Vísir - 28.08.1975, Side 4

Vísir - 28.08.1975, Side 4
4 Vísir. Fimmtudagur 28. ágiist 1975 ÓNSKOLI SIGURSVEINS D. KRISTINSSONAR innritar nemendur á Breiðholtssvæði föstudaginn 29. ágúst og laugardaginn 30. ágúst. i húsi K.F.U.M. við Mariubakka kl 17-19 báða dagana. Námsgreinar: Blokkflautuleikur með söng og nótulestri i hópkennslu. Málmblásturshljóðfæri og pianó i einkatimum. Námsgjöldum verður veitt móttaka við innritun. Skólastjóri. Ryðvarnartilboð órsins Veitum 15% afslátt af ryðvörn auk hreinsunar á vél og vélarhúsi. Pantið tima strax. Tékkneska bifreiðaumboðið Ti.f. Auðbrekku 44-6 Simi 42604. 4ra - 5 herbergja íbúð óskast strax til leigu, helzt i vesturbænum. Upplýsingar gefnar í sima 14566 eftir kl. 1 næstu daga. Sendisveinn óskast eftir hádegi á afgreiðslu Visis. Notaðir varahlutir í flestar gerðir eldri ma: Vauxhall Victor 70 Willys jeep '55 Willys station '55 rússajeppi Chevrolet Nova '65 Falkon '64 Volga'66 '66 Höfðatúni 10, simi 11397. Opið frá kl. 9 — 7 alla virka daga og 9—5 laugardaga Tónskóli Sigur- sveins verður emmg uppi í Breiðholti Skólaráð Tónskóla Sigur- sveins D. Kristinssonar hefur sótt um byggingarlóð i Breið- holti i þvi augnamiði, að þar veröi byggt yfir skólann, svo hann geti einnig starfað þar efra i eigin húsnæði i framtiöinni. En til bráöabirgða verður kennt i hiisi KFUM við Mariubakka, og verður innritun i skólann á föstudag og iaugardag, 29.-30. ágúst. Þessinýbreytni er I samræmi við þá stefnu skólans, að sem flestir — allra helzt þeir, sem ekki eiga margra kosta völ — fái notið þeirrar tilsagnar, sem skólinn getur veitt. Fjarlægðir eru meðal þess, sem yngsta fólkið á örðugast með að yfir- stiga, og þvi hefur skólinn ákveðið að færa sig nær nemendum sinum. Aðöðru leyti verður skólinn eins og vant er i Hellusundi 7, og verður innritun þar 4.-5. september. Megináherzla verður lögð á hópkennslu i blokkflautuleik með söng og nótnalestri fyrir 7- 13 ára börn, en einnig er unnt að kenna á pianó og blásturshljóð- færi i einkatimum. — SHH Bœtt þjónusta Neytendasamtakanna Frá og með 1. september verður skrifstofa Neytendasam- takanna, Baldursgötu 12, opin frá 10-13 og 15-18 frá mánudegi til föstudags fyrir alla venjulega þjónustu. Siminn er sem áður 21666. Þann 15. september opna svo samtökin lestrarstofu fyrr félags- menn. Sem kunnugt er þurfa Is- lendingar að flytja mikið inn af vörum. Engin islenzk stofnun hef- ur hins vegar aðgang að óháðri rannsóknarstöð. Er þvi engum aðila mögulegt að gera saman- burð á kostum vara eða véla frá hinum ýmsu fyrirtækjum og lönd- um. Neytendasemtökin fá neytenda- blöð frá mörgum löndum og eru þar ýmsar upplýsingar að finna um vörutegundir og vélar, sem einnig fást hér. Til þess að gera félagsmönnum kleift að mynda sér skoðanir um kosti og galla vara verða öll erlendu blöðin til staðar á lestrarstofunni hjá Neytendasamtökunum frá 12-13 og 17-18 hvern virkan dag. Neytendasamtökunum berst margs konar fatnaður til umsagnar. Þvi miðurer hann svo oft ekki sóttur aftur. Þess vegna verður fatnaðurinn til sýnis i gluggum samtakanna frá 15. sept.-15. okt. Eftir það verður ósóttur fatnaður afhentur barna- heimilinu að Skálatúni. Eftir það geta menn ekki gert neinar kröfur á hendur Neytendasamtökunum. -EVI. Hóskólatónleikar: Eingöngu flutt verk Leifs Þórarins- sonar Háskólatónleikar veröa á fimmtudaginn kl. 21, þar sem eingöngu verða flutt verk eftir Leif Þórarinsson. Hann mun sjálfur stjórna Kammersveit Reykjavikur, sem flytur verkin. Fjögur þeirra eru samin á þessu ári — en hin eru mjög ný af.nálinni. Rut Little Magnússon mun syngja tvö lög um trúarlegt efni, Faðir vor, kvæði eftir Hallgrim Pétursson og Angelus domini, kvæði Halldórs Laxness. Tónleikarnir verða I Félags- stofnun stúdenta viö Hring- braut. -EVI. Skipt um myndir í vinnustofu Knudsens Sýningar vérða hafnar um mánaðamótin á eldri myndum Ósvalds Knudsens i vinnustofu þeirri.sem við hann er kennd. Þá lýkur sýningum þeim á ,,Eldi i Heimaey” og „Þjóðhátið á Þingvöllum”, sem staðiö hafa yfir nú I nokkrar vikur. Sérstakar sýningar eru fyrir erlenda ferðamenn — klukkan þrjú á daginn. Þá eru sýndar meðenskutali myndirnar „Eldur I Heimaey,” „Sveitin milli sanda” og „Heyrið vella á heiö- um hveri.” Þeim veröur haldið áfram eitthvað fram eftir haustinu, en aðsókn að þeim hef- ur verið mjög mikil, og hafa oft verið haldnar 3-4 aukasýningar fyrir þá. -SHH.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.