
Kára, því að báðir eru marksækn
ir.
Og lítum þá á uppstillingu liðs
ins — „4-2-4“'og gleymum gamla
V-kerfinu, sem nú heyrir að mestu
sögunni til:
Sigurður Dagsson
Árni Njálsson, Anton Bjarnason, Sigurður Albertsson, Óskar Sigurðsson
.... Magnús Torfason, Ellert Schram
Reynir Jónsson, Kári Árnason, Henmann Gunnarsson, Karl Hermannsson.
—alf.
60 þúsund pund
fyrir markvörð
Sextíu þúsund pund er gífurleg
upphæð fyrir markvörð, en Matt
Busby, framkvæmdastjóri Manch.
Utd. er reiðubúinn að greiða þá
uppliæð fyrir Alec Stephney, sem
leikið hefur í enska landsliðinu
leikmenn yngri en 231 ára. Talið
er öruggt, að samningar takist
í dag og upphæðin er sú lang
hæsta, sem nokkru sinni hefur ver
ið greidd fyrir markvörð.
Chelsea keypti Stephney í vor
frá Millvall fyrir þúsund pund
-----sem þá var metupphæð, —
enda jþótt með Chelsea léki Bonetti
einn þeirra markvarða, sem Alf
Ramsey valdi fyrir heimsmeist-
Fraimihald á bls; 15.
Bikarleikur
í Hafnarfirði
í kvöld fer fram í Hafnarfirði
leikur í Bikarkeppni KSÍ. Mætast
Fram og FH. Fram lék á móti
Val b sl. mánudagskvöld og sigr-
aði með 4-2. Leikurinn í kvöld
hefst klukkan 18.15.
Fram lenti í úrslitum á möti Dukla Prag
- eftir að hafa sigrað pólska landsliðsmenn. Tékkóslóvakíuför Fram lokið.
Alf — Reykjavík. — Meist
araflokkur Fram í handknatt
leik hefur nú lokið keppnisför
sinni í Tékkóslóvakíu. Síð
asti leikur Fram var gegn hinu
heimsfræga liði Dukla Prag —
sama liðinu og sló FH út í
Evrópubikarkeppninni síð-
asta vetur — og var það úr-
slitaleikur í hraðkeppnismóti.
Dukla sigraði Fram með 20-13
og var þar með sigurvegari í
mótinú. Fjögur lið tóku þátt
í hraðkcppninni, Dukla Prag,
Fram, Karviná, og annað sterk
asta félagslið Póllands. í upp
hafi var gert ráð fyrir, að
pólska landsliðið og tékkneska
unglingalandsliðið tækju þátt í
keppninni, en ekki gat orðið
úr þvj.
Til þess að komast í úrslit
á móti Dukla þurfti Fram að
sigra pólska liðið, sem m.a var
skipað nokkrum landsliðsmönn
um. Leikurinn var hörkuspenn
andi, að sögn Birgis Lúðvíks-
sonar, formanns handknatt-
leiksdeildar Fram, og lauk með
fjögurra marka sigri Fram 15-
11.
„Hefðum við haft Gunnlaug
Hjálmarsson og Sigurð Einars
son með í förinni, hefðum við
án efa getað veitt Dukla Prag
meiri mótspyrnu í úrslitaleikn
um,“ sagði Birgir. Hann lét vel
af förinni, þrátt fyrir löng
ferðalög, sem liðið þurfti að
fara, og sagði, að móttökur
hefðu verið framúrskarandi
góðar. „Annars háði okkur. að
allir leikirnir voru leiknir ut-
anhúss á malarvöllum í steikj
andi hita. Það hefur aldrei ver
ið okkar sterkari hlið að leika
handknattleik utanhúss,“ sagði
Birgir að lokum.
Eins og sagt var frá í blað
inu í fyrradag, sigraði Frám í
fyrsta leiknum á móti Dukla
Vyskov 25-24. í öðrum leik
tapaði Fram fyrir Hraná 14-16
og í þriðja leik gegn gestgjöf
um sínum, Karviná, 18-22, sigr
aði pólska liðið í hraðkeppni,
en tapaði síðan fyrir Dukla
Prag í úrslitum. Vann Fram
því tvo leiki í förinni en tap
aði þremur.