Vísir - 22.08.1975, Blaðsíða 4
4
Vísir. Föstudagur 22. ágúst 1975
Laus staða
Staða ritara við Menntaskólann i Kópavogi er laus til
umsóknar. Hvort tveggja kemur til greina, fullt starf
eða hálf staða.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir meö Itarlegum upplýsingum um menntun og
starfsferil skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, Re'ykjavik, fyrir 17. september.
MeRHtamálaráðuneytið
19. ágúst, 1975.
FÓLKSBÍLADEKK - VÖRUBÍLADEKK -
TRAKTORSDEKK
Fyrirliggjandi flestar stæröir af japönskum TOYO
hjólbörðum.
Einnig mikið úrval af hinum vinsælu HOLLENSKU
HElLSÓLUÐU HJÓLBÖRÐUM á hagstæðu verði.
Sendum í póstkröfu.
HJÓLBARÐASALAN
BORGARTÚNI 24
Simi 14925.
Fýrstur meó fréttimar VÍSIR
Myndarammagler
glœrt og matt nýkcmið.
Selst í heilum kistum.
GLERSLÍPUN &
SPEGLAGERÐ Klapparstig 16.
Amerískar
KULDAÚLPUR
fyrir börn og fullorðna
/
MITTISÚLPUR
fyrir ungiinga og fullorðna
Verð síðan fyrir gengisfellingu
JpUTE||ÚTLÖNDÍ morgun útlönd í morgun útlönc
Kissinger með
nýjasta tilboð
ísraelsmanna
Óeirðarseggir i
Jerúsalem sveimuðu í
kringum vel varið hótel
Henry Kissingers, utan-
rikisráðherra USA,
hrópandi: „Farðu
heim!”
I mótmælum slnum gegn hinum
fyrirhuguðu samningum Israels-
stjórnar við Egypta, sem
Kissinger hefur haft milligöngu
um, höfðu ungmenni hindrað að
bifreið Kissingers kæmist um
götur við Knesset (þing ísraels),
og varð lögreglan að dreifa
mannfjöldanum með táragasi og
kylfum.
óánægjan er sprottin upp af
þeim* ugg margra ísraela, að i
samningunum gefi Israelsinenn
of mikið eftir i sölurnar fyrir of
litlar tilslakanir af hálfu Egypta.
— Reiðin beinist gegn Kissinger,
sem Gyðingar telja, að hafi hálf-
þvingaö Israelsstjórn til
samninga. Minna þeir óspart á
vopnahléssamningana I Vletnam,
sem Kissinger stóð að, en urðu
aðeins til þess að auðvelda
N-Vietnömum og Vlet Cong til
þess að bera Saigonstjórnina
ofurliði.
En á meðan bjuggu borgar-
búar I Alexandrlu sig undir að
veita Kissinger varmar mót-
tökur, þvi að Egyptar vænta sér
góðs af samningunum. Kissinger
var væntanlegur þangað I dag, og
flytur þá með sér siöustu tilboð
ísraelsstjórnar.
Israelskir hermenn urðu að A
beita táragasi og kylfum til að A
ryðja Kissinger leið um Jerúsa- r
lem I gær. Myndin hér við hlið-
ina var tekin þá.
ALÞJÓÐLEG
VÖRUSÝNING1975
INTERNATIONAL FAIR S
REYKJAVlK- ICELAND
Landsmenn,
lítió inn
hjá
Jórunni
í dag klukkan 6 opnum við Alþjóðlegu vöru-
sýninguna Reykjavík 75 i Laugardalshöll.
Þessi sýning er sú stærsta og f jölbreyttasta
sem haldin hefur verið á Islandi frá upp-
hafi vega. 610 framleiðendur sýna fram-
leiðsluvörur 24 þjóða i 124 sýningardeildum
á 8000 ferm. sýningarsvæði, i höllinni
sjálfri, i tjaldskála og á útisvæði. Segir
þetta ekki nokkuð um umfang sýningarinn-
ar? Við treystum okkur ekki út i nánari
upptalningu eða sundurgreiningu á vöru-
flokkum 'hér, en vekjum athygli á þvi að
sjón er sögu ríkari.
Vinningurinn i dag er 5 manna ævintýra-
ferð um Breiðafjörð með Flugfélaginu
Vængjum. Flogiðtil Stykkishólms, snæddur
hádegisverður á veitingahúsinu Nonna og
siðan4tíma sigling um Breiðafjörð. Flogið
til baka um kvöldið.
Tískusýningar:
Tiskusýningar með nýju sniði verða tvisvar
á dag alla daga vikunnar (nema á sunnu-
dögum). I kvöld sýna sýningarsamtökin
Karon og Modelsamtökin kl. 8.45.
POSTSENDUAA
NOKKUR ATRIÐI TIL ATHUGUNAR!
Gestahappdrætti:
Frumlegt gestahappdrætti, þar sem ferða-
vinningur verður dreginn út daglega, og
aðalvinningurinn, 14 daga ferð fyrir tvo til
Bangkok með Útsýn, verður dreginn út í lok
sýningar.
Opnunartími:
Sýningin verður opin virka daga f rá kl. 3 til
10 og frá 1.30 til 10 um helgar. Svæðinu lok-
að kl. 11.
Verð aðgöngumiða:
Verð aðgöngumiða á sýninguna er 350 krón-
ur fyrir fullorðna og 100 krónur fyrir börn.
Foreldrar athugið, að börnum innan 12 ára
aldurs er óheimill aðgangur að sýningunni
nema i fylgd með fullorðnum.