Vísir - 19.08.1975, Page 3
Visir. Þriðjudagur 19. ágúst 1975
3
Hótelþjófnaður:
DÝRUM
LJÓS-
MYNDA-
TÆKJUM
STOLIÐ
Ljósmyndatækjum aö verð-
mæti hundruð þúsunda króna
var stolið frá þýzkum ferðalangi
á Gamla Garði á laugardaginn.
Þjóðverjinn er hér á ferð með
hópi annarra ferðamanna.
Hann skildi stóra svarta leður-
tösku eftir i opinni geymslu með
farangri félaga sinna á milli
klukkan 16 og 21 á laugardaginn
er hann skrapp frá. Er
Þjóöverjinn fór að vitja um tæki
sin, kom i ljós, að þau voru .
horfin.
í töskunni var myndavél af
Canon gerð, linsur, ljósmælir og
annað er tilheyrir ljósmynd-
un.Afgreiðslustúlka i gestamót-
töku sá mann ganga út af hótel-
inu á sjötta timanum um
kvöldið og var sá með tösku af
sömu tegund og saknað er undir
hendinni. Maður þessi var i gul-
um regnstakk og i bláum bux-
um.
Rannsóknarlögreglan biður
þá, sem annað hvort kynnu að
hafa orðið varir við ferðir um-
rædds manns með töskuna eða
þau ljósmyndatæki, sem stolið
var, að hafa samband við sig.
Alþjóðleg vörusýningin:
W
SYNINGARDEILDIR
RÍSA í LAUGARDAL
1 Laugardalshöllinni og I
kringum hana er nú unnið af
fullum krafti að uppsetningum
fyrir Alþjóölegu vörusýninguna,
sem hefst þar á föstudaginn.
BUið er að reisa þúsund fer-
metra risskemmu öðru megin
við hana. Hún verður einn af
sýningargripunum en inni i
þessum sýningargrip verða svo
aðrir, þvi skemman er jafn-
framt framhald af sýningar-
deildunum sem eru inni i höll-
inni.
Hinum megin við höllina eru
svo að rísa tvö sumarhús.
Annað þeirra er islenzk fram-
leiðsla, frá Þaki hf. Það er
fimmtiu fermetrar að stærð og
auk þess verður tólf fermetra
svefnloft.
Hitt húsið er norskt að upp-
runa og það er Astún sf. sem
flytur það inn. Það er svipað að
stærð og fslenzka húsið. Bæði
húsin eru til sölu og kosta hvort
um sig um 3 milljónir og það
tekur um viku að reisa þau á
nýja staðnum, ef einhver vill
fara með þau beint af sýning-
unni. —óT
Það var unnið af ekki minni krafti við norska sumarhúsið. — Myndir BG.
—JB
Enginn
gallaður
bíll hér
Litið var flutt inn af bilum
árin 1968 og 1969 og enginn af
umræddri tegund, voru upp-
lýsingar, sem blaöið fékk hjá
Fordumboðinu Sveini Egils-
syni fyrir heigina.
Sex hundruð þúsund bflar af
gerðunum Ford Mustang og
Ford Cogir, sem framleiddir
voru árin 1968 og 1969,
hafa við athugun reynzt með
gölluð sæti, sem hætta er á að
falli niður og fipi þannig öku-
manninn við akstur. Sam-
göngumálaráðuneytið i Was-
hington hefur þvi gert Ford
verksmiðjunum að skyldu að
innkalla umgetna bila og gera
á þeim lagfæringar.
Enginn bill af þessari teg-
und er hér á landi að sögn
Fordumboðsins. —JB
Stjórnað með
silfurtónsprota
— ó sinfóníutónleikum í Hóskólabíói
M j ö g m i k i 1
stemmning rikti á
hljómleikunum sem
hin 100 manna sinfóniu-
hljómsveit, skipuð
ungu fólki, hélt i gær-
kvöldi i Háskólabiói.
Ragin Wenk Wolf, sem er að-
eins 16 ára, tók að sér að vera
konsertmeistari i Passacagliu
eftir Jensen og lék auk þess ein-
leik f verkinu.
Einleikur Camillu Wicks i
fiðlukonsert Sibeliusar var
frábær.
Sverrir Garðarsson, for-
maður Félags islenzkra
hljómlistarmanna, bauð forseta
Islands dr. Kristján Eldjárn og
aðra gesti velkomna, og ólafur
Thors afhenti hljómsveitar-
stjóranum, Karsten Andersen,
silfurtónsprota i tilefni tónleik-
anna.
Þvi miður var á þessum
ókeypis tónleikum aðeins hálft
hús. Það hafa sem sagt margir
misst af þvi tækifæri sem þarna
gafst til að hlusta á góða tónlist.
Auk þess að sjá svona margt
ungt tónlistarfólk hafa svo gott
vald á hljóðfærum sínum.
Hljómsveitin leikur i Loga-
landi i Borgarfirði á miðviku-
daginn, í Árnesi i Árnessýslu á
föstudag og svo aftur i Háskóla-
bfói á laugardag.
Sem fyrr segir er aðgangur
ókeypis að öllum tónleikunum.
JHP/EVI
Bjóða forkaupsrétt sem
fœr vart staðizt
Nokkrar sveitarstjórnir hafa
undanfariö boðið til söiu skulda-
bréf, sem nema allt að 20%
byggingarkostnaðar leigufbúöa
þeirra, sem byggðar eru sam-
kvæmt iögum nr. 59 frá 1975. Þar
er meöal annars ákvæði um, að
heimiit sé að veita allt að 80%
byggingarkostnaðar að láni úr
Byggingasjóði rfkisins til
bvggingar þessara leiguíbúöa.
Jafnframt þvi að hafa sveitar-
stjórnir selt skuldabréf fyrir þvi,
sem á vantar, sumar með þvi for-
oröi, að skuldabréfakaupin veiti
kaupendum forgangsrétt til
kaupa á viðkomandi leiguibúð
eða Ibúöum að fimm árum liðn-
um. Þetta kemur fram i nýút-
komnu fréttabréfi frá Húsnæðis-
málastofnun rfkisins.
t fréttabréfinu segir ennfrem-
ur, að auglýsingar af þessu tagi
geti verið mjög villandi, og er
þess farið á leit við sveitarstjórn-
ir, að þær gefi ekki slik fyrirheit.
Aö visu er heimilað f reglugerð
að gera forkaupssamninga af
þessu tagi við einstaklinga, er
kaupa framangreind skuldabréf,
segir I bréfinu, en þar er lika
skýrt ákveðið, að óheimilt sé að
selja ibúðirnar fyrstu fimm árin,
sem þær eru f notkun.
Að þeim tima loknum verða
sveitarstjórnimar að afla sér
heimildar húsnæðismálastjómar
til að selja Ibúðirnar, og ekki unnt
að vita nú, hverjar aðstæður
verða fyrir hendi þar að lútandi
að fimm árum liðnum. Þar að
auki verða hugsanlegir
kaupendur ibúðanna að uppfylla
skilyrði reglugerðar um verka-
mannabústaði, hvað snerti
hámark eigna og tekna, og óger-
legtaö gera samninga um það nú,
sem eiga að gilda að fimm árum
liðnum. Forkaupsréttarboðið er
þvi I hæsta máta vafasamt.
24 sveitarst jornum hafa nú verið
veitt lán til byggingar 170 leigu-
Ibúð af þessu tagi, en 19 sveitar-
stjórnir hafa fengið leyfi til að
hefja framkvæmdir fyrir eigið fé
á byggingu 63 ibúða. Alls hefur 57
sveitarstjórnum verið heimilað
aö hef ja undirbúning að byggingu
samtals 339 ibúða, en i allt var
heimilað aö veita til 1000 ibúða á
vegum sveitarfélaga utan
Reykjavikur.
Húsnæðismálastofnunin hefur
óskað eftir þvi við sveitarstjórnir,
að þær samræmi sem mest þess-
ar byggingar og standi sem mest
saman að útboðum og inn-
kaupum, þannig að bygginga-
kostnaður verði ekki meiri en
brýnasta nauðsyn krefur.
Heiðar Eiimarsson er einn af eigendum Þaks hf. og er jafnframt húsa-
smiður, þannig að hann sveifiar hamrinum ekki siöur en aðrir, þegar
húsin eru reist. Hann er hér fyrir framan sýningargripinn.
Lögtök
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjald
heimtunnar i Reykjavik og samkvæmt
fógetaúrskurði, uppkveðnum 16. þ.m.
verða lögtök látin fram fara fyrir van-
greiddum opinberum gjöldum, skv. gjald-
heimtuseðli 1975, er féllu i eindaga þ. 15.
þ.m.
Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, eignar-
skattur, kirkjugjald, kirkjugarðsgjald,
slysatryggingargjald vegna heimilis-
starfa, iðnaðargjald, slysatryggingar-
gjald atvinnurekenda skv. 36. gr. 1. nr.
67/1971 um almannatryggingar, lifeyris-
tryggingargjaldskv.25. gr. sömu laga, at-
vinnuleysistryggingagjald, launaskattur,
útsvar, aðstöðugjald, iðnlánasjóðsgjald og
iðnaðarmálagjald.
Ennfremur nær úrskurðurinn til skyldu-
sparnaðar og skattsekta, sem ákveðnar
hafa verið til rikissjóðs og borgarsjóðs.
Lögtök fyrir framangreindum gjöldum, á-
samt dráttarvöxtum og kostnaði, verða
látin fram fara að 8 dögum liðnum frá
birtingu þessarar auglýsingar, verða þau
eigi að fullu greidd innan þess tima.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík,
16. ágúst 1975.
—SHH